Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SÝNING á ljósmyndum Ragnars
Axelssonar var opnuð á hádegi í
gær á Austurvelli. Borgarstjóri
Reykjavíkur Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir opnaði sýninguna en Sig-
urður Svavarsson útgáfustjóri
Eddu hélt stutta tölu áður og ræddi
meðal annars um að nauðsynlegt
hefði verið að gefa ljósmyndabók
hans, Andlit norðursins, út í fleiri
tungumálum þar sem hróður Ragn-
ars hefði borist langt út fyrir land-
steinana.
Ragnar Axelsson hefur um árabil
verið í framvarðasveit íslenskra
fréttaljósmyndara. Hann hefur
starfað við Morgunblaðið frá 1976
og farið víða um heim í störfum sín-
um. Mesta áherslu hefur Ragnar
lagt á að skrá mannlífið í Norður-
Atlantshafi eins og sýningin á
Austurvelli ber með sér, en mynd-
irnar eru teknar víðsvegar um Ís-
land, Færeyjar og á Grænlandi.
Sýningin á Austurvelli mun
standa til 1. september en þá er
möguleiki á að hún ferðist áfram til
Færeyja og víðar um heim. Ragnar
var að vonum ánægður með opn-
unina. „Að sjálfsögðu er maður
glaður með þetta. Hins vegar er
það leiðinlegt þegar pólitíkin
blandast inn í hluti sem þessa. Það
má deila um það hvort stöplarnir
séu fallegir eða ekki en það er
hryggilegt að við séum ennþá á
þessu plani hér á landi.“
RAX á
Austurvelli
Björn Vignir Sigurpálsson fréttaritstjóri Morgunblaðsins var að sjálfsögðu viðstaddur opnun sýningar Ragnars Axelssonar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ragnar Axelsson er ef til vill vanari
að vera á bak við linsuna.
Sigurður Svavarsson útgáfustjóri Eddu sem gefur Andlit norðursins út, Ragnar Axelsson og Konráð Sigurðsson.
„FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks-
ins harma að R-listinn skuli ætla að
breyta samþykktum Listasafns
Reykjavíkur í algerri andstöðu við
stjórnendur Listasafns Reykjavík-
ur, starfsmenn þess og Samtök ís-
lenskra myndlistarmanna.“ Þetta
kemur fram í bókun fulltrúa sjálf-
stæðismanna í Menningar- og ferða-
málaráði en gefin hefur verið út yfir-
lýsing vegna málsins.
Gísli Marteinn Baldursson, vara-
borgarfulltrúi og fulltrúi sjálfstæðis-
manna í ráðinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að minnihlutinn
væri mjög hissa á því að R-listinn
vilji standa svona að málum.
„Við í Sjálfstæðiflokknum erum í
sjálfu sér ekkert fráhverf þeirri hug-
mynd að setja á stofn einhvers konar
stjórn Listasafns Reykjavíkur. En
sú stjórn sem ákveðið hefur verið að
setja á laggirnar er pólitískt skipuð
og sett á í algjörri andstöðu við
myndlistarmenn og stjórnendur
listasafnsins,“ segir Gísli Marteinn.
Menningar- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar samþykkti ný-
lega að leggja til breytingu á sam-
þykkt fyrir Listasafn Reykjavíkur
um að stofna þar safnaráð skipað af
Menningar- og ferðamálaráði til ráð-
gjafar og stuðnings safninu.
Í bókun sjálfstæðimanna er jafn-
framt vitnað í þær umsagnir sem nú-
verandi forstöðumaður safnsins og
Samband íslenskra myndlistar-
manna lögðu fram vegna breytinga á
samþykktinni. Þar er lýst yfir mikilli
óánægju um hvernig staðið er að
málunum.
„Að mínu mati ætti svona stjórn
að vera tengd atvinnulífinu. Vera
milliliður atvinnulífs og almennings
annars vegar og Listasafns Reykja-
víkur hins vegar. Stjórnin ætti að
hjálpa forstöðumanninum að fjár-
magna sýningar og þess háttar.
Þetta safnaráð R-listans uppfyllir
ekki nein af þeim skilyrðum.
Eina skilyrðið sem þeir setja er að
stjórnin hafi þekkingu og áhuga á
myndlist og rekstri menningarstofn-
ana. Það er mjög teygjanlegt skil-
yrði og ljóst að þeir geti skipað
hvern sem þeir vilja,“ segir Gísli
Marteinn.
Hann segir engan ánægðan með
þessar breytingar nema meirihlut-
ann og tilvonandi forstöðumann
Listasafns Reykjavíkur. „Með fullri
virðingu fyrir nýja forstöðumann-
inum og hans starfi þá hefur hann
ekki unnið í safninu og sér ekki eins
vel og núverandi forstöðumaður
hvernig safnið stendur og hvað þarf
til að þar gangi vel.“
Myndlist | Sjálfstæðismenn ósáttir
við ákvörðun R-listans
Harma vinnu-
brögð vegna
nýs safnaráðs
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is
ÞAÐ verður boðið upp á fjölbreytta
dagskrá á Reykholtshátíð 2005 sem
hefur að leiðarljósi að flytja sígilda
tónlist í sögulegu umhverfi. Hátíðin
verður haldin í níunda sinn dagana
22. til 24. júlí í Reykholtskirkju.
