Morgunblaðið - 29.04.2005, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
GRÁSLEPPUVEIÐIN hér við
land er nú helmingi minni en á
sama tíma í fyrra, og samdráttur á
nánast öllum veiðisvæðum. Sömu
sögu er að segja af grásleppuveið-
um við Grænland og Noreg. Gera
má ráð fyrir því að verðið, sem nú
er 51.000 krónur fyrir tunnuna,
muni því hækka eitthvað á næst-
unni og segir Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands smá-
bátaeigenda, að frétzt hafi af sölu
til Svíþjóðar á 60.000
krónur fyrir tunnuna.
Samkvæmt upplýs-
ingum LS er veiðin í
Noregi 14% minni en á
sama tíma í fyrra. Allt
útlit er því fyrir að
heildarveiði þar verði
ekki meiri en 4.000 tunnur. Á
Grænlandi er veiði hafin á Suður-
og Miðsvæði og hefst innan
skamms á Norðursvæði. Veiðin er
mun minni en í fyrra og því útlit
fyrir samdrátt. Miðsvæðið (í kring-
um Nuuk) gaf best á sl. ári en nú er
veiði þar mun lakari. Þá eru veiðar
langt komnar á Suðursvæðinu og
ljóst að þær skila minna á land en á
vertíðinni 2004. Grásleppu-
veiðimenn á Grænlandi eru því ekki
bjartsýnir á góða vertíð, þó veiðar
séu ekki enn hafnar á Norðursvæði
þar sem veiði brást þar í fyrra.
Veiðar við Nýfundnaland hefjast á
næstunni, en þar var veiðitímabilið
stytt til að draga úr veiðum. Hér
við land var
tímabilið
stytt
um
þriðjung, teknir 10 dagar fram-
an af og 20 aftan af því. Veiðar hér
hófust fyrst við sunnanvert Reykja-
nes 15. marz. á flestum öðrum
veiðisvæðum hófust þær þann 30.
marz, en á Faxaflóa og ytri hluta
Breiðafjarðar hófust veiðarnar 11.
apríl. Það er svo ekki fyrr en 20.
maí, sem veiðar við innan verðan
Breiðafjörð hefjast. Veiðin hefur
nær alls staðar verið lítil, nema á
Raufarhöfn, þar sem veiði er svipuð
og í fyrra.
Offramboð í fyrra
Örn Pálsson segir að í fyrra hafi
veiðin skilað 11.800 tunnum, en gert
hafi verið ráð fyrir að í ár næðust
8.000 tunnur. Nú sé hins vegar útlit
fyrir að veiðarnar skili ekki nema
6.000 til 7.000 tunnum. Í fyrra nam
heildarframboð af grásleppu-
hrognum 43.000 tunnum, en
meðalframboð undanfarin ár
hefur verið 33.000 tunnur. Því
var offramboð í fyrra sem
nam um 10.000 tunnum og
gekk mönnum illa að selja í lok
vertíðar og losnuðu sumir ekki
við hrognin fyrr en í upphafi þess-
arar vertíðar.
Örn segir að nú stefni í það að
veiðin verði undir 30.000 tunnum og
þá komist á jafnvægi á mörk-
uðunum á ný. Í fyrra fengust 70.000
krónur fyrir tunnuna, en lækkunin
nú sé meiri en nemur gengisbreyt-
ingum og stafi það af offramboðinu
í fyrra. Náist jafnvægi á ný í ár
muni verðið vafalítið hækka á ný.
Grásleppan
BJÖRN Bjarna-
son, dóms- og
kirkjumála-
ráðherra, var í
síðustu viku
gestur fyrir-
tækisins Sea
Viking í Bang-
kok, sem er í
eigu BlueIce
eða Sjóvíkur.
Louis Win
Naing Chit,
forstjóri Sea Viking, kynnti starf-
semi fyrirtækisins og bauð ráð-
herranum að skoða fiskvinnslu
þess fyrir utan Bangkok, en hún er
rekin í samvinnu við Tep Kinsho
Foods.
