Morgunblaðið - 25.06.2005, Side 11

Morgunblaðið - 25.06.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 11 FRÉTTIR ÍBÚAKOSNING um deiliskipulag á Sel- tjarnarnesi er í Valhúsaskóla í dag, laugardag. Kjörstaður opnar kl. níu og er opinn til kl. 22 í kvöld. Rétt til þátttöku hafa allir Seltirningar á kosningaaldri, þ.e. 18 ára og eldri á kjördegi. Kjörskrá hefur legið frammi á bæjarskrif- stofum Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2, frá 14 júní. Í kjörinu ræður einfaldur meirihluti at- kvæða úrslitum en engin tiltekin ákvæði um lágmarksþátttöku eru sett. 3318 eru á kjör- skrá. Úrslit kosninganna verða bindandi fyrir bæjarstjórn við gerð formlegs deiliskipulags. Kosningarnar snúast um deiliskipulag Hrólfsskálamels og Suðurstrandar en tillög- urnar tvær sem kosið er um eru auðkenndar með bókstöfunum H og S. Tillaga H gerir ráð fyrir gervigrasvelli á Hrólfsskálamel, við íþróttamiðstöðina, og að byggt verði nokkuð á Hrólfsskálamel og Suðurströnd þar sem nú er íþróttavöllur. Tillaga S gerir ráð fyrir að íþróttavöllur verði á Suðurströnd sem áður, en að byggt verði á Hrólfsskálamelnum. Atkvæðagreiðslu utan kjörfundar lauk í gær. „Að öðru leyti, þar sem það á við, verður við framkvæmd kosningarinnar tekið mið af lögum nr. 6/1998 um kosningar til sveitar- stjórna,“ segir í auglýsingu frá yfirkjörstjórn. Morgunblaðið tók tvo íbúa á Seltjarnarnesi tali, en þeir styðja hvor sína tillöguna. Frekar hengdur en skotinn „Þessar háu byggingar sem eru settar á Hrólfsskálamelinn við Nesveg í báðum tillög- unum, er sú hlið málsins sem snýr að okkur á Austurströndinni,“ segir Kristján Bjartmars- son íbúi á Seltjarnarnesi en hann telur tillögu H illskárri kostinn. Á Austurströnd búa 210 af 3318 á kjörskrá, skv. upplýsingum bæjarskrif- stofu. „Samkvæmt H-tillögunni eru háu bygging- arnar reyndar aðeins fjær.“ Hæsta byggingin á að vera sex hæðir en aðrar byggingar fjög- urra hæða, að sögn Kristjáns. „Fólk á efstu hæðum hér í húsinu mínu hefur útsýni alveg suður á Reykjanes, Keili og hvaðeina. Það er ósátt við þessi háu hús sem svo sem hefur komið fram áður.“ Kristján segir það fara mjög í taugarnar á íbúum að húsið á gatnamótum Suðurstrandar og Nesvegar sem upphaflega átti að vera sjö hæðir en svo fjórar vegna óánægju íbúa, sé nú allt í einu orðið sex hæðir aftur. „Í S-tillögunni er meiri traffík eftir Nesvegi að þessum húsum sem verða á Hrólfsskálamel, en það er okkur áhyggjuefni.“ Hann segir þó sagt að umferðin verði minni en af þeim fyrir- tækjum sem eru þar núna, en munurinn sé sá að nú er umferðin frá Suðurströnd. „Af þessum tveimur ástæðum tel ég H-tillöguna illskárri.“ Á hinn bóginn segir Kristján að sér finnist það klúður að troða íþróttavellinum „með skóhorni“ á Hrólfs- skálamel eins og tillaga H gerir ráð fyrir. Hann gagnrýnir að rýnihópur um skipu- lagsmál hafi ekki fengið svigrúm til að klára sína vinnu. Einnig gagnrýnir hann reglur um kosningarnar. Engin lágmarksþátttaka sé í þeim en niðurstöðurnar eigi þó að vera bind- andi. Óttast að bærinn taki niðurstöðu sem allsherjarumboði „Ef fólk kýs tillögu H eins og í mínu tilfelli af því hún er skárri kosturinn af tveimur ill- um, þá er engan veginn hægt að líta á það sem sérstakan stuðning við þá tillögu. Þess vegna finnst mér þetta svolítið undarlegt því auðvitað eru ýmsir kostir í stöðunni í báðum tilfellum ef við lítum svo á að aðalatriðið sé staðsetning vallarins. Þessar byggingar þurfa til dæmis ekki að vera sex hæðir,“ segir Kristján sem óttast að bærinn taki niðurstöðu kosninganna sem „einhvers konar allsherjarumboði til að keyra í gegn þá tillögu sem fær fleiri atkvæði, með öllum kostum og göllum.