Morgunblaðið - 04.09.2005, Side 49

Morgunblaðið - 04.09.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 49 E N N E M M / S ÍA / N M 18 0 0 9 Stjörnumessa: Har›ari keppni en nokkru sinni fyrr! sun kl.20Popppunktur Hefst í kvöld! fuglaflensuna þegar hann opnar skápdyrnar, vísvitandi afbökuð ára- tuga mannréttindabaráttu og sívax- andi skilningur samfélagsins, alltént umburðarlyndi, fyrir hlátrasköll. Annar ljóður á Strákunum okkar er leikaravalið í aðalhlutverkið. Björn Hlynur er góður leikari en álíka trúverðugur sem hommi og Arnold Schwarzenegger á með- göngutímanum í Junior, sællar minningar. Samskipti hans og nýja kærastans eru einkar pínleg. Strákarnir okkar eiga líka sína góðu spretti, þeir félagarnir, Róbert og Jón Atli eru fyndnir og það vakir ekki hvað síst fyrir þeim að fá sam- félagið til að hlæja að eigin for- dómum og fjölmargar uppákomur eru bráðskondnar þótt maður hafi á tilfinningunni að aðstæðurnar sem mynda þær séu í raunveruleikanum langt að baki í jafnréttismálum homma og lesbía. Það má vera að ég viti ekki betur. Karlremban og stjörnudýrkunin, sem gjarnan fylgir þessari „göfugu“ íþrótt, er einnig gerð að aðhlátursefni, og ekki van- þörf á að margra dómi. Á það ber einnig að líta að mynd á borð við Strákana okkar opnar umræðuna, færir samkynhneigð nær þeim hversdagslega farvegi sem hún á að vera í í umræðunni. Björn er vissulega ekki trúverð- ugur hommi, hálfvelgja í kynhneigð hans hjálpar heldur hvorki honum né myndinni. Á hinn bóginn er Jón Atli þeim mun meira sannfærandi í hlutverki Orra, sem tekur homm- anum bróður sínum einsog hundsbiti sem venst. Björk Lára er fjallhress sem aðstoðarþjálfari hommaliðsins og Helgi Björns er ekki sem verstur heldur sem maðurinn hennar, að- alþjálfarinn sem má muna sinn fífil fegri á fótboltavellinum. Bestur af öllum er Arnaldur Ernst, hans við- brögð eru þau eðlilegustu í myndinni og hann vinnur einkar trúverð- uglega úr erfiðu hlutverki stráks á viðkvæmum aldri sem lendir í hverju áfallinu á fætur öðru. Það má eitthvað yfirnáttúrlegt gerast ef hann verður ekki orðaður við Edd- una í haust. Yfirbragð Strákanna, leikstjórn og tæknivinna eru í ágætu með- allagi, þó hefði hljómburðurinn mátt vera skýrari á stöku stað. Í það heila tekið er ljóst að Strákarnir okkar kemur eins og frískur gustur sem opnar umræðuna og á góða aðsókn skilið. „Strákarnir okkar eiga líka sína góða spretti, þeir félagarnir, Róbert og Jón Atli, eru fyndnir og það vakir ekki hvað síst fyrir þeim að fá samfélagið til að hlæja að eigin fordómum,“ segir m.a. í dómnum. Sæbjörn Valdimarsson Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.