Ráðherrann er til hægri á mynd-
inni.
Á heimasíðu Björns Bjarnasonar
segir hann svo frá heimsókninni:
„Fórum í heimsókn til fisk-
vinnslufyrirtækis, þar sem stunduð
er vinnsla fyrir BlueIce eða Sea
Viking, sem er fyrirtæki í eigu Sjó-
víkur.
Fiskvinnslan er rétt fyrir utan
Bangkok hjá Tep
Kinsho Food.
Louis Win Naing
Chit forstöðu-
maður Sea Vik-
ing var leiðsögu-
maður okkar og
var einstaklega
fróðlegt og
ánægjulegt að
kynnast þessari
starfsemi og þeim
mikla metnaði,
sem ríkir hjá fyrirtækinu og sam-
starfsfyrirtæki þess.
Hreinlæti er mikið við fisk-
vinnslu á Íslandi en í Taílandi eru
gerðar miklu meiri ráðstafanir í
þágu þess við móttöku gesta en á
Íslandi, enda nokkur munur á veðr-
áttu – hitinn var nálægt 40 gráð-
um, þegar við vorum þarna á ferð.“
Starfsemi Sjóvíkur
í Taílandi skoðuð
Höfuð
Caravaggios
á morgun
„listræn upplifun
getur vart orðið
áhrifaríkari“
ANNÞÓR Kristján Karlsson var í
Hæstarétti í gær dæmdur í þriggja
ára fangelsi vegna alvarlegrar lík-
amsárásar og þyngdi rétturinn þar
með refsingu hans um hálft ár. Sam-
verkamaður hans, Ólafur Valtýr
Rögnvaldsson, var dæmdur í tveggja
ára fangelsi.
Beðnir að hafa afskipti
af leigutakanum
Annþór Kristján og Ólafur voru
sakfelldir fyrir að hafa ráðist inn í
íbúð manns í Reykjavík í byrjun apríl
2003. Annþór barði hann margsinnis
með kylfu með þeim afleiðingum
meðal annars að maðurinn hand-
leggsbrotnaði og Ólafur Valtýr kast-
aði diski í höfuð hans þannig að hann
hlaut sár á enni. Árásin var gerð eftir
að leigusali mannsins óskaði eftir því
við tvímenningana að „afskipti yrðu
höfð af leigutakanum“ eins og það er
orðað í héraðsdómnum.
Maðurinn kærði árásina til lög-
reglu en bað síðar um að fá að draga
kæruna og bótakröfuna til baka.
Hann kvaðst hafa hitt mennina og þó
þeir hefðu ekki hótað honum hefði
hann óttast að hann yrði hugsanlega
fyrir barsmíðum ef málið fengi fram-
gang. Í dómi Hæstaréttar segir að
langur sakarferill mannanna beri
einkenni ofbeldisbrota og brot Ann-
þórs hefðu verið alvarleg og ófyrir-
leitin. Báðir höfðu mennirnir verið
dæmdir til skilorðsbundinnar fang-
elsisrefsingar í nóvember 2003, Ann-
þór í sjö mánuði en Ólafur í tvo mán-
uði.
Þeir höfðu því rofið það skilorð og
var refsing dómsins tekin upp og
dæmd með.
Málið dæmdu Markús Sigur-
björnsson, Garðar Gíslason og Gunn-
laugur Claessen. Sigríður J. Frið-
jónsdóttir frá ríkissaksóknara sótti,
verjandi Annþórs var Karl Georg
Sigurbjörnsson hrl. og verjandi Ólafs
var Hilmar Ingimundarson hrl.
