Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 19
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐ
Reykjanesbær | Efnilegt íþróttafólk
getur skráð sig á afreksmannabraut
við Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ
og Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Verður hefðbundið nám og æfingar
skipulagt út frá þörfum þessa hóps,
eins konar atvinnumannaumhverfi,
eins og Geir Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Íþróttaakademíunn-
ar, tekur til orða.
Íþróttaakademía í Reykjanesbæ
tekur til starfa í haust. Þar fer fram
kennsla í íþróttafræðum á háskóla-
stigi í samstarfi við Háskólann í
Reykjavík, námskeiðahald í sam-
starfi við íþróttahreyfinguna auk
fjarnáms á háskólastigi í samstarfi
við Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum.
Bygging húss yfir starfsemina
stendur yfir á vegum Eignarhalds-
félagsins Fasteignar hf. og í gær
lagði Árni Sigfússon bæjarstjóri
hornstein að byggingunni um leið og
framkvæmdin var kynnt. Einnig eru
hafnar framkvæmdir við nemenda-
íbúðir og verða þær fyrstu tilbúnar
um áramót.
Samstarf hefur tekist milli Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og Íþrótta-
akademíunnar um sérstaka afreks-
mannabraut. Geir Sveinsson segir
miðað við að í haust verði teknir inn
nemendur í einn bekk og stundi
nemendur hans nám við náttúru-
fræðibraut Fjölbrautaskólans og af-
reksmannabraut hjá Íþróttaaka-
demíunni. Á afreksmannabrautinni
verður efnilegu íþróttafólki boðið
upp á kennslu í fjórum íþróttagrein-
um til að byrja með, knattspyrnu,
körfuknattleik, sundi og golfi. Kynn-
ing á þessu námi verður send á næst-
unni til nemenda á öllu landinu sem
eru nú að ljúka grunnskólanámi
enda segir Geir að námið sé opið
nemendum af öllu landinu.
Við skipulagningu námsins er tek-
ið tillit til þarfa íþróttafólksins um að
æfa tvisvar á dag en geta jafnframt
stundað nám. Þannig verða æfingar
á milli 8 og 10 á morgnana og eftir
það tekur við hefðbundið skólanám
til fjögur á daginn, og síðan æfingar
hjá íþróttafélögunum á kvöldin. Geir
segir að með þessu sé verið að bæta
mjög aðstöðu efnilegs íþróttafólks til
að stunda íþrótt sína og um leið hefð-
bundið nám, verið sé að skapa hálf-
gert atvinnumannaumhverfi. Geir
segir að hugmyndin að þessu fyrir-
komulagi sé fengin í Noregi og þetta
sé tímabær nýjung hér á landi.
Íþróttaakademían fjármagnar sitt
framlag með innheimtu gjalds, 80 til
85 þúsund kr. á önn. Geir segir að
fyrir þetta fái íþróttamaðurinn þjón-
ustu hæfra kennara svo jaðri við ein-
staklingsþjálfun. Guðni Kjartansson
mun sjá um knattspyrnuna, Sigurð-
ur Ingimundarson um körfuboltann,
Brynjar Geirsson um golfið og Ingi
Þór Einarsson um sundið. Sigurður
er umsjónarmaður þessa náms fyrir
hönd Íþróttaakademíunnar og Guðni
fyrir hönd Fjölbrautaskólans.
Sótt um háskólanám
Síðar í mánuðinum rennur út
frestur til að sækja um inngöngu í
íþróttafræðinám á háskólastigi við
Íþróttaakademíuna. Kennslan verð-
ur á vegum kennslu- og lýðheilsu-
deildar Háskólans í Reykjavík. Geir
segir að þegar séu komnir um þrjá-
tíu nemendur en gert er ráð fyrir að
teknir verði inn 30 til 35 nemendur á
fyrsta ári. Þótt stúdentspróf sé eitt
af inntökuskilyrðum segir hann að
einnig verði teknir inn einhverjir
nemendur með aðra grunnþekkingu,
til dæmis fólk með reynslu af þjálfun
og hvetur hann áhugafólk með þann-
ig reynslu til að sækja um.
Nemendur teknir inn á afreksmannabraut hjá Íþróttaakademíu og Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Skapa aðstöðu fyrir
efnilegt íþróttafólk
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hornsteinn Árni Sigfússon bæjarstjóri, sem átti hugmyndina að stofnun
Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ, lagði hornstein byggingar húss akademí-
unnar við athöfn í gær. Starfsemi hefst þar í ágúst.
Húsavík | Þrátt fyrir að komið sé
fram í maí er ekkert lát á frábærri að-
sókn á leikritið Sambýlingana sem
Leikfélag Húsavíkur hefur sýnt í
gamla Samkomuhúsinu frá því í lok
febrúar.
Á sýningu nú í vikunni kom gestur
númer tvö þúsund að sjá sýninguna
og var hann leystur út með blómum.
Að sögn Gunnars Jóhannssonar, leik-
ara og stjórnarmanns í LH, hafa síð-
ustu sýningar á verkinu verið auglýst-
ar og reyndar kominn biðlisti á þær.
„Við komum til með að skoða fram-
haldið með tilliti til þeirrar miklu að-
sóknar sem ekkert lát virðist vera á,“
sagði Gunnar. Til gamans má geta
þess að íbúafjöldi Húsavíkur er um
tvö þúsund og fjögur hundruð manns
og þannig bendir allt til þess að fjöldi
sýningargesta verði meiri en fjöldi
bæjarbúa.
