Morgunblaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 14
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu tæplega 7 millj-
örðum króna. Þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir rúmlega 1,5 millj-
arða. Mest hækkun varð á bréfum
Þormóðs ramma-Sæbergs, 19,67%,
en fyrirtækið er nú í yfirtökuferli.
Mest lækkun varð á bréfum Vinnslu-
stöðvarinnar, -7,14%.
Úrvalsvísitala aðallista lækkaði
um 0,62% og er hún nú 3.960 stig.
Enn lækkar
úrvalsvísitalan
14 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
HAGNAÐUR af rekstri Marels nam
1,8 milljónum evra, sem svarar til
145 milljóna króna, á fyrsta ársfjórð-
ungi. Aukningin frá sama tímabili í
fyrra nemur 19%. Bættan árangur
rekur fyrirtækið til hagræðingarað-
gerða og aukinna samlegðaráhrifa í
samstæðunni þrátt fyrir að gengis-
þróun hafi reynst félaginu óhagstæð.
Sala Marel-samstæðunnar á
fyrsta ársfjórðungi nam alls 29,9
milljónum evra, sem eru 2,4 millj-
arðar króna, samanborið við 2,2
milljarða króna árið áður. Salan hef-
ur því aukist um 19% á milli ára.
Framlegð af vörusölu var 10,5
milljónir evra eða 35,1% af sölu sam-
anborið við 9,2 milljónir eða 36,8% af
sölu á sama tíma árið áður. Þessi
hlutfallslega lækkun er í tilkynningu
frá Marel einkum sögð skýrast af
óhagstæðri gengisþróun. Rekstrar-
gjöld önnur en kostnaðarverð seldra
vara námu 7,6 milljónum evra og
jukust þau um 7,1% á sama tíma og
sala jókst um 19%. Rekstrarhagnað-
ur var 3,1 milljón evra (246 milljónir
króna) eða 10,2% af sölu samanborið
við 9,2% árið 2004.
Starfsmenn Marel-samstæðunnar
voru að jafnaði 845, þar af voru 318 á
Íslandi í tveimur fyrirtækjum og 527
erlendis í 13 fyrirtækjum í 9 löndum.
Sala
Marels jókst
um 19%
!"#
!$
% "&' (&
)* &# &
)#&
$&' (& % "&'
+,"
-# .
/0,. /0 !. , &#(
1
! 0 % "&'
2 &'
20 .&
3(&
$45& .6 && 78,.
/%!
/" 9" /"&' /"0 :
;:## � &
< && " &
=0 00 >/5(,# !
( ! ,"' ?:..
$&' 40 % "&' ;5 5
"# $%
@A?B
/4
,
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
,: &#
: ,
>
> > > > > > >
> > >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
C DE
C DE
C >DE
C > DE
C DE
C >DE
C > DE
C > DE
C >DE
C DE
C DE
>
C >DE
C > DE
>
C DE
>
C DE
>
>
C DE
>
>
C DE
>
>
>
>
>
>
>
2, "'
'# &
; "( 4 " '# F
) /"
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
< 4 *G
;2 H #&" !."'
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
;2> I 0 0"'&' " ".
;2> /:"' " ",##. 0 : "( , &
;2> <,#& : 0 . 0#&& 9"#
;2> (, & G#,,&'
;2> <,#& 5&&" 5 " "( 0 &&
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● JOSTEIN Sætrenes hefur verið ráð-
inn forstjóri KredittBanken í Álasundi.
Sætrenes er forstjóri skipafélagsins
Bourbon Offshore Norway. Áður var
hann fjármálastjóri Havila Supply,
vann hjá Fokus Bank og gegndi ýms-
um störfum í skipaiðnaðinum.
Sætrenes tekur við stöðu forstjóra
KredittBanken í ágúst og mun koma í
stað Frank O. Reite, sem nýverið var
gerður að framkvæmdastjóra yfir
starfsemi Íslandsbanka í Noregi og á
sæti í framkvæmdastjórn ÍSB.
Nýr forstjóri
KredittBanken
HAGNAÐUR af rekstri Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar fyrstu 3 mánuði
þessa árs nam 162 milljónum króna
og er þrefalt meiri en á sama tímabili í
fyrra. Má rekja það til stóraukinna
fjármagnstekna.
Heildartekjur HÞ voru 698 millj-
ónir króna og jukust um 16,5% frá
sama tímabili í fyrra. Þar af jukust
tekjur fiskvinnslu um 17% og tekjur
útgerðar um 16%.
Rekstrargjöld námu 532 milljónum
og jukust um 34% á milli ára. Fram-
legð félagsins nam 165 milljónum og
dróst saman um 18%.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði var
98 milljónir króna og dróst saman um
23%. Fjármagnsliðir voru jákvæðir
um 100 milljónir króna á ársfjórð-
ungnum en voru í fyrra neikvæðir um
67 milljónir. Gert er ráð fyrir hagnaði
af rekstri HÞ á þessu ári.
