Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 62

Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.00  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I Sýnd kl. 5.30 8 og 10.30. Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára. S.V. MBL. SIDEWAYS Þ.Þ. FBl  Will Smith er     HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS  Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.  S.V. MBL.  K&F X-FM Sýnd kl. 1.30 og 3.30 m. Ísl tali Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna r r rí f rir l fj lsk l   Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS Sýnd kl. 2, 4 og 6 m. ísl. tali, Sýnd kl. 4 og 6 m. ensku tali  K&F X-FM ÓÖH DV Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l  Ó.H.T Rás 2    S.V. MBL ÓÖH DV  K&F X-FM  Ó.H.T Rás 2 Sýnd kl. 2 m. Ísl tali FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY  ÓÖH DV   ÓÖH DV  Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.45. kl. 2, 5, 8 og 10.45. Sýnd kl. 2, 4 og 6 m. ísl. tali Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 m. ensku tali F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS Every family could use a little translation Sýnd kl. 10.20 T I L B O Ð Á F Y R S T U S Ý N I N G A R D A G S I N S - A Ð E I N S 4 0 0 K R . A T H : t i l b o ð s s ý n i n g a r e r u s é r m e r k t a r m e ð r a u ð u 3 3 Í fjölskyldu þar sem enginn skilur neinn mun hún smellpassa í hópinn Í KVÖLD fara fram kvennarokkstónleikar í Klink og Bank þar sem fram koma sjö hljómsveitir sem skipaðar verða konum að nær öllu leyti. Bera tónleikarnir yfirskriftina Tryllingur og spill- ing. Það var Brúðarbandið sem blés til tónleikanna upphaflega og ásamt því leika Mammút, Brite Light, Viðurstyggð, Donna Mess, Lazy Housewifes og Begga pönk. Sigríður Árnadóttir, gítar- leikari Brúðarbandsins, lét hafa það eftir sér í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrradag að m.a. væru tón- leikarnir ætlaðir sem viss hvatning til allra þeirra stúlkna sem vilja rokka, en hlutfall stúlkna í rokksveitum er fátæklegt. Sagði hún hefðbundið hlutverk þeirra að vera í forgrunni, oftast sem söngkonur, á meðan strákarnir sjái um græjumál og hljóðfæraleik. Hvatti hún ásamt Björgu úr Donnu Mess stelpur til að kýla bara á það, það þyrfti ekki háskólapróf til að stinga gíturum í samband. Þess má geta að Brúðarbandið kemur fram ásamt íhlaupatrommara þar sem trymbill þeirra, Sunna, er nýorðin mamma. Tónlist | Kvennarokk í Klink og Bank Tryllingur og spilling Morgunblaðið/Þorkell Brúðarbandið, sem hefur vakið mikla athygli innanlands sem utan að undanförnu, er ein þeirra sveita sem fram koma á tónleikunum. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og kostar einungis 500 kr. inn. TVÆR íslenskar kvikmyndir verða frumsýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni, IIFF 2005. Þær eru heimildamyndin Bítlabærinn Keflavík eftir Þorgeir Guðmundsson og tilrauna- hreyfimyndin Þröng sýn eftir Guðmund Arnar Guðmundsson og Þórgný Thoroddsen. Bítlabærinn Keflavík segir frá því þegar rokkið skilaði sér loks til Íslands og hvernig unglingar í Keflavík höfðu forskot á aðra. Ara- grúa mynda og myndskeiða af tónlistarflutningi og mannlífi er fléttað saman við skemmtileg við- töl við tónlistarmenn og aðra þátttakendur sem segja okkur söguna með eigin orðum. Myndin leitast við að einbeita sér að því að fanga stemn- ingu spennandi og viðburðaríks tímabils í menn- ingarsögunni. Við fáum að kynnast tónlist- armönnunum sjálfum og sagan