Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Salou
Súpersól 9. og 16. september
frá kr. 24.995
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri • sími 461 1099 • Hafnarfirði • sími 510 9500
www.terranova.is
Terra Nova býður síðustu sætin til Salou á ótrúlegum kjörum. Salou er fallegur bær á Costa Dorada
ströndinni, sunnan Barcelona. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Kr. 24.995 í 5 daga
Kr. 34.995 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
Súpersól tilboð, 9. eða 16. sept. í 5 eða 12 daga.
Kr. 34.990 í 5 daga
Kr. 44.990 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna. Súpersól tilboð,
9. eða 16. sept. í 5 eða 12 daga.
Síðustu sætin
RANNSÓKN BOÐUÐ
Hjálpargögn streymdu til New
Orleans í Bandaríkjunum í gær og
þjóðvarðliðar byrjuðu að dreifa þeim
til tuga þúsunda borgarbúa sem
höfðu beðið eftir aðstoðinni í fimm
daga, án matar og drykkjarvatns.
Þúsundir þjóðvarðliða komu til
borgarinnar og vörubílalest flutti
þangað matvæli, vatn og lyf. Öld-
ungadeildarþingmenn í Washington
sögðust ætla að hefja rannsókn á
miðvikudag á viðbrögðum alrík-
isstjórnarinnar við hamförunum.
Búist er við að það taki nokkra daga
að flytja alla borgarbúana frá New
Orleans.
Kögun býður lægst
Kögun átti langlægsta tilboðið í
gerð ökutækja og ökuskírteinaskrár
á Trinidad og Tóbagóeyjum í Kar-
íbahafi. Kögun bauð um eina milljón
dollara í verkið í samvinnu við lítið
þarlent fyrirtæki. Bjarni Birgisson,
framkvæmdastjóri Þróunardeildar
Kögunar, segir fyrirtækið hafa þurft
að sitja undir ásökunum um spill-
ingu og mútur og ýmiss konar
óhróður þarlendra fjölmiðla. Hafi
fyrirtækið þurft að hrekja óhróð-
urinn gagnvart Sameinuðu þjóð-
unum.
Klúður sökum reynsluleysis
Guðmundur Árni Stefánsson, al-
þingismaður Samfylkingarinnar,
segir að reynsluleysi Össurar Skarp-
héðinssonar og Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur hafi orðið til þess
að Samfylkingin komst ekki í rík-
isstjórnarsamstarf eftir síðustu
kosningar. Hann fullyrðir, í viðtali
við Árna Þórarinsson í tímariti
Morgunblaðsins, að ríkisstjórn Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks hafi
verið raunhæfur möguleiki, en hon-
um hafi verið klúðrað. Guðmundur
Árni kveður nú stjórnmálin og tekur
við embætti sendiherra í Stokkhólmi
1. nóv. nk. Í viðtalinu rifjar hann upp
feril sinn í stjórnmálum.
Björgunarsveitir til reiðu
Íslenskar björgunarsveitir á veg-
um Landsbjargar eru nú í við-
bragðsstöðu og tilbúnar að fara til
flóðasvæðanna í Suðurríkjum
Bandaríkjanna. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa skorað á þjóðir heims að
leggja til björgunarsveitir og neyð-
araðstoð til bágstaddra. Utanrík-
isráðuneytið leitar enn íslenskrar
konu sem tilkynnt var um að væri
týnd. Hennar hefur verið leitað frá
fyrsta degi.
Mikið lagt til rannsókna
Íslensk stjórnvöld leggja hlutfalls-
lega mest til rannsókna og þróunar
af Norðurlöndunum, en Noregur
minnst. Hins vegar leggja íslensk
fyrirtæki mun minna til rannsókna
en fyrirtæki á Norðurlöndum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 41
Fréttaskýring 8 Myndasögur 42
Hugsað upphátt 19 Dagbók 42/45
Menning 46/47 Víkverji 42
Sjónspegill 26 Staður og stund 43
Forystugrein 28 Leikhús 46
Reykjavíkurbréf 28 Bíó 50/53
Umræðan 30/36 Sjónvarp 54
Bréf 36 Staksteinar 55
Minningar 38/39 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins var kallað að Kleppsvegi 64 kl.
2.25 í fyrrinótt, en þar hafði komið
upp eldur í þriðju hæð í fjölbýlis-
húsi.
