Morgunblaðið - 25.06.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 49
MENNING
Belgískar vöf
Nýlega bættist við enn einn ljúffengur réttur í kaffiteríu Perlunnar.
Bragðið á gómsætum nýbökuðum belgískum vöff lum í kaffiteríunni
á 4. hæð. Næg ókeypis bílastæði!
BELGÍSKAR VÖFFLUR
Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - perlan@perlan.is - www.perlan.is
Hr
in
gb
ro
t
„BLÓM eru jákvæð tákn og allir hafa gaman
af þeim,“ segir Arnór G. Bieltvedt listmálari
sem opnar sýningu á verkum sínum í sal Ís-
lenskrar grafíkur í dag.
Sýningin hefur hlotið nafnið Ljós og litberar
sem Arnór fær frá skynjun sinni á blómum.
„Að mála blóm er eins og að mála lifandi lit.
Línan þarf að gera alla vinnuna til að halda
verkinu saman. Liturinn og formið sameinar
svo hugmyndina í málverkinu,“ segir Arnór.
Það eru sjö ár frá síðustu sýningu Arnórs á
Íslandi svo það er tími til kominn að hann sýni
Íslendingum hvað hann hefur verið að gera í
myndlistinni síðan.
Blandar saman ýmissi tækni
Hann teiknar og málar alls kyns myndir;
portrait, abstrakt, blóm og landslag en ákvað
að einbeita sér að einu viðfangsefni fyrir þessa
sýningu. Arnór blandar saman ýmissi tækni;
akrýl, pastel, olíu og penna og vill ekki vera
háður neinni einni tækni.
Uppistaða málverka hans er liturinn og litur
blóma hefur þar sterkustu áhrifin. Arnór mál-
ar í expressjónískum stíl, þar sem hraði og ná-
kvæmni vinna saman og tjáir hann tilfinningar
og hugsanir í gegnum liti, línur og form.
Arnór segir stundum erfitt að tala um mál-
verk því orðin séu svo ólík skynjuninni á
myndunum. Hann líki þó blómum stundum við
leikara á sviði sem hægt sé að stilla upp á mis-
munandi vegu og leika sér svolítið með. „Ég
hef gaman af áskorunum í listinni, vil taka
áhættu og fara ótroðnar slóðir,“ segir hann.
Arnór er yfirmaður listadeildar North
Shore Country Day School í Winnetka og
kennir unglingum á menntaskólastigi mynd-
list. Hann hefur einnig kennt fullorðnum og
starfaði í sjö ár í skóla fyrir vandræðaungl-
inga. „Þar voru krakkar sem höfðu átt við eit-
urlyfjavanda, þunglyndi og athyglisbrest að
stríða. Þetta var ungt fólk með djúpa lífs-
reynslu og það var ótrúlegt að sjá hvernig það
notaði lífsreynsluna í listsköpun,“ segir Arnór.
Lært mikið af nemendum sínum
Sjálfur hefur hann lært mikið af nemendum
sínum og telur sig eiga eftir að læra mikið í
myndlistinni. Hann er búinn að fara víða og
læra margt en myndlistin er eini þátturinn í lífi
hans þar sem honum líður eins og unglingi.
Arnór kennir myndlist átta tíma á dag, ráð-
leggur nemendum sínum og leysir ýmsar gát-
ur listarinnar. Hann er því stöðugt að æfa sjón
og hugsun.
„Fólk á að vera óhrætt við að skapa og ekki
hugsa um það hvort einhver sé að horfa yfir
öxlina á því,“ segir Arnór að lokum.
Á sýningunni hjá Grafíksafni Íslands sýnir
hann átta teikningar og ellefu málverk og
stendur sýningin til 10. júlí.
Myndlist | Arnór G. Bieltvedt heldur málverkasýningu í sal Íslenskrar grafíkur
Enn unglingur í myndlistinni
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Arnór G. Bieltvedt hefur búið lengi í Bandaríkjunum og starfar þar sem kennari og listmálari.
LISTASTEFNUNNI í Basel lauk formlega síðastliðinn
mánudag. Að sögn forsvarsmanna var þessi stærsta og
virtasta nútímalistakaupstefna heims afar vel heppnuð
að þessu sinni.
Talið er að um 56.000 gestir hafi sótt Basel heim af
þessu tilefni, sem er met í 36 ára sögu listastefnunnar,
og um 1.700 fjölmiðlamenn. Alls tóku 275 gallerí frá
öllum heimshlutum þátt að þessu sinni og var sala
verka með besta móti, að sögn galleríista á staðnum.
Listastefnan í Basel verður aftur haldin að ári.
Á myndinni virða gestir á stefnunni fyrir sér sápu-
stykki sem talið er gert úr likamsfitu ítalska forsætis-
ráðherrans, Silvio Berlusconi, eftir að hann fór í andlit-
lyftingu og fitusog. Þetta verk Gianni Monti nefnist
Hreinar hendur og seldist á innan við klukkustund á
opnunardegi listastefnunnar, 14. júní. Verkið keypti
svissnesskur einkasafnari á 15.000 evrur, tæpar 1,2
milljónir króna.
Reuters
Góð aðsókn og árangur í Basel
ÁRNI Þórarinsson
rithöfundur og
blaðamaður á Morg-
unblaðinu hefur
ákveðið að fela JPV-
útgáfu næstu saka-
málasögu sinnar um
Einar blaðamann
sem fyrst kom fram
í sakamálasögunni
Nóttin hefur þúsund
augu.
Mál og menning
hefur annast útgáfu
verka Árna fram til
þessa.
Hefur sent frá sér
fjórar skáldsögur
Árni hefur áður sent frá sér
fjórar skáldsögur. Nóttin hefur
þúsund augu kom út 1998 og hef-
ur einnig verið gefin út í Dan-
mörku og Þýskalandi. Hvíta kan-
ínan kom út 2000, Blátt tungl 2001
og Í upphafi var morðið 2002, í
samvinnu við Pál Kristin Pálsson,
en kvikmyndaréttur hennar hefur
verið seldur til Storm ehf. Þeir
Árni og Páll Kristinn voru einnig
handritshöfundar sjónvarpsþátta-
raðanna Dagurinn í gær, RÚV
1999, sem Hilmar
Oddsson leikstýrði,
og 20/20, RÚV 2002
sem Óskar Jónasson
leikstýrði.
Sjónvarpsmyndin
20/20 var tilnefnd til
fernra Edduverð-
launa, þ. á m. fyrir
besta handrit.
Árni Þórarinsson
á að baki langan feril
í íslenskri blaða-
mennsku og við dag-
skrárgerð fyrir út-
varp og sjónvarp.
Hann hlaut blaða-
mannaverðlaunin
árið 2004 fyrir fréttaskýringu sína
um forsetatíð Ólafs Ragnars
Grímssonar sem birtist í Tímariti
Morgunblaðsins síðastliðið sum-
ar.
Útgáfan væntir góðs
af samstarfinu
„Það er JPV-útgáfu fagnaðar-
efni að fá svo góðan liðsmann í
sínar raðir og væntum við góðs af
samstarfinu við Árna Þórarins-
son,“ segir Jóhann Páll Valdi-
marsson útgáfustjóri.
Árni Þórarinsson
til JPV-útgáfu
Árni Þórarinsson