Morgunblaðið - 11.05.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Ný peysusett
Mjódd, sími 557 5900
Vordagar í Mjódd
• Gallafatnaður frá Transfer • Gallabuxur kr. 3.990
• Stutt gallavesti kr. 3.990 • Síð gallavesti kr. 4.990
• Gallajakkar kr. 4.990
Verið
velkomnar
Réttu stærðirnar
Hlíðasmára 11 • Kópavogi
sími 517 6460 • fax 517 6565
www.belladonna.is
pilsaþytur og blómabolir
Opið virka daga kl. 11-18, laugard. 12-16
Vorum að taka upp nýja sendingu
af pilsum og bolum - flottir litir
KARL Ægir Karlsson varði dokt-
orsritgerð sína í taugavísindum við
sálfræðideild University of Iowa í
Iowa City í Bandaríkjunum 18. febr-
úar síðastliðinn. Heiti ritgerðarinnar
er „The Neural
Substrates of At-
onia and Myoc-
lonic Twitching
During Sleep in
Infant Rats“.
Andmælendur
voru dr. Mark S.
Blumberg, dr.
Amy Poremba,
dr. Scott R. Rob-
inson og dr. John H. Freeman sem
öll eru prófessorar við sálfræðideild
University of Iowa auk dr. Alan Kay
sem er prófessor í lífvísindadeild við
sama skóla. Leiðbeinandi verkefnis-
ins var dr. Mark S. Blumberg.
Rannsóknir dr. Karls snerust um
að lýsa taugabrautum sem eru nauð-
synlegar fyrir svefn og vöku í ný-
fæddum rottum.
Svefn er ráðgáta; þrátt fyrir að við
verjum einum þriðja af ævinni sof-
andi þá er ekki vitað til hvers svefn-
inn er. Og vegna þess að allt ungviði
ver jafnvel enn meiri tíma í svefn en
fullorðnir, hefur því verið haldið
fram að skýringa á svefninum væri
að leita í bernsku; því hefur til dæm-
is verið haldið fram að þær margvís-
legu breytingar sem verða í tauga-
kerfinu eftir fæðingu séu svefnháð-
ar. En vegna þess að taugafræðileg-
ar orsakir svefns í nýburum eru
óþekktar eru raunprófanir á slíkum
kenningum illframkvæmanlegar.
Í fyrri rannsóknum höfðu Karl og
samstarfsmenn hans hins vegar sýnt
að vöðvaspennuleysi, sem er hluti af
tónískri birtingarmynd bliksvefns
(REM svefns), er einnig mælanlegt í
nýfæddum rottum. Orsakir vöðva-
spennuleysis, og annarra hluta
svefns, eru ekki að fullu ljósar í full-
orðnum og þeim hefur aldrei verið
lýst í nýburum. Í doktorsverkefni
Karls var sýnt fram á að frumur í
heilastofninum (ventromedial me-
dulla) orsaka vöðvaspennuleysi séu
þær örvaðar (hvort heldur sem er
með rafmagni eða með glútamat
gerandefnum); þær auka tíðni hrif-
spenna á meðan vöðvaspennuleysinu
stendur og skortur verður á vöðva-
spennuleysi ef frumunum er fækkað
með sértækum vefjaskemmdum.
Enn fremur var sýnt fram á að
vöðvaspennuleysi var háð ílagi frá
frumum í heilabrúnni (pons); aftur-
virkum sporefnum var beitt til þess
að auðkenna ílagsfrumurnar. Frum-
ur í heilabrúnni sem eru nauðsyn-
legar fyrir vöðvaspennuleysi fund-
ust á afmörkuðum stöðum (sub-
coeruleus og pontis oralis) og vefja-
skemmdir á þessum stöðum orsök-
uðu skort á vöðvaspennuleysi án
þess að hafa áhrif á aðra þætti
svefns. Fasískir svefnþættir og vaka
voru hins vegar háðir tíðni og hrynj-
anda hrifspenna frumna sem liggja
frekar baklægt og hliðlægt í heila-
stofni (dorsolateral pontine teg-
mentum og einkum í laterodorsal
tegmental nucleus).
Rannóknirnar veita mikilvæga
vitneskju um taugafræðilegar orsak-
ir svefns í nýburum og opna nýjar
leiðir til þess að skilja tilgang og eðli
svefns. Rannsóknir Karls hafa verið
birtar í vísindaritunum: Behavioral
Neuroscience, Journal of Neurosci-
ence, Neuroscience, Journal of
Neurophysiology og PLoS Biology.
Einnig hefur verið fjallað um rann-
sóknir Karls í fjölmiðlum á borð við
National Geographic og Washington
Times.
Karl fæddist árið 1971 og var upp-
alinn í Þorlákshöfn. Karl lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Sund 1991 og eftir nokkur ár til sjós
hóf hann nám í sálfræði við HÍ og
lauk BA-gráðu í því fagi árið 1999.
Eiginkona Karls er Elsa Hrafnhild-
ur Yeoman tækniteiknari og eiga
þau tvö börn, Kolbein f. 1993 og
Nönnu f. 2000. Foreldrar Karls eru
þau Guðrún Sigríks Sigurðardóttir,
kennari í Þorlákshöfn og Karl Sig-
mar Karlsson, vélstjóri, athafna- og
veitingamaður.
