Morgunblaðið - 07.05.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 33
MINNINGAR
✝ Ingólfur Pálssonfæddist á Fossi á
Síðu 21. ágúst 1927.
Hann lést á Hjúkrun-
arheimilinu Ási í
Hveragerði 30. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Páll
Jónsson bóndi í
Blesahrauni á Síðu
og síðar húsasmiður
í Hveragerði, f. á
Maríubakka á Síðu
27.7. 1891, d. 29.12.
1973, og kona hans
Guðrún Jónsdóttir, f.
í Skaftárdal 18.5.
1893, d. 6.12. 1980. Systkini Ingólfs
eru: Guðný, f. 12.10. 1916, búsett á
Akureyri, Jón Þórarinn bóndi á
Prestbakka á Síðu, f. 18.9. 1917, d.
7.8. 1993, Ragnar húsvörður á
Kirkjubæjarklaustri, f. 10.4. 1920,
Guðjón Kristinn rafvirkjameistari
Kristjánsdóttir, f. 14.10. 1960, Ing-
ólfur, f. 22.2. 1988, Auður, f. 20.9.
1992, móðir þeirra er Guðný Sig-
ríður Gunnarsdóttir, f. 7.5. 1963,
og Finnur, f. 15.7. 2002, móðir
hans er Málfríður Mjöll Finnsdótt-
ir, f. 15.6. 1978, sambýliskona
Þórðar. 3) Guðrún aðalbókari hjá
Þjóðleikhúsinu, f. 18.9. 1963. Börn
Guðrúnar eru: Róbert, f. 1.9. 1982,
faðir hans er Magnús Pétursson f.
31.5. 1959, Pétur Snorri og Tómas
Rúnar, faðir þeirra er Pétur Bene-
diktsson, f. 18.12. 1963, eiginmað-
ur Guðrúnar.
Ingólfur ólst upp hjá foreldrum
sínum, lengst af í Blesahrauni
(Efri-Mörk) þar sem þau stunduðu
búskap. Hann nam rafvirkjun við
Iðnskólann í Reykjavík og lauk
sveinsprófi 1953. Meistari hans var
Magnús Hanneson í Volta. Ingólf-
ur starfaði sem sjálfstæður raf-
verktaki og meistari í Hveragerði
til 1985 og eftir það sem rafvirkja-
meistari og verkstjóri við Dvalar-
heimilið Ás þar í bæ til ársins 1999.
Útför Ingólfs fer fram frá
Hveragerðiskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
í Hveragerði, f. 3.10.
1924, og Hulda Mar-
grét, f. 30.1. 1935, bú-
sett í Reykjavík.
Fyrri kona Ingólfs
var Guðbjörg Hall-
grímsdóttir, f. 1.4.
1924. Þau skildu barn-
laus. Hinn 27.3. 1954
kvæntist Ingólfur
Steinunni Runólfs-
dóttur frá Dýrfinnu-
stöðum í Skagafirði, f.
9.11. 1926, dóttur
Runólfs Þorbergs
Jónssonar, f. 25.3.
1881, d. 23.7. 1937, og
Maríu Jóhannesdóttur, f. 16.4.
1892, d. 24.6. 1986. Börn Ingólfs og
Steinunnar eru: 1) Páll Rúnar, f.
18.2. 1958, d. 11.4. 1963. 2) Þórður
læknir í Búðardal, f. 5.3. 1960.
Börn Þórðar eru Steinunn, f. 19.5.
1982, móðir hennar er Helga
Elsku Ingólfur og afi.
Í dag er komið að kveðjustund. Það
er erfitt að sætta sig við að þú sért
farinn frá okkur. Þú varst alltaf stór
og mikilvægur hluti af okkar lífi. Þú
hefur verið feginn að fá að sofna því
þú varst búinn að vera svo mikið veik-
ur. Núna líður þér örugglega betur.
