Morgunblaðið - 04.09.2005, Page 22

Morgunblaðið - 04.09.2005, Page 22
22 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ M annanafnanefnd kemst í fréttirnar með reglulegu milli- bili, gjarnan þegar hún samþykkir að setja ný nöfn inn á mannanafnaskrá, sem nefndin við- heldur og sér um að halda úti – en ekki síður þegar fólk er ósátt við niðurstöðu nefnd- arinnar; þegar fólki er meinað að gefa barni sínu það nafn sem það kýs. Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent við laga- deild Háskóla Íslands, er formaður manna- nafnanefndar en með henni í nefndinni eru Guðrún Kvaran, forstöðumaður Orðabókar Háskóla Íslands, og Haraldur Bernharðsson málfræðingur. Aðalheiður, sem tók við formennsku í nefndinni í febrúar á þessu ári, segir starfið afar skemmtilegt og gjöfult. Erindin sem nefndinni berist séu fjölbreytt og gagnrýni, sem annað slagið beinist að nefndinni, sé ein- ungis eðlilegur þáttur starfsins. Því megi þó ekki gleyma að nefndin starfi alfarið skv. lög- um sem samþykkt hafi verið af löggjafanum. Tvíþætt hlutverk En hvert er hið raunverulega hlutverk nefndarinnar? Aðalheiður svarar því: „Mannanefndanefnd starfar í samræmi við VIII. kafla mannanafnalaganna. Í sama kafla eru helstu verkefni nefndarinnar tíunduð, en þau eru í stórum dráttum tvíþætt. Annars vegar er nefndin ráðgefandi aðili og veitir prestum, forstöðumönnum trúfélaga, dóms- málaráðuneyti og forsjármönnum barna ráð- gjöf um nöfn, auk þess ber nefndin ábyrgð á svokallaðri mannanafnaskrá. Hitt stóra hlut- verkið er að skera úr í álita- og ágreinings- málum sem kunna að koma upp við nafn- giftir, nafnritun og annað sem að nöfnum lýtur.“ Mannanafnanefnd er skipuð í samræmi við 21. gr. mannanafnalaga frá 1996. Í lögunum er tekið fram að einn nefndarmanna skuli skipaður skv. tillögu heimspekideildar Há- skóla Íslands, annar af lagadeild skólans og einn af Íslenskri málnefnd. „Þetta er til þess að tryggja að ákveðin sérfræðiþekking sé fyrir hendi hjá úrskurðaraðila,“ segir Að- alheiður. Hún segir talsvert um að ráðgjafar sé leit- að hjá nefndinni og einstaka nefndarmönn- um, t.d. þegar fólk íhugar nafngift; nefnir að bæði prestar og foreldrar sem leiti að nöfn- um á börn sín hafi samband, ýmist í gegnum síma eða með tölvupósti; fær þá ráðleggingu um nöfn, beygingar nafna og ýmislegt fleira í þeim dúr. „Mestur tími nefndarinnar fer í að fjalla um einstök nöfn sem eru ekki á manna- nafnaskrá. Á síðasta ári bárust nefndinni rétt rúmlega 100 erindi, þar sem hún þurfti að úrskurða um nöfn. Þá er óskað eftir því að nefndin fjalli um tiltekið nafn eða millinafn og að það fari á mannanafnaskrá. Stærstur hluti beiðnanna er samþykktur. Það er auð- velt fyrir einstaklinga að nálgast allar upp- lýsingar; mannanafnaskrá er á vef dóms- málaráðuneytisins og sömuleiðis allir úrskurðir sem nefndin gefur upp.“ Nefndin óþörf? Annað veifið lýsir fólk undrun sinni á því þegar ákveðnum nöfnum er hafnað af mannanafnanefnd, og sumir hafa gengið svo langt að segja nefndina óþarfa. Að foreldrar séu fullkomlega færir um það að velja börn- um sínum nöfn í friði. Hvað segir Aðalheiður; er nefndin ef til vill óþörf? „Ég hef í sjálfu sér enga skoðun á því. Það er vilji löggjafans að mannanafnalög skuli gilda og að það skuli vera ákveðnar reglur um nöfn og hvaða skilyrði þau þurfi að upp- fylla. Hlutverk nefndarinnar er einungis að beita lögunum; að fara eftir lagabókstafnum. Og þar sem ég er í nefndinni get ég ekki svarað því hvort lögin eru góð eða sanngjörn; ég fer einungis eftir þeim.“ Hún segir Ísland ekki hafa sérstöðu á þessu sviði. Mannanafnalög séu víða í gildi, t.d. í Danmörku og Finnlandi þar sem strangar reglur gildi einmitt um rithátt nafna. „Það er reyndar erfitt að bera saman mannanafnalög því markmiðin kunna að vera mismunandi.“ Þegar Aðalheiður er spurð, í framhaldi þessa, hver séu markmið laganna hérlendis, segir hún: „Í lögunum er ekki skýr markmiðsgrein en úr þeim má þó lesa, fyrst og fremst 5. og 6. grein, ákveðna stefnu. Þar segir að eiginnafn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu, að nafnið megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi og skuli ritað í samræmi við al- mennar málvenjur í íslenskum nöfnum. Hins vegar eru ákveðin nöfn sem teljast hafa unnið sér hefð í málinu. Þau geta vikið frá þessum skilyrðum. Til að meta hvort nafn hafi unnið sér hefð í íslensku máli styðst nefndin við ákveðnar vinnulagsreglur sem koma fram í frumvarpi til mannanafnalaga. Samkvæmt þeim er það fjöldi nafnbera sem skiptir mestu máli þegar metið er hvort nöfn teljast hafa unnið sér hefð.