Morgunblaðið - 02.04.2005, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
STJÓRN breska fjárfestingarbank-
ans Singer & Friedlander sendi í
gær tilkynningu í bresku kauphöll-
ina þar sem staðfestar voru viðræð-
ur við Kaupþing banka sem leitt
gætu til kaupa Kaupþings á öllu
hlutafé bankans. Í yfirlýsingunni er
lögð áhersla á að brugðið geti til
beggja vona í viðræðunum. Það
muni skýrast þegar fram líður.
Orðrómur um yfirtöku Kaupþings
á Singer & Friedlander hefur verið
uppi um nokkra hríð en Kaupþing á
fyrir nærri 20% hlut í breska bank-
anum. Þess má geta að Burðarás á
nærri 9,5% hlut í Singer & Fried-
lander.
Gengi bréfa í S&F hækkaði um
14,8% í gær og við lokun kauphall-
arinnar í London var hluturinn í 322
pensum. Sömuleiðis hækkaði gengi
KB banka í gær um 2,27% og var
hluturinn í 540 við lokun Kauphallar
Íslands í gær. Kaupþing hækkaði
einnig í kauphöllinni í Stokkhólmi í
gær um 2,44% og kostar hluturinn
nú 63 krónur sænskar.
Stuart Duncan, markaðsgrein-
andi hjá Numis Securities í London,
sagði í gær, að menn hefðu búist við
því um hríð að KB banki keypti all-
an hlutinn í S&F og slíkar vænt-
ingar hefðu komið upp á yfirborðið
með reglulegu millibili, allt frá því
KB banki keypti 20% í fyrirtækinu
árið 2003.
Eigið fé S&F er um 40 milljarðar
króna, eða svipað og eigið fé Lands-
bankans og Íslandsbanka, en mark-
aðsvirði S&F er um 60 milljarðar
króna, mun lægra en markaðsvirði
Landsbankans og Íslandsbanka.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
KB banka, sagði í gær, þegar Morg-
unblaðið spurði hann um hver væru
áform KB banka með þessum við-
ræðum við Singer & Friedlander
Group: „Á þessu stigi hef ég ekkert
að segja um málið. Það er einfald-
lega of snemmt að tjá sig nokkuð
um það.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hófust viðræður KB banka
og S&F fyrir nokkrum vikum.
Greinendur á markaði í London
telja að líkur séu á því að af kaup-
unum verði, því ella hefði stjórn
S&F ekki birt tilkynningu sína í
kauphöllinni í gær. Þeir telja sömu-
leiðis að samningaviðræður muni
ekki taka langan tíma og megi frek-
ar áætla tímann í vikum en mán-
uðum.
S&F er með þrenns konar starf-
semi: sjóða- og eignastýringu;
einkabankaþjónustu á eynni Isle of
Man og fyrirtækjaþjónustu. KB
banki mun, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, sjá mikil samlegð-
aráhrif af kaupunum á S&F, þar
sem mjög lítil skörun er á starfsemi
bankanna. S&F er til að mynda ekki
með fyrirtækjaráðgjöf, aðstoð við
yfirtökur, samruna, hlutafjárútboð
og þess háttar, eða verðbréfamiðl-
un.
Ef samningar takast, er talið full-
víst að KB banki setji íslenskan
bankastjóra inn í Singer & Fried-
lander.
Kaupþing banki í yfirtökuviðræðum við Singer & Friedlander-fjárfestingarbankann
Markaðsvirði S&F
60 milljarðar króna
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FJARSKIPTAFYRIRTÆKJUM er gert
skylt að halda skrá yfir þá sem úthlutað
hefur verið símanúmerum í farsíma- og
fastlínukerfum og ber kaupanda símakorts
jafnframt að framvísa skilríkjum við kaup
kortsins, að því er fram kemur í drögum að
frumvarpi að breytingu á fjarskiptalögum
sem fjallað var um í ríkisstjórn í gær.
Þarna er um nýmæli að ræða þar sem til
þessa hefur ekki verið skylt að skrá nafn
við kaup á svonefndu símafrelsi, en fram
kemur að óskráð
símanúmer valdi
vandkvæðum í lög-
reglurannsóknum
þegar þau séu notuð
á ólöglegan hátt, eins
og til að mynda þeg-
ar settar eru fram
hótanir í tali eða með
SMS-skilaboðum. Þá
tengist óskráð síma-
númer oft fíkniefna-
brotum og torveldi
hlerun og rannsókn lögreglu á slíkum mál-
um.
Í frumvarpsdrögunum er einnig að finna
ákvæði sem gera fjarskiptafyrirtækjum
skylt að varðveita lágmarksskráningu
gagna um fjarskiptaumferð viðkomandi
notanda í eitt ár í þágu rannsókna op-
inberra mála og almannaöryggis. Skuli
skráningin tryggja að hægt sé að upplýsa
hver hafi verið notandi tiltekins auðkennis,
símanúmers, IP-tölu eða notendanafns, auk
þess að upplýsa um allar tengingar viðkom-
andi, tímasetningar, tímalengd, hverjum
var tengst, magn gagnaflutnings og hvort
notandinn hafi haft frumkvæði að tengingu
eða ekki. Er fjarskiptafyrirtækinu óheimilt
að nota eða afhenda umræddar upplýsingar
öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi.
