Morgunblaðið - 25.06.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 27
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
! " !
# $% %&%
!
" #
' (## "
„VIÐTÖKURNAR hafa verið von-
um framar,“ segir Kristín Jóns-
dóttir sem undanfarið ár hefur boð-
ið Íslendingum sem sækja París
heim upp á leiðsöguferðir um hverfi
borgarinnar. Kristín hefur búið í
París um langt árabil og þekkir vel
til í borginni. Hefur hún sett upp
vefsíðu www.parisardaman.com þar
sem er að finna upplýsingar um
gönguferðirnar um borgarhverfin,
leiðarlýsingu og dagskrá auk marg-
víslegra hagnýtra upplýsinga um
París.
Kristín var í nokkur ár leið-
sögumaður í París á vegum ferða-
skrifstofunnar Terra Nova en fyrir
ári ákvað hún að gera þetta á eigin
vegum. Í sumar segist Kristín m.a.
bjóða upp á fasta göngutúra á
föstudögum og laugardögum en
einnig er hægt að panta ferðir utan
dagskrár og fer verðið eftir fjölda
þátttakenda, að sögn Kristínar.
Á föstudögum eru fastar göngu-
ferðir um Latínuhverfið og Mýrina
(Marais, 4. hverfi). Kl. 10 fer Krist-
ín með ferðalanga um Lat-
ínuhverfið en gangan um Mýrina
hefst kl. 15. Á laugardögum kl. 10
eru svo fastar gönguferðir um
Montmartre listamannahæðina í 18.
hverfi.
Þessar ferðir eru opnar öllum Ís-
lendingum sem eiga leið um borg-
ina, segir hún.
„Ég byrjaði að starfa sjálfstætt í
fyrra þegar Terra Nova var seld og
ákveðið var að hætta að bjóða upp
á hópferðir til Parísar,“ segir Krist-
ín. „Ég renndi blint í sjóinn en
þetta gekk vonum framar. Alltaf
mættu einhverjir, stundum bara
tveir en í eitt skipti fór hópurinn
upp í 12 manns,“ segir hún.
„Ég get ekki hugsað mér að
hætta því mér finnst svo gaman að
sýna Íslendingum París. Þetta er
skemmtilegasta starf sem ég hef
unnið, gefandi og lifandi og ekki
sakar að vera sinn eigin herra,“
segir hún.
Verðin eru þau sömu og í fyrra,
segir Kristín. 15 Evrur (um 1.200
ísl. kr.) á mann fyrir göngutúr inn-
an Parísar og ókeypis er fyrir börn
upp að 16 ára aldri. Þá borga fram-
haldsskólanemar hálft gjald.
Kristín býður einnig upp á ýmsa
sérþjónustu. Býðst hún m.a. til að
sækja fólk á flugvöllinn og fara í
skoðunarferð við komuna til Par-
ísar Eins er hún reiðubúin að fara
með þá sem áhuga hafa í versl-
unarmiðstöð fyrir utan borgina.
„Allar hugmyndir eru vel þegnar
því hægt er að skipuleggja alls kon-
ar uppákomur í borginni,“ segir
Parísardaman Kristín Jónsdóttir.
FRAKKLAND | Kristín Jónsdóttir býður leiðsögn um París
Gaman að sýna
Íslendingum borgina
Í sumar segist Kristín bjóða upp á göngutúra á föstudögum og laugardögum.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
25. júní
Blönduós. Handverksdagurinn
2005 er í dag og sérstök dagskrá af
því tilefni í Heimilisiðnaðarsafninu.
25. júní
Árborg. Rjómabúið á Baugs-
stöðum 100 ára. Afmælisdagskrá.
25. júní
Fáskrúðsfjörður. Sólstöðuferð á
Halaklett upp af Vattanesskriðum
klukkan 20 í kvöld.
25.-26. júní.
Bíldudal. Arnfirðingahátíðin hófst
í gær, 24. júní, á Bíldudal og stend-
ur fram á sunnudag. Eitthvað um
að vera fyrir alla fjölskylduna.
26. júní
Árbæjarsafn. Leikjadagur
barnanna.
30. júní-3. júlí
Hólmavík. Hamingjudagar á
Hólmavík. Bæjarhátíð haldin í
fyrsta sinn.
30.júní - 3. júlí
Höfn í Hornafirði. Humarhátíð.
1 júlí - 3. júlí
Vestmannaeyjar. Goslokahátíð.
30. júní - 3. júlí
Ísafirði. Act Alone-leiklistarhá-
tíðin.
1. - 3. júlí
Ólafsvík. Færeyskir dagar. Mark-
aður, leiktæki, bekkpressumót,
bryggjuball og fleira.
2. júlí
Eskifjörður. Ratleikur í Eskifjarð-
ardal fyrir börn. Mæting við Vet-
urhús klukkan 11.
Morgunblaðið/Alfons
Færeyskir dagar verða í Ólafsvík í næstu viku.
Á FERÐ UM LANDIÐ
Hamingjudagar
og Humarhátíð