Morgunblaðið - 02.04.2005, Side 64

Morgunblaðið - 02.04.2005, Side 64
64 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Ný tegund af fjölmiðlun hef-ur rutt sér til rúms, sember nafnið „podcasting“, útvarp sem miðlað er í gegnum Netið. Ekkert útvarpsleyfi þarf til að gera þátt sem þennan heldur getur hver sem er hætt sér í þenn- an heim með aðstoð hljóðnema og tölvu. Þetta er þó gerólíkt þeim út- varpssendingum í gegnum Netið sem flestir þekkja. Upptökur eru sendar á ákveðna miðlara þar sem þeim er safnað saman. Ókeypis hugbúnaður gefur svo fólki um all- an heim tækifæri til að hlaða þess- um þáttum niður og hlusta á þá hvar og hvenær sem er á mp3- spilara eins og iPod frá Apple en nafnið er komið þaðan (samsett úr iPod og broadcasting). Hér verður ekki farið ýtarlega út í tæknilega hlið þessa máls heldur frekar velt upp þeim möguleikum sem þetta veitir. Hægt er að lesa allt um pod- útvarp á vefnum www.ipodder.- org. Þar er hægt að fylgjast með 4.493 þáttum, með hjálp hugbún- aðar sem skynjar nýjar skrár, í gegnum RSS. Fólk gerist í raun áskrifendur að þáttum að eigin vali og líkist þetta að mörgu leyti því að vera áskrifandi að hljóðtímariti.    Umræðuefni þáttanna er næst-um jafnmismunandi og þeir eru margir. Ef aðeins er litið á nokkra af efstu þáttunum á www.i- podder.org verður fjölbreytnin ljós. The Inside Scoop with Mark Levine er pólitískur þáttur er segir frá „fréttum sem fjölmiðlar greina nærri aldrei frá og ríkisstjórnin vill ekki að þú vitir“. Head Up Your Ass Headlines – The Corey and Jay Show lofar að færa fólki skrýtnustu fréttirnar hvaðanæva úr heiminum. Þarna er líka þáttur á hebresku um vísindaskáldsögur, myndasögur og svartan húmor og í öðrum þætti er fjallað um gömul húsgögn, leirkeragerð, gler og málm. Þetta eru allt glænýir þætt- ir, sem sagt er frá 30. mars. Frumkvöðull í þessu er Adam Curry, fyrrum kynnir hjá MTV. Hann er með pod-útvarpsþátt sem heitir Daily Source Code en í hon- um spilar hann tónlist og spjallar um hvaðeina, sem honum er efst í huga. Nokkur þúsund manns hlusta á þáttinn á hverjum degi. Curry þessi er líka annar þeirra sem þróaði pod-útvarpstæknina, sem hefur verið aðgengileg síðan í ágúst á síðasta ári. Fjöldi pod-útvarpsþátta vexhratt. Í grein New York Tim- es frá 19. febrúar voru þættirnir 3.075 talsins þannig að þeim hefur fjölgað um 1.400 á þeim stutta tíma sem er liðinn frá birtingunni. Í greininni segir að pod- útvarpsþættirnir geti haft mikil áhrif á útvarp almennt á sama hátt og bloggarar hafi haft áhrif á blaðamennsku. Þessu fylgir að fyrirtæki hafa séð auglýsingamöguleika í miðl- inum og er Heineken komið með pod-tónlistarútvarp. Stjórn- málamenn vilja líka nýta sér mögu- leikann og er Donnie Fowler Jr. þeirra á meðal. Hann notfærði sér þetta í kosningaslag og segir að nauðsynlegt sé að nota nýja tækni til að ná til grasrótarinnar. Markaðurinn er vissulega til staðar því Apple hefur selt 10 milljónir iPod-spilara á síðustu þremur árum, helmingur sölunnar fór fram á síðustu mánuðum síð- asta árs. Flestir pod-útvarpsþættir eru þó gerðir af ósköp venjulegu fólki í stofum og svefnherbergjum um all- an heim. Þetta fólk á það þó sam- eiginlegt að hafa óvenjulega mik- inn áhuga á ákveðnu málefni og vilja tjá sig um það. Þetta er ákveðin leið til að fá útrás og tæki- færi til að miðla upplýsingum til fólks með svipuð áhugamál.    Vefurinn www.podcastalley.comer líka góður til að leita uppi skemmtilega þætti. Samkvæmt hlustendum er fyrrnefndur þáttur Curry sá fimmti besti. Á toppnum trónir hinsvegar Catholic Insider. Þar fær fólk sinn daglega skammt af innanbúðar upplýsingum um kaþólsku kirkjuna. Þarna er hægt að hlusta á fréttir, viðtöl, tónlist og fleira um kaþólska trú og lífsstíl. Sem sagt, eitthvað fyrir alla! Ný tegund útvarps ’Pod-útvarpsþættirnirgeta haft mikil áhrif á útvarp almennt líkt og bloggarar hafa haft á blaðamennsku.‘ AF LISTUM Inga Rún Sigurðardóttir Morgunblaðið/Árni Torfason Hlustað er á þessa nýju tegund út- varpsþátta í gegnum iPod eða aðra sambærilega spilara. ingarun@mbl.is NOAH Wyle, sem leikur Dr. John Carter í Bráða- vaktinni, hefur ákveðið að hætta í þáttunum. Wyle hefur verið lengst allra aðalleikara í þáttunum eða allt síðan hann hóf göngu sína fyrir ell- efu árum. Góðu fréttirnar eru þó þær að nýverið var ákveðið að halda áfram framleiðslu þáttanna í a.m.k. tvö ár til viðbótar og hefur Wyle meira að segja samþykkt að koma við sögu í fjórum þáttum á næstu tveimur árum. Wyle er 33 ára og segist ekki vera að hætta til að snúa sér að kvik- myndaleik heldur til að geta betur sinnt fjölskyldu sinni. Carter kveður Besta mynd ársins Besti Leikstjóri - Clint Eastwood Besta Leikkona - Hillary Swank Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman H.J. Mbl. Með tónlist eftir Sigur Rós! in a new comedy by Wes ANDERSON  DV  HJ. MBL Bráðfyndin gamanmynd frá Wes Anderson, framleiðenda Royal Tenenbaums með Bill Murray, Owen Wilson, Cate Blanchett og Anjelicu Huston í aðalhlutverkum. Sandra Bullock mætt aftur vopnuð og glæsileg í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin af spennu og gríni! Hlaut 2 Golden Globe verðlaun sem besta gamanmynd ársins. Geoffrey Rush sem besti leikari. Kvikmyndir.is DV Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann! Bráðfjörug, spennandi og sprenghlægileg gamanmynd með ofurtöffaranum Vin Diesel í aðalhlutverki! Óskarsverðlaunahafinn, Geoffrey Rush er frábær sem Peter Sellers en myndin fjallar um feril og stormasamt einkalíf eins besta gamanleikara heims. The Life and Death of Peter Sellers kl. 5.30 - 8 - 10.30 Mrs. Congeniality 2 kl. 5.40 - 8 - 10.20 Life Aquatic kl.5.30 - 8 og 10.30 b.i. 12 Phantom of the Opera kl. 8 b.i. 10 Les Choristes (Kórinn) kl. 6 Million Dollar Baby (4 Óskarsv.) kl. 5.30 - 8 - 10.30 b.i. 14 Ray (2 Óskarsv.) kl. 10,30 b.i. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.