Morgunblaðið - 07.05.2005, Side 45

Morgunblaðið - 07.05.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 45 MENNING SÝNINGIN Fyrirheitna landið verður opnuð í Þjóðmenningarhús- inu í dag en hún segir frá ferðum fyrstu Íslendinganna, sem settust að í Vesturheimi. Þetta voru mormónar sem settust að í Utah fyrir 150 árum. Heilmikil dagskrá verður við opnunina en Davíð Oddsson utanríkisráðherra opnar sýninguna með ávarpi. Þessir fyrstu Íslendingar höfðu látið skírast til mormónakirkj- unnar, sem boðaði að nýja Zion væri í Utah-ríki í Bandaríkjunum. „Sýningin Fyrirheitna landið varp- ar ljósi á trúarlegan grunn mormónanna, rekur ferð Þórðar Diðrikssonar (1828–1894) um haf og land og gefur innsýn í það sam- félag sem Íslendingarnir byggðu og urðu hluti af ytra,“ segir í til- kynningu frá Þjóðmenningarhús- inu. Jóhanna Bergmann er leið- sögumaður Þjóðmenningarhússins. „Ég hef gaman af því að opna sýn- inguna á þessum tímamótum þegar 150 ár eru liðin frá því að fyrstu Íslendingarnir settust að í Vest- urheimi. Það er talsverð athygli í þjóðfélaginu á þessar vesturferðir og það er áhugi á málefninu. Það er gaman að því að merkja þennan tíma vesturferðanna sem hefur ekki verið í kastljósinu,“ segir hún. Sagan sem er rakin með sýning- unni hefst um 1850 en vesturferð- irnar eru oftast tengdar tímabilinu 1870–1914. „Þetta er tuttugu árum áður en Kanadaferðirnar komu til. Þarna eru líka aðrar ástæður að baki ferðunum. Það var ekki slæmt efnahagsástand í þeim héruðum sem flestir Íslendingar tóku mormónatrú, í Vestmannaeyjum og Suðurlandi. Það er klárlega ekki verið að leggja í þessa lang- ferð í von um betri veraldleg gæði heldur eru andlegar ástæður að baki,“ segir hún. Sýningin var fyrst sett upp í Vesturfarasetrinu á Hofsósi árið 2000 en er nú aðlög- uð sýningarsölum Þjóðmenning- arhússins. Efni sýningarinnar var unnið í samvinnu Vesturfaraset- ursins og Íslendingafélagsins í Utah. Reykjavíkurborg flutti sýn- inguna til Reykjavíkur og styrkir borgin jafnframt uppsetningu hennar í Þjóðmenningarhúsinu. Hönnuður sýningarinnar er Árni Páll Jóhannsson og grafískur hönnuður er Áslaug Jónsdóttir. „Það er líka gaman að því að Þjóðmenningarhúsið taki að sér að opna sýningu sem hefur áður verið úti á landi. Við erum hús allrar þjóðarinnar og ekkert sem segir að allt þurfi að vera fyrst í Reykja- vík,“ segir hún. Ferð til Utah í sumar Gaman er að greina frá því að Þjóðræknisfélag Íslendinga gengst fyrir ferð til Utah í sumar en þar verða hátíðarhöld í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá því að fyrstu Íslendingarnir settust þar að. „Þjóðræknisfélag Íslendinga er með öfluga starfsemi. Félagið hélt aðalfund hér í húsinu í nóvember síðastliðnum og hundrað manns sóttu hann. Þetta er fimmta árið sem félagið stendur fyrir svona sumarferðum og fólk flykkist í þær hundruðum saman,“ segir Jó- hanna. Sýningin Fyrirheitna landið verður í Þjóðmenningarhúsinu næstu tvö ár og gefst því gott tækifæri til að kynna sér þessa menningu. Jóhanna bendir á að næsta vetur verði tilbúin dagskrá fyrir skólahópa sem vilja koma að kynna sér þennan kafla í Íslands- sögunni. Ávörp við opnunina flytja auk Davíðs, Almar Grímsson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, Dav- id A. Ashby fyrir hönd Íslendinga- félagsins í Utah, Bergur E. Ágústsson, bæjarstjóri Vest- mannaeyja, og Valgeir Þorvalds- son, forstöðumaður Vesturfaraset- ursins. Jafnframt syngur Ólafur Kjartan Sigurðarson við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Þjóðmenningarhúsið | Sýningin Fyrirheitna landið um Íslendinga sem fluttu vestur um haf opnuð í dag Fyrstu vesturfararnir Málverk eftir Carl Christen Anthon Christensen, sem sýnir hóp skandinavískra mormóna á leiðinni vestur. Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Vesturfaraýningin Fyrirheitna landið verður opnuð í Þjóðmenn- ingarhúsinu kl. 14 í dag með ræðu- höldum og tónlistarflutningi. www.thjodmenning.is www.inl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.