Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri
Málþing um akstur utan vega
laugardaginn 30. apríl 2005 kl. 13.00-17.00
Salur Ferðafélags Íslands, Mörkin 6
13:00-13:25 Opnunarerindi
Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar
13:25-13:55 Vegaskilgreining og umfang utanvegaumferðar
Eymundur Runólfsson, forstöðumaður hjá Vegagerðinni
Ástæður og afleiðingar utanvegaaksturs
Halldór Jónsson, Gæsavatnafélaginu
13:55-14:25 Gallar á lagalegu umhverfi
Freysteinn Sigurðsson, Landvernd
14.25-14:35 Kynning á framtaki Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
Inga Rósa Þórðardóttir, kennari
14:35-15:00 Tillögur nefndar um utanvegaakstur
Árni Bragason, forstöðumaður Náttúruverndarsviðs
hjá Umhverfisstofnun og Eydís Líndal Finnbogadóttir,
forstöðumaður hjá Landmælingum
15:00-15:15 Kaffi
15:15-15:30 Áætlanir umhverfisráðuneytis
Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra
15:30-17:00 Viðbrögð hagsmunahópa og umræður
Fulltrúar ólíkra hagsmunahópa
Þingstjóri: Björgólfur Thorsteinsson
formaður Landverndar
Kaffi 500 kr.
Hvorki fleiri né færri en þrjár plötur
eru á leiðinni frá Ghostigital á árinu.
10 ára afmæli Hafs
Curver hóf tónlistarferilinn fyrir
alvöru fyrir u.þ.b. 14 árum. Þá spilaði
hann á gítar og söng við taktinn úr
trommuheila. Nýlega gaf Smekk-
leysa út safnplötuna Sær, með 17
lögum frá árunum 1991–1994.
„Hún kom reyndar ekki út fyrr en
á Þorláksmessu vegna einhverra
mistaka í framleiðslu, en ég er mjög
ánægður með að hafa náð að senda
hana frá mér á tíu ára afmælisári
plötunnar Hafs, en á þessari safn-
plötu eru lög af henni og öll lög sem á
undan komu, í tímaröð,“ segir Birgir.
„Þessi plata klárar visst tímabil og
gefur ákveðna yfirsýn yfir það, auk
þess að með útgáfunni er verið að
fagna afmæli fyrstu plötunnar.“
Alltaf að upplifa eitthvað nýtt
Hvernig tilfinning er að horfa á
þetta tímabil úr fjarlægð? Færðu
ekki á tilfinninguna að þú sért orðinn
svolítið gamall?
Birgir Örn Thoroddsen erorðinn einn aðal-upptökustjóri íslenskrarjaðartónlistar, en hann
hefur unnið sem slíkur með rokk-
sveitum á borð við Mínus og Singa-
pore Sling. Hann er langt í frá hætt-
ur á þeirri braut og hefur getið sér
afar gott orð sem upptökustjóri.
Næsta verkefni verður hljómplata
Mammúts, sigursveitar Músíktil-
rauna 2004, en upptökur eiga að fara
fram í sumar. Þá er væntanleg plata
með samstarfsverkefni hans og
hljómsveitarinnar Kimono, en Alex
MacNeil, söngvari sveitarinnar,
stendur að Tíma, miðstöð fyrir tíma-
listir, ásamt Birgi og nafna Birgi
Erni Steinarssyni, söngvara Maus.
Birgir Örn notar listamannsnafnið
Curver og kemur fram sem slíkur
með hljómsveitinni Ghostigital, en
hann er aðalmaður hennar ásamt
Einari Erni Benediktssyni, sem áður
var í hljómsveitinni Purrk Pillnikk.
