Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 31 ÚR VESTURHEIMI Hamrahlíðarkórinn er íraun tveir kórar. Ann-ars vegar kór skipaðurnemendum hverju sinni og hins vegar kór fyrrverandi nemenda. Kórinn sem fór í Norð- ur-Ameríkuferðina samanstóð af félögum í báðum kórunum, alls 64 manns fyrir utan Þorgerði Ingólfs- dóttur stjórnanda, Lárus H. Bjarnason rektor og Kent Lárus Björnsson fararstjóra. ,,Þetta hefur verið alveg stór- kostlegt,“ sagði Þorgerður áður en hópurinn hélt til Norður-Dakóta og eftir að hafa sungið víða í Mani- toba og Ontario. Þátttaka á alþjóð- legri kórahátíð í Toronto var helsti tilgangur ferðarinnar og hápunkt- urinn en hópnum þótti sérlega gaman að koma á Íslendingaslóðir í Manitoba og hitta fólk, sem kór- félagar gátu talað við á íslensku. ,,Allt mitt líf hef ég lesið mikið og heyrt um Íslendingabyggðina hérna, örlög fólksins, og hugsað um að í huga fólksins sem fór vestur var þetta sem fyrirheitna landið. Svo hefur það hugsað til baka til Íslands sem fyrirheitna landsins.“ Þorgerður stofnaði Hamrahlíð- arkórinn 1967 og hefur farið í margar tónleikaferðir, jafnt innan lands sem til útlanda. Hún segir að hver ferð sé einstök og ekki sé hægt að bera eina ferð saman við aðra. ,,Það er einstakt að koma frá okkar landi og vera einhvers stað- ar þar sem er annað loftslag og annar hluti af himninum yfir okk- ur hverju sinni en hitta fólk sem á sameiginlegar rætur og hefur varðveitt þær.“ Þorgerður bætir við að sér hafi líka þótt einstakt að hlusta á ,,krakkana sína“ segja frá því að þeir hafi verið hjá fjöl- skyldum í Gimli sem séu svo hreinræktaðir Íslendingar að ekk- ert útlent blóð hafi blandast þeim. ,,Þetta er eins og sögurnar af gömlu Gyðingunum,“ segir hún og skilar miklu þakklæti til allra sem lögðu kórnum lið. ,,Gestrisnin er þessi gamla íslenska gestrisni í sinni fegurstu mynd.“ Guðmundur Arnlaugsson byrjaði í kórnum vorið 1993 og er fimm árum eldri en næstelsti kórfélag- inn. ,,Þetta hefur verið frábært,“ segir hann og bætir við að kórar upplifi ekki oft að áheyrendur skilji íslensku lögin. ,,Það er gam- an að koma til útlanda og sjá að fólk tekur undir í sumum lögum.“ Guðmundur var nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð og er nú sögukennari við skólann. Hann segir að erfitt sé að hætta í kórnum. Verkefni með Sinfóníu- hljómsveitinni næsta vor sé spenn- andi en hann ætli að sjá til um framhaldið í haust. ,,Það er aldrei að vita nema ég haldi áfram,“ seg- ir hann. Enn ein fjöður í hatt Hamrahlíðarkórsins Hamrahlíðarkórinn gerði stormandi lukku í tónleikaferð sinni um Ontario og Manitoba í Kanada og Norður-Dakóta í Bandaríkjunum ekki alls fyrir löngu. Steinþór Guðbjartsson fylgdist með krökkunum undir lokin og ræddi við Þorgerði Ingólfsdóttur, stjórnanda kórsins frá byrjun, og Guðmund Arnlaugsson, sem er elsti kórfélaginn og hefur sungið með kórnum síðan 1993. Morgunblaðið/Steinþór Peter Bjornsson, menntamálaráðherra Manitoba, Guðmundur Arnlaugs- son og Steingrímur J. Sigfússon. Kórinn tók lagið við víkingastyttuna í Gimli. Í Gimli söng Hamrahlíðarkórinn meðal annars lag fyrir Valdine Björnsson til minningar um Richard, eiginmann hennar, sem andaðist 2. maí sl. steg@mbl.is ,,VIÐ höfum fengið heilmiklar upplýsingar og þetta er bara byrjunin,“ segir Bjarki Svein- björnsson, tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins, um ferð sína og Jóns Hrólfs Sigurjónssonar tón- listarkennara til Vesturheims á dögunum. Tilgangur ferðarinnar til Norður-Dakota og Manitoba var að fara í slóð fyrstu tveggja kyn- slóða vestur-íslenskra tónskálda og tónlistar- manna. ,,Við erum að leita að upplýsingum um þá, daglegt líf þeirra, tónlistarmenntun og tón- listarstarf,“ segir Bjarki. ,,Í raun erum við að safna upplýsingum um allt sem tengist lífi þeirra og það hefur komið í ljós að við höfum ennþá aðgang að fólki sem man eftir flestum þeirra í eigin persónu.“ Í ferðinni ræddu þeir við marga sem tengdust tónskáldunum og tónlistarmönnunum. „Elsti Vestur-Íslendingurinn sem við höfum talað við er 104 ára og elsti tónlistarmaðurinn sem við höfum hitt er 95 ára,“ segir Bjarki. ,,Það var því ekki seinna vænna að fara þessa ferð og ná upp- lýsingum um alla þessa einstaklinga, því það hefur sýnt sig að gögn og persónulegir munir hafa dreifst til fjórðu kynslóðarinnar og eru komnir út um öll Bandaríkin og Kanada.“ Greinin „Nokkur íslensk tónskáld“ eftir Gísla Jónsson, sem birtist í Tímariti Þjóðræknisfélags Íslendinga 1951, kveikti áhuga tvímenninganna á málefninu. ,,Í greininni er fjallað um 15 tón- skáld og við vildum kynnast þeim nánar,“ segir Jón Hrólfur. Bjarki hélt fyrirlestur um efnið í fyrirlestra- röð íslenskudeildar Manitobaháskóla fyrir lið- lega ári og bað heimamenn að hafa augu og eyru opin með frekari upplýsingar í huga. Í vor skrif- aði hann grein í Lögberg-Heimskringlu þar sem hann kallaði eftir frekari upplýsingum. ,,Við fengum strax viðbrögð frá Norður-Dakota og Manitoba og ákváðum að drífa okkur,“ segir Bjarki. Félagarnir tóku viðtöl við fólk með þætti í út- varpi og sjónvarpi í huga. Auk þess mynduðu þeir mikið af gögnum og tóku myndir af munum sem tengjast þessari sögu. Safna upplýsingum um tónskáld og tónlistarmenn vestra Morgunblaðið/Steinþór Jón Hrólfur Sigurjónsson og Bjarki Sveinbjörnsson ræða við Audrey Fridfinnson um afa henn- ar Jón Friðfinnsson, sem var tónlistarkennari og tónskáld í Winnipeg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.