Í þetta sinn verður lögð áhersla á
samvinnu erlendra og íslenskra tón-
listarmanna. Erlendir þáttakendur
verða samtals fimm í ár, auk inn-
lendra tónlistarmanna.
Meðal gesta hátíðarinnar verður
hinn þekkti franski fiðluleikari Phil-
ippe Graffin, sem er mörgum að
góðu kunnur. Hann leikur á Busano
fiðlu sem var smíðuð í Feneyjum ár-
ið 1750 og þykir mikill dýrgripur.
„Philippe mun m.a. leika Poéme eft-
ir Chausson í útsetningu tónskálds-
ins fyrir einleiksfiðlu, píanó og
strengjakvartett og er hann eini
fiðluleikarinn sem flytur verkið í
þessum búningi,“ segir Steinunn
Birna Ragnarsdóttir listrænn
stjórnandi hátíðarinnar. „Philippe
hefur komið fram á tónleikum víða
um heim og m.a. leikið með Yehudi
Menuhin, Rostropovich, Mörtu Arg-
erich, Thibaudet og fleirum. Vytaut-
as Barkauskas samdi nýverið verk
fyrir hann sem verður flutt á hátíð-
inni og hefur hlotið ýmiss verðlaun,
þ. á m. lithásku tónskáldaverðlaunin
2004. Philippe Graffin þykir áræðinn
í tónsköpun sinni og auk þess að
leika hefðbundin verk og sígilda
kammertónlist leitar hann sífellt að
nýjum víddum bæði í túlkun eldri
verka og í flutningi nýrrar tón-
listar.“
Hinn þekkti tenór Donald Kaasch
mun einnig verða gestur Reykholts-
hátíðar en hann söng nýverið hlut-
verk Fausts í Fordæmingu Fausts
eftir Berlioz með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. „Hann hefur sungið við öll
helstu óperuhús heims, þ. á m. á La
Scala, við Metropolitan óperuna, í
Bastillu-óperunni í París og víðar.
Hann hefur sungið með mörgum
virtustu hljómsveitum heims og m.a.
unnið með stjórnendum eins og
Claudio Abbado, James Levine,
Simon Rattle o.fl. Hann kom nýverið
fram ásamt Fílharmóníuhljómsveit
Lundúna og á Edinborgarhátíðinni,“
segir Steinunn Birna. Donald kemur
fram á tónleikum laugardaginn 13.
júlí kl 15.00 ásamt Steinunni Birnu
og flytur lög eftir ensk tónskáld og
þekktar óperuaríur.
Brindisi píanótríóið
Brindisi píanótríóið frá Englandi
verður einnig gestur hátíðarinnar.
Tríóið skipa Caroline Palmer píanó-
leikari, Jaqueline Shave fiðluleikari
og Michael Stirling sellóleikari. Þau
munu flytja verk eftir ýmsa höfunda
þ. á m. Haydn, Schumann, Beet-
hoven og Ravel. Tríóið tók við af
Brindisi strengjakvartettinum sem
Jacqueline og
Michael voru
bæði meðlimir í.
Þau hófu síðan
samstarf við Car-
oline og hafa
starfað saman
sem píanótríó í
fimm ár.
Ásdís Valdi-
marsdóttir lág-
fiðluleikari kemur
einnig fram ásamt Bryndísi Höllu
Gylfadóttur sellóleikara og Auði
Hafsteinsdóttur fiðluleikara.
Opnunartónleikar hátíðarinnar
verða föstudaginn 22. júlí kl 20.00 og
eru tileinkaðir hjónunum Clöru og
Robert Schumann. Þar verða fluttar
m.a. þrjár rómönsur fyrir fiðlu og pí-
anó og einleiksverk fyrir píanó eftir
Clöru og píanókvartett eftir Robert.
Á laugardeginum 23. júlí verða
tvennir tónleikar. Þeir fyrri kl 15.00
þar sem Donald Kaasch muna flytja
m.a. tónlist eftir ensk tónskáld og
þekktar óperuaríur.
Um kvöldið verða svo tríó-
tónleikar þar sem flutt verða píanó-
tríó eftir Haydn og Ravel og
strengjatríó eftir Beethoven. Flytj-
andi verður Brindisi píanótríóið
ásamt Graffin, Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur og Ásdísi Valdimarsdóttur.
Lokatónleikarnir verða svo
sunnudaginn 24. júlí kl 16.00. Þá
verða flutt verk eftir ýmsa, þ. á m.
Strengjadúó eftir Mozart í G-dúr og
kvintett eftir Schubert í C-dúr D956
op post.163 fyrir tvær fiðlur, víólu og
tvö selló.Auk þess flytur Graffin
téða partítu eftir Barkauskas.
Tónlist | Reykholtshátíð haldin í níunda sinn í næsta mánuði
Philippe Graffin og Don-
ald Kaasch meðal gesta
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir
Donald
Kaasch
Philippe
Graffin