Morgunblaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 23
UMRÆÐAN
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
TILBOÐ
Amerískar lúxus
heilsudýnur
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 72.000.-
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
Verslanir Odda
Borgartúni 29 • Sími 515 5170
Höfðabakka 3 • Sími 515 5105
Fyrirtækjaþjónusta
Pantanasími 515 5100 • Fax 515 5101
www.oddi.is
50%afsláttur
479kr
Verð áður
959kr
Hvað skiptir máli?
Áherslupennar, 10 í pk.
Verslanir Odda
Borgartúni 29 • Sími 515 5170
Höfðabakka 3 • Sími 515 5105
Fyrirtækjaþjónusta
Pantanasími 515 5100 • Fax 515 5101
Rafhlöðuheftari
www.oddi.is
50%afsláttur
1.445kr
Verð áður
2.890kr
Láttu ekki hefta þig!
Verslanir Odda
Borgartúni 29 • Sími 515 5170
Höfðabakka 3 • Sími 515 5105
Fyrirtækjaþjónusta
Pantanasími 515 5100 • Fax 515 5101
www.oddi.is
30%afsláttur
375kr
Verð áður
539kr
Rúllaðu dæminu upp!
Reiknivélarúllur
57 mm x 40 m
BSRB gerir margar alvarlegar
athugasemdir við frumvarp
menntamálaráðherra um Rík-
isútvarpið. Þau atriði
sem vega þar þyngst
eru breytingar á
eignaraðild að RÚV,
þ.e. að stofna sam-
eignarfélag um Rík-
isútvarpið. Þá gerir
BSRB alvarlegar at-
hugasemdir við
ákvæði sem varða
réttarstöðu starfs-
manna.
Ef við lítum fyrst á
eignaraðildina þá fel-
ur það í sér þversögn
gagnvart íslensku
máli að ræða um að félag sé sam-
eign eins aðila. „Sameignarfélag“
ríkisins eins er í sjálfu sér ekkert
annað en hreinn ríkisrekstur sem
á að lúta þeim almennu reglum
sem gilda um stofnanir ríkisins.
Benda má á að í öðrum tilvikum
þar sem opinberir aðilar eiga aðild
að sameignarfélögum eru eigendur
alltaf fleiri en einn, sbr. t.d.
Landsvirkjun og Orkuveitu
Reykjavíkur.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að nýtt frumvarp um sam-
eignarfélög sé í vinnslu hjá iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu.
Þegar það verður orðið að lögum
má gera ráð fyrir því að taka þurfi
tillit til efnis þeirra laga við rekst-
ur Ríkisútvarpsins. Frá þessu er
a.m.k. ein undantekning og lýtur
hún að því hversu margir eig-
endur koma að rekstri sameign-
arfélagsins, segir í greinargerð-
inni. Þar er bent á að fordæmi séu
fyrir því að gerðar séu undantekn-
ingar á slíkum ákvæðum og nefna
Póst- og símamálastofnun og
Lyfjaverslun ríkisins
sem dæmi, en þeim
var breytt í hlutafélög
þótt hluthafinn væri
bara einn. Þessi dæmi
eru tæpast sambæri-
leg því skýrar laga-
reglur voru um hluta-
félög sem gátu átt við
í meginatriðum þótt
einungis einn aðili
ætti allt hlutaféð.
Þessu er ekki til að
dreifa varðandi sam-
eignarfélög. Lögfestar
reglur eru ekki til um
starfsemi þeirra og ólögfestu regl-
urnar, sem taldar eru gilda um
sameignarfélög, byggjast einmitt á
þeirri forsendu að um sé að ræða
fleiri en einn eiganda að félagi
sem beri ótakmarkaða ábyrgð á
rekstri.
Réttarstaða starfsmanna
Ljóst er að breytt eignarhald
hefur það í för með sér að rétt-
arstaða starfsmanna breytist
verulega og lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins gilda
ekki lengur fyrir þá verði frum-
varpið að lögum.
Hvað þýðir þetta nákvæmlega
varðandi réttarstöðu starfsmanna
RÚV þegar stofnunin verður „lögð
niður“ og „sameignarfélagið“ tek-
ur við rekstrinum? Ekki verður
betur séð en að baki frumvarpinu
búi sú hugsun að breytt skuli rétt-
arstöðu þeirra ríkisstarfsmanna,
sem starfa hjá RÚV, án þess þó
að annar aðili en ríkið taki við
starfseminni. Áfram á RÚV að
lúta stjórn ríkisvaldsins og það
ber áfram ótakmarkaða ábyrgð á
starfseminni. Með öðrum orðum
er verið að setja lög um að starfs-
menn RÚV verði áfram starfs-
menn ríkisins án þess þó að um
kjör þeirra, réttindi og skyldur,
gildi almennar reglur um starfs-
menn ríkisins.