Þriggja ára fangelsi
vegna líkamsárásar
Með langan feril
ofbeldisbrota
MAÐUR sem réðst að konu sinni á
heimili þeirra í Hafnarfirði og veitti
henni ýmsa áverka var í Hæstarétti í
gær dæmdur í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi. Héraðsdómur
Reykjaness hafði frestað að dæma
manninn til refsingar, m.a. með þeim
rökum að hún hefði reitt hann til
reiði. Einn hæstaréttardómari, Jón
Steinar Gunnlaugsson, skilaði sérat-
kvæði og taldi hæfilega refsingu
vera 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Hann rökstuddi skilorðsbindinguna
m.a. með vísan til einhliða og ósann-
gjarnrar fjölmiðlaumfjöllunar.
Í héraðsdómnum var litið til þess
að, samkvæmt frásögn konunnar,
hefði sambúð þeirra verið „storma-
söm“ og iðulega komið til átaka milli
þeirra. Í þessu tilviki bentu gögn
frekar til þess að hún hefði reitt hann
til reiði.
Hæstiréttur taldi á hinn bóginn að
hvorki hefði verið leitt í ljós að konan
hefði gefið tilefni til árásarinnar né
að til átaka hefði komið á milli þeirra
heldur hefði maðurinn ráðist að kon-
unni. Hann ætti sér engar málsbæt-
ur. Í sakarvottorði ákærða, sem ekki
var lagt fyrir í héraðsdómi, kemur
fram að hann var árið 1990 dæmdur
fyrir líkamsárás. Þar sem langt var
frá liðið taldi meirihluti Hæstaréttar
rétt að skilorðsbinda refsinguna til
þriggja ára.
Kvaðst hafa misst starfið
Jón Steinar Gunnlaugsson gerir í
sératkvæði sínu óvægna fjölmiðla-
umfjöllun að umtalsefni. Þar kemur
fram að maðurinn lagði fyrir dóminn
upplýsingar um frásagnir fjölmiðla
af dómnum, einkum í tilefni orðalags
í forsendum hans og umfjöllun á op-
inberum vettvangi sem hann telur að
hafi beinst að sér með sérstaklega
ósanngjörnum og meiðandi hætti.
Þetta hefði valdið breytingum á hög-
um sínum til hins verra, m.a. hefði
hann misst starf sitt. Hann lagði þó
ekki fram sönnunargögn um það.
Maðurinn taldi að hafa ætti hliðsjón
af þessu við ákvörðun refsingar.
Í sératkvæði Jóns Steinars segir
að með hliðsjón af fordæmum
Hæstaréttar væri hæfileg refsing 30
daga fangelsi. Síðan er vikið að um-
fjöllun fjölmiðla: „Fallast má á með
ákærða að opinber umfjöllun um
brot hans, þar sem meðal annars var
birt mynd af honum undir nafni, hafi
verið einhliða og ósanngjörn og til
þess fallin að valda honum þjáning-
um og skaða á þann hátt, sem hann
hefur lýst.“ Jón Steinar vísaði því
næst til þess að í lögum um meðferð
opinberra mála væri kveðið á um að
falla mætti frá saksókn „ef brot hef-
ur valdið sakborningi sjálfum
óvenjulegum þjáningum og málsókn
þykir ekki brýn af almennum refsi-
vörsluástæðum“. Þetta taldi Jón
Steinar að hefði átt að skipta máli við
ákvörðun ríkissaksóknara um að
óska eftir leyfi til áfrýjunar á héraðs-
dóminum. „Verður ekki séð að sú
hafi verið raunin. Virðist þessi um-
fjöllun fremur hafa haft gagnstæð
áhrif,“ segir í sératkvæðinu. Með
hliðsjón af þessu og því að langt er
liðið frá fyrra broti þótti honum rétt
að skilorðsbinda refsinguna.
Í meirihluta réttarins voru Ingi-
björg Benediktsdóttir og Ólafur
Börkur Þorvaldsson. Ragnheiður
Harðardóttir sótti málið og Sigur-
mar K. Albertsson hrl. var til varnar.
Dæmdur til refsingar
fyrir heimilisofbeldi
Í sératkvæði er óvægin umfjöllun fjölmiðla hluti af
rökstuðningi fyrir skilorðsbindingu dómsins