„Nei, ég byrjaði svo ungur,“ segir
hann og kímir. „Mér finnst ég alltaf
vera jafnungur; alltaf að upplifa eitt-
hvað nýtt og finna nýja fleti á hlut-
unum. Ég er fæddur árið 1976 og lék
á mínum fyrstu tónleikum árið 1989
ásamt Hinum vonlausu 13 ára gam-
all. Fyrsta Curver-lagið er tekið upp
1991 og næstu þrjú ár voru mjög af-
kastamikið tímabil hjá mér. Tilfinn-
ingin þegar maður horfir til baka á
þessi 10–13 ára gömlu lög er góð,
ekki síst vegna þess að ég hef þróast
frá þessari tónlist, en ég hafði mjög
mikið gaman af því að fara í gegnum
upptökurnar. Ég fann ýmislegt sem
reyndist svo vera grunnur að því
starfi sem ég er að vinna í dag, en
engu að síður er þetta kannski meira
tónlistarsögulegt verkefni en að ver-
ið sé að gefa þetta út tónlistarinnar
vegna. Ég er löngu hættur að gera
svona Joy Division- og Sonic Youth-
gítarrokk.
Ég er núna að kenna tónlistarsögu
og hef alltaf haft gaman af því að
hanna svona verkefni. Þetta var
virkilega skemmtilegt verkefni, þótt
músíkin sjálf sé svolítið gömul í mín-
um eyrum núna. Maður veit samt
aldrei, það er nú svo mikil Joy Divis-
ion bylgja núna; kannski selst disk-
urinn í tíu þúsund eintökum,“ segir
hann og hlær.
Sáttur við trommuheilann
Curver notaði sem fyrr segir að-
eins gítar og trommuheila á þessum
árum.
„Ég er mjög ánægður með útsetn-
ingar, en auðvitað er þetta mjög
hrátt. Ég er líka þokkalega sáttur við
trommuheilahljóminn, því ég var
alltaf með mjög hrátt trommuheila-
sánd, sem hefur ekki elst illa. Ég er
mjög feginn að hafa ekki notað ein-
hverja dauðhreinsaða Roland-græju.
Þróunin hefur verið alveg línuleg
síðan þetta var. Ég er ennþá að nota
tölvur og ennþá að spila lifandi tón-
list. Ég set ekki bara á „play“ á tölv-
unni, heldur spila á allskonar takka
eins og ég spilaði á gítarstrengi í
gamla daga. Svo er ákveðin óhljóð-
atilfinning í mörgum þessum gömlu
lögum, svona Sonic Youth-gítar-
óhljóðum, en hún hefur þróast út í að
vera meiri hljóðheimur hjá mér,“
segir hann. „Í gömlu lögunum eru öll
hráefnin sem mér líkar til staðar, en
þeim er blandað saman á öðruvísi
hátt en ég geri í dag.“
Ekki hættur sem Curver
Birgir Örn segir það vera algeng-
an misskilning, að hann sé hættur að
koma fram sem listamaðurinn
Curver.
„Ég hef alltaf haldið þessu lista-
mannsnafni fyrir allt það sem ég er
að gera í tónlist. Til dæmis vinn ég í
Ghostigital sem Curver og sem upp-
tökustjóri kem ég líka fram sem
Curver. Þetta er ekki ósvipað og
sumir raf- og hipp-hopptónlist-
armenn eru að gera í dag. Margir
vina minna frá þessum fyrstu árum
þekkja mig líka bara sem Curver.
Tilhneigingin hjá mér síðustu tíu ára
hefur verið að setja allt undir þennan
Curver-hatt. Ég er annars vegar að
vinna að tilraunatónlist og er hins
vegar upptökustjóri. Ég er að reyna
að ná fram sama hljómi í báðum til-
fellum,“ segir hann.
Birgir leggur áherslu á að hann er
upptökustjóri, en ekki upptöku-
maður. „Það er munur þar á. Upp-
tökustjóri velur sér listamenn til að
vinna með, en upptökumaður byggir
afkomu sína á því að einhver labbi
inn í hljóðverið og ráði hann til að
vera á tökkunum. Þá er sama hvort
um er að ræða trúbador eða teknó-
tónlistarmenn. Hlutverk upp-
tökustjórans er mun nær leikstjórn.
