Morgunblaðið - 04.09.2005, Page 27
byggingar flugvallarsvæðisins. Allra
hagur, einnig verktaka, að læra af
reynslu annarra og engin tilhugsun
ógeðfelldari en ef við bættist enn eitt
nákalt og mannfjandsamlegt íbúðar-
hverfið, í skerandi ósamræmi við eldri
byggð og náttúrusköpin allt um kring.
Nokkur spölur frá gamla miðbæn-
um að vesturhöfninni og leiðin mestan
part lítið upplífgandi fyrir augað, full-
mikið af þungum og hörðum bygging-
um, hvar viðkomandi virðast hafa
gleymt að til eru boga- og skálínur.
Byggingarsvæðið nýja enn í hers
höndum vegna mikilla framkvæmda,
ég og nokkrir aðrir forvitnir ferða-
langar þurftum að taka á okkur nokk-
urn krók til að komast að þeim hluta
þess sem lengst er komið áleiðis og
sums staðar fullbúinn. Turninn,
helsta kennileiti hverfisins, undinn og
spírallaga, gnæfir yfir, lokið við ytri
byrði að best varð séð en þó margt
ófrágengið í kringum hann og enginn
fluttur inn. Fullbúnu íbúðasamstæð-
urnar margar mjög forvitnilegar, fjöl-
þættar og hugmyndaríkar en samt er
langt í land að náð hafi verið með
tærnar þar sem kaupstefnan var með
hælana en alltof snemmt að dæma um
lyktir verkefnisins í heild sinni, trúa
mín að þegar á næsta ári muni mál
skýrast.
Sýningin/kaupstefnan BoO1 virðist
hafa haft nokkur hrif á þróunina í
byggingariðnaðinum því að á síðast-
liðnum þrem árum hefur orðið mikil
viðhorfsbreyting í Evrópu. Þar áður
hafði hver bókin rekið aðra hvar lærð-
ir spáðu hnignun og dauða stórborga,
en nú hafa orðið mikil umskipti svo að
menn eru farnir að tala um endur-
reisn þeirra. Fólk vill lifandi miðborg-
arkjarna en þar með er ekki sagt að
það gerist með fjölgun verslana, öld-
ur- og kaffihúsa heldur litríku lífrænu
og mannvænu umhverfi, fyrst og
fremst byggð þar sem fólk getur verið
í friði, að mestu laust við hávaða frá
umferðinni og öðrum skarkala. Borg-
irnar eiga svo komið fyrst og fremst
að vera fyrir fólkið sem býr í þeim,
síður umferðina og viðskiptin, rík
ástæða til þess að við séum hér með á
nótunum, nóg um slysin allt um kring
og sýnist von á fleirum. Í ranghverfri
viðleitni við að halda í við alþjóðlega
strauma hafa ráðamenn einmitt tekið
stefnuna á það sem lærðir segja nú
höfuðástæðuna fyrir hnignun stór-
borga á undanförnum árum og ára-
tugum.
Spurningin hlýtur fyrst ogfremst að vera hvað erReykjavík og hvernig heldurborgin einkennum sínum í
samræmi við nánasta umhverfi sitt,
eldri byggð, landsvæðið, eyjarnar úti
með Sundum og fjallahringinn. Þetta
á líka við um Akureyri þar sem menn
eru sömuleiðis að láta sig dreyma um
alþjóðlegt yfirbragð bæjarkjarnans,
troða kuldalegum eftirlíkingum stór-
borga inn í hann í skerandi ósamræmi
við það sem fyrir er, landslag og nátt-
úrusköp. Þokki Reykjavíkur og Ak-
ureyrar byggist helst á þeim sérkenn-
um sem enn eru fyrir hendi og þau
kunna útlendir vel að meta, eru engan
veginn hingað komnir til að þefa uppi
mistök og úrkynjun á heimaslóðum.
Hafa menn gleymt hvernig Tómas
Guðmundsson orti um Laufásveginn
og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
um sína heimasveit; Sigling inn Eyja-
fjörð?
Meginveigurinn er hér að höndla
anda staðanna og tel ég ástæðu til að
minna aftur á orð Jeans Nouvels: „Ég
vona að fólk muni skilja að arkitektúr
hefur ekkert með uppfinningar forma
að gera. Ekki um leikvöll fyrir börn
og gamalmenni að ræða. Arkitektúr
er hinn raunverulegi orrustuvöllur
andans.“
bragi@internet.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 27
Guðrún Ebba
Kjartan
Bolli
Vilhjálmur
Kristján
Þorbjörg Helga
Guðlaugur Þór
Benedikt
Hanna Birna
Marta
Gísli Marteinn
Jórunn Björn
Búum til betri borg - saman
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna
Við leggjum upp í fundaferð
og bjóðum öllum íbúum
Reykjavíkur að taka þátt
í spennandi umræðum um
framtíð borgarinnar.
Búum saman til betri borg.
www.betriborg.is
Mánudaginn 5. september kl. 20.00:
Breiðholt -
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5.
Miðvikudaginn 7. september kl. 20.00:
Háaleiti, Fossvogur, Hlíðar -
Kringlukránni, Kringlunni.
Fimmtudaginn 8. september kl. 20.00:
Kjalarnes -
Fólkvangi.
Fimmtudaginn 8. september kl. 20.00:
Grafarholt -
Holtakránni, Kirkjustétt 2-6.