Morgunblaðið - 29.04.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 11
FRÉTTIR
Bankastræti 3 • sími 551 3635 • Póstkröfusendum • www.stella.is
sumar litirnir
Str. 36-56
Sportlegur
sumarfatnaður
frá
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Winnipeg. Morgunblaðið. | Manitoba
hefur heillað Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur, menntamálaráð-
herra, í fyrstu heimsókn hennar til
Kanada. „Ég finn alls staðar fyrir
svo jákvæðum straumum,“ segir
hún.
Á þriðjudag heimsótti Þorgerður
Katrín þinghúsið í Winnipeg og hitti
meðal annars Gary Doer, forsætis-
ráðherra Manitoba, Peter Bjornson,
menntamálaráðherra, Diane
McGifford, ráðherra framhalds-
menntunar, og Eric Robinson, ferða-
og menningarmálaráðherra. Hún
kynnti sér einnig starfsemi vestur-
íslenska blaðsins Lögbergs – Heims-
kringlu og heimsótti jafnframt
Manitobaháskóla þar sem hún skoð-
aði íslenska bókasafnið og ræddi við
dr. Emoke Szathmáry, forseta há-
skólans.
Þorgerður Katrín segir mikilvægt
fyrir alla sem koma að stefnumótun
að átta sig á því hvers konar við-
fangsefni aðrir fást við hverju sinni.
„Við höfum skipst á dýrmætri
reynslu og það er áhugavert að sjá
áhrif Íslands úti um allt og hvernig
þau tengjast öllum samræðum. Það
er einstakt.“ Í þessu sambandi nefnir
hún sérstaklega söguna um sam-
vinnu og samstarf íslensku landnem-
anna við frumbyggjana, sem Eric
Robinson leggur mikla áherslu á að
varðveita og vekja athygli á. „Þarna
er ákveðin samkennd og samhengi á
milli lífs frumbyggjanna og lífs Ís-
lendinganna,“ segir hún.
Frá 1995 hefur ríkisstjórn Íslands
unnið markvisst að uppbyggingu
samstarfs við íslenska samfélagið í
Kanada og segir Þorgerður Katrín
mikilvægt að halda því starfi áfram.
„Miðað við þau skref sem hafa verið
tekin er eðlilegt að halda áfram að
þróa þetta samband,“ segir hún.
„Hér eru greinilega nýir og spenn-
andi fletir sem við getum nálgast til
þess að vekja enn frekari athygli og
áhuga á þessari sögu, þessari ís-
lensku sögu, sem er hérna.“
Þorgerður Katrín verður heið-
ursgestur á þjóðræknisþinginu, sem
verður haldið í Vatnabyggð í
Saskatchewan dagana 28. apríl til 1.
maí. Í föruneyti ráðherra eru Guð-
mundur Árnason, ráðuneytisstjóri,
Steingrímur Sigurgeirsson, að-
stoðarmaður ráðherra, og Almar
Grímsson, forseti Þjóðræknisfélags-
ins á Íslandi.
Jákvæðir straumar í Manitoba
Morgunblaðið/Steinþór
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra heimsótti menntamálaráðherra fylkisins í ferðinni. Frá
vinstri: Peter Bjornson, menntamálaráðherra Manitoba, Þorgerður Katrín, Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri
í menntamálaráðuneytinu, og Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra.
SAMKVÆMT bréfi frá Fjár-
málaeftirlitinu (FME) til að-
standenda Almennings ehf. eru
annmarkar á drögum félagsins
að útboðslýsingu. Morgunblaðið
hefur bréf FME undir höndum,
en drögin að útboðslýsingunni
hafa verið til umfjöllunar hjá
FME.
Í bréfi FME til Almennings er
vísað til 21. greinar laga nr. 33
frá 2003 um verðbréfaviðskipti.
Segir í þeirri grein: „Útboðslýs-
ing skal geyma þær upplýsingar
sem með hliðsjón af eðli útgef-
andans og verðbréfanna eru
nauðsynlegar til þess að þeir
geti metið eignir og skuldir, fjár-
hagsstöðu, afkomu og framtíð-
arhorfur útgefanda sem og þau
réttindi sem fylgja verðbréfun-
um.“
Í bréfi FME er einnig vísað til
viðauka nr. 630 frá 2003 og segir
„í útboðslýsingu skal lýsa helstu
starfsemi og öllum óvenjulegum
þáttum sem geta haft áhrif á
starfsemi útgefanda, einkaleyf-
um, leyfum og samningum sem
máli skipta og upplýsingum um
yfirstandandi fjárfestingar.“
Ekkert fjallað um Símann
Í bréfinu segir að útboðslýs-
ingin veiti upplýsingar um stof-
nefnahag Almennings ehf. og til-
gang fyrirtækisins en hins vegar
sé ekkert fjallað um Landssíma
Íslands sem fjárfestingarkost
eða verð það sem fyrirtækið er
tilbúið að borga fyrir hlut í
Landssímanum. „Ígrunduð
ákvörðun fjárfestis um að kaupa
hlutabréf í Almenningi ehf.
byggir á mati hans á Landssíma
Íslands hf. sem fjárfestingar-
kosti, þ.e. núverandi rekstri fyr-
irtækisins, áformum og aðstæð-
um að öðru leyti, en ekki á mati
hans á Almenningi ehf. Þá er
fjárfesti einnig mikilvægt að búa
yfir upplýsingum um hvaða verð
Almenningur ehf. er reiðubúinn
að greiða fyrir Landssíma Ís-
lands hf. og hvaða skilmálar
myndu fylgja þeim kaupum,“
segir í bréfinu.
