Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT London. | „Ég kaus ekki. Mér finnst komið nóg af Blair, en ég sá ekki fram á að mitt atkvæði breytti neinu,“ sagði ungur maður við blaðamann á krá á Charing Cross Road í London í gær. Viðhorf hans er dæmigert fyrir fjölda ungs fólks í Bretlandi. Kjörsókn í landinu virðist ekki hafa náð sér á strik, þrátt fyrir harða samkeppni flokk- anna í ýmsum lykilkjördæmum og tilraunir ríkisstjórnarinnar til að auka hana með því að afnema hömlur á póstkosningar. Kjörsókn í kosningunum 2001 var Bretum nokkurt áfall, en hún var aðeins rúmlega 59%; hafði fram að því verið á bilinu 70–80%. Þótt ekki hefðu öll atkvæði verið talin síðdegis í gær benti flest til að kjörsókn hefði í bezta falli aukizt um 1–2% frá 2001. „Kjörsóknin minnkar ekki en hún eykst heldur ekkert að ráði,“ segir Graeme Trayner, sérfræðingur hjá rann- sóknafyrirtækinu Opinion Leader Research. „Það stefnir lýðræðinu í hættu. Fólki finnst ekki taka því að kjósa; því finnst það ekki skipta neinu máli.“ Trayner hefur gert ýmsar rann- sóknir á áhugaleysi kjósenda og segir marga telja að vegna kosn- ingakerfisins skipti atkvæði þeirra oft engu máli og ekki sé nægilegt val milli stjórnmálaflokka. „Þetta er mál sem stjórnmálamenn verða að taka á,“ segir hann. Kosningakerfið er síðan sérstakt viðfangsefni, segir Trayner. „Verkamannaflokkurinn fær meiri- hluta á þingi með aðeins rúman þriðjung atkvæðanna. Það vekur spurningar um hið lýðræðislega umboð Verkamannaflokksins.“ 3&0&&" && $85 " 0(&' " CMPLE /0(&' " P" , CPPLE / && !, & %"' " && <,0&&" && !. " ":&'  ',06 /   *.6,& && L" ' A:0 CQ", E I   &'  <,> 0&&"!. " ":&'  ',06 %"' 0,&&   ()  #  *)  + <,0&&" && %"' " && !. " ":&'  ',06 =.6,& && /"RQ",   ,+ + - *)    ). ) .  $   / .  .0   & "   1 23! / 23! / ;"& &# 6  4 #50#& 0.    +,1 4  5 & %36/ & %3(7#) )8 () ). /)8&3 *) 39 # ) :) ( / / ,8;< = -8=< +>8=< =+8;< ?  1         !. " ":&'  ',06 %"' 0,&&   <,0&&" && %"' 0,&& !. " ":&'  ',06 =.6,& &&   = +-; - , S "  6  & +-        )@ )  #  #   ) )?) ).   " )  )  /@$ $     & "   1 4  5 & %36/ & %3(7#) )8 () ). /)8&3 *) 39 # ) :) ( / / ><  ==8 ?  1  <,> 0&&" Kjörsókn í Bretlandi eykst lítið Eftir Ólaf Stephensen olafur@mbl.is Santa Maria. AP, AFP. | Vitnaleiðslur verjenda eru hafnar í réttarhöld- unum yfir Michael Jackson, en tón- listarmaðurinn er eins og kunnugt er ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn 13 ára dreng sem dvaldi hjá honum á búgarði hans, Neverland. Fjöldi barna hefur í gegnum tíðina dvalið í lengri eða skemmri tíma hjá Jackson á Neverland-búgarðinum og fyrstu vitni verjenda voru einmitt tveir ungir Ástralir sem heimsóttu Jackson oft sem drengir. Fyrst bar Wade Robson, 22 ára dansari, vitni. Hann hefur þekkt Jackson frá fimm ára aldri og sagðist hafa dvalið á Neverland að minnsta kosti 20 sinnum. Í öll þau skipti, nema þrisvar eða fjórum sinnum, hefði hann gist í svefnherbergi Jacksons og aðspurður viðurkenndi hann að þeir hefðu stundum sofið í sama rúmi. Robson sagði að í þessum heimsókn- um hefðu þeir kjaftað, horft á bíó- myndir, spilað tölvuleiki og farið í koddaslag, en að Jackson hefði aldrei snert sig á kynferðislegan hátt. Seinna vitnið var hinn 22 ára gamli Brett Barnes, en