Minningarnar eru margar og ljúf-
ar. Allar heimsóknirnar til ykkar
Steinu ömmu í Hveragerði og þegar
þið komuð til okkar til Svíþjóðar, í
Búðardal og síðast í Borgarnes. Það
var yndislegt að koma til ykkar og
sérstaklega gott að fá að gista. Ég
minnist þess sérstaklega, meðal
margs annars, þegar nafni þinn fædd-
ist í Svíþjóð. Þú varst svo glaður þeg-
ar hann fékk nafnið þitt og þú vildir
helst stökkva upp í næstu flugvél og
koma strax til okkar. Sterk nærvera
þín, óendanleg væntumþykja og
hjartahlýja veitir okkur huggun í
sorginni og um leið viljum við þakka
þér fyrir samveruna með eftirfarandi
orðum:
Ennþá hlýnar ævitíð,
allur dvínar tregi.
Ljósin skíni ljúf og blíð,
lýsi þínum vegi.
Þig í Drottins forsjá fel,
til friðarsælu heima.
Minninguna mun ég vel,
um mannkostina geyma.
(Sv.S.P.)
Elsku Steina amma, Þórður
(pabbi), Rúna og fjölskyldur, Ingólfur
afi mun alltaf vera með okkur í minn-
ingunni.
Guðný S. Gunnarsdóttir
(Sirrý), Ingólfur og Auður.
Komið er að kveðjustund þar sem
ég kveð kæra frænda minn, Ingólf
Pálsson. Ingólfur, föðurbróður minn,
var yngsti bróðir pabba. Ingólfur og
Steinunn áttu hlýlegt og fallegt heim-
ili.
Börnin þeirra voru góðir vinir okk-
ar. Ingólfur bjó með fjölskyldu sinni í
sömu götu og við, hann hafði sama
starf og pabbi og símanúmerið þeirra
var næstum því eins og hjá okkur.
Þetta var gott og tryggt því við vorum
sama fjölskyldan.
Ingólfur var ljúfur frændi og hann
fagnaði okkur ákaft þegar við hitt-
umst, við fengum að vita að við vær-
um honum mikils virði. Það sem ein-
kenndi Ingólf var dillandi hlátur sem
nú er hljóðnaður, hlátur og glettni
sem eru samofin æskunni.
Minningarnar eru margar og ein-
stakar og ógerningur að telja þær
upp en mig langar að minnast á ferð
sem við fórum mörg saman upp að
Blesahrauni sumarið 2001. Ferðin
var farin á sólríkum degi upp að
æskuheimilinu sem nú er í eyði. Ing-
ólfur og pabbi sögðu okkur frá dag-
legu lífi á heiðabýlinu. Þeir rifjuðu
upp lífsbaráttu afa og ömmu þarna á
heiðinni sem hefur verið ótrúleg og þá
opnaðist skilningur okkar á mörgu
t.d. hvers vegna ferðir eru ekki farnar
nema að fólk eigi eitthvert erindi.
Ferðir niður að Klaustri hafa eflaust
oft verið litlum fótum erfiðar.
Ég leit inn um daginn til Ingólfs
frænda, fann að ég kem alltof sjaldan.
Ingólfur var mikið veikur. Blessuð sé
minning hans. Ég sendi Steinunni,
Þórði, Rúnu og fjölskyldum þeirra
mína dýpstu samúð og óska að góður
Guð verndi ykkur og styrki.
Bryndís G.
Góður vinur minn er látinn. Ingólfi
Pálssyni kynntist ég fyrst sumarið
1989 þegar ég starfaði í görðum Dval-
arheimilisins Áss í Hveragerði. Ári
síðar fluttumst ég og eiginkona mín
til Hveragerðis og vann ég með Ing-
ólfi í 9 ár. Hann sinnti starfi verk-
stjóra í Ási af trúmennsku og sam-
viskusemi frá 1985 til 1999. Hann og
kona hans, Steinunn, tóku mér og
Huldu opnum örmum og mér fannst
þau taka börnum okkar sem barna-
börnum sínum. Enda var Ingólfur
alltaf kallaður Ingólfur afi á mínu
heimili þó að við værum alls óskyldir.
