Morgunblaðið - 04.09.2005, Page 33

Morgunblaðið - 04.09.2005, Page 33
ar eru hafin eins og félagsliðabrú fyrir starfandi félagsliða. Einnig verður haldið áfram að kenna fólki eldra en sextán ára grunn- skólaáfanga í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Þar að auki er enn í boði lestrarkennsla fyrir fólk sem á við les- og skriförðugleika að stríða þar sem það fær þjálfun í lestri og aðstoð við að fara í frekara nám. Samstarf og ráðgjöf Stærsta verkefni Námsflokkanna er þó kennsla í íslensku fyrir útlend- inga enda höfðu þeir frumkvæði að slíkri kennslu og hafa ásamt fleirum verið leiðandi um þróun hennar um árabil. Gerður hefur verið þriggja ára þjónustusamningur við Mími- símenntun um að Mímir sjái um kennsluna, en Námsflokkarnir séu eftir sem áður ábyrgir fyrir verkefn- inu, taki þátt í þróun þess og greiði niður nám nýrra Íslendinga sem bú- settir eru í Reykjavík. Þetta sam- starfsverkefni sýnir í hnotskurn það sem Námsflokkarnir stefna að þ.e. að leita eftir samvinnu við aðra sem vinna á sama sviði og menn geti miðlað hver öðrum af reynslu sinni og þekkingu og varpað þannig nýju ljósi á viðfangsefnin. Nú á ég eftir ónefnda nýjung sem ég tel að muni gagnast fólki sem ætlar aftur í nám afar vel. Á næstu mánuðum verða ráðnir til Náms- flokkanna náms- og starfsráðgjafar sem verða til húsa í hinum nýju hverfismiðstöðvum borgarinnar. Reynsla mín af fullorðinsfræðslu segir mér að í nýju og flóknu náms- og starfsumhverfi rati fólk ekki hjálparlaust og að það sé heldur ekki á færi ófaglærðrar manneskju að vísa veginn. Það sem skilur þessa ráðgjöf frá annarri ráðgjöf um nám og störf sem býðst er