Aukinn
hagnaður HÞ
LÁNSHÆFISMATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s stað-
festi í gær lánshæfiseinkunn sína á Íslandsbanka og
Kaupþingi banka en lækkaði mat sitt á fjárhagslegum
styrk Íslandsbanka. Bankarnir hafa báðir fjárfest
mikið erlendis að undanförnu og er það ástæða þess að
Moody’s hefur endurskoðað mat sitt.
Yfirtökutilboð Kaupþings banka í Singer & Fried-
lander hefur engin áhrif á mat Moody’s á félaginu og
er lánshæfismat hans áfram A1/P-1. Mat á fjárhags-
legum styrk bankans er C+.
Í kjölfar þess að kaupum Íslandsbanka á BNbank er
nú lokið hefur fyrirtækið komist að þeirri niðurstöðu
að því fylgi áhætta að hafa breyst úr því að vera að
mestu leyti starfandi í einu landi í að hafa nær helming
starfsemi sinnar erlendis. Lækkandi framlegð fjár-
málafyrirtækja, bæði á Íslandi og í Noregi, og aukin
þörf bankans á fjármögnun á fjármálamörkuðum hef-
ur einnig áhrif á matið. Fjárhagslegur styrkur bank-
ans er nú metinn sem C+ en lánshæfismatið er
óbreytt, A1/P-1.
Mat á fjárhagslegum
styrk ÍSB lækkar
Morgunblaðið/Sverrir
BURÐARÁS hagnaðist um rúm-
lega 4,6 milljarða króna á fyrstu
þremur mánuðum ársins sem er
lítillega undir væntingum grein-
ingardeilda en meðal hagnað-
arspá þeirra var rúmlega 4,8
milljarðar.
Á sama tímabili í fyrra var
hagnaður fyrirtækisins tæplega 5
milljarðar króna.
Hagnaður samstæðunnar
byggir eingöngu á fjárfestingar-
tekjum en líkt og á sama tíma í
fyrra voru rekstrartekjur tíma-
bilsins lægri en rekstrargjöld,
rekstrartekjur voru tæplega
6,165 milljarðar króna en rekstr-
argjöld 6,194 milljarðar. Þó hafa
rekstrartekjur hækkað meira á
milli ára en rekstrargjöld. Fjár-
festingartekjur hafa lækkað á
milli ára og voru nú 5,4 millj-
arðar króna en voru 5,9 millj-
arðar í fyrra. Hækkun á inn-
lendum hlutabréfamarkaði
skilaði samstæðunni rúmlega 4,5
milljörðum en arðgreiðslur námu
tæplega 1,3 milljörðum króna.
Munar þar mestu um arð-
greiðslur frá Carnegie í Svíþjóð
sem námu um 700 milljónum
króna.
Hagnaður Eimskipafélagsins
sem er helsta dótturfélag Burð-
aráss nam 70 milljónum króna á
fyrstu þremur mánuðum ársins
en á sama tíma í fyrra var 49
milljóna króna tap af rekstrinum.
Mestu munar þar um lækkuð
rekstrargjöld félagsins auk þess
sem fjárfestingartekjur jukust
um 64 milljónir á milli ára.
Hagnaður Burðaráss
minnkar milli ára
7 'J
/KL D
D
!;/?
MN
D
D
AA -+N
D
D
)!N
7 ,
D
D
@A?N MO 3&,
D
D
ÚTLÁN Íbúðalánasjóðs í aprílmán-
uði námu 6,1 milljarði króna og er það
15% aukning frá sama tíma í fyrra.
Heildarútlán sjóðsins frá áramót-
um til aprílloka námu tæplega 23,2
milljörðum króna, að því er segir í til-
kynningu frá Íbúðalánasjóði. Þar af
eru almenn lán 21,5 milljarðar en 1,6
milljarðar heyra undir leiguíbúðalán.
Velta á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu hefur aukist í apríl og
náði vikuleg velta um 5,7 milljörðum
króna við lok mánaðarins, sem er
hæsta vikulega veltan síðan í desem-
ber á síðasta ári. Jafnframt hefur
markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs af
nýjum fasteignaveðlánum verið að
aukast það sem af er ári, að því er seg-
ir í tilkynningu.
Útlán umfram áætlanir
Útlán Íbúðalánasjóðs á fyrsta árs-
fjórðungi voru töluvert umfram áætl-
anir, að því er segir í Morgunkorni Ís-
landsbanka, og stefnir í að svo verði
einnig á öðrum ársfjórðungi, einkum í
ljósi hækkunar hámarkslána sem tók
gildi um miðjan apríl. Áætlun sjóðsins
um útlán og útgáfu ársins er þó
óbreytt.
Útlán
Íbúðalánasjóðs
aukast
♦♦♦
♦♦♦