Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 29
UMRÆÐAN
SÓFADAGAR
Seljum nokkra sýningasófa með allt að 25% afslætti.
15% afsláttur af öllum sérpöntuðum sófum.
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið:
mán. - föstud. 11-18
laugard. 11-15
OPIÐ SUNNUDAG 13-17
NÚ ERU atkvæðaseðlar í for-
mannskjörinu komnir heim til Sam-
fylkingarfólks um allt land.
Mikilvægt er að við veljum þann
frambjóðanda sem getur komið okk-
ur í ríkisstjórn eftir
næstu kosningar. Ég
treysti Ingibjörgu Sól-
rúnu til þess og til að
verða næsti forsætis-
ráðherra á Íslandi.
Báðir frambjóðendur
til formanns hafa margt
til síns ágætis. Össur
hefur unnið gott frum-
kvöðulsstarf sem for-
maður fyrstu árin ásamt
þeim mörgu sem lögðu
hönd á plóginn til að
gera Samfylkinguna að
þeim flokki sem hún er í
dag.Hann hefur sjálfur
sagt að hann líti á Ingibjörgu Sólrúnu
sem framtíðarleiðtoga flokksins og
sem slík var hún forsætisráð-
herraefni okkar jafnaðarmanna í síð-
ustu Alþingiskosningum þar sem
Samfylkingin vann góðan sigur. Und-
ir þá skoðun hans tek ég heilshugar
og nú er tækifærið til að láta það
verða að veruleika.
Tími til að breyta
Ingibjörg Sólrún er hæfileikaríkur
forystumaður og ferst vel úr hendi að
leiða saman fólk úr ólíkum áttum eins
og sýndi sig í borgarstjóratíð hennar.
Þar leiddi hún farsællega samstarf
þriggja flokka í Reykjavíkurlistanum,
sem sigraði örugglega í þrígang í
kosningum í borginni.
Það er komin þreyta í stjórnmálin
og krafa um breytt vinnubrögð verð-
ur æ sterkari. Ingibjörg Sólrún hefur
sýnt í verki að hún vill kalla sem
flesta til samráðs við stefnumótun og
ákvarðanir. Um það ber vönduð vinna
í framtíðarnefndinni
vitni, en ég tók þátt í
starfi hennar ásamt
fjölda annarra flokks-
manna.Ingibjörg Sól-
rún er lýðræðislegur og
heiðarlegur stjórn-
málamaður, sem á mik-
ið erindi í forystu
landsmálanna.
Samfélag lífsgæða,
jafnaðar og
réttlætis
Húsfyllir var á glæsi-
legum baráttufundi
stuðningsmanna Ingi-
bjargar Sólrúnar í Borgarleikhúsinu
sl. miðvikudagskvöld. Þar sagði hún
m.a.:
„Ríkisstjórnin hefur skapað hér
samfélag valdstjórnar og misskipt-
ingar. Hún hefur klúðrað því tæki-
færi sem hún hafði til að takast á við
nauðsynlegar breytingar á velferð-
arkerfinu, menntakerfinu og atvinnu-
lífinu. Breytingar sem hefðu getað
skapað hér þróttmikið samfélag al-
mennra lífsgæða, jafnaðar og jafn-
réttis. Á tímum góðæris og hagvaxtar
er lag til að takast á við slíka hluti –
þá er hægt að nota auðlegðina til að
skapa víðtæka sátt um nauðsynlegar
kerfisbreytingar. Búa í haginn fyrir
framtíðina og finna lausnir sem taka
mið af þörfum fjölskyldnanna fyrir
þjónustu og létta þeim lífið, jafna líf-
eyrisréttindi landsmanna, renna
styrkari stoðum undir almannatrygg-
ingar, skapa nýjar leiðir í mennta-
kerfinu og sátt í umhverfismálum. Til
þess hefur ríkisstjórnin hvorki haft
þrek né vilja.“
Samfylkingarfólk og aðrir jafn-
aðarmenn geta tekið undir þessi orð
Ingibjargar Sólrúnar og einnig þá
framtíðarsýn sem fram kom í máli
hennar á fundinum – að við ættum
óhikað að nota hvert tækifæri til að
skapa samstöðu um fyrirmyndarsam-
félag á Íslandi þar sem félagslegu
misrétti er úthýst og atorka og sköp-
unarkraftur einstaklinganna fær not-
ið sín. Samfélag þar sem við erum
ábyrg bæði gagnvart okkur sjálfum
og hvert gagnvart öðru.