Sumir leikstjórar sérhæfa sig í
ákveðinni tegund verka og hið sama
á við um upptökustjóra.“
Hættur með Atari-tölvuna
Birgir hefur spilað töluvert af til-
raunakenndri raftónlist undir nafn-
inu Curver síðan árið 1998 og verið
mjög virkur í þeirri litlu senu hér
heima.
„Ég held ég hafi aldrei spilað
sjaldnar en þrisvar-fjórum sinnum á
ári sem Curver og það vill oft gleym-
ast. Tilgangurinn með þessari safn-
plötu er í og með að ljúka þessu ný-
bylgjurokks-tímabili í hugum fólks.
Það er dálítið sárt, þegar maður er
búinn að vera að gera allt öðru vísi
tilraunakennda og þróaðri tónlist síð-
an 1998, að vera spurður hvort mað-
ur ætli að vera með gítarinn og
gömlu Atari-tölvuna, þegar maður
segist ætla að fara að spila sem
Curver.“
Tónlist | Birgir Örn Thoroddsen er afkastamikill tónlistarmaður og upptökustjóri
Gerir upp fyrstu
ár Curvers
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Curver árið 1994 um það leyti sem
hann sendi frá sér plötuna Haf.
Morgunblaðið/Sverrir
Birgir Örn Thoroddsen, sem ekki vill láta kalla sig Bibba Curver, er annar
tveggja liðsmanna Ghostigital og einn eftirsóttasti upptökustjóri landsins.
FRAMLEIÐENDUR sjónvarps-
þáttarins American Idol segja að
rannsókn standi yfir á ásökunum um
að Paula Abdul, einn dómarinn í þátt-
unum, hafi átt í ástarsambandi við
keppanda í þáttunum árið 2003.
Fréttir hafa borist af því að Corey
Clark, sem komst í úrslit American
Idol árið 2003, hafi skrifað bók þar
sem hann fullyrðir að þau Abdul hafi
átt í ástarsambandi. Segir hann að
Abdul hafi boðið sér fjárhagsaðstoð
og þrýst á sig að
halda sambandi
þeirra leyndu.
Clark, sem er 24
ára, var rekinn úr
sjónvarpsþáttunum
eftir að í ljós kom að
hann hafði verið
ákærður fyrir að
beita systur sína
kynferðislegu of-
beldi.
Blaðið Los Angel-
es Times hefur eftir
heimildarmönnum
að Abdul hafi vísað ásökunum Clarks
á bug þegar framleiðendur þáttanna
báru þær undir hana.
Sjónvarpsstöðin ABC News hefur
að undanförnu unnið að fréttaskýr-
ingarþætti þar sem fjallað er um ým-
islegt sem gerist bak við tjöldin í þátt-
unum American Idol. Að
sögn Los Angeles Times
hefur Marty Singer, lög-
maður Abdul, varað ABC
við því að verði þátturinn
sýndur í næstu viku, eins
og til stendur, geti máls-
höfðun fylgt í kjölfarið.
Talsmaður Abdul hef-
ur sent yfirlýsingu til
sjónvarpsþáttarins
Access Hollywood þar
sem segir að Abdul ætli
ekki að leggja sig svo lágt
að svara ásökunum
Clarks, sem sé yfirlýstur lygari og
tækifærissinni. Nú breiði hann út lyg-
ar um Abdul til að tryggja að bók
hans seljist. Simon Cowell og Randy
Jackson, meðdómarar Abdul í þátt-
unum, hafa tekið í sama streng í við-
tölum og standa með henni.
Sjónvarp | American Idol-hneyksli?
Átti Abdul í ástarsambandi við keppanda?
Paula Abdul er sá dóm-
aranna þriggja sem þykir
tengjast keppendum hvað
sterkustum böndum.