Brot á lögum
Nauðsynlegt er að hafa að-
ilaskiptalögin frá 2002 og lög um
tímabundna ráðningarsamninga í
huga þegar verið er að breyta
réttindum starfsmanna RÚV en
svo virðist ekki hafa verið gert.
BSRB telur það stangast á við
framangreind lög að binda boð um
„sambærilegt starf“ við starfs-
menn með ótímabundna ráðningu.
Allir starfsmenn njóta verndar
gegn uppsögnum samkvæmt að-
ilaskiptalögunum.
Samkvæmt aðilaskiptalögunum
á RÚV sf. að yfirtaka gildandi
ráðningarsamninga með þeim rétt-
indum og skyldum sem þar grein-
ir. Þá eiga starfsmenn RÚV sf. að
njóta réttinda og bera skyldur í
samræmi við ákvæði kjarasamn-
ings. Kjarasamningurinn á því að
gilda þar til honum verður sagt
upp eða hann rennur út eða þar til
annar kjarasamningur öðlast gildi
eða kemur til framkvæmda.
Biðlaunarétturinn
Samkvæmt frumvarpinu um
RÚV eiga starfsmenn að missa
biðlaunarétt ef þeir taka við starfi
eða hafna starfi. BSRB lítur svo á
að með frumvarpinu sé verið að
þrengja þann biðlaunarétt sem
starfsmenn RÚV hafa áunnið sér í
starfi. Að mati BSRB er eina rétta
leiðin varðandi áunninn biðlauna-
rétt starfsmanna að starfsmenn
fái einfaldlega notið þeirra rétt-
inda sem í honum felast þegar
gerðar eru skipulagsbreytingar
hjá stofnunum ríkisins sem leiða
til þess að biðlaunarétturinn verð-
ur virkur. Sértæk löggjöf sem er
sett í því skyni að koma í veg fyrir
að ríkisstarfsmenn fái notið rétt-
inda sem þeir hafa áunnið sér í
starfi er að mati BSRB andstæð
eignarréttarvernd stjórnarskrár-
innar.
Lífeyrisréttindi
Ekki er annað hægt að lesa úr
frumvarpinu en að réttindi þeirra
sem eru í A-deild verði óbreytt við
breytingu í sameignarfélag. Hins
vegar virðist ekki vera hugsunin
að þeir sem ráða sig til starfa eftir
gildistöku laganna verði með aðild
að LSR. Hvað rétt þeirra sem eru
í B-deild LSR varðar þá er sett
inn ákvæði um að fólk geti ekki á
sama tíma verið í vinnu og notið
lífeyris. Þegar Pósti og síma var
breytt í hlutafélag var sambæri-
legt ákvæði í þeim lögum. Það var
hins vegar fellt niður með lögum
um sölu ríkissjóðs á hlutafé í
Landssíma Íslands hf. Því geta
starfsmenn Póstsins og Landssím-
ans verið að vinna og verið á líf-
eyri. Eru nú fjölmörg dæmi um
einstaklinga sem þannig stendur á
um. Jafnræðisreglu er því ekki
gætt í frumvarpinu og þyrfti að
bæta úr því ef þessi lög á annað
borð verða samþykkt.
Vanreifað frumvarp
Frumvarp menntamálaráðherra
er eins og hér hefur komið fram
óljóst um margt og vanreifað. Í
því felst alvarleg aðför að rétt-
indum starfsmanna Ríkisútvarps-
ins auk þess sem miklir vankantar
eru á þeim þáttum sem lúta að
stjórnsýslu stofnunarinnar og
tengslum hennar við ríkisvaldið.
Óljóst og vanreifað frumvarp um RÚV
Erna Guðmundsdóttir
fjallar um frumvarp mennta-
málaráðherra um RÚV ’Þau atriði sem vegaþar þyngst eru breyt-
ingar á eignaraðild að
RÚV, þ.e. að stofna
sameignarfélag um Rík-
isútvarpið. ‘
Erna Guðmundsdóttir
Höfundur er lögfræðingur BSRB.