Morgunblaðið - 29.04.2005, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nú er ekki erfitt að fara yfir strikið í
eyðslu og verja fjármunum í einhvern
munað. Það er í lagi að eyða í óþarfa, en
ekki láta raunsæið lönd og leið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Annaðtveggja gæti gerst í dag, þú gætir
ákveðið að slíta tilteknu sambandi eða þá
að þú finnur hjá þér þörf til þess að hefja
einhvern upp til skýjanna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Farðu gætilega í að verja skoðanir þínar
í stjórn- og trúmálum í dag. Þú ferð auð-
veldlega út á ystu nöf þessa dagana.
Hvernig væri að bíða þar til hugsunin
skýrist?
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vinur veldur þér hugsanlega von-
brigðum í dag. En kannski hefur þú gert
þér of miklar vonir. Veltu því fyrir þér,
það eru nú einu sinni tvær hliðar á öllu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samskipti við maka verða hugsanlega ei-
lítið stirð í dag. En það er ekkert lögmál,
þau gætu verið hlý og innileg ef ekki
kæmu til þöglar væntingar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú tekur hugsanlega þá ákvörðun í dag
að hætta að eiga samskipti við einhvern í
vinnunni. Kannski eru þau bara ekki
þess virði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hugsanlegt er að vogin kolfalli fyrir ein-
hverjum í dag. Það er engu líkara en að
hún sé yfir sig ástfangin. Annar mögu-
leiki er aukinn sköpunarkraftur og list-
fengi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn gerir miklar kröfur til ein-
hvers sem er honum nákominn. Gættu
raunsæis, annars er hættara við þér
finnist aðrir vera að svíkja þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Allt gengur að óskum í vinnunni í dag, en
það er líka hægt að vera of bjartsýnn. Til
allrar hamingju er ekki alltaf nóg að
óska sér einhvers.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver gæti heillað þig upp úr skónum í
dag og þú orðið alvarlega skotin, ágæta
steingeit. Bíddu aðeins og sjáðu til
hvernig málin þróast.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fjölskyldumeðlimur á hug þinn allan
núna og þú vilt leggja lið, ef þér er
mögulega unnt. Í einhverjum tilvikum
finnst vatnsberanum að hann hafi gert
nóg nú þegar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur samúð með ógæfu einhvers.
Fiskurinn er góðhjartaður að eðlisfari.
Ef þú getur lagt þitt af mörkum, skaltu
gera það. Ef ekki, verðurðu að sætta þig
við það.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Ímynd þín skiptir þig máli og þú hefur
bæði sjálfsstjórn og virðulegt yfirbragð.
Félagshæfni þín er óumdeild. Þú leggur
mikið upp úr góðu áliti annarra á þér.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 margmenni,
8 þýði, 9 milda, 10 spils,
11 fýsn, 13 illa, 15 sæti,
18 slagi, 21 umfram,
22 fáni, 23 mynnið,
24 nirfill.
Lóðrétt | 2 truntu, 3 hæð,
4 gufa, 5 beri, 6 málmur,
7 ílát, 12 álít, 14 rengi,
15 róa, 16 hugaða,
17 lagfærir, 18 óhreint
vatn, 19 hrekk,
20 innandyra.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hlunk, 4 flesk, 7 móður, 8 önnin, 9 nær, 11 aura,
13 hríð, 14 gunga, 15 þorn, 17 lost, 20 urt, 22 gáfan,
23 útför, 24 rimma, 25 afans.
Lóðrétt | 1 humma, 2 urðar, 3 korn, 4 fjör, 5 einir, 6 kynið,
10 ærnar, 12 agn, 13 hal, 15 þægur, 16 refum, 18 offra,
19 tarfs, 20 unna, 21 túla.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Árbæjarkirkja | Karlakór Kjalnesinga
verður með tónleika í kvöld kl. 20, miðar
seldir við innganginn.
Íþróttahúsið Vík | Sameiginlegt tónlist-
arkvöld skólanna í Mýrdal og Oz verður í
kvöld kl. 20 í íþróttahúsinu í Vík. Allir
velkomnir.
Stúdentakjallarinn | Hljómsveitin Lights
on the Highway heldur tónleika í Stúd-
entakjallaranum í kvöld.
Myndlist
101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson –
Skáhalli tilverunnar (Theo van Doesburg,
Goya og aðrir).
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnu-
mót lista og minja.
Bananananas | Davíð Örn sýnir málverk
og veggmyndir undir heitinu Húsverk.
Café Karólína | Myndlistarsýning Bald-
vins Ringsted.
Eden, Hveragerði | Málverkasýning Dav-
íðs Art Sigurðssonar – Milli mín og þín.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar.
Ólöf Björg.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson, Af-
gangar.
Gallerí i8 | Hrafnkell Sigurðsson.
Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson
sýnir myndir unnar með blandaðri tækni.
Gallerí Terpentine | Odd Nerdrum og
Stefán Boulter.
Gel Gallerí | Ólafur grafari sýnir verk sín.