“ Kristján segist fyrst og fremst hafa viljað gefa vinnu rýnihópsins meira svigrúm, en ját- ar að hafa sjálfur ekki fylgst svo vel með vinnunni. „Það er ekki fyrr en núna að þessar tillögur eru lagðar fram að maður vaknar að- eins til lífsins. En auðvitað er ekki komin end- anleg útkoma í málinu. Það á í framhaldinu eft- ir að gefa út skipulag og þá gefast tækifæri til að hafa áhrif á útkomuna,“ segir Kristján sem orðar afstöðu sína svo að hann kjósi frekar H fyrir hengdur, en S fyrir skotinn. Minna magn bygginga – meira svigrúm fyrir miðbæ „Málið snýst um að ljúka við bæjarmynd Seltjarnarness og tryggja að hún verði falleg. Hún þarf að bera svip sjálfstæðs bæjarfélags, þannig að íbúunum sé sómi að og þeir stoltir af bæ sínum, en umfram allt þarf hún að vera far- sæl umgjörð sem varðveitir og hlynnir að lífs- gæðum íbúanna,“ segir Ólafur Egilsson sem styður S tillögu. „Það skiptir höfuðmáli að ver- ið er að skipuleggja miðsvæði. Sá annmarki er á því að taka ákvörðunina núna, að starfi rýni- hópsins um skipulagsmál var slitið áður en ljóst var orðið hvað verður um verslun og þjón- ustu sem tilheyrir miðju hvers bæjarfélags.“ Hann segir einkar mikilvægt að málum sé ráð- ið til lykta þannig að fyrst og fremst sé byggt á óskum íbúa. Þau umskipti sem orðið hafi í því efni síðan í fyrra séu því fagnaðarefni. „Einn kostur S-tillögunnar er að mínu mati sá að tvímælalaust er hægt að búa miklu betur að íþróttaiðkun í bænum á þeim stað sem völl- urinn er núna,“ segir Ólafur sem telur það spennandi kost að byggja upp iðkun frjáls- íþrótta um leið og búið sé í haginn fyrir knatt- spyrnuna og alhliða líkamsrækt fólks á öllum aldri. Honum þykja þau rök að máli skipti hvoru megin við íþróttahúsið völlurinn er vegna búningsklefa o.fl. út í hött. „Ef verið væri að tala um íþróttaaðstöðu fyrir fatlaða ætti þetta vissulega við,“ segir Ólafur. „Það hvað H-fólkið hefur gert þessi nánast auka- atriði að miklu máli finnst mér sýna hvað rökin þeim megin eru léttvæg. Margir undrast líka hvernig það getur gerst að framáfólk í íþrótta- starfseminni sé að beita sér gegn því sem er augljóslega miklu betri aðstaða og sumir í leið- inni snúast gegn eigin hugmyndum um stað- arval til framtíðar.“ Hann telur því ekki und- arlegt að ríflegur meirihluti í rýnihópnum um skipulagsmál hafi talið skynsamlegast að völl- urinn yrði áfram á sama stað, eins og fram komi í fundargerðum hópsins. Ólafur segir að honum ói við þeim vanda- málum sem háreysti og ljósamöstur í þrengsl- unum á Hrólfsskálamel myndu skapa fyrir fólk í íbúðum aldraðra og íbúa blokkarinnar sem H-tillagan geri ráð fyrir að rísi meðfram endi- löngum vellinum. „Það er heldur ekki hægt, finnst mér, að meta gervigrasvöllinn sem kostar 80-120 milljónir út frá því hvort líta megi á hann sem framlengingu á leiksvæði yngstu barnanna. Okkur er öllum yfirmáta annt um börnin í bæjarfélaginu. Málum yngstu grunn- skólabarnanna sem sækja Mýrarhúsaskóla er vel borgið með stækkun skólasvæðisins sem S-tillagan gerir ráð fyrir.“ Varðandi verslun og þjónustu, segir Ólafur að miklu skipti hvað um „þessa mikilvægu þætti í hverju bæjarfélagi“ verði nú. Hann segir það létta á umferð að þeir verði sem mest á Eiðistorgi en því miður þyki engan veginn víst að það gangi upp. „Þá þarf rými annars staðar á því miðsvæði bæjarins sem Hrólfs- skálamelur og Eiðistorg mynda. Ekkert svig- rúm verður til þess ef H-tillagan yrði ofan á. Algjört öngþveiti gæti skapast í skipulagsmál- unum. Stórt skemmuhús á bensínstöðvarlóð Skeljungs lýtir aðkomuna að bænum verulega og átroðningur við Austurstrandarhúsin yrði óbærilegur fyrir íbúa.