Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 17 MINNSTAÐUR KYNNISFERÐIR og SBK (Sér- leyfisbifreiðar Keflavíkur) hefja í byrjun maí nýja þjónustu á Íslandi fyrir ferðamenn í Reykjavík. Um er að ræða hringferð um höfuðborgina samkvæmt svokölluðu „Hop On – Hop Off“-fyrirkomulagi sem margir þekkja frá helstu stórborgum Evr- ópu. Boðið verður upp á ferðir á klukkustundar fresti frá maí til sept- ember með viðkomu á tíu stöðum, alla daga frá kl. 10 á morgnana fram til kl. 17. Ferðirnar hefjast við Arnarhól og eru stoppistöðvar eftirfarandi: Ægisgarður, Þjóðminjasafnið, BSÍ, Hótel Loftleiðir, Perlan, Kringlan, Suðurlandsbraut v/Hótel Nordica, Farfuglaheimilið Laugar- dal og Hallgrímskirkja. Farþegar geta „hoppað úr“ og „hoppað inn“ á þessum stöðum, og dvalið eins lengi og þeir vilja og hald- ið svo hringferðinni áfram. Keyptir hafa verið tveir tveggja hæða vagnar sem taka 80 manns í sæti og eru sérútbúnir og sérmerktir skv. einkaleyfi frá Citysightseeing Ltd. í Englandi. Í vögnunum er leið- sögukerfi á átta tungumálum; ís- lensku, ensku, dönsku, frönsku, þýsku, spænsku, ítölsku og jap- önsku. Verðið er krónur 1.500 fyrir full- orðna og 750 krónur fyrir 12–15 ára. Frítt er fyrir yngri en 12 ára. Sala í ferðirnar er hjá Kynnisferð- um á BSÍ, Hótel Nordica, Hótel Loftleiðum og Hótel Sögu en einnig er hægt að kaupa farmiða í bílunum sjálfum. „Hop On – Hop Off“ í Reykjavík ÞRJÚ tilboð bárust í útboði Vega- gerðarinnar á breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Mikla- brautar. Öll tilboðin voru yfir kostn- aðaráætlun Vegagerðarinnar sem hljóðaði upp á 210 milljónir króna. Lægsta tilboðið kom frá Heimi og Þorgeiri ehf. í Garðabæ, tæplega 230 milljónir króna. Klæðning ehf. í Kópavogi bauð 250 milljónir og Ístak hf. í Reykjavík bauð rúmlega 252 milljónir. Gert er ráð fyrir að verkinu sé að fullu lokið 29. ágúst nk. Öll tilboð voru yfir áætlun STEINAR Björgvinsson garðyrkju- fræðingur og fuglaáhugamaður verður með fræðslu um fugla og gróður í Grasagarði Reykjavíkur í dag, laugardag kl. 11. Hann mun ræða um samspil fugla, skordýra og gróðurs og segja frá því hvernig hægt er að laða fugla að görðunum með réttu plöntuvali. Mæting er í lystihúsinu og er fólki bent á að hafa meðferðis fuglahandbók og sjónauka. Eftir fræðsluna verður boðið upp á te. Í Grasagarðinum hafa verið sett- ir upp nokkrir varpkassar fyrir stara, músarrindil og maríuerlu, auk þess sem nokkrum fuglaböðum hefur verið komið fyrir í samvinnu við Steinar, segir í fréttatilkynn- ingu. Fræðsla um fugla og gróður ♦♦♦ www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 28 30 8 0 5/ 20 05 Nýr Corolla - fjölskyldubíll sumarsins Komdu og sjáðu. Nýr Corolla uppfyllir ströngustu kröfur vandlátra kaupenda um gæði, háþróaðan tæknibúnað og frábæra aksturseiginleika. Þess vegna hafa Íslendingar tekið Corolla fram yfir aðrar tegundir. Þeir vilja fá það sem skiptir mestu máli: Hagstætt verð, traust, öryggi og bíl sem er frábær í endursölu. Verð frá 1.755.000 kr. Komdu við, skoðaðu og fáðu að reynsluaka nýjum Corolla. Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 Vinsælasti vorboðinn er kominn til landsins Dreifing K. Richter hf. www.krichter.is A U T O C A R E Clean Plus® blautklútar eru nýjung sem auðvelda þrifin á bílnum! Clean Plus® vörur eru fyrsta flokks gæðavörur á samkeppnishæfu verði. Clean Plus® vörur gera þrifin á bílnum auðveldari. Clean Plus® er fyrir nútíma bílaeigendur! www.cleanplusautocare.com Fæst í helstu stórmörkuðum, byggingavöruverslunum og víðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.