Morgunblaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 www.1928.is Blaðaborð m/rós áður kr. 7900. nú kr.3900 Sumartilboð á völdum vörum allt að 70% afsláttur Sófaborð brúnt áður kr. 29000 nú kr. 9000 Vínbar áður kr. 8500 nú kr. 4200 Bakkar áður kr. 2500 stk. nú kr. 900 stk. Sófaborð áður kr. 19.500 nú kr. 9000 Hringborð í ljósu og dökku áður kr. 4900 nú kr. 2500 Ýmiss önnur tilboð í gangi Þú ert nú meiri þverhausinn, það er ekki nóg að maður þurfi að búa til sína eigin sam- gönguáætlun, maður verður líka að vinna verkin sjálfur. Íslendingar hafa veriðmjög virkir í að takaþátt í Leonardó da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins en í ár eru liðin 10 ár frá upp- hafi áætlunarinnar hér á landi, en Ísland á aðild að henni í gegnum EES- samninginn. Áætluninni má í grófum dráttum skipta í tvennt, annars veg- ar í mannaskipti sem eru verkefni fyrir ungt fólk í námi og vinnu og leiðbein- endur og stjórnendur, t.d. starfs- mannastjóra og fræðslustjóra, sem eru í stöðu til þess að miðla þekk- ingu áfram til starfsmanna sinna. Hins vegar er um að ræða stærri verkefni, svokölluð tilraunaverk- efni, sem unnin eru í samstarfi a.m.k. þriggja landa og geta spann- að 12–24 mánuði. Þórdís Eiríks- dóttir, verkefnisstjóri mannaskipta á Landsskrifstofu Leonardó, segir rétt rúmar 30 milljónir króna fást til mannaskiptaverkefna hérlendis. Til tilraunaverkefnanna, sem eru talsvert stærri í sniðum og ólík mannaskiptum, fást um 150 millj- ónir króna á ári. Á þessum tíma hafa um 1.800 manns nýtt sér möguleika til starfsþjálfunar og símenntunar í flestum Evrópusambandsríkjum. Þátttaka í áætluninni hefur sti- gaukist ár frá ári. Íslendingar hafa stýrt 32 fjölþjóðlegum tilrauna- verkefnum á tímabilinu og á 10 ár- um hefur þátttaka í mannaskipta- verkefnum fjórfaldast. Árið 1995 voru Íslendingarnir 61 talsins en í fyrra fóru 229 manns utan. Flestir sem fóru utan í fyrra voru leiðbeinendur eða stjórnend- ur eða um helmingur. Því næst kom fólk í grunnstarfsnámi eða 64 talsins. Hámarksstyrkur til hvers ein- staklings er 5.000 evrur sem jafn- gildir rúmum 400 þúsund íslensk- um krónum. Markmið Leonardó starfs- menntaáætlunarinnar er að styðja við þekkingu í Evrópu og bæta við aðgerðir 32 aðildarlanda áætlunar- innar í starfsmenntun. Þróun starfsmenntunar er mikilvægur hluti þeirrar áætlunar Evrópusam- bandsins að það verði öflugasta þekkingarhagkerfi heims árið 2010 eins og kemur fram í stefnuyfirlýs- ingu leiðtoga sambandsins í Lissa- bon árið 2000. Helstu áherslur í þessari þróun eru að koma upp sameiginlegum ramma fyrir mat á getu og starfsfærni einstaklinga, innleiða aðferðir sem tryggja gegnsæi prófskírteina og hæfnis- vottorða, auka hreyfanleika vinnu- afls og skapa betri tækifæri til sí- menntunar. Markmið sem styrkja þessar áherslur voru sett við upphaf ann- ars áfanga Leonardó áætlunarinn- ar árið 2000. Öll verkefni sem áætl- unin styður þurfa að falla að einu eða fleirum þessara markmiða: 1. Að bæta fagkunnáttu og færni fólks. 2. Að auka gæði og aðgang að sí- menntun í starfsþjálfun. 3. Að stuðla að og styrkja framlag starfsmenntunar til nýsköpunar. Mannaskipti eru samheiti fyrir starfsþjálfun og mannaskipti í Evr- ópu. Hægt er að fara í mannaskipti til allra landa Evrópusambandsins og þrátt fyrir að Norðurlönd og England séu enn vinsælustu lönd- in, hafa Íslendingar líka farið til „nýju“ Evrópusambandslandanna, t.d. Tékklands, Póllands, Eistlands og Slóveníu og vinsældir Suður- Evrópulanda færast stöðugt í vöxt. Að sögn Þórdísar Eiríksdóttur styrkja mannaskiptaverkefni fólk til að afla sér reynslu og þekkingar innan síns fagsviðs í öðrum Evr- ópulöndum. Sambönd til framtíðar Ávinningur mannaskipta felur meðal annars í sér nýja verkfærni, tungumálaþjálfun og viðskipta- sambönd til framtíðar. Mannaskipti skiptast í tvo hluta, mannaskipti og starfsmannaskipti. Hið fyrrnefnda er fyrir fólk í starfsnámi, ungt fólk á vinnumark- aði og háskólanema. Starfsþjálf- unina má taka sem hluta af námi, eftir að námi er lokið