Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 21 MENNING MOZART og Mendelssohn verða leiddir til öndvegis á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Akureyrarkirkju á sunnudaginn kl. 16. Á efnisskrá eru tvö verk eftir W.A. Mozart, forleikur að óperunni Don Giovanni og fiðlukonsert í G- dúr. Eftir Felix Mendelssohn verð- ur leikin sinfónía í A-dúr sem oft er nefnd „ítalska sinfónían“. Einleikari á tónleikunum er Greta Guðnadóttir fiðluleikari. Mozart samdi fimm fiðlukons- erta sumarið og haustið 1775, þá 19 ára gamall. Konsertana samdi hann fyrir sjálfan sig og flutti þá á hirðtónleikum í heimaborg sinni Salzburg. G-dúr konsertinn er sá þriðji í röðinni og ber þeirri tónlist vitni sem hann kynntist best á þessum árum. „Það er mikil vorstemning í þessum konsert,“ segir einleik- arinn, Greta Guðnadóttir. „Hann einkennist af mikilli bjartsýni og lífsgleði og þar af leiðandi er ákaf- lega ánægjulegt að spila hann.“ Felix Mendelssohn segir frá því í bréfi, sem hann ritaði á Ítalíu í febrúarmánuði árið 1831, að hann sé að vinna að sinfóníu og að hún sé eitt veigamesta verk sem hann hafi fengist við fram að þessu. Sin- fónían, sem hefur verið kölluð ítalska sinfónían, átti eftir að valda honum miklum heilabrotum og hugarangri og var ekki gefin út fyrr en að tónskáldinu látnu þar sem Mendelssohn hafði ætlað að endurgera hana. Tónskáldið greip þó til ítölsku sinfóníunnar þegar Fílharmóníufélagið í Lundúnum pantaði hjá honum sinfóníu ásamt öðrum verkum árið 1833 og var hún frumflutt 13. maí þar í borg. Þrátt fyrir óánægju tónskáldsins hafa tónvísindamenn keppst við að lofsyngja sinfóníuna og sér- staklega lokakaflann sem þykir hreinasti gimsteinn. Tónskáldið sjálft sagði þann kafla vera saminn undir áhrifum kjötkveðjuhátíðar í Rómaborg. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er að þessu sinni skipuð 40 hljóð- færaleikurum sem koma víðs veg- ar að af landinu, þó að stærstum hluta sé um að ræða hljóðfæraleik- ara sem búa og starfa á Norður- landi. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson en hann hefur verið aðalhljómsveit- arstjóri SN frá stofnun hennar. Mozart og Mendels- sohn nyrðra Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Guðmundur Óli Gunnarsson hljóm- sveitarstjóri. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.