“ Ólafur bendir á að fyrir fáeinum árum hafi verið samþykkt í bæjarstjórn svonefnd Stað- ardagskrá 21 en framkvæmd ekki verið sinnt. Þar sé lögð rík áhersla á að skapa líflegan miðbæ sem íbúar geti hist, keypt vörur sínar og þjónustu, notið menningar, sest inn á kaffi- hús, o.fl. Til baga sé að þetta verkefni skuli enn vera óleyst. Hann segist vona að línur skýrist við kosn- ingarnar, en að margir hafi saknað þess að ekki væri fyrst lögð fram til- laga að aðalskipulagi svo umgjörð miðsvæð- isins lægi fyrir. Afar brýnt sé að það komi fram sem fyrst „svo að hægt sé að fjalla um þessi mikilvægu mál heildstætt.“ Ólafur segir tvennt í tillögunum nú bind- andi, staðsetningu vallarins og bygginga- magnið. „Af því byggingamagnið er skv. S-tillögu hóflegt á Hrólfsskálamel skapar hún nauðsynlegt svigrúm og möguleika á að haga endanlegum byggingum þannig að þær m.a. taki miklu meira tillit til íbúa við Austurströnd en gert er í hugmyndum arkitekta bæjarins og tel ég brýnt að það verði gert.“ Hvað varðar afkomu bæjarfélagsins sem nokkuð hefur verið rædd, segir Ólafur að hvorki lítilsháttar fækkun íbúa né munurinn á byggingamagni tillagnanna tveggja skipti nokkru meginmáli. Það komi best fram í því að þrátt fyrir lítilsháttar íbúafækkun hafi tekjur bæjarins stórvaxið og nánast öllum stofn- framkvæmdum bæjarins sé lokið. „Sigurgeir bæjarstjóri gat á uppbyggingarskeiði rekið bæinn ár eftir ár með færri íbúum en nú búa þar en afkomu sem oftast var til fyrirmyndar. Ég trúi því að Jónmundur sem nú hefur náð að rétta nokkuð kúrsinn í skipulagsmálunum muni finna ráð til þess líka nú þegar uppbygg- ingunni er að nær öllu lokið.“ Kosið um skipulagsmál á Seltjarnarnesi Kristján Bjartmarsson Ólafur Egilsson LANDSSÍMINN villti viljandi og með- vitað fyrir viðskiptavinum sínum með kynningu á tilboði fyrirtækisins „Allt saman hjá Símanum“ sem var auglýst í um þrjár vikur í fyrrasumar, að mati samkeppnisráðs. Þessu til stuðnings vísar ráðið m.a. tölvupósts starfsmanna sem eru að hluta birtir hér til hliðar. Þetta kemur fram í ákvörðun sam- keppnisráðs vegna tilboðsins en ráðið hafði áður með bráðabirgðaákvörðun 9. júlí bannað Símanum að kynna tilboðið. Með bráðabirgðaákvörðun 9. júlí 2004 var Símanum bannað að kynna tilboðið og skrá nýja viðskiptavini samkvæmt því. Samkeppnisráð hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að ekki var um að ræða skaðlega undirverðlagningu, eins og OgVodafone hélt fram í erindi sínu til ráðsins í fyrra. Það var engu að síður mat ráðsins að Landssíminn hefði á al- varlegan hátt skekkt samkeppni á þeim mörkuðum sem tilboðið tók til og þann- ig misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn 11. grein samkeppnis- laga. í ákvörðun ráðsins er miðað við að Síminn væri markaðsráðandi á öllum þeim mörkuðum sem tilboðið tók til, þ.e. á talsíma-, gsm- og internetmark- aði. Verulegar ahugasemdir eru gerðar við kynningu Símans á tilboðinu og hún sögð hafa verið vísvitandi villandi. Eins og fyrr segir bar tilboðið yfir- skriftina „Allt saman hjá Símanum“ og voru tiltekin afsláttartilboð í heima- síma, 50% afsláttur að hringja og senda SMS í þrjú önnur gsm-númer hjá Sím- anum, 100 MB frítt gagnamagn frá út- löndum eða afsláttur af ADSL auk þess sem reglulega yrði boðið upp á sér- tilboð. Frekari upplýsingar voru ekki gefn- ar, að