eða á meðan á samningi stendur. Dvalarlengd mannaskipta er frá þremur vikum til 12 mánaða. Dvalarlengd starfs- mannaskipta er hinsvegar 1–6 vik- ur. Opinberir aðilar sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun, geta lagt inn umsóknir um styrki á auglýstum umsóknarfrestum en þeir eru tvisvar á ári eða í febrúar og að hausti. Árið 2004 var í fyrsta skipti veitt evrópsk gæðaviðurkenning fyrir mannaskiptaverkefni og voru tvö íslensk verkefni meðal þeirra 20 bestu í undanúrslitum. Annars eru veittar annað hvert ár gæðaviðurkenningar fyrir mannaskiptaverkefni, eða svoköll- uð Fyrirmyndarverkefni. Að sögn Þórdísar hafa Íslend- ingar verið afar duglegir við að nýta sér þá styrki sem í boði eru og árlega berist fleiri umsóknir en hægt sé að styrkja. Aðspurð segir hún stofnanir, fyrst og fremst skóla sem kenna verklegar grein- ar, nýta sér mannaskiptastyrkina frekar en fyrirtæki í einkageiran- um. Fréttaskýring | Tíu ár frá upphafi Leonardó starfsmenntaáætlunarinnar á Íslandi Fjórfalt fleiri fara utan Um 1.800 manns hafa nýtt sér mögu- leika til starfsþjálfunar og símenntunar Afmælishátíðin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hlutir byggðir á verkum og hugmyndum da Vinci  Í tilefni afmælisins verður af- mælishátíð í Ráðhúsi Reykjavík- ur 19. maí nk. með ýmsum dag- skráratriðum sem tengjast Leonardo da Vinci og stendur hún fram til mánudagsins 23. maí. Í tilefni af afmælinu var efnt til samkeppni meðal framhalds- og háskólanema um myndverk eða hlut sem unnið er eftir hug- mynd Leonardo da Vinci. Úrslitin verða kunngerð á hátíð- inni og verkin verða til sýnis í sýningarsal Ráðhússins. Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is „SVAR ráðherra veldur vonbrigð- um. Það er ómálefnalegt og það svar- ar ekki efnislega neinum þeim at- hugasemdum sem komu fram í okkar bréfi,“ segir Páll Torfi Önund- arson yfirlæknir um svar heilbrigð- isráðherra við bréfi tólf yfirlækna þar sem settar voru fram tillögur að stjórnkerfisbreytingum á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi (LSH), t.d. er varðar starfssvið sviðsstjóra og yfirlækna. Engin niðurstaða hafi fengist í málið með svari heilbrigð- isráðherra, að mati Páls Torfa. „Það er hlálegt að láta stjórnend- ur sjúkrahússins sjálfa svara um- kvörtunarbréfi okkar um stjórnun- arhætti á LSH án þess að gefa okkur færi á að gera athugasemdir við þau svör en rangt er farið með mörg at- riði í svarinu,“ segir Páll Torfi en í svarbréfi heilbrigðisráðherra, sem sent var málsaðilum í byrjun mán- aðarins, kemur fram að óskað hafi verið eftir umsögn þáverandi for- stjóra sjúkrahússins, Jóhannesar M. Gunnarssonar, við athugasemdum tólfmenninganna. Kemur fram í bréfi ráðherrans að engar athuga- semdir séu gerðar við umsögn for- stjórans. Álitaefnin óbreytt „Ráðherrann er að hvítþvo stjórn- endur sjúkrahússins með bréfi sínu og tekur ábyrgð á efni þess. En það er alveg ljóst að málinu er ekki lokið. Álitaefnin eru óbreytt.“ Segir Páll Torfi að almenningur hafi rétt á að álitaefnum sé eytt og að niðurstaða fáist í hvort uppbygging stjórnskipulags á sjúkrahúsinu sé með eðlilegum hætti. „Það hlýtur að vera krafa löggjafans að lögin haldi í landinu og að skipulag opinbers sjúkrahúss sé bæði faglegt og lög- legt og að yfirmenn geti gegnt lög- bundnum starfsskyldum sínum og þróun lækninga með hagsmuni sjúk- linga og þjóðarinnar að leiðarljósi. Við munum skoða allar leiðir til að fá hlutlausan úrskurð um stöðu okkar,“ segir Páll Torfi. Telur ráðherra ekki hafa svarað efnislega ALÞINGI hefur samþykkt að veita 17 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt. Allsherjarnefnd bárust 54 umsóknir um ríkisborg- ararétt, en nefndin mælti einungis með að umsóknir frá 17 yrðu sam- þykktar. Einstaklingarnir eru frá Rúm- eníu, Króatíu, Kúbu, Georgíu, Ník- aragva, Filippseyjum, Bandaríkj- unum, Lettlandi, Taílandi, Frakklandi, Gvæjana, Kólumbíu, Noregi, Mósambík og Tyrklandi. 17 fengu rík- isborgararétt ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.