“ Nafn getur sem sagt fengist samþykkt þótt það uppfylli ekki skilyrðin, ef tiltekinn fjöldi fólks ber nafnið. Þegar þessi vinnubrögð eru viðhöfð liggur í augum uppi að sum nöfn verða aldrei notuð framar – en foreldrum hefur stundum verið neitað um að skíra börn sín í höfuð afa eða ömmu, vegna þess hversu fáir bera eða hafa borið nafnið undanfarna áratugi. Aðalheiður segir um þetta: „Það má e.t.v. segja að í því að nota hefðarreglur felist ákveðin stefna. Nafnberum sem ekki upp- fylla almennu skilyrðin í 5. gr. fjölgar því ekki, nema nafnberar flytjist til Íslands.“ Hún segir dæmi þess að erlend nöfn hafi unnið sér hefð hér á landi vegna fjölda þess fólks sem ber viðkomandi nafn. „Löglegt“ nafn? Morgunblaðið veit að karlmannsnafnið Jack er eitt þeirra nafna sem hafa verið sam- þykkt, þótt það uppfylli ekki almennu skil- yrðin. Aðalheiður segir að öðru hverju fái manna- nafnanefnd fyrirspurnir frá fólki sem nú þeg- ar ber nöfn sem ekki er að finna á manna- nafnaskrá „og fólkið hefur því eðlilega áhyggjur af því hvort nafnið sé „löglegt“ – en rétt er að taka fram að þótt nafn sé ekki á mannanafnaskrá hefur það engin áhrif á rétt- indi fólks til þess að bera nöfnin“. Annað atriði sem Aðalheiður nefnir er að oft vefjist fyrir fólki munurinn á eiginnöfnum og millinöfnum, en síðarnefnda hugtakið er notað yfirs sérstaka tegund nafna sem eru kynlaus; nöfn sem bæði er hægt að gefa drengjum og stúlkum. Aðalheiður segir starfið í nefndinni afar skemmtilegt og gjöfult, eins og vikið var að í upphafi. „Maður lærir mjög mikið af þessu; okkur berast afar fjölbreytt erindi og spurn- ingar.“ Aðalheiður segir að við síðustu lagabreyt- ingu hafi orðið talsverðar breytingar á um- ræddum lögum og „það er óhætt að segja að þær breytingar hafi orðið í átt að meiri sveigjanleika“, segir hún. Þegar spurt er hvort mikið sé um að nefndinni berist fyrirspurnir um „skrýtin“ nöfn eða hvort einhver nöfn séu sérstaklega í tísku um þessar mundir segist Aðalheiður ekki gera sér almennilega grein fyrir því. Hún segir að þegar nöfn fólks séu til um- ræðu sé um afar persónulegt mál að ræða og nefndin leggi því áherslu á að upplýsingar allar og útskýringar séu gagnsæjar. „Nefnd- in leggur mikla áherslu á að gera fólki grein fyrir því hvað það er sem við teljum að upp- fylli ekki skilyrði laganna, ef sú er raunin. Við höfum til dæmis lagt okkur í líma við að hitta fólk til þess að það viti nákvæmlega hvers vegna ekki er mögulegt að samþykkja tiltekin nöfn og fólk bregst yfirleitt mjög vel við.“ Vilji löggjafans skýr Aftur er vikið að hefðarreglunni; þegar ekki nógu margir bera nafn afa eða langafa, svo dæmi sé tekið; nafn sem foreldrar kjósa að gefa barni sínu en fá ekki leyfi til. Er það ekki dálítið skrýtið? Aðalheiður svarar: „Það er spurning við hvað á að miða. Vilji löggjafans er skýr að miða við þessi ákveðnu viðmið og þau koma fram í greinargerðinni með lögunum. Það getur vel verið að einhver önnur aðferð sé betri en þar sem ég er í nefndinni get ég ekki haft neina skoðun á því.“ Aðspurð kveðst Aðalheiður ekki fylgjast mikið með gagnrýni sem nefndin verður fyrir „en ég hef orðið þess áskynja að fjölmiðlar hafa mikinn áhuga á störfum nefndarinnar. Og það finnst mér mjög jákvætt“. Vert er að geta þess að nefndin hefur fjór- ar vikur til þess að kveða upp úrskurði í mál- um sem vísað er til hennar og úrskurðir nefndarinnar eru birtir á heimasíðu dóms- málaráðuneytisins strax eftir að búið er að svara fólki bréflega. Vilji löggjafans er skýr Hvað á barnið að heita? er spurning sem lögð hefur verið fyrir marga í gegnum tíðina. Skapti Hallgríms- son kynnti sér starf mannanafna- nefndar; hvað barnið má heita og hvað ekki, og hvers vegna. Morgunblaðið/Kristinn ’Þar [í lögunum]segir að eiginnafn skuli geta tekið ís- lenska eignarfalls- endingu, að nafnið megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi og skuli rit- að í samræmi við al- mennar málvenjur í íslenskum nöfnum. ‘ skapti@mbl.is ’…foreldrum hefurstundum verið neit- að um að skíra börn sín í höfuð afa eða ömmu, vegna þess hversu fáir bera eða hafa borið nafnið undanfarna áratugi.‘Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, er formaður mannanafnanefndar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.