Að sögn varðstjóra hjá Slökkvi-
liðinu hafði nágranni bjargað ein-
um manni út úr íbúðinni og voru
þeir báðir fluttir á slysadeild. Tveir
reykkafarar fóru inn og slökktu eld
í eldhúsi, en hann hafði kviknað út
frá síðnætureldamennsku. Eld-
urinn var ekki mikill en töluverður
reykur myndaðist og reykræsta
þurfti íbúðina og stigaganginn.
Eldur kviknaði
í eldhúsi
TÓNLEIKAR hljómsveitarinnar
Franz Ferdinand í Kaplakrika á
föstudagskvöldið fóru afar vel fram
að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði
og var aldrei ástæða til að skipta
sér af málum þar.
Í öðrum bæjarhlutum Hafn-
arfjarðar var aðra sögu að segja, en
lögreglan stöðvaði alls sex öku-
menn grunaða um ölvun við akstur
aðfaranótt laugardags. Þykir það
allnokkur fjöldi að sögn lögreglu.
Sex ölvaðir
við akstur í
Hafnarfirði
Hrunamannahreppur | Bændur hér í Hrunamannahreppi
eru að byrja kornskurð en bygg er ræktað á 130 til 140
hekturum lands.
Útlit er fyrir góða kornuppskeru. Byggið er valsað
og mest af því súrsað og er hið besta fóður fyrir mjólk-
urkýr.
Sigurður Ágústsson í Birtingaholti að slá sex raða
bygg á um 9 hektara akri á jörðinni Syðra-Langholti í
góða veðrinu sl. föstudag. Kornskurðarvélin sem er
þýsk er alveg ný af gerðinni Claas og reyndist mjög vel.
Að sögn Jónatans Hermannssonar, tilraunastjóra hjá
Korpu, hefur byggrækt aukist um 10 til 15% árlega
undanfarin ár. Talið er að bygg sé ræktað á rúmlega
3000 hekturum á öllu landinu. Hann segir líkur á góðri
uppskeru nú en hún verði þó ekki eins mikil og árin
2003 og 2004 sem voru afbragðs uppskeruár.
Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson
Góð kornuppskera
BORÐTENNISMEISTARARNIR
úr Víkingi losnuðu úr prísundinni á
flugvellinum í Kiev í Úkraínu í gær-
morgun. Að sögn Tryggva Áka Pét-
urssonar, eins þremenninganna,
þurftu þeir að borga samtals um 500
bandaríkjadali og fengu þá að fara
inn í landið.
„Við höfðum reynt að fá að tala við
einhvern en var alltaf bent að fara
inn í þennan sal og bíða bara. Það
var ekkert að gerast og enginn kom
að tala við okkur. Við reyndum að
stelast inn í vegabréfaafgreiðsluna
sem var þarna. Í morgun náðum við
á endanum að hitta á manneskju sem
spurði hvort við hefðum pening fyrir
vegabréfsáritun,“ sagði Tryggvi Áki.
Þegar rætt var við Tryggva Áka
voru þeir félagar á leið í leigubíl til
Sumy, þar sem þeir áttu að spila við
Úkraínumeistarana í borðtennis í
gær. Vegalengdin er um 300 km.
Ekki var komið í ljós hvort leiknum
fengist frestað þar til í dag, sunnu-
dag. Tryggvi Áki sagði að þeir væru
þreyttir og máttlausir eftir að hafa
fastað heilan sólarhring.
Látnir sofa á
grjóthörðum bekkjum
„Við vorum látnir sofa á grjót-
hörðum bekkjum.Við erum mátt-
lausir og þreyttir. Við fengum ekk-
ert að borða. Það var einhver sem
reyndi að selja okkur hálfa vatns-
flösku á tvo dollara, en við létum
ekki bjóða okkur það,“ sagði Tryggvi
Áki.
Að sögn Péturs Stephensen, for-
manns borðtennisdeildar Víkings,
var óskað eftir því við borðtennislið
Lokomotiv Sumy, að leiknum yrði
frestað þar til í dag.
