Morgunblaðið - 07.05.2005, Page 6
6 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GH
-S
N
05
05
00
6
í dag, laugardag.
Vorbúhnykkurinn er í fullum
gangi og þess vegna verður
mikið um að vera í verslun
okkar í dag, laugardag.
Það verður opið frá 11 til 16.
Láttu sjá þig
og gerðu góð kaup.
Heitt á könnunni.
Það verður opið fyrir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá 20 félagsmönnum í
Samfylkingarfélagi Vestmanna-
eyja.
„Við undirritaðir félagsmenn í
Samfylkingarfélagi Vestmanna-
eyja styðjum Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur „Alla leið“.
Andrés Sigurvinsson, Björn Elí-
asson, Elías Björnsson, Guðrún
Erlingsdóttir, Gylfi Sigurðsson,
Hjálmfríður Sveinsdóttir, Hörður
Þórðarson, Jóhanna Inga Jóns-
dóttir, Jón Hauksson, Kristín Val-
týsdóttir, Magnea Bergvinsdóttir,
Olga Færseth, Óðinn Hilmisson,
Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir, Ólöf
Margrét Magnúsdóttir, Sigrún
Bjarnadóttir, Smári Jökull Jóns-
son, Steinunn Jónatansdóttir, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, Örn Hilm-
isson.“
20 Eyjamenn sem styðja
Ingibjörgu Sólrúnu
Á ÁRSFUNDI Veiðimálastofnunar
í gær, spáði Guðni Guðbergsson
fiskifræðingur góðri laxveiði í sum-
ar. Þrátt fyrir að engin traust
spálíkön séu til, þá sagði Guðni að
útfrá veiði síðasta árs, þegar tals-
verð aukning varð frá árunum á
undan, vænar smálaxagöngur og
metveiði í nokkrum ám, mætti bú-
ast við auknum stórlaxagöngum í
sumar.
Þá segir Guðni að búast megi
við því að smálaxagöngur verði
svipaðar eða jafnvel heldur meiri.
Ekki séu merki um fækkun göngu-
seiða og endurheimtur úr sjó virð-
ast hafa hækkað; það bendi til
þess að ástand sjávar sé með betra
móti.
Stórlaxi verði sleppt
Guðni býst við því að aukningin
á stórlaxi muni fremur koma fram
í ám á Norður- og Austurlandi, þar
sem stórlaxahlutfall er jafnan
hærra en gerist á Vestur- og Suð-
urlandi. Vonast hann því til að
draga fari úr fækkun á stórlaxi, en
göngur stórlaxa og veiði hafa farið
minnkandi á síðustu tveimur ára-
tugum.
Fram kom að á síðustu árum
hafi sífellt aukist að stangaveidd-
um laxi sé sleppt aftur í árnar, og
er hlutfallið nú um 16%. Enn
hærra hlutfalli er sleppt af tveggja
ára laxi, eða um 25%. Hvetur
Guðni veiðimenn til að halda áfram
að hlífa stórlaxinum, til að viðhalda
erfðaþættinum. Tók Óðinn Sig-
þórsson, formaður Landssambands
veiðifélaga undir þau orð, og sagði
að veiðimenn þyrftu að gera enn
betur í sleppingum á stórlaxi.
Guðni ræddi einnig um vaxandi
sjóbirtingsveiði í mörgum ám og
býst hann við að hún aukist enn
frekar.
Morgunblaðið/Golli
Í kjölfar góðs laxveiðisumars í fyrra, spáir Guðni Guðbergsson fiskifræð-
ingur öflugum stórlaxagöngum í sumar og svipuðum smálaxagöngum.
Spáir góðri lax-
veiði í sumar
STANGVEIÐI
PERSÓNUVERND ítrekaði í gær í bréfi til sam-
göngunefndar Alþingis gagnrýni á ákvæði frum-
varps samgönguráðherra um breytingar á fjar-
skiptalögum.
Persónuverndar leggst gegn ákvörðun sam-
göngunefndar að láta 9. grein frumvarpsins
standa óbreytta en hún kveður á um aðgang lög-
reglu að upplýsingum um svonefndar IP-tölur
tölva sem tengdar eru Netinu.
Fram kemur í bréfinu að nefndin rökstyður
þessa ákvörðun m.a. með vísan til þess að mik-
ilvægt sé að greinin standi óbreytt, þar sem nú-
gildandi ákvæði laga um meðferð opinberra mála
hafi í dómaframkvæmd verið túlkuð þannig að
lögregla hafi ekki getað fengið upplýsingar um
IP-tölur nema við broti því sem til rannsóknar
væri lægi annað hvort 8 ára fangelsi eða um væri
að ræða ríka almanna- eða einkahagsmuni. Nái
þetta ákvæði ekki fram að ganga verði lögreglu
gert ókleift að aðhafast vegna brota á netinu
nema í alvarlegustu tilvikum.
Rökréttara að áskilja dómsúrskurð
fyrir aðgangi lögreglu
Persónuvernd er ósammála þessum rökstuðn-
ingi. ,,Mun rökréttara er, að mati Persónuvernd-
ar, að áskilja dómsúrskurð fyrir slíkum aðgangi
lögreglu að persónuupplýsingum fremur en að
víkja frá almennt viðurkenndum og stjórnar-
skrárvörðum réttindum manna til að njóta frið-
helgi um einkalíf sitt. Í þessu sambandi er enn
minnt á að hafa ber í huga grundvallarrétt ein-
staklinga til að njóta friðhelgi um einkalíf sitt,
sem varinn er af 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8.
gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, og þær meg-
inreglur réttarríkisins sem eiga m.a. að standa
vörð um þann rétt. Minnt er á að að jafnaði tekur
ekki nema einn til tvo daga, hér á landi, að fá
slíkan úrskurð. Þá er minnt á að slíkt skerðir á
engan hátt rannsóknarhagsmuni þar sem ip-tölur
eru skráðar og aðgengilegar. Hefur ekki verið
sýnt fram á nokkur veigamikil rök fyrir því að
víkja frá meginreglunni um að dómsúrskurð
þurfi,“ segir m.a. í bréfi Persónuverndar til sam-
göngunefndar Alþingis í gær.