Ingólfur var afar bóngóður og ósjald-
an hjálpaði hann til með að skutla
börnunum eitthvað eða keyra mig um
miðja nótt til Keflavíkur þegar ég fór
til útlanda. Ekkert mál var iðulega
svarið sem ég fékk, þegar ég bað
hann um greiða.
Ingólfur hætti að vinna í Ási haust-
ið 1999. Hann hafði þó ávallt mikinn
áhuga á að fylgjast með starfseminni
og uppbyggingunni í Ási. Það var síð-
ast í mars að við fórum yfir teikningar
af væntanlegu þvottahúsi sem verður
byggt í sumar. Hann átti heiðurinn af
því árið 1995 að við breyttum tveimur
húsum við Bláskóga í litlar einstak-
lingsíbúðir, afar vel heppnuð fram-
kvæmd og hefur verið yfirfærð á fleiri
hús í Ási. Hann var á undan sinni
samtíð með þessa hugmynd.
Ingólfur sinnti afa mínum, Gísla
Sigurbjörnssyni, vel í veikindum
hans. Kom oft við og spjallaði um dag-
inn og veginn og gerði hvað hann gat
til að létta honum lund. Það var því af-
ar dýrmætt fyrir mig að geta hjálpað
Ingólfi vini mínum síðustu vikurnar í
þessari jarðvist. Hann barðist við
krabbamein og dvaldi eins lengi og
hann mögulega gat heima hjá sér í
góðri umsjá Steinunnar. Hinn 19.
apríl sl. varð hann þó að gefa eftir og
fluttist á hjúkrunarheimilið í Ási. Þar
dvaldist hann til dauðadags og var
verulega af honum dregið síðustu
dagana.
Ég kveð Ingólf Pálsson með sökn-
uði og þakka honum kærlega fyrir
góða samferð. Steinunni, Þórði,
Rúnu, tengdafólki og barnabörnum
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Gísli Páll.
Elsku Ingólfur, þakka þér fyrir
ómetanlega vináttu í gegn um árin.
Að fá að búa hjá ykkur Steinu sem
unglingur var mér svo lærdómsríkt.
Vinátta ykkar hefur verið mér svo
dýrmæt og yndislegri hjón eru vand-
fundin.
Minning um góðan vin deyr aldrei.
Mér þótti svo vænt um þig og ég
bið góðan Guð að geyma þig nú.
Elsku Steina mín, þú varst klett-
urinn hans, dugnaður þinn við að ann-
ast hann í veikindum hans var ein-
stakur.
Ég votta þér, börnum þínum og
fjölskyldum þeirra mínar innilegustu
samúðarkveðjur,
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helstu tryggð og vináttunnar ljós.
Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir.)
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Sigríður Benediktsdóttir.
Í dag kveðjum við kæran frænda,
hann Ingólf í Hveragerði. Margar
minningar koma í hugann, t.d. veiði-
ferðir, ferðir á æskuslóðir í Blesa-
hraun og í Skaftafell þar sem gamli
bærinn var skoðaður og bræðurnir
rifjuðu ýmislegt upp.
Þegar við byggðum okkur hús voru
rafmagnsmál sett á Ingólf og svo var
það líka þegar sumarhúsið var byggt,
þá kom frændi sjálfur á staðinn og
stjórnaði.
Kæri frændi, takk fyrir alla hjálp-
ina, hlýju og umhyggju við okkur í
gegnum árin. Guð geymi þig.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Elsku Steina, Rúna, Þórður og fjöl-
skyldur, sendum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Rúnar Páll og fjölskylda.
