Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 19

Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 19 ERLENT www.toyota.is Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070. Opið laugardag og sunnudag frá kl. 12.00 til 16.00. BETRI NOTAÐIR BÍLAR af sérvöldum bílum Þrjúhundruð og fimmtíu þúsund króna afsláttur ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/ SI A .I S T O Y 28 72 0 0 6/ 20 05 Pasadena í Kaliforníu. AP. | Flest virðist benda til að ferðalagi geimferjunnar Cosmos-1 hafi lokið að- eins 83 sekúndum eftir að henni var skotið á loft á þriðjudagskvöld en Cosmos-1 var tilraunaflaug er senda átti út í geim til að sýna og sanna að hægt væri að knýja geimferju áfram í geimnum með sólarorku. Það voru bandarísk samtök, The Planetary Society, sem stóðu að gerð geimflaugarinnar en hún var send á loft í samstarfi við rússnesk yfir- völd. Louis D. Friedman, forsvarsmaður samtak- anna, sem stofnuð voru af stjarneðlisfræðingnum og rithöfundinum Carl Sagan, viðurkennir að lík- lega hafi tilraunin mistekist. Rússneska geimvísindastofnunin sagði í gær að „næsta öruggt“ væri að sprengiflaugar Cosmos, sem hjálpa til við að knýja geimferjur á loft og á brott út í geim, hefðu bilað 83 sekúndum eftir að ferjunni var skotið á loft af rússneskum kjarn- orkukafbáti í Barentshafi á þriðjudag. Telja fulltrúar stofnunarinnar að geimferjan hafi kom- ið til jarðar nálægt Novaya Zemlya, eyjaklasa sem skilur að Barentshaf og Kara-haf. Flak ferjunnar hefur hins vegar ekki fundist. Stutt ferðalag hjá Cosmos-1 NÚ þegar hálft ár er liðið frá tsunami-flóðbylgj- unum sem urðu í Indlandshafi og ollu gríðarlegu manntjóni og eyðileggingu í mörgum löndum Suðaustur-Asíu, er atburðanna minnst á Norður- löndum en talið er að um 850 Norðurlandabúar hafi farist í flóðbylgjunum. Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á lík allra þeirra Norðurlandabúa sem fórust og margra er enn saknað. Svíar urðu fyrir mestu manntjóni af Norður- landaþjóðunum, 543 Svíar fórust eða er saknað. Að sögn sænsku TT fréttastofunnar er almennt talið að viðbrögð stjórnvalda á Norðurlöndum fyrsta sólahringinn eftir að flóðbylgjurnar skullu á hafi verið lítil og tilviljanakennd. Bent er á að nú þegar hálft ár er liðið frá hörmungunum séu Svíar eina Norðurlandaþjóðin sem hefur ekki lokið við opinbera rannsókn á þeim viðbúnaði sem viðhafður var í landinu vegna atburðanna. 850 Norðurlandabúar fórust í flóðbylgjunum SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur vakið reiði margra Finna vegna um- mæla sem hann lét falla um samskipti sín við forseta landsins, Törju Halonen, annars veg- ar og finnska matargerð hins vegar. Forsaga málsins er sú að bæði Finnar og Ítalir vildu fá til sín höfuðstöðvar Mat- vælastofnunar Evrópusambandsins (ESB) og þegar barátta milli landanna tveggja um að fá til sín stofnunina stóð sem hæst, í lok ársins 2003, lét Berlusconi þau orð falla að hún gæti ekki farið til Helsinki því „Finnar vita ekki einu sinni hvað prosciutto er.“ Svo fór að Ítalir fengu matvælastofunina til sín og voru höfuðstöðvar hennar opnaðar í Parma nú í vikunni. Við það tækifæri lék Ber- lusconi á als oddi og sagði meðal annars eft- irfarandi um samskipti sín við finnska forset- ann: „Þegar leitað er eftir ákveðinni niðurstöðu er nauðsynlegt að nota öll tiltæk vopn. Þess vegna dró ég fram glaumgosa- taktana, dustaði af þeim rykið ef svo má segja, og biðlaði ítrekað til forsetans blíð- lega.“ Berlusconi ræddi einnig um finnska matargerð og sagði: „Ég hef komið til Finn- lands og þurft að þola finnskan mat þannig að ég er fullfær um að gera samanburð. Hér í dag fær Barroso [Jose Manuel, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB] að smakka culatello [skinku úr héraðinu] en ekki reykt hrein- dýrakjöt frá Finnlandi.“ Hvetja Finna til að sniðganga ítalskar matvörur Finnar voru óhressir með orð ítalska for- sætisráðherrans og var ítalski sendiherrann í Finnlandi kallaður á fund vegna málsins í finnska utanríkisráðuneytinu. Að sögn tals- manns ráðuneytisins var tilgangur fundarins sá að „lýsa furðu yfir ummælum ítalska for- sætisráðherrans.“ Matti Vanhanen, forsætis- ráðherra Finnlands, gerði síðan grín að mál- maður forsætisráðherrans gerir hins vegar lítið úr atvikinu og segir orðin hafa fallið í gamni og að þau séu alls ekki tilefni milli- ríkjadeilu. Ráðherrann hafi einungis verið að „að sýna vinsemd við hátíðlegt tækifæri“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Berlusconi lætur falla orð sem þykja ósmekkleg. Frægt var þegar hann sagði við Martin Schultz, full- trúa Þjóðverja á Evrópuþinginu, að hann yrði tilvalinn í hlutverk varðmanns í kvikmynd sem væri verið að framleiða á Ítalíu um út- rýmingarbúðir nasista. Þá vöktu orð hans við starfsmenn kauphallarinnar í New York at- hygli, en þá vildi hann hvetja til fjárfestinga í ítölskum fyrirtækjum: „Önnur ástæða til að fjárfesta á Ítalíu er sú að við erum með gull- fallega ritara... æðislegar stelpur.“ inu á blaðamannafundi: „Málinu er lokið. Ég hef ekkert á móti ítölskum mat. Ég er mjög hrifinn af spagettíi, að því gefnu að það sé ekki of mikið kryddað.“ En málinu virðist ekki lokið af hálfu allra Finna og fara þar fremst samtök bænda og skógareigenda sem hafa lagt til að finnska þjóðin sniðgangi ítalskar matvörur það sem eftir lifir sumars, þar á meðal vín og ólífuolíu. Varðmaður í útrýmingar búðum og æðislegar stelpur Ummæli Berlusconi hafa einnig vakið hneykslan á Ítalíu og vilja stjórnarand- stöðuþingmenn að hann dragi þau til baka. Þau hafi verið óviðeigandi og einn ein „klaufalegu mistökin“ í framkomu hans. Tals- „Dró fram glaumgosataktana“ Berlusconi ergir Finna með ummælum um samskipti sín við Halonen Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is Reuters Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, ræða málin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.