Eitt ár hóflegur tími
Fram kemur að þessar upplýsingar geti
verið nauðsynlegar við rannsókn mála og sé
eitt ár hóflegur tími með tilliti til þess að
rannsókn hafi eðlilegan framgang og þess
að einhver kostnaður sé samfara varðveislu
gagnanna. Varðveislan sé nauðsynleg með-
al annars með tilliti til þess að um höf-
undaréttarvarið efni eða ólöglegt efni, eins
og barnaklám, geti verið að ræða.
Þá er fjarskiptafyrirtækjum einnig gert
skylt að tryggja án endurgjalds þar til bær-
um yfirvöldum aðgang að búnaði til hler-
unar símtala og annarrar löglegrar gagna-
öflunar í fjarskiptanetum sínum eða
fjarskiptaþjónustu.
Skylt að
skrá öll
símanúmer
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Breyting á fjarskiptalögum
þriðjudag. Varðandi endurteknar
vantraustsyfirlýsingar starfs-
manna RÚV á hendur Markúsi
sagði hann að hann sækti ekki um-
boð sitt til starfsmannafunda.
Hann segir ekkert fararsnið á sér
úr stóli útvarpsstjóra.
Jón Gunnar Grjetarsson, for-
maður Félags fréttamanna, sagði
að sér þætti Auðun Georg maður
að meiri að hafa tekið þessa
ákvörðun. Hann telur að heilmikla
vinnu þurfi til, ef takast eigi að
byggja upp á ný traust milli starfs-
manna RÚV og útvarpsstjóra, eft-
ir þá orrahríð sem á undan er
gengin. Að sögn Jóns Gunnars
kom það illa við fréttamenn RÚV
þegar Auðun Georg upplýsti á
fundi með þeim í gærmorgun að
hann vildi gera vel við þá sem
vildu með honum starfa og eins að
hann hefði leitað til manna utan
stofnunarinnar til starfa á frétta-
stofunni.
undirstriki mikilvægi þess að
frumvarp um Ríkisútvarpið, sem
nú liggur fyrir Alþingi, verði sam-
þykkt sem fyrst.
Ákvörðun Auðuns Georgs olli
Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni,
formanni útvarpsráðs, vonbrigð-
um. Hann sagðist þó hafa fullan
skilning á henni eftir þann hama-
gang sem á hefði dunið. Gunnlaug-
ur segir að sér hafi þótt fréttastof-
an hafa gengið of hart fram vegna
sinna hagsmuna. Það hljóti að
vera umhugsunarefni fyrir ráða-
menn á Ríkisútvarpinu.
Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri kveðst ekki geta full-
yrt nú hvort starf fréttastjórans
verði auglýst á ný. Málið verði tek-
ið fyrir á fundi útvarpsráðs, sem
boðaður hefur verið næstkomandi
„Ekki nýlega, nei,“ svaraði Auðun.
Fréttamaðurinn kvaðst hafa
öruggar heimildir fyrir því að
Auðun hafi hitt formann útvarps-
ráðs deginum áður og játaði Auð-
un að slíkur fundur hefði átt sér
stað, en hann myndi ekki ná-
kvæmlega hvenær. Spurður um
efni fundarins og hver boðaði hann
sagði Auðun það vera trúnaðar-
mál. Að lokum tók Auðun undir að
fundurinn hefði verið haldinn deg-
inum áður.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra segir að
nú þurfi stjórnendur og starfs-
menn Ríkisútvarpsins að taka
höndum saman og gera það sem
mestu máli skipti: Að starfrækja
góða og öfluga fréttastofu. Þor-
gerður telur að fréttastjóramálið
AUÐUN Georg Ólafsson hætti við
að þiggja starf fréttastjóra Út-
varpsins í gær og skrifaði ekki
undir ráðningarsamning vegna
starfsins. Hann sendi frá sér yf-
irlýsingu síðdegis í gær þar sem
hann gerði grein fyrir ákvörðun
sinni. Í yfirlýsingunni segir m.a.:
„Í viðtali sem ég veitti frétta-
manni Ríkisútvarpsins í dag í til-
efni af því að ég hæfi störf var með
lævíslegum hætti reynt að koma
mér í vandræði. Það tókst, þar
sem ég vildi ekki rjúfa trúnað. En
fréttamaðurinn var ekki hlutlaus,
hann var málsaðili, og honum
tókst ekki að gera greinarmun þar
á.“
Umrætt viðtal var flutt í hádeg-
isfréttatíma Ríkisútvarpsins í
gær. Þar spurði Ingimar Karl
Helgason fréttamaður Auðun
Georg hvort hann hefði nýlega átt
fund með formanni útvarpsráðs.
Auðun Georg Ólafsson tekur ekki við starfi fréttastjóra Útvarpsins
„Með lævíslegum hætti reynt
að koma mér í vandræði“
Mikilvægt að frumvarp um
RÚV verði samþykkt sem fyrst,
segir menntamálaráðherra
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Vegið að persónu/10–11
AUÐUN Georg Ólafsson mætti til vinnu í Útvarpshúsinu við Efstaleiti í
gærmorgun. Þar tóku fréttamenn fjölmiðla á móti honum, enda ráðn-
ing Auðuns sem fréttastjóra Útvarpsins búin að vera mikið rædd og
valda miklum deilum. Undir kvöld ákvað Auðun að gefa starfið frá sér.
Morgunblaðið/RAX
Við komuna í Útvarpshúsið