Yfir tvö þúsund á
Sambýlingana
Leikhúsgestur Jóna Kristín Ein-
arsdóttir var gestur númer tvö þús-
und á Sambýlingunum og færði
Gunnar Jóhannsson henni blóm í
tilefni þess.
Keflavíkurflugvöllur | Kostnaður
fólks sem kýs að geyma bíla sína á
stæðum við Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar eykst, þegar nýtt fyrirkomulag
tekur gildi, ef fólkið dvelur erlendis
skemur en í viku og eins ef það notar
skammtímastæði. Ef fólk dvelur hins
vegar í meira en hálfan mánuð verður
kostnaðurinn minni en nú er og lækk-
ar hlutfallslega enn meira þegar dval-
ið er lengur en í þrjár vikur. Alls eru
um 2.500 bílastæði við flugstöðina.
Nýtt fyrirkomulag verður tekið
upp við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
næstkomandi þriðjudag. Tekin verð-
ur upp gjaldskylda á skammtíma-
stæðum. Gjaldið verður 100 krónur á
klukkustund og þar með 2.400 kr. á
sólarhring. Eftir fyrsta sólarhringinn
lækkar gjaldið um helming og mun
stæðið því kosta 2.400 krónur, hvort
sem bíllinn er skilinn eftir í einn eða
tvo sólarhringa. Kostnaður við þetta
stæði er síðan 8.400 krónur fyrir sjö
daga notkun. Tilgangurinn með
gjaldskyldunni er að tryggja þeim
farþegum sem fyrir það vilja greiða
stæði næst flugstöðinni, að sögn
Höskuldar Ásgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra. Hann segir að brögð
hafi verið að því að fólk hafi lagt á
skammtímastæðunum á meðan það
hefur farið til útlanda, þótt það hafi
ekki verið leyfilegt, til þess að spara
sér kostnað sem fylgir notkun lang-
tímastæðanna. Eftirlit hefur verið
erfitt en þó hefur sýslumaður sektað
bíleigendur. „Reynslan sýnir að það
gengur ekki að vera með gjaldskyldu
á sumum stæðum en ekki öðrum.“.
Alls eru 2.500 bílastæði við Flug-
stöðina. Skammtímastæðum fjölgaði
við það að bílaleigubílarnir voru flutt-
ir á sérstakt svæði sem tekur 500 bíla
og í sumar eru almennu stæðin um
320. Þar eru einnig 140 starfsmanna-
stæði og 40 vildarstæði. Í haust mun
rýmkast um almennu skammtíma-
stæðin þegar útbúið verður bílastæði
fyrir starfsfólk í nágrenni langtíma-
stæðanna. Um leið verður tekin í
notkun yfirbyggð göngubraut frá
flugstöðinni og út á bílastæðin, að
sögn Hrannar Ingólfsdóttur, for-
stöðumanns markaðssviðs FLE.
Aðstaða er til að skilja farþega eftir
næst flugstöðinni og er hún gjald-
frjáls. Kjósi ökumaður hins vegar að
fylgja farþeganum inn í flugstöðina
verður hann að leggja á stæðin og
greiða 100 krónur ef ekki er dvalið
lengur en klukkustund.
Svæði fyrir langtímabílastæði hef-
ur verið stækkað, þar er nú aðstaða
fyrir um 1.460 bíla, og gjaldskránni
þar verður einnig breytt næstkom-
andi þriðjudag. Nú kostar 350 krónur
á sólarhring að geyma bílinn á lang-
tímastæðunum, óháð tímalengd
ferðalagsins. Gjaldið fer í 500 krónur
á sólarhring fyrstu vikuna en eftir það
fer það stiglækkandi í hverri viku þar
til bíllinn hefur verið í þrjár vikur,
verður 350 kr. á dag eftir fyrstu vik-
una, 300 eftir aðra og 250 krónur eftir
þá þriðju. Afsláttargjaldið gildir frá
upphafi ferðatímans. Það þýðir að
gjaldið verður hærra en nú fyrstu vik-
una, til dæmis 3.500 kr. fyrir sjö daga
í stað 2.450 kr., jafnt og nú í annarri
vikunni, en verður lægra en núgild-
andi gjaldskrá eftir lok annarrar viku.
Hrönn segir að afsláttarkerfið sé
svipað og víða á flugvöllum erlendis.
Tilgangurinn sé að koma til móts við
fólk sem dvelur erlendis í lengri tíma,
til dæmis í sumarleyfisferðum, til að
nota stæðin. Þetta fólk hafi ekki notað
bílastæðin mikið til þessa.
Verið er að koma upp sjálfvirkum
bílastæðabúnaði og verður sama kerfi
á öllum svæðum. Bílstjórar geta valið
á milli tveggja aðferða. Hægt er að
opna hliðið með greiðslukorti og
greiða fyrir þjónustuna með korti á
staðnum þegar komið er til baka. Þeir
sem ekki nota kort geta tekið miða úr
vél við komuna á stæði og greitt gjald-
ið í gjaldvél í norðurenda flugstöðv-
arbyggingarinnar eða í afgreiðslu
Securitas í komusal.
4$/. 1
6) A + /6">
&#
$&#>
40>
(4" 5 <
/00>
40>
(4" 5
+ = , , ;
Kostnaður farþega minnk-
ar þegar dvalið er lengur
!
" #
4" 5
0&&
C, (:##
4E
0 1
6) A
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is