leiðir þeirra Jack- sons lágu saman þegar Barnes var fimm ára og poppstjarnan var á tón- leikaferð í heimalandi hans. Barnes sagðist hafa heimsótt Jackson á Nev- erland að minnsta kosti tíu sinnum sem drengur og að hann hefði, eins og Robson, sofið í sama rúmi og hann. Barnes brást reiður við þegar spurt var hvort eitthvað óviðeigandi hefði átt sér stað í þessum næt- urheimsóknum og sagði að slíkt hefði hann aldrei látið viðgangast. Reuters Michael Jackson með móður sinni, Katherine Jackson (t.h.). Neita því að hafa verið áreittir kyn- ferðislega Hanoi. AFP. | Ákveðið hefur verið að Phan Van Khai, forsætisráðherra Ví- etnams, eigi fund með George W. Bush Bandaríkjaforseta í Wash- ington 21. júní og verður Khai fyrsti víetnamski þjóðarleiðtoginn sem hitt- ir bandarískan forseta síðan Víetnam- stríðinu lauk 1975. Robert Zoellick, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá þessu í Hanoi, höfuðborg Víetnams, í gær. Ríkin tvö tóku upp stjórnmála- samband árið 1995. Zoellick sagði að framfarir hefðu orðið í mannréttindamálum í Víet- nam, nokkrir fangar hefðu verið látn- ir lausir og aðrir fengið sakaruppgjöf. Bill Clinton, þáverandi Bandaríkja- forseti, heimsótti Víetnam árið 2000. John Hanford sendiherra, sem er sér- stakur fulltrúi utanríkisráðuneytisins varðandi trúfrelsi, sagði í gær í Wash- ington að stjórn kommúnista í Víet- nam hefði þegar byrjað að slaka á höftum á trúariðkunum. Væri það í samræmi við samkomulag sem gert hefði verið um þau mál við Banda- ríkjamenn. Forsætis- ráðherra Víetnams hittir Bush ♦♦♦ Álfaheiði 32 Þórunn Gísladóttir GSM 695 0448 Sími 520 9511 Netfang: thorunn@remax.is RE/MAX, Bæjarlind 12, 201 Kópavogur Heimilisfang: Álfaheiði 32 Verð: Verð 43,8 milljónir. Löggiltur fasteignasali: Birgir Birgisson Mjög fallegt, vel skipulagt og vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum, ásamt bílskúr, í suðurhlíðum Kópavogs. Garðurinn er í góðri rækt, skjólgóður og afgirtur, hellu- lagður göngustígur liggur með húsinu, heitur pottur. Á efri hæð eru svefnherbergi, sjón- varpsstofa og baðherbergi sem er flísalagt, en herbergin öll með skápum og parketlögð. Á neðri hæð er stórt herbergi og stofa en bæði herbergin eru parketlögð, kamína í stofu. Sólstofa er út frá stofu sem er mjög vönduð og falleg, bogadregnir gluggar, fal- legt útsýni, náttúruflísar og hiti í gólfi. Í eld- húsi er korkur á gólfi, ljós innrétting og granít í borðplötu. Parketlagður stigi milli hæða. Flísar í anddyri, baðherbergi á neðri hæð og þvottahúsi. Bílaplan er hellulagt og með upphitun. Allar upplýsingar gefa Gunnar í síma 862 2001 og Þórunn í síma 695 0448. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Falleg 65,8 fm 2ja herbergja íbúð á 4. hæð með glæsilegu útsýni ásamt 23,8 fm stæði í bílageymslu, samtals 90 fm. Íbúðin skiptist í hol, stofu með útgangi á norð-vestursvalir, eldhús með borðkrók, svefnherbergi með góðum skápum og flísalagt baðherbergi með baðkari og geymslu. Parket er á allri íbúðinni. Þvottahús er sameiginlegt á hæðinni. 5476. Verð 15,5 millj. Hrönn, sími 862 8654, sýnir í dag milli kl. 14.00 og 15.00 Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 15.00 Austurströnd 4 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.