Grafíksafn Íslands | Daði Guðbjörnsson
sýnir vatnslitamyndir.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Jóhannes Dagsson „End-
urheimt“. Á sýningunni eru verk unnin
með blandaðri tækni. Einnig sýningin
„List og náttúra með augum Norður-
landabúans“.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson –
Sólstafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltal-
ín sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í
Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Mílanó | Jón Arnar Sigurjónsson
sýnir olíumyndir á striga.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal eitt verk,
ekkert upphaf né endir.
Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Frið-
jónsson. Olíumálverk og skúlptúrar unnir
í leir og málaðir með olíulitum.
Listasafnið á Akureyri | Erró.
Listasafn Íslands | Lokað til 14. maí
þegar sýning á verkum Dieters Roth
opnar.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjór-
ar glerlistasýningar.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Lokað.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Lokað.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Salurinn | Andi Manns er heiti á sýningu
Leifs Breiðfjörð.
Smáralind | Sýning Amnesty Int-
ernational „Dropar af regni stendur yfir í
Smáralind.
Suðsuðvestur | Birta Guðjónsdóttir.
Leiklist
Félagsheimilið Hvoll | Vodkakúrinn verð-
ur sýndur í Félagsheimilinu í kvöld kl. 21.
Miðapantanir og upplýsingar í síma 487-
8050.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10–
17. Fræðandi hljóðleiðsögn um húsið,
margmiðlunarsýning um ævi skáldsins
og fallegt umhverfi. Sími 586-8066 net-
fang: gljufrateinn@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins
í Þjóðmenningarhúsinu. Hallgrímur er
eitt fremsta skáld Íslendinga fyrr og síð-
ar. Drepið er á æviatriði Hallgríms og
staldrað við atburði sem marka hvörf í
hans ferli.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til –
menning og samfélag í 1.200 ár. Ómur
Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Í Vesturheimi 1955
ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslend-
ingar í Riccione ljósmyndir úr fórum
Manfroni-bræðra. Opið kl. 11–17.
Fréttir
ITC-samtökin á Íslandi | Landsþing ITC
á Íslandi verður haldið dagana 29.–30.
apríl, í Oddfellowhúsinu Vonarstræti 10, í
Reykjavík og er öllum opið. M.a. verður
ræðukeppni á föstudagskvöldið og
fræðsludagsskrá á laugard. Auk annarra
aðalfundastarfa. Uppl. fást: www.sim-
net.is/itc, eða s.: 698-7204/897-4439.
Kolaportið | Félagar í Lionsklúbbi Kópa-
vogs verða með sölubás í Kolaportinu
laugardag og sunnudag. M.a. verða seldir
skór og Saga Kópavogs sem klúbburinn
gaf út verður einnig til sölu ásamt ýms-
um flóamarkaðsvarningi. Öllum ágóða af
sölunni verður varið til líknarmála.
Leikskólarnir í Seljahverfi | Börn og
starfsfólk leikskólanna í Seljahverfi
verða með opið hús á morgun, laug-
ardag, í eftirtöldum leikskólum í Selja-
hverfi: Jöklaborg v/ Jöklasel og Selja-
borg v/ Tungusel kl. 10–12, Seljakot v/
Rangársel og Hálsakot v/ Hálsasel kl. 11–
13 og Hálsaborg v/ Hálsasel kl. 12–14.
Skemmtanir
Ari í Ögri | Dúettinn Halli og Kalli.
Búálfurinn | Hermann Ingi jr.
Cafe Catalina | Örvar Kristjánsson leikur.
Klúbburinn við Gullinbrú | Sólon með
dansleik, frítt inn. Brimkló leikur laug-
ardagskvöld.
Kringlukráin | „Labbi í Mánum“ öðru
nafni Ólafur Þórarinsson, og hljómsveitin
Karma með dansleik.
Mótel Venus | Sixties spila í kvöld.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Úlf-
arnir skemmta í kvöld og á morgun. Hús-
ið opnað kl. 22, frítt inn til miðnættis.
Fundir
Kornhlaðan | Vorfundur Samtaka móð-
urmálskennara verður haldinn í dag, kl.
13–16.45 í Litlu-Brekku. Kynning verður á
nýjum kennslubókum og fjallað um stytt-
ingu náms til stúdentsprófs: Anna María
Gunnarsdóttir FB Guðlaug Guðmunds-
dóttir MH Steinunn Inga Óttarsdóttir
MK.
Krabbameinsfélagið | Krabbameinsfélag
Hafnarfjarðar heldur aðalfund í Hásölum,
safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju 3.
maí kl. 20. Að loknum aðalfund-
arstörfum ræða Aðalheiður Þórðard. og
Halldóra Eyjólfsd. sjúkraþj. á LSH um lík-
amsrækt sem vörn gegn krabbameini.
Fundarstj. Þorgrímur Þráinsson. Allir vel-
komnir.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur í dag,
á Háaleitisbraut 58–60, kl. 17, í umsjá
Lilju Kristjánsdóttur. Allar konur vel-
komnar.
Málstofur
KFUM og KFUK | Málfundur um líðan
stráka og ungra karlmanna á Holtavegi
28, á morgun, laugardag, kl. 11–13. Fyr-
irlesarar Ingólfur V. Gíslason jafnrétt-
isfulltrúi og Gunnar J. Gunnarsson lekt-
or.