Máttlausir og
þreyttir eftir vistina
„VIÐ teljum að þetta sé góður samn-
ingur fyrir íslenskan landbúnað og er-
um afar þakklát þeim embættis- og
stjórnmálamönnum sem hafa verið í
fararbroddi í þessum viðræðum og
gengið frá þessu samkomulagi,“ segir
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri
MS/MBF, þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins leitaði viðbragða hjá hon-
um við Hoyvíksamningnum sem felur
í sér algera fríverslun og tollfrelsi
milli Íslands og Færeyja. Segir Guð-
brandur að með tíð og tíma megi gera
ráð fyrir að markaðsstærð íslenskra
mjólkurafurða í Færeyjum verði 3-4
milljón lítrar á ári
Velvilji Færeyinga mikill
gagnvart íslenskum vörum
Aðspurður segir Guðbrandur ljóst
að íslenskir framleiðendur mjólkuraf-
urða hafi á undanförnum árum horft
til Færeyja enda miklir kostir bundn-
ir þeim markaði. „Annars vegar er
þetta markaður sem er mjög nálægt
okkur og við erum að horfa til þess að
við getum verið að vinna sýrðar vörur
með meðallangt geymsluþol, þá er ég
að tala um 14 til 28 daga,“ segir Guð-
brandur og nefnir í því samhengi
vörur á borð við skyr, jógúrt og
bragðbætta mjólkurdrykki eins og
skyr.is. „Hins vegar tel ég ljóst að það
er mikill velvilji í Færeyjum gagnvart
íslenskum vörum, auk þess sem Fær-
eyingar þekkja vel til íslenskra af-
urða,“ segir Guðbrandur og bætir við:
„Svo er líka mikill kostur að við get-
um prófað vörur í okkar umbúðum á
þessum markaði, sem er auðvitað al-
veg einstakt. Þannig að vonandi mun
framtíðin leiða það í ljós að þetta verði
nánast eins og hluti af okkar heima-
markaði.“
Spurður hvaða markaðsstærð gera
mætti ráð fyrir í Færeyjum segist
Guðbrandur sjá fyrir sér að hann geti
með tíð og tíma orðið 3–4 milljón lítr-
ar af mjólk, sem væri 3% af heildar-
framleiðslu á Íslandi, en hún er 111
milljón lítrar árlega. „Auðvitað förum
ekki inn með allt þetta magn í einu,
því það tekur einhvern tíma að þróa
markaðinn.“
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær undirrituðu Davíð Oddsson, ut-
anríkisráðherra, og Jóannes Eides-
gaard, lögmaður Færeyja, með sér
samkomulag þess efnis að landbún-
aðarhluti Hoyvíksamningsins taki
þegar í stað gildi. Aðspurður hvaða
áhrif þetta hafi segir Guðbrandur það
muni flýta áformum MS/MBF varð-
andi útflutning til Færeyja og megi
gera ráð fyrir að fyrstu sendingar
geti farið utan innan tíðar. „Um leið
og við náum samkomulagi við kaup-
endur er ekkert því til fyrirstöðu að
byrja viðskiptin,“ segir Guðbrandur
og tekur fram að fyrirtækið hafi að
undanförnu verið í viðræðum við aðila
á færeyska markaðnum. „Ég held
einnig að það sé mjög mikilvægt að
við nýtum okkur það að samningur-
inn virki í báðar áttir og við munum
hafa augun opin fyrir því hvort ein-
hverjar vörur í Færeyjum gætu hent-
að í okkar dreifikerfi.“
Miklir möguleikar á
færeyskum markaði
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÞRETTÁN rúður voru brotnar í
Rimaskóla um hálftvöleytið í gær-
nótt. Voru við athæfið nýttir grjót-
hnullungar og járnbiti og var að-
koman ekki falleg að sögn lögreglu.
Stórar rúður voru brotnar og
skemmdirnar umfangsmiklar. Lög-
reglan telur sig hafa vísbendingar
um hverjir voru þar að verki og
vinnur nú að rannsókn málsins.
Helgi Árnason, skólastjóri Rima-
skóla, harmar þennan leiðinlega at-
burð, en segir þó enga röskun
verða á kennslu vegna þessa.
„Þetta voru bara rúðubrot,“ segir
Helgi. „Kerfið fór í gang og raskaði
áformum þeirra sem þarna voru að
verki. Securitas-menn voru komnir
á svæðið fimm mínútum eftir að
kerfið fór í gang.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rúðubrot í
Rimaskóla