Við hjónin kynntumst Ingólfi fyrir
nokkrum árum í gegnum Þórð son
hans og Fríðu, bróðurdóttur Rósu
Hrannar. Ingólfur hafði einstaklega
hlýja og góða nærveru. Hann var
glaðlyndur og einlægur. Það var gam-
an að hitta hann og spjalla um hvað
sem stóð hjartanu næst hverju sinni.
Ingólfur tókst á við erfið veikindi af
æðruleysi og gat rætt þau af sömu
einlægni og annað sem bar á góma.
Nú þegar við kveðjum Ingólf
hinstu kveðju er okkur efst í huga
þakklæti fyrir þær góðu stundir sem
við áttum saman. Við geymum minn-
ingu um gegnheilan og góðan mann
sem að við erum ríkari að hafa
kynnst. Blessuð sé minning hans.
Steinunni, Þórði, Fríðu, Rúnu,
Pétri og barnabörnum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Rósa Hrönn Haraldsdóttir og
Lýður Ólafsson.
Ingólfur Pálsson vinur minn og fé-
lagi er látinn. Þó að aldursmunur okk-
ar Ingólfs hafi verið allnokkur tókst
með okkur góð vinátta. Við bjuggum
lengst af í sömu götunni sem heitir
Bláskógar. Okkar kynni voru aðalega
í pólitíkinni, en Ingólfur var virkur fé-
lagi í sjálfstæðisfélaginu Ingólfi hér í
Hveragerði alla tíð. Hann gegndi þar
mörgum trúnaðarstörfum og var alla
tíð mikill sjálfstæðismaður. Við Ing-
ólfur fórum á marga landsfundi sam-
an og í dag hlaðast upp þær góðu
minningar sem við áttum meðal ann-
ars á þeim fundum. Þá var oft kátt á
hjalla. Það væri efni í heila bók ef ég
ætti að segja frá öllum þeim góðu
stundum.
Ég minnist þeirra stundar þegar
ég fékk mér göngutúr á föstudags-
kvöldum og kíkti inn hjá Ingólfi og
Steinunni. Þau voru svo gestrisin í
alla staði. Við Ingólfur fengum okkur
svolítið í staupinu og leystum þjóð-
málin eins og að drekka vatn. Oftast
vorum við sammála eins og vera ber.
Ingólfur skilur eftir sig mikið tóm
hjá eiginkonu sinni og sínum nánustu.
Hann var ákaflega góður við sína fjöl-
skyldu enda mjög barngóður, það eru
góðir menn.
Með þessum fáu orðum kveð ég
þig, kæri vinur. Elsku Steinunn og
fjölskylda, ég og mín fjölskylda send-
um ykkur innilegustu samúðarkveðj-
ur. Guð blessi ykkur öll.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgr. Pét.)
Helgi Þorsteinsson.
Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni,
að eigi geti syrt eins sviplega og nú.
Aldrei er svo svart yfir sorgarranni,
að eigi geti birt fyrir eilífa trú.
(M. Joch.)
Að leiðarlokum kveð ég kæran fé-
laga, Ingólf Pálsson.
Í litlu byggðarlagi skipar hver ein-
staklingur stóran sess. Ingólfur var
einn af þeim sem með störfum sínum
og gjörðum í áratugi tók þátt í upp-
byggingu bæjarfélagsins. Hann var
sjálfstæðismaður og vann félagi sínu
vel til fjölda ára. Í ölduróti stjórnmál-
anna getur oft gefið hressilega á bát-
inn og þá er gott að eiga menn eins og
Ingólf að. Hann var stofnfélagi í Bæj-
armálafélagi Hveragerðis og tók virk-
an þátt í starfi þess.