Karl starfar nú við rannsóknir við
Neuropsychiatric Institute í Uni-
versity of California í Los Angeles
(UCLA) í Bandaríkjunum. Þar vinn-
ur hann við rannsóknir á taugalífeðl-
isfræði svefns – bæði í tilraunadýr-
um og mönnum.
Doktor í
tauga-
vísindum
EFTIRFARANDI athugasemd hef-
ur borist frá stjórn Ferðaklúbbsins
4x4 en félagsmenn voru meðal þeirra
sem mótmæltu olíugjaldinu við Al-
þingishúsið á mánudag. Að aðgerð-
unum stóðu auk þeirra Félag hóp-
ferðaleyfishafa, Frami – stéttarfélag
leigubílstjóra, Landssamband sendi-
bílstjóra og Bifreiðastjórafélagið
Átak.
„Stjórn Ferðaklúbbsins 4x4 lýsir
furðu sinni á ummælum fulltrúa Fé-
lags íslenskra bifreiðaeiganda um
mótmælaaðgerðir gegn fyrirhuguð-
um álögum á dísilolíu, sem fram hafa
komið í fréttum og á vef félagsins. Í
umfjöllun FÍB um aðgerðirnar er
kosið að rangtúlka og snúa út úr
áskorun þeirra samtaka sem að að-
gerðunum stóðu, í stað þess að
styðja mótmælaaðgerðir gegn óhóf-
legum álögum á þá bifreiðaeigendur
sem nota dísilolíu.
Í umræddri áskorun til fjármála-
ráðherra er á engan hátt fjallað um
þá kerfisbreytingu að taka upp olíu-
gjald í stað þungaskatts. Hins vegar
er mótmælt því gríðarlega háa olíu-
gjaldi sem ákvarðað hefur verið og
gerir dísilbíla að óhagstæðum kosti
fyrir íslenska bifreiðaeigendur.
Þetta gengur þvert á markmið frum-
varps um olíugjald sem var fyrst og
fremst að fjölga dísilbílum í umferð
og gera þá að hagkvæmum valkosti
fyrir bifreiðaeigendur. Fullyrðingar
FÍB um að í mótmælaaðgerðunum
felist stuðningur við núverandi
þungaskattskerfi eru því með öllu úr
lausu lofti gripnar og ekki hægt að
skilja þær öðruvísi en rangtúlkun á
innihaldi áskorunarinnar. Við skor-
um á FÍB að draga ummælin til baka
og standa með okkur í þessu stóra
hagsmunamáli fjölmargra bifreiða-
eigenda. Aðeins þannig getur FÍB
staðið sem hagsmunafélag allra bif-
reiðaeigenda á Íslandi.“
Lýsa furðu á ummælum
fulltrúa FÍB um aðgerðir
RAUÐI kross Íslands stóð nýverið
fyrir námskeiði fyrir verðandi leið-
beinendur á námskeiðunum Við-
horf og virðing, en tilgangur nám-
skeiðsins er að vinna gegn fordóm-
um og mismunun í þjóðfélaginu
með virkri umræðu. Leiðbeinendur
á námskeiðinu voru þau Sidsel Per-
son frá norska Rauða krossinum og
Rajan Chelliah (Chelliah Rajakulas-
ingam), þáttarstjórnandi þáttarins
Migrapolis hjá norska Ríkissjón-
varpinu.
Rajan, sem á ættir að rekja til Sri
Lanka, segir hættulegt að hefja um-
ræður um kynþáttafordóma með
því að stimpla fólk „rasista“, því
þannig loki fólk á umræður og
þroska. „Oft þarf fólk bara að ræða
saman og kynnast hvert öðru og þá
minnkar þessi menningarlegi mis-
skilningur,“ segir Rajan. „Markmið
okkar er að vekja umræður hjá
fólki. Það er hluti af námskeiðinu
að fá fólk til að tala saman. Við leið-
um samræður inn á vissar brautir
sem opna fyrir umræðuna um þessa
ólíku menningarheima og fjöl-
breytileikann í samfélaginu.“
Sidsel segir íslenska Rauða
krossinn hafa viljað prófa nýjar
leiðir til að berjast gegn kynþátta-
fordómum. „Norski Rauði krossinn
hefur mikla reynslu af þessu starfi,
en við leggjum áherslu á fjölbreyti-
leika og samræðu,“ segir Sidsel.
Um tuttugu einstaklingar, víðs-
vegar að af landinu, tóku þátt í
námskeiðinu. Þar var um að ræða
fólk úr ýmsum áttum, t.d. hag-
fræðinema, kennara, mannfræð-
inga og fleira. Þátttakendurnir
báru námskeiðinu og leiðbein-
endum góða sögu og kváðu sam-
ræður og vangaveltur hafa kveikt á
ýmsum hugmyndum.
Tuttugu manns á námskeiði RKÍ um viðhorf og virðingu
Morgunblaðið/Þorkell
Rajan Chelliah og Sidsel Person leiðbeindu verðandi íslenskum leiðbein-
endum um umræður, viðhorf og virðingu á námskeiði Rauða krossins.
Markmiðið
að vekja
umræður