er rakin frá sakleysi bítlaáranna í gegnum ólgu hippatím- ans, stórsigra áttunda áratugarins, niðurlæg- ingu pönkáranna og endurreisn keflavíkurbítla sem kórónast í endurkomu Hljóma á fertugs- afmælinu. Þröng sýn er tilraunamynd í einu og öllu og það endurspeglast í framleiðsluaðferð hennar. Myndin sjálf segir sögu Arons sem er ungur maður með áhyggjur af samskiptum fólks og stöðu mannsins í nútímaþjóðfélagi. Hann ákveður að framkvæma tilraun og fylgjast með viðbrögðum fólks við henni. Í gegnum þessa einstöku rannsókn og eftirfylgni við hana hittir Aron nokkra áhugaverða einstaklinga sem hver um segir sína sögu um hvernig fólk bregst við tilraun sem þessari. Með myndinni Þröngri sýn verður sýnd Ósk- arsverðlaunamyndin Harvie Krumpet, en hún var valin besta teiknaða stuttmyndin árið 2004. Til viðbótar verða sýndar fimmtán eldri ís- lenskar kvikmyndir, heimildamyndir og stutt- myndir. Þær eru Börn náttúrunnar, Sódóma Reykjavík, 101 Reykjavík, Englar alheimsins, Á köldum klaka, Lalli Johns, Mjóddin – Slá í gegn, Rokk í Reykjavík, Hlemmur, Burst, Money, Memphis, Sympathy og Slurpurinn & co. Hátíðin hefst á fimmtudaginn í næstu viku og stendur í þrjár vikur. Kvikmyndir | Kvikmyndahátíðin IIFF 2005 Tvær íslenskar kvikmyndir frumsýndar Morgunblaðið/Eggert Hljómar koma að sjálfsögðu mikið við sögu í Bítlabænum Keflavík. www.icelandfilmfestival.is ALLIANCE française stendur fyrir tón- leikum með djasstónlistarmönnunum og bræðrunum Boulou og Elios Ferré á Nasa í dag kl. 17. Tónleikarnir eru opnir öllum og er aðgangur ókeypis. „Sígaunatónlist nær engan veginn að lýsa tónlist Boulou og Elios Ferré. Sú tónlist er þeim þó í blóð borin því faðir þeirra, Matelot Ferré spilaði með Django Reinhardt, sem og frændur þeirra Baro og Sarane. Sígaunadjass- inn er þeim því hugleikinn en þeim hefur tekist að blanda honum saman við aðra tónlist og skapa sér þannig eigin stíl,“ segir í tilkynningu frá Af. „Boulou lærði á gítar af föður sínum frá sex ára aldri og sneri sér svo að klassískum gít- arleik sem hann lærði hjá Francisco Gil auk þess lagði hann stund á hljómfræði og tón- smíðar hjá Olivier Messiaen. Hann hefur spil- að með mörgum þekktum tónlistarmönnum s.s. Dexter Gordon, Dizzy Gillespie, Kenny Clarke, Chet Baker, Steve Lacy, Stéphane Grapelli, Babik Reinhardt og Christian Escoudé. Í tónsmíðum hans, útsetningum og gítarleik má merkja áhrif frá jafnólíkum lista- mönnum og Bach, Léonard Bernstein, Lennie Tristano, Miles Davis og Lee Konitz,“ segir í tilkynningunni. „Elios lærði einnig á gítar hjá föður sínum og svo flamencogítarleik hjá einum af nánustu samstarfsmönnum Carlos Montoya. Hann lærði hljómfræði og tónsmíðar hjá Pierre Lantier og féll svo fyrir Jimi Hendrix. Hann hefur spilað með Larry Coryell, Ed Thigpen, Al Levitt og Svend Asmussen.“ Bræðurnir hafa spilað tveir saman síðan 1978 og hafa þeir leikið á tónleikum um allan heim. Disk þeirra Pour Django var hrósað af Barney Kessel og Chet Baker. Á síðasta diski sínum Shades of a Dream, sem kom út á síð- asta ári, bræða þeir sígaunadjassinn saman við barokk og aðra tónlistarstrauma. Tónlist | Alliance française býður til tónleika Sígaunadjass á Nasa Bræðurnir eru þekktir fyrir sígaunadjass sem þeim tekst að blanda við aðra tónlist og skapa sér eigin stíl. Tónleikar á vegum Alliance française með Boulou og Elios Ferré á Nasa í dag kl. 17. Að- gangur er ókeypis og tónleikarnir eru öllum opnir. Nánari upplýsingar á af.ismennt.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.