Þegar sjálfstæðismenn sameinuð-
ust á ný var hann öflugur liðsmaður í
því starfi sem þá fór í hönd, meðal
annars hafði hann yfirumsjón með
kosningaskrifstofu flokksins við síð-
ustu sveitarstjórnarkosningar. Við
andlát Ingólfs höfum við misst góðan
liðsmann. Samverustundirnar voru
fjölmargar við starf og leik, minning-
arnar eru góðar. Ég hitti Ingólf á
heimili hans og Steinunnar fyrir
stuttu. Þá var ljóst að hverju stefndi,
líkamlegir kraftar voru þrotnir en
hugurinn var enn sá sami og viljinn
mikill. Þótti honum verst að geta ekki
verið með okkur í kosningabaráttunni
komandi vor.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
sjálfstæðismanna í Hveragerði þakka
Ingólfi samfylgdina um leið og ég
sendi Steinunni, Þórði, Guðrúnu og
fjölskyldum þeirra mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Aldís Hafsteinsdóttir.
Vinur minn er sofnaður. Þegar ég
hugsa um Ingólf kemur upp einstak-
leg hlý tilfinning. Ég man sérstakleg
eftir þéttu hlýlegu handtakinu,
glettninni í augunum og stríðnislegu
brosinu. Ingólfur var alltaf kátur og
stutt í kímnina. Ég minnist þess að
hafa dvalið á heimili hans í tíma og
ótíma sem barn og unglingur. Þetta
var mikið fyrirmyndar heimili sem
þau Ingólfur og konan hans hún
Steinunn héldu og þau miklir höfð-
ingjar heim að sækja. Ingólfur var
bóngóður með afbrigðum og hjálp-
semin var einn af hans kostum. Ég
man svo vel svo margt sem þeir bröll-
uðu saman Sigurður Auðunsson, afi
minn og Ingólfur, mestan partinn í
kringum sauðfé, sem voru þeirra ær
og kýr. Þetta voru göngur og réttir,
heyskapurinn, sauðburðurinn og það
sem að slíku snýr. Já það var alltaf
sólríkt í kringum þessa menn í
Hveragerði, alla vega man ég það
ekki öðruvísi.
Margar voru ferðirnar sem ég og
Þórður vinur minn og sonur Ingólfs
fórum í „bæinn“ til Reykjavíkur á
þessum árum með Ingólfi það þótti
mikið sport að fara í þannig ferð á
bláa Sunbeam bílnum. Það væri hægt
að halda lengi áfram af nógu er að
taka en hér eru bara nokkur minning-
arbrot.
Steinunn, Guðrún og Þórður þið
hafið misst mikið en örvæntið ekki.
Einhvern tímann í nánustu framtíð
fer fram upprisa þeirra sem sofnaðir
eru (Jóhannes guðspall 5:28,29 og
11:23,24, Jobs bók 14:14,15). Þetta er
loforð guðs og guð getur ekki logið.
(Hebreabréfið 6:18) þá verða fagnað-
ar fundir. En þangað til það skeður
ætla ég að ylja mér við minningu góðs
drengs. Það er ekki ónýtt að hafa
slíka minningu í veganesti í lífinu
bæði þegar vel og illa gengur Ég tel
mig lánsaman mann að hafa kynnst
Ingólfi Pálssyni. Hann reyndist mér
góð fyrirmynd og ómetanlegur fyrir
mína fjölskyldu. Ég hef vitnað örstutt
í Biblíuna hér að framan. það er hugg-
un harmi gegn að skoða þau loforð
sem þar eru gefin.
Að endingu langar mig að vitna í 1.
Korintubréfið 15:26 en þar stendur:
„Dauðinn er síðasti óvinurinn sem
verður að engu gerður.“
Sigurður Dagbjartsson.
INGÓLFUR
PÁLSSON
Ástkær eiginkona mín,
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Skálagerði 17,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut að
morgni miðvikudagsins 4. maí.
Magnús Benjamínsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og
samúð við andlát og útför frænku okkar,
ÖNNU SIGRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR,
Skólastíg 11,
Akureyri.
Baldur Ingimarsson,
Björn Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir,
Anna Guðrún Jónsdóttir,
Bjarni Jónsson, Marianne Olsen,
Laufey S. Jónsdóttir, Daði Jónsson.