Persónuvernd ítrekar gagnrýni á frumvarp um breytingar á fjarskiptalögum
Vikið frá viðurkenndum
rétti til friðhelgi einkalífs
DÓRA Sif Tynes, forstöðu-
maður lögfræði- og stjórn-
sýslusviðs Og Vodafone, undr-
ast vinnubrögð við afgreiðslu
fjarskiptalagafrumvarps sam-
gönguráðherra. Hún er ósátt
við hversu mikið kapp er lagt
á að afgreiða það á yfirstand-
andi þingi.
Og Vodafone fékk u.m.b.
viku til að gefa samgöngu-
ráðuneytinu umsögn um
frumvarpið og samgöngu-
nefnd veitti svo félaginu tvo
til þrjá daga til að semja um-
sögn til nefndarinnar, að sögn
hennar.
Stenst gagnvart
friðhelgi einkalífs?
Dóra Sif segir að þótt þing-
nefndin hafi eitthvað átt við
ákvæði frumvarpsins um
varðveislu IP-gagna sem
fjallar um skyldu fjarskipta-
fyrirtækja til að veita lög-
reglu aðgang að gögnum, þá
standi grundvallarspurningin
óhögguð um hvort þetta að-
gengi að persónuupplýsingum
standist gagnvart réttindum
manna til að njóta friðhelgi
einkalífs.
„Ég fæ ekki séð að menn
hafi gefið þessu gaum og leit-
ast við að svara því hvort
þetta sé í lagi. Ég er ekki
sannfærð um að rannsóknar-
hagsmunir séu svo ríkir að
þeir geti rutt friðhelgi einka-
lífsins úr vegi,“ segir hún.
Og Vodafone gerir einnig
m.a. athugasemdir við ákvæði
um tveggja ára biðtíma áður
en Póst- og fjarskiptastofnun
getur kveðið á um skyldu til
samninga um svonefnt reiki,
en með því á að vera tryggt
að farsímafyrirtæki eigi að-
gang að farsímanetum ann-
arra fyrirtækja þegar upp-
bygging eigin aðstöðu er talin
óraunhæf.
Dóra Sif segir að ef nýr að-
ili komi inn á farsímamark-
aðinn þýði þetta ákvæði um
tveggja ára biðtíma að reiki-
skylda verði lögð til hliðar
eins og við þekkjum hana í
dag.
Að mati hennar væri skyn-
samlegast að fresta afgreiðslu
frumvarpsins og fara nánar
yfir málið í samráði við hags-
munaaðila og skoða álitamál
sem varða persónuvernd mun
betur.
Lögfræðingur
Og Vodafone
Gagnrýn-
ir vinnu-
brögðin
ALMENNINGUR ehf. fékk útboðs-
gögn um Símann afhent í gær en að
sögn Orra Vigfússonar, eins tals-
manna Almennings ehf., eru gögnin
trúnaðarmál og hann má ekki upplýsa
hvað þau innihalda. Almenningur ehf.
vildi fá gögnin sem fyrirtækið Morg-
an Stanley útbjó afhent og um leið
umboð til að mega kynna þau fjár-
festum sem hafa áhuga á Símanum.
„Nú förum við yfir þessi gögn í stjórn-
inni og þau hjálpa okkur að meta mál-
ið og skoða hvernig staðan er og
hvaða framtíðarhorfur eru þarna. Við
erum að undirbúa tilboð og ræða við
ýmsa fjárfesta,“ segir Orri en honum
þætti eðlilegra að almenningur mætti
sjá gögnin í upphafi ferlisins.
Jörundur Valtýsson, ritari einka-
væðingarnefndar, segir að til að fá út-
boðsgögnin í hendur þurfi að undir-
rita trúnaðarsamning. Einstaklingar
geti fengið gögnin en ljóst þurfi að
vera að alvara sé að baki. Jörundur
segir að þar sé helst litið til fjárhags-
legs styrks viðkomandi auk þess sem
keppinautar Símans megi ekki fá
gögnin í hendurnar enda séu þar
trúnaðarupplýsingar um fyrirtækið.
Hann segir að fjöldi hópa og einstak-
linga hafi fengið gögnin í hendurnar
og telur að þeir skipti tugum.
Almenningur
ehf. kominn með
útboðsgögnin
FORSETI Ind-
lands, dr. A.P.J.
Abdul Kalam,
kemur í opinbera
heimsókn til Ís-
lands í lok maí-
mánaðar, en með
heimsókninni er
hann að endur-
gjalda opinbera
heimsókn forseta
Íslands til Ind-
lands fyrir nokkrum árum.
Forseti Indlands kemur með fríðu
föruneyti í eigin farkosti 29. maí og
fer héðan 1. júní, en auk Íslands mun
hann einnig heimsækja Sviss og
Rússland, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.
Abdul Kalam er fæddur í fylkinu
Tamil Nadu á Indlandi árið 1935.
Hann braust til mennta og lærði
flugvélaverkfræði í Madras og er
einn aðalhöfundur að flug- og geim-
ferðaáætlun Indlands. Hann er jafn-
framt einn virtasti vísindamaður
landsins og er heiðursdoktor við
þrjátíu háskóla.
Forseti Indlands í
opinbera heimsókn
A.P.J. Abdul
Kalam