Morgunblaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 45 ÓSJÁLFRÁTT dettur manni kvik- myndin Skylmingaþrællinn (Glad- iator) í hug þegar maður horfir á Ríki Drottins. Fimm árum eftir hana leik- stýrir Ridley Scott aftur stórmynd sem gerist aftur í öldum, þótt um 1000 ár skilji sögurnar að. Mynd- irnar skarta báðar eftirminnilegum og áhrifaríkum bardagaatriðum, stórkostlegri sviðsmynd og natni við smáatriðin. Hér er líka fjallað um hugrekki, réttlæti og fórnfýsi. En það er Skylmingaþrællinn sem stendur betur að vígi þegar kemur að sögunni. Balian er franskur járnsmiður á 12. öld, sem nýlega hefur grafið bæði konu og barn. Þá kemur baróninn og krossfarinn Godfrey af Ibelin til hans og segist vera faðir hans og býður honum að koma með sér til Jerúsal- em. Eftir hik þiggur Balian það í þeirri von að bjarga konu sinni frá vist í helvíti, en samkvæmt trú kaþ- ólskra á þeim tíma var hún dæmd þangað þar sem hún framdi sjálfs- morð. Faðir hans deyr á leiðinni en Balian kemst til Jerúsalem og endar með því að bjarga fólkinu í borginni frá innrás múslimanna. Það sem stendur upp úr eftir myndina eru án efa bardagaatriðin, en líka samningaatriðin. Myndin gef- ur mjög góða tilfinningu fyrir því hvernig stríð fóru fram á þessum tíma. Ekki bara hversu hrikalegar aðferðirnar voru þegar barist var auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, og allt snérist um að leika á andstæðing- inn með herkænskubrögðum. Líka að í raun báru óvinirnir virðingu hvor fyrir öðrum sem ekki virðist fyr- irfinnast í dag. Menn ákváðu leik- reglurnar fyrirfram, fóru eftir þeim og sömdu síðan skynsamlega eftir að þeir voru að niðurlotum komnir. Það er Orlando Bloom sem á að halda myndinni uppi í hlutverki Bal- ians en það tekst ekki nógu vel. Hann er umkringdur frábærum leikurum sem allir gera vel í minni hlut- verkum, og hann lendir óvart í skugganum af þeim. Jafnvel hin óþekkta Eva Green er mjög sterk sem prinsessan af Jerúsalem. Or- lando leikur ágætlega þótt ég hefði frekar viljað sjá karlmannlegri mann í hlutverkinu. Hlutverkið er bara ekki nógu vel skrifað. Það að vilja bjarga eiginkonunni frá vítislogum er of ósnertanlegt markmið, auk þess sem við vitum aldrei hvort það tekst. Það er enginn drifkraftur í gangi og Balian er meira leiksoppur örlag- anna frekar en annað. Við þekktum hann heldur ekki nógu vel áður en haldið var af stað í krossferð til að vita að hann væri fær um að stjórna heilum her. Hvaðan fékk hann þá visku og allt sitt verkvit? Eru kannski allir járnsmiðir svona feiki- lega klárir? Hlutverkið er á reiki, þar með stefna kvikmyndarinnar í heild, og áhorfandinn fær þar með ekki að taka þátt. Ríki Drottins er vissulega stór- mynd, en bara ekki nógu góð. Hún útskýrir aðstæður ekkert, og kennir okkur þar með lítið um sögu Jerúsal- em eða þessa tímabils, nema þegar kemur að stríðsrekstri. Hún fer einn- ig rangt með ýmsar sögulegar stað- reyndir, en þar sem það er gert í þeim tilgangi að skapa meira drama, er það fyrirgefanlegt. Í raun hefði þurft meira drama. „Vissulega stórmynd, en bara ekki nógu góð,“ segir Hildur Loftsdóttir um Kingdom of Heaven. Stefnulaus stórmynd KVIKMYNDIR Smárabíó og Regnboginn Leikstjórn: Ridley Scott. Handrit: William Monahan. Kvikmyndataka: John Mathie- sen. Aðalhlutverk: David Thewlis, Liam Neeson, Orlando Bloom, Marton Csokas, Eva Green, Brendan Gleeson, Jeremy Irons, Edward Norton, Alexander Siddig og Ghassan Massoud. 145 mín. BNA/ SP/Bretland. 20th Cent. Fox 2005. Ríki Drottins / Kingdom of Heaven)  Hildur Loftsdóttir Hinn gamalreyndi og glæsilegiClint Eastwood segist gjarn- an vilja vinna að nýju með leik- konunni Hilary Swank, en hún lék aðalhlutverkið í mynd hans Million Dollar Baby sem var sigursæl á Óskarsverðlaunahátíðinni í ár. Eastwood hlaut Óskars- verðlaunin fyrir bestu leikstjórn og Swank var verðlaunuð fyrir besta leik í kvenhlutverki á hátíð- inni í ár. Eastwood getur vel hugsað sér að starfa að nýju með Swank. „Við erum með ýmis ný verkefni í bí- gerð. Hún er hreint út sagt frá- bær,“ segir leikstjórinn og leik- arinn um Swank. Fólk folk@mbl.is ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANSýningatímar ÁLFABAKKI  Fyrsta stórmynd sumarsins FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR Geggjaðasta og frumlegasta grínmynd ársinser komin í bíó. Byggð á einni vinsælustu bók alheimsins eftir Douglas Adams. j l í i i í í . i i i l l i i i l .  HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 HITCHHIKER´S GUIDE... VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 THE JACKET kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára. SAHARA kl. 5.30- 8 - 10.30 THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 - 8 - 10 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 8.15 - 10.30 MRS. CONGENIAL. 2 kl. 6 HITCHHIKER´S.. kl. 5.50 - 8 - 10.10 SAHARA kl. 8 - 10 THE ICE PRINCESS kl. 6 THE PACIFIER kl. 8 BOOGEY MAN kl. 10.30. SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 6 HITCHHIKER´S... kl. 8 - 10.10 XXX2 KL. 8 - 10 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 6 - 8 - 10 SVAMPUR SVEINSSON kl. 6 Jacket kl. 8 - 10 SLÓ RÆKILEGA Í GEGN Á ÍSLANDI, USA OG Á BRETLANDI Ferðablað Morgunblaðsins, Sumarferðir 2005, fylgir blaðinu föstudaginn 27. maí. Vertu með í Sumarferðum 2005 - blaðinu sem verður á ferðinni í allt sumar! Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 23. maí Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Sumarferðir 2005 Vertu með í ferðahandbók sumarsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.