Morgunblaðið - 07.05.2005, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
F Y N D I Ð • F E R S K T • F J Ö R U G T • F A R S A K E N N T
„Það er mikill uppgangur í Borgarleikhús-
inu þessa daga og sýningin á Héra Héra-
syni er dæmi um hve leikhópurinn í húsinu
mætir gríðarlega sterkur til leiks.“
Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið
„Brilljant leikhús!“
Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið
„Stefán Jónsson hefur, ásamt Berki Jónssyni
og hinum, í stuttu máli sagt, gert farsann
að listrænum viðburði. Geri aðrir betur.“
María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið
LÉTTBJÓR
„Ég hef sjaldan séð Hönnu Maríu gera betur.“
María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið
„..sýningin var ekki bara skemmtileg og gletti-
lega sett saman heldur komst grafalvarlegur
boðskapur hennar mjög vel til skila.“
Elísabet Brekkan / DV
ISNORD er tónlistarhátíð sem
leggur áherslu á íslenska/
norræna tónlist. Hátíðin verður
haldin í Borgarneskirku um
hvítasunnuhelgina.
Ætlunin er að draga fram
perlur frá íslenskum tón-
skáldum í bland við það besta
frá Norðurlöndunum.
Ný íslensk tónlist verður á
efnisskránni en ungt íslenskt
tónskáld, Anna Sigríður Þor-
valdsdóttir, hefur samið tvö ný
sönglög við texta eftir Þorstein
frá Hamri fyrir hátíðina. Verður
það frumflutt á opnunartón-
leikum hátíðarinnar föstudag-
inn 13. maí kl. 20.30 af söngkon-
unum Dagrúnu Hjartardóttur
og Theodóru Þorsteinsdóttur
sem einnig flytja m.a. sönglög
eftir Rangström, Sibelius og
Sigfús Einarsson við meðleik
Jónínu Ernu Arnardóttur.
Norski píanóleikarinn Helgi
Kjekshus mun bæði leika ein-
leik og spila með Auði Haf-
steinsdóttir fiðluleikara. Tón-
leikar þeirra verða
laugardaginn 14. maí kl. 16.00
og munu þau m.a. leika verk eft-
ir Jón Nordal, Sibelius, Sæve-
rud og Grieg. Á laugardags-
kvöldinu 14. maí kl. 20.30 munu
Pamela De Sensi flautuleikari
og Hannes Þ. Guðrúnarson gít-
arleikari leika efnisskrá sem er
að miklum hluta íslensk.
Sunnudaginn 14. maí kl. 16.00
verða svo lokatónleikar IsNord
tónlistarhátíðarinnar þar sem
listamennirnir leggja saman í
tónleika helgaða norska tón-
skáldinu E. Grieg.
Listrænn stjórnandi hátíð-
arinnar er Jónína Erna Arn-
ardóttir.
Tónlistar-
hátíð í
Borgarnesi
Isnord.is
Það er alkunna hve lækn-ingamáttur listarinnar get-ur verið mikill. Vel skrifað
orð, hrífandi hljómur eða heillandi
myndlist getur stundum virkað eins
og meðferð og hefur eflaust ófá
skiptin lyft hugum þeirra sem þjást
og glíma við erfiðleika, líkamlega
sem andlega.
Ekki síst getur listsköpunin sjálf
haft jákvæð áhrif á líðan fólks; það
er, að njóta ekki einungis verka
annarra heldur leggja stund á list-
sköpun sjálfur. Gott dæmi um það
er hinn mikli fjöldi Íslendinga sem
eru í kórum sér til ánægju – í því
eigum við víst met rétt eins og í
notkun sumra lyfja - og margir
finna sér ýmis önnur viðfangsefni
til að leggja stund á listræna sköp-
un, til dæmis með hvers konar
handverki og myndlist. Hér á landi
þykir það sem sagt alveg eins sjálf-
sagt að fólk rækti hið listræna hjá
sjálfu sér eins og að það rækti lík-
ama sinn.
Í dag verður opnuð myndlist-arsýning sem byggist einmitt á
þessum forsendum, en það er sýn-
ing á myndverkum og ýmsum list-
munum eftir sjúklinga á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi, sem hafa
verið í iðjuþjálfun og listmeðferð
síðustu misserin. Sjúklingarnir eru
á öllum aldri og koma af mörgum
deildum spítalans, og ber sýningin
heitið List og iðja.
„Með sýningunni er verið að
vekja athygli á þessu kreatífa starfi
sem fer fram á öllum hinum mörgu
stöðum Landspítalans,“ segir Sól-
veig Baldursdóttir myndhöggvari,
sem er sýningarstjóri sýning-
arinnar. „Afraksturinn kemur frá
ýmsum stöðum, úr iðjuþjálf-
unardeildinni, myndlistardeildinni
sem er staðsett á göngu- og dag-
deildinni á Kleppi, frá Barnaspít-
alanum og öldrunardeildinni svo
dæmi séu tekin.“
Að sögn Sólveigar eru verkin á
sýningunni afar fjölbreytt eins og
búast má við, og unnin í margskon-
ar miðla. „Það eru skúlptúrar, mál-
verk, keramikhlutir, bútasaumur,
teikningar – nánast allt sem hægt
er að vinna í,“ segir hún. Hún segist
viss um að listsköpun geti hjálpað
sjúklingum í baráttu sinni við sjúk-
dóma. „Ég er sannfærð um að hún
er mikilvægur þáttur í öllu því ferli
sem fólk er að fara í gegn um. Hún
er einn liður í því.“
Sýningin er staðsett í hinum fal-lega og vel heppnaða Barna-
spítala Hringsins. Spítalinn sjálfur
er auðvitað algjört listaverk fyrir
hlutina sem eru framkvæmdir þar á
hverjum degi, en hann er líka al-
gjör upplifun fyrir augað, og þá
ekki síst barnsaugað. Þar er til
dæmis að finna eitt stórkostlegasta
fiskabúr landsins og skemmtileg
myndlistarverk eftir Sigurð Guð-
mundsson; úti í garði er skúlptúr af
tré og risastórum stól og inni í spít-
alanum er meðal annars að finna
nokkra af pússuðu hnullungunum
sem eru líka við göngubrautina sem
umlykur Reykjavík, „grjótið sem
fékk koss“ eins og listamaðurinn
orðaði það sjálfur þegar hann
hreppti verðlaun um útilistaverk í
Reykjavíkurborg árið 2000.
En sýningin List og iðja er sem
sagt staðsett í anddyri Barnaspítala
Hringsins og á um 200 metra
löngum tengigangi barnaspítalans
og aðalbyggingu spítalans. Óvenju-
legt listsýningarrými án efa, en
mjög hentugt að sögn aðstandenda
og vel við hæfi fyrir sýningu af
þessu tagi. Því kannski munu enn
fleiri njóta góðs af myndlistinni en
þeir sem sköpuðu hana. Svona geta
margföldunaráhrif listarinnar ver-
ið mikil.
Listsköpun er læknisráð
’Listsköpunin sjálf get-ur haft jákvæð áhrif á
líðan fólks; það er, að
njóta ekki einungis
verka annarra heldur
leggja stund á list-
sköpun sjálfur. ‘
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýningin List og iðja er sem sagt staðsett í anddyri Barnaspítala Hringsins og á um 200 metra löngum tengigangi barnaspítalans og aðalbyggingar spítalans.
ingamaria@mbl.is