Námskeið
MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir
landsbyggðarfólk um MS-sjúkdóminn
verður haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk
með nýlega greiningu MS, upp að 2–3
árum. Taugasérfræðingur, félagsráðgjafi,
hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi og sjúkra-
þjálfari veita fræðslu. Námskeiðið verður
í húsi MS-félags Íslands á Sléttuvegi 5,
Reykjavík. Upplýsingar veitir Margrét fé-
lagsráðgjafi í símum 568-8620 og 897-
0923.
Ráðstefnur
Askja – Náttúrufræðihús HÍ | Opnun
þekkingarseturs í fræðilegri tölv-
unarfræði, verður í dag kl. 15.30 í Öskju.
Þekkingarsetrið ICE–TCS er samvinnu-
verkefni tölvunarfræðisviðs Verk-
fræðistofnunar Háskóla Íslands og
Tækni- og verkfræðid. Hásk. í Rvík. Frek-
ari upplýsingar á, http://www.hi.is/̃mmh/
centre/
Börn
Ketilhúsið Listagili | Ævintýradansleik-
hús barna heldur upp á vorið með sýn-
ingu í dag á alþjóðlegum degi dansins.
Fram koma: Fjöllista- og spunahópur
með sýninguna: „Hver er ég?“ Ball-
etthópar. Danshópur kvenna. Tvær sýn-
ingar verða kl. 16 og kl. 18.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
YFIRSKRIFT tónleika kammerkórs Mos-
fellsbæjar er „Nú vorljóðin óma“. Efnis-
skráin er mjög fjölbreytt og inniheldur hún
verk frá öllum helstu tímabilum sögunnar,
þar sem þekktustu tónskáld tónlistarsög-
unnar koma við sögu.
Meðal tónskálda eru ensku endurreisn-
artónskáldin J. Dowland og Henri VIII,
ítölsku meistararnir L. da Vidana, G.P.
Palestrina, G. Caccini og G. Carissimi, og
svo klassísku Vínarmeistararnir J. Haydn
og W.A. Mozart. Einnig verða sungin nokk-
ur íslensk þjóðlög í útsetningu Hafliða
Hallgrímssonar, Jóns Ásgeirssonar og
Gunnars Reynis Sveinssonar. Þá verða
sungin tvö gospellög, annað í útsetningu
A. Thomas og hitt eftir E.M. Sontonga.
Verkefnin eru frá mörgum ólíkum lönd-
um og eru þau öll sungin á frummáli sínu. Í
lok tónleikanna verður boðið upp á fjölda-
söng. Kórstjóri Kammerkórs Mosfells-
bæjar er Símon H. Ívarsson og meðleikari
er Arnhildur Valgarðsdóttir.
Vortónleikar Kammerkórs Mosfellsbæjar
Vortónleikar Kammerkórs Mos-
fellsbæjar verða á morgun, sunnu-
daginn 1. maí, kl. 16 í Þrúðvangi,
Álafossvegi 20, í Mosfellsbæ.
Íslandsmótið í tvímenningi.
Norður
♠9873
♥ÁK7
♦432
♣ÁK4
Vestur Austur
♠64 ♠KG1052
♥D643 ♥1092
♦K976 ♦G85
♣1096 ♣52
Suður
♠ÁD
♥G85
♦ÁD10
♣DG873
Þrjú grönd er hinn sjálfsagði samn-
ingur í NS og þar endaði öll hjörðin í úr-
slitum Íslandsmótsins. Sagnhafi vinnur
sitt spil auðveldlega, en í tvímenningi
þarf að berjast blóðugum bardaga um
hvern yfirslag. Hvernig metur lesand-
inn horfurnar í þremur gröndum suðurs
eftir tígul út frá vestri?
Slagirnir eru nú tíu og ellefu með
svíningu í spaða. Flestir fengu ellefu
slagi, en tveir sagnhafar náðu í tólf. Ein
leið að tólf slögum er þessi: Laufin eru
tekin og tveir slagir teknir á spaða með
svíningu. Vestur þarf að halda í hjarta-
drottninguna þriðju og þar má senda
hann inn til að spila tígli upp í gaffalinn í
lokin.
En er það skynsamleg leið?
Ekki endilega. Ef austur á hjarta-
drottningu og kemst þar inn, gæti slag-
ur sagnhafa á tígulás horfið. Önnur leið
og ekki eins áhættusöm er þessi – að
svína spaða og spila svo tígultíu að
heiman. Vestur drepur og spilar (von-
andi) enn tígli. Þá gæti myndast víxl-
þvingun á austur ef hann á fimmlit í
spaða með hjartadrottningu.
Í lokastöðunni ætti blindur 98 í spaða
og ÁK í hjarta, en heima væri sagnhafi
með spaðaásinn blankan og Gxx í
hjarta. Hafi austur byrjað með spaða-
lengdina og hjartadrottningu, verður
hann að gefa upp valdið á öðrum litnum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Þar sem
konurnar
versla