Enn fremur vekur FME at-
hygli á þeirri óvissu sem ríkir
um síðari ráðstöfun hlutabréfa í
Almenningi en þessi ráðstöfun
getur meðal annars ráðist af því
hvort ráðandi hluthafar í Al-
menningi eigi þess kost að
breyta tilgangi félagsins. Einnig
kann hún að ráðast af skilmálum
kaupa á hlutabréfum í Lands-
símanum.
„Þá er rétt að nefna að komi
til þess að Almenningur ehf. taki
þátt í kaupum á hlutabréfum í
Landssíma Íslands hf. með
kaupum á hlut í eignarhalds-
félagi, eins og samþykktir gera
ráð fyrir, getur komið upp sú
staða að hluthafar í Almenningi
ehf. fái ekki afhent bréf í Lands-
síma Íslands hf. við upplausn
eða slit Almennings, heldur
hlutabréf í viðkomandi eignar-
haldsfélagi. Almenningur ehf.
getur því ekki tryggt að fjár-
festar fái afhent hlutabréf í
Landssíma Íslands hf. á neinum
tímapunkti við fyrrgreindar að-
stæður. Jafnframt er ekki hægt
að tryggja að fjárfestar geti selt
bréf sín til annarra aðila, enda
um óskráð bréf að ræða,“ segir í
bréfinu.
Varhugaverð viðskiptavakt
Í drögum að útboðslýsingu
kemur fram að stjórn Almenn-
ings ætli að reyna að koma upp
viðskiptavakt með bréf félagsins.
FME telur þetta varhugavert og
að það byggi upp væntingar um
virk viðskipti með hlutabréf í Al-
menningi enda viðskiptavakt að-
eins leyfð í tengslum við skráð
bréf.
Enn fremur telur FME að
verðmyndun óskráðra verðbréfa
sé almennt grunn og ógegnsæ,
þ.e. erfitt sé að finna markaðs-
verðmæti þeirra á hverjum tíma
og verð geti breyst mikið á milli
viðskipta. Þar af leiðandi verði
útboðslýsing að gera grein fyrir
öllum áhættuþáttum varðandi
upplýsingagjöf, verðmyndun og
tíðni viðskipta auk fleiri þátta.
Þannig telur FME að drög að
útboðslýsingu Almennings upp-
fylli ekki skilyrði 21. greinar
laga um verðbréfaviðskipti og
telur nauðsynlegt að endurmeta
stöðu verkefnisins meðal annars
með tímaáætlun í huga.
Drög að útboðs-
lýsingu uppfylla
ekki kröfur FME
JÓHANNES Sigurðsson, prófessor
í lögfræði við Háskólann í Reykja-
vík, segir eðlilegt að FME geri
kröfur um að út-
boðslýsing Al-
mennings ehf.
innihaldi upplýs-
ingar um Lands-
símann hf. enda
er það eini til-
gangur félagsins
að fjárfesta í
hlutabréfum
Landssímans.
Hann telur þó
álitaefni hversu
ítarlegar upplýsingar þurfi að vera.
Krafa um að upplýst sé hvaða verð
sé ætlunin að bjóða geti skaða sam-
keppnisstöðu félagsins í útboðinu
og því ekki eðlilegt að gera þá
kröfu. „Það þarf hins vegar að gera
grein fyrir megindráttum um það
hvernig staðið verði að fjárfesting-
unni,“ segir Jóhannes.
Hins vegar bendir Jóhannes á að
líklega væri Fjármálaeftirlitinu rétt
að hafna beiðni Almennings um að
fara í almennt útboð þar sem það
hafi þegar farið fram almennt út-
boð með því að hvetja fólk til kaupa
á hlutum á vefnum án þess að fyrir
lægi útboðslýsinga. Með því hafi
Almenningur líklega brotið reglur
um almennt útboð. Úr því verði
ekki bætt með eftirá útgáfu útboðs-
lýsingar. Reglum um almennt út-
boð er einmitt ætlað að koma í veg
fyrir að almenningi séu boðnir hlut-
ir til sölu án þess að fyrir liggji
fullnægjandi upplýsingar um hina
seldu hluti. „Mín skoðun er því sú
að Fjámálaeftirlitinu sé rétt að
hafna útboðslýsingunni,“ segir Jó-
hannes.
Rétt að hafna
útboðslýsingunni
Jóhannes
Sigurðsson