því er fram kemur í ákvörðuninni, en neytendur hvattir til að skrá sig á heimasíðu fyrirtækisins eða með því að hringja í þjónustuver. Samkeppnisráð taldi ekki unnt að túlka auglýsingarnar öðruvísi en að neytendur hefðu verið hvattir til að kaupa talsíma-, gsm- og netþjónustu ásamt ADSL-tengingu hjá Símanum. Jafnframt að nauðsynlegt hefði verið að kaupa alla þessa þjón- ustuþætti til að njóta tilboðsins. Síminn upplýsti á hinn bóginn að ein- göngu hefði verið nauðsynlegt að kaupa gsm-þjónustu og ADSL-tengingu til þess að viðskiptavinir nytu hinna aug- lýstu kjara. Samkeppnisráð telur framsetningu á áskriftartilboði Landssímans mjög vill- andi og líklega til þess að skapa alvar- legan misskilning á eðli tilboðsins og að Síminn hafi „viljandi og meðvitað villt um fyrir neytendum og viðskiptavinum sínum.“ Þá hefðu komið fram gögn sem sýni að frá upphafi hefði verið stefnt að því að markaðsherferðin yrði villandi. Samkeppnisráð telur Símann hafa misnotað stöðu sína Auglýsingar voru vísvitandi villandi Morgunblaðið/Jim Smart Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is  Meira á mbl.is/ítarefni DÓRA Sif Tynes, lögfræðingur OgVodafone, sagðist fagna ákvörðun Samkeppnisráðs um að Síminn hafi misnotað mark- aðsráðandi stöðu sína með því tvinna saman ólíka þjónustu- hætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu „Allt saman hjá Símanum.“ Það væri sérstaklega athyglisvert að lesa um undirbúning til- boðsins en þar kæmi fram að þó að nóg væri að hafa tvær þjón- ustuleiðir hjá Símanum hefði allt markaðsefni verið hannað þannig að viðskiptavinir héldu annað. OgVodafone býður upp á samtvinnunartilboð, líkt og „Allt saman“ tilboð Símans. „Munurinn á Landssímanum og okkur er sá að Landssíminn er markaðsráðandi á öllum þessum mörk- uðum sem um ræðir, heimasíma-, farsíma og internetmarkaði, en það erum við ekki,“ sagði hún. Athyglisverð lesning EVA Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi, sagðist ekki geta tekið undir það álit Samkeppnisráðs að Síminn hefði viljandi ætlað að villa um fyrir sínum viðskiptavinum með auglýsingum á tilboð- inu „Allt saman hjá Símanum“. Þá vekti það furðu sína að OgVodafone skyldi hafa kært til- boðið, sérstaklega í ljósi þess að stuttu síðar hefði OgVodafone samtvinnað alla sína þjónustu. Með því hefði fyrirtækið gengið tveimur skrefum lengra en Síminn sem hefði einungis tvinnað saman gsm- og ADSL-þjónustu. Hún benti á að Síminn hefði fyrir löngu hætt með tilboðið og auglýsti nú betri tilboð. Þá væri illskiljanlegt að aðeins OgVodafone sem væri með 40-50% hlutdeild á gsm-markaði, gæti samtvinnað þjónustu sína. Ekki viljandi villandi HÉR fyrir neðan er birt brot úr tveim af þrem tölvupóstum sem vísað er til í ákvörðun samkeppnisráðs:  „Til að fá inngöngu í Vildarklúbbinn, þarftu að vera með ADSL og GSM hjá Símanum & bein/boðgreiðslur. Allar auglýs- ingar gefa til kynna að heimilissími sé líka skylda. (það hefur verið hugsunin að það fylgi með og verðið auglýst þannig að all- ir þeir sem skrá sig í heimilisáskriftina séu þannig sjálfkrafa meðlimir „Vildarklúbbs Símans“).“  „Viðskiptavinurinn mun geta valið á milli 50% afsláttar í tvo eða 30% í þrjá en munum við hætta að auglýsa 50% í tvo nema með þessum áskriftarleiðum sem í boði verða. Með því móti munum við reyna að fá [viðskiptavin] Símans til að skynja það að hann þurfi að vera með „alla“ sína þjónustu hjá fyrir- tækinu til þess að fá allt það sem í boði er.“ Reynt að fá fólk til að „skynja“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.