Kæru flokksmenn, nýtið atkvæð-
isréttinn í formannskosningunni sem
nú stendur yfir og komið atkvæðum
ykkar tímanlega til skila.
Það er kominn tími til að breyta –
gerum Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur að formanni Samfylkingarinnar.
Ingibjörg Sólrún – alla leið
Ásta R. Jóhannesdóttir
fjallar um formannskjörið
í Samfylkingunni ’Ingibjörg Sólrún erlýðræðislegur og heið-
arlegur stjórnmálamað-
ur, sem á mikið erindi í
forystu landsmálanna. ‘
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÉG TILHEYRI X-kynslóðinni.
Þeir sem tilheyra X-kynslóðinni
eru fæddir á árunum 1961 til 1976.
Stundum hefur verið talað um
þessa kynslóð sem tómu eða
gleymdu kynslóðina. Sagt er t.d. að
einstaklingar sem teljast til X-
kynslóðar séu svartsýnir, kald-
hæðnir og rótlausir. Hver hefur
ekki heyrt um hippa-kynslóðina,
uppa-kynslóðina, X-kynslóðina,
@-kynslóðina og þumalputtakyn-
slóðina? Með þessum skrifum vil ég
vekja athygli á að það sé orðið
þreytt og í rauninni til skammar að
rakka niður og dæma heilu kyn-
slóðirnar. Það hefur alltaf skilað
meiri árangri að einblína á kosti
einstaklinga og styðja við bakið á
þeim sem þurfa stuðning í gegnum
þessi tímamótaár. Við höfum öll
upplifað unglingsárin og munum öll
eftir ummælum sem féllu um okkur
og „okkar“ kynslóð.
Í starfi mínu sem starfs-
mannastjóri Domino’s Pizza vinn
ég mikið með ungu fólki. Hjá Dom-
ino’s Pizza eru 340 starfsmenn en
flestir þeirra eru á aldrinum 18–25
ára. Ég er oft spurð að því hvort
það sé ekki erfitt að vinna með
þessu unga fólki sem virðist ekki
leggja neinn metnað í vinnuna sína.
Þetta viðhorf kemur mér alltaf jafn
mikið á óvart. Ég get sagt með
stolti að hjá Domino’s eru upp til
hópa fyrirmyndarstarfsmenn sem
sinna starfi sínu vel. Hver hefur
ekki verslað hjá Domino’s Pizza í
megaviku? Álagið á starfsmenn er
mjög mikið en allir standa sig með
sóma og stemningin er engu lík.
Hvers vegna er þessi ímynd um
„lata unglinginn“ föst í huga land-
ans? Hefur þessi ímynd kannski
alltaf verið við lýði? Eftir því sem
ég skoða málin betur finnst mér
viðhorfið til unga fólksins kannski
ekki hafa breyst svo mikið í gegn-
um tíðina. Það hefur alltaf verið
eitthvað til að gagnrýna og skapast
sú hefð að brjóta niður frekar en
að byggja upp. Það eru alltaf ein-
hverjir sem lenda í ógöngum en
látum ekki þessa örfáu einstaklinga
lita allan hópinn.
Snúum þessari þróun við; hvetj-
um, hrósum og ýtum undir það já-
kvæða í fari einstaklingsins.
HELGA FJÓLA
SÆMUNDSDÓTTIR,
Arnarhöfða 6, 270 Mosfellsbær.
Duglegt og áhugasamt ungt fólk
Frá Helgu Fjólu Sæmundsdóttur,
starfsmannastjóra Domino’s Pizza: