Morgunblaðið - 04.09.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 04.09.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 31 UMRÆÐAN EINU sinni var roskin kona sem við fyrstu kynni virtist hin mætasta og besta kona. Hún varði stórum hluta frí- tíma síns, og hann var allnokkur, í það að heimsækja sjúklinga á Landakotsspítala í Reykjavík. Fljótt á litið virðist þetta vera for- skriftin að hinni full- komnu ömmu. En þeg- ar kafað var niður kom annað í ljós. Sjúkling- arnir sem gamla konan heimsótti dóu allir fljótlega eftir að hún hafði heimsótt þá. Í fyrstu grunaði engan að hvíthærða blíða konan með hatt- inn hefði eitthvað með þessi dauðs- föll að gera. Margir af þessum sjúk- lingum voru langt leiddir af krabbameini svo það gat talist eðli- legt að þeir dóu. Hins vegar tóku að renna á menn tvær grímur þegar sjúklingur með botnlangabólgu og annar með rifinn liðþófa dóu eftir að sú gamla hafði verið í heimsókn. Eft- ir stutta rannsókn kom hið sanna í ljós. Gamla konan heimsótti þessa sjúklinga og talaði þá í gröfina. Hún sagði þeim öllum að þeir litu skelfi- lega út og kallaði til presta hægri vinstri. Fólkið sem lá þarna trúði þessum engli dauðans og missti lífs- neistann og dó. Einhvern veginn svona rámar mig að ein af smásögum Þórarins Eld- járns hafi verið. Endursögnin er vís- ast röng en innihaldið nokkuð nærri. Hún rifjaðist upp fyrir mér um dag- inn þegar ég heyrði lafhrædda borg- arfulltrúa Reykjavíkurlistans tjá kjósendum sínum að ef listinn byði ekki fram í næstu kosningum væri allt tapað. Steinunn Valdís, Alfreð Þorsteinsson, Björk og Stefán – öll stóðu þau og fluttu dómsdagsspá. Hvaða endemis kjaftæði er þetta? Hvaða trú hefur þetta fólk á gildi jafnaðar, félagshyggju eða umhverf- isvernd ef það treystir sér ekki til þess að berjast fyrir þeim gildum án hjálp- ardekkja og enda- lausra málamiðlana? Við þurfum ekki á slík- um pólitíkusum að halda sem ætla að tala það sem við trúum á í gröfina með slíkri hálf- leiksræðu. Svona væl á ekki heima í fram- varðasveit flokks sem ætlar sér að hafa áhrif og völd. Það er vel hægt að tala sjúkling með inn- gróna tánögl til heljar. Það er leikur einn. Hins vegar hefur það sýnt sig að stjórnmálamenn geta talað upp góðæri þegar sá gállinn er á þeim. Í borg þar sem bylting hefur átt sér stað sl. 12 ár í átt til fé- lagshyggju er algjör óþarfi að kasta perlunum fyrir fulltrúa ný- frjálshyggjuhegranna í D-listanum. Kjósendur þurfa sterkan valkost nú þegar auglýsinga- og yfirborðs- mennskan mun ná nýjum hæðum. D-listinn er í slíkum sárum að hon- um er vart hugað líf – en einmitt slíkur listi líkt og lasinn geitungur að hausti er hættulegur. Hann stingur við minnsta tækifæri. Þessi sterki valkostur getur verið VG en þó að- eins ef við öll og framvarðasveit okk- ar hefur trú á verkefninu og gefur ekki út ótímabær og heimskuleg dánarvottorð. Í hálfleik á að segja: Upp með brækurnar nú eða sokkana – rústum þeim! Þú ert dauðvona – segir hver? Grímur Atlason skrifar um stjórnmál ’Svona væl á ekkiheima í framvarðasveit flokks sem ætlar sér að hafa áhrif og völd. ‘ Grímur Atlason Höfundur er í stjórn VGR. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Fréttir í tölvupósti Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Falleg, sjarmerandi og vel skipulögð 81,5 fm 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjórbýlishúsi. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og tveimur stofum. Eldhús með nýlegri fallegri innréttingu, borðkrókur. Baðherbergi flísalagt, innrétting og baðkar. Hjónaherbergi rúmgott með miklu skápaplássi. Tvær samliggjandi rúmgóðar og bjartar stofur, svefnherbergi innaf annarri stofunni. Sameiginlegt þvottahús í risi. Íbúðin er öll parketlögð nema á baðherb. og eldhúsi. Hátt er til lofts í íbúðinni, fallegir loftlistar. Búið er að afsýra hurðirnar í íbúðinni. Hús í góðu standi. Verð 17,9 millj. Opið hús verður í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. Opið hús í dag milli kl. 14 og 16 Holtsgata 20 Látraströnd - Seltjarnarnesi Mjög fallegt og afar vel staðsett 252 fm einbýlishús með 28,4 fm innbyggðum bílskúr. Á aðalhæð eru m.a. stórt hol með ofanbirtu, 3 rúmgóð herbergi, stórar og bjartar stofur með útgangi á verönd til suðurs., eldhús með miklum innrétt- ingum og góðum borðkrók og flísalagt baðherb. auk gesta w.c. Einnig er her- bergi og þvottaherbergi í kjallara. Verðlaunalóð með fjölda trjáa og plantna. Hellulögð verönd og viðarverönd. Verð 70,0 millj. Nesvegur- Marbakki Einbýlishús á stórri sjávarlóð á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Afar vel staðsett og reisulegt 314 fm einbýlishús á stórri sjávarlóð mót suðri. Húsið er kjallari, hæð og ris auk bílskúrs og stendur á um 1.500 fm eignarlóð al- veg niður á sjávarkambinum. Eignin skiptist m.a. í stórar samliggjandi stofur, stórt eldhús, 5 herbergi og 2 baðherbergi. Aukaíbúð er í kjallara hússins í dag. Suðursvalir út af stofum með óhindruðu sjávarútsýni. Ræktuð lóð. Stór hellu- lögð heimreið. EINSTÖK EIGN, FRÁBÆR STAÐSETNING. Lindarberg - Hafnarfirði Stórglæsilegt 252 fm einbýli á tveimur hæðum með 34 fm innb. bílskúr. Húsið er allt innréttað á afar vandaðan og smekklegan hátt úr ljósum viði, innrétt. úr birki og parket er allt úr massívri eik. Granít í gluggakistum að stórum hluta. Lofthæð á efri hæð allt að 4 metrar. Kamína í stofu. Stórar suðursvalir. Húsið er teiknað af Guðmundi Gunn- laugss. og er vel staðsett innst í botnlanga og við opið svæði. Mikils útsýnis nýtur yfir Hafnarfjörðinn og út á sjóinn. . Hæðarbyggð - Garðabæ Glæsilegt 347 fm einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur 2ja herb. aukaíb. á jarðhæð, hvor um sig með sérinn- gangi. Efri hæðin skiptist í forstofu, hol, gesta w.c., rúmgott eldhús m. ný- legum innrétt. og tækjum og góðri borðaðstöðu, borðstofu, tvær setu- stofur, rúmgott sjónvarpshol m.útg. á suðursvalir., fjögur herb., þvottaherb. og rúmgott flísalagt baðherbergi. Mikið útsýni úr stofum. Tvöfaldur bílskúr. Hiti í innkeyrslu og stéttum að hluta. Falleg ræktuð lóð, teiknuð af Auði Sveinsdóttur. Verð 61,0 millj. Grandavegur- eldri borgarar. 3ja herb. íbúð 87 fm 3ja herb. íbúð á 6. hæð í lyftu- húsi fyrir eldri borgara ásamt stæði í bílskýli og sérgeymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í forstofu með skáp, parket- lagða stofu með útgangi á svalir, eld- hús, tvö herb., bæði með skápum, flí- salagt baðherb. og þvottaherb. Mikið útsýni yfir fjallahringinn og sjóinn. Mikil sameign. Tvær lyftur. Húsvörður og ýmis þjón. Verð 27,5 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Öldugata- glæsileg 3ja herb. íbúð ásamt bílskúr. Glæsileg og algjörlega endurnýjuð 75 fm 3ja herb. íbúð með góðri lofthæð ásamt 21 fm bílskúr. Nýjar eikarinnrétt- ingar eru í íbúðinni, vandað eikarparket á gólfum, fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, björt stofa og 2 rúmgóð herbergi, bæði með skápum. Suður- svalir. Allar lagnir eru endurnýjaðar og hús hið ytra. Verð 29,9 millj. Barðavogur-einbýli. Mjög vel skipulagt og afar vel staðsett 163,2 fm. einbýlishús á þremur pöllum auk 28 fm bílskúrs. Húsið skiptist m.a. í þrjár samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, geymslur og þvottaherbergi. Auk þessa er sér stúdíóíbúð á neðsta palli hússins. Húsið er til afhendingar strax. Verð 38,9 millj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.