Morgunblaðið - 29.04.2005, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ALLS EKKIFYRIRVIÐKVÆMA!
DV
The Jacket kl. 5.50 - 8 - 10.10 b.i. 16 ára
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 - 8 - 10.30
Maria Full of Grace kl. 6 b.i. 14 ára
Napoleon Dynamite kl. 8 - 10
Vera Drake kl. 5.30 - 8
Hole in my Heart kl. 10,30 b.i. 16 ára
Garden State kl. 5.45 - 8 b.i. 16 ára
9 Songs kl. 10,15 b.i. 16 ára
S.V. MBL
Ó.H.T Rás 2
H.L. MBL
Ó.H.T Rás 2
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur. Með
Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (The Pianist) og Keira
Knightley úr „Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”.
3
ÓSKARSTILNEFNINGAR
MBL
Ó.H.T Rás 2
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur.
Með Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (The Pianist) og Keira
Knightley úr „Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”.
4 sýningar eftir 4 sýningar eftir
A Hole
in my Heart
SPENNUMYNDIN xXx2: The Next Level er fram-
haldsmynd xXx frá 2002 og er hún frumsýnd hér-
lendis á sama tíma og í Bandaríkjunum. Í þetta
skiptið eru pólitísk átök í gangi og vinsæll forseti
verður skotmark leynilegs hóps innan Bandaríkja-
stjórnar.
Tveir menn geta komið í veg fyrir þetta ódáðaverk.
Annar þeirra er Augustus Gibbons (Samuel L. Jack-
son) en hann lifði af árás á leynilegar höfuðstöðvar
NSA og er á flótta. Hinn er Darius Stone (Ice Cube)
en hann er sérsveitarhermaður, sem er í varðhaldi í
herfangelsi.
Gibson þarf á ný á hjálp utangarðsmanns að halda
og Stone er rétti maðurinn. Nýi xXx-leyniþjón-
ustumaðurinn verður að stöðva uppreisnina innan frá.
Það er eina von landsins til að stöðva fyrstu valda-
ránstilraunina í sögu Bandaríkjanna.
Frumsýning | xXx2: The Next Level
Tilraun til valdaráns
Ice Cube forðast ekki eldfim málefni.
HÉR í eina tíð var það Mickey litli
Rooney sem þótti aðalrúsínan í
Hollywood. Nú þegar Rooney karl-
inn er sestur í helgan stein í hárri
elli fer vel á að nýr Rooney sé farinn
að banka á dyrnar. Sá kemur hins
vegar úr ólíklegustu átt, er einn efni-
legasti knattspyrnumaður í heim-
inum í dag og heitir Wayne Rooney.
Hinn smáa og knáa Manchester
United-kempa hefur þó enn sem
komið er ekki í hyggju að spreyta
sig sem kvikmyndaleikari heldur
hefur hann að sögn keypt hlut í
framleiðslufyrirtæki sem m.a. gerði
nýjustu myndina með Orlando Blo-
om, sem heitir Kingdom of Heaven
og verður frumsýnd um aðra helgi.
Fyrirtækið heitir Inside Track 3 og
hefur m.a. framleitt stórmyndir Rid-
leys Scotts, sem gerði m.a. Ósk-
arsverðlaunamyndina Gladiator.
Þótt Rooney sé aðeins 19 ára gamall
hefur hann hagnast mjög á knattfimi
sinni og er nú far-
inn að huga að því
hvernig hann get-
ur fjárfest vit-
urlega. Ráðgjafar
hans eiga að hafa
ráðlagt honum að
fjárfesta í kvik-
myndageiranum
og ku honum hafa
litist prýðilega á
að hasla sér völl á þeim stjörnum
þakta vettvangi. „Það er mjög
spennandi að eiga smáhluta í Holly-
wood,“ lét hann hafa eftir sér í sam-
tali við breska götublaðið The Sun.
Aðrir frægir einstaklingar sem fjár-
fest hafa í Inside Track 3 kvik-
myndafélaginu eru m.a. tónlist-
armennirnir George Michael og
Peter Gabriel. David Beckham og
Gary Lineker eru aðrir sem veitt
hafa kvikmyndaverkefnum fjárhags-
legan stuðning.
Nýr Rooney
í Hollywood
Wayne Rooney
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFINN
Adrien Brody leikur í The Jacket,
spennandi sálfræðitrylli um her-
manninn Jack Starks, sem skotinn
var í höfuðið í Persaflóastríðinu.
Ævintýri hans eru ekki úti því þeg-
ar hann snýr aftur heim til Ver-
mont er hann sakaður um morð
sem hann framdi ekki. Hann þjáist
af minnisleysi og fleiri kvillum eftir
stríðið og er því sendur á geð-
veikrahæli í stað fangelsis. Þar fer
hann í meðferð hjá hinum illa Dr.
Becker (Kris Kristofferson) en hún
felst m.a. í því að hann er settur í
spennitreyju ofan í lítið rými á
hverju kvöldi. Inni í því þjáist hann
vegna hræðilegra minninga úr
stríðinu.
Sem afleiðing af lyfjagjöfinni
ferðast hann inn í framtíðina þar
sem hann hittir Jackie (Keira
Knightley) og kemst að því að hann
deyr eftir fjóra daga. Jack verður
nú að nota þessa nýju náðargáfu til
að komast að því hvað kom fyrir
hann í þeirri von að hann geti
breytt sögunni.
Leikstjóri myndarinnar er John
Maybury og Brian Eno semur tón-
listina.
Frumsýning | The Jacket
Í spennitreyju inn í framtíðina
Adrien Brody lendir í hremmingum í The Jacket.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 44/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 80/100
New York Times 40/100
Variety 40/100 (metacritic)
Paul Chedlow
Kvikmyndastjarnan Tom
Cruise er sagður vera
kominn með nýja kær-
ustu og er sú „heppna“
leikkonan Katie Holmes.
Lee Anne DeVette, systir
Cruise og fjölmiðla-
fulltrúi, segir þau hafa
verið saman í nokkrar
vikur.
Þau sáust fyrst saman
opinberlega í Róm í vik-
unni þar sem Cruise mun
taka við David di Dona-
tello-kvikmyndaverðlaun-
unum í dag. Þetta kemur
fram á fréttavef CNN.
Cruise hefur verið kvæntur leikkonunum Mimi Rogers og Nicole Kidman
auk þess sem hann átti í löngu sambandi við spænsku leikkonuna Penelope
Cruz. Holmes var áður trúlofuð leikaranum Chris Klein en þau slitu trúlofun
sinni nýlega.
Cruise með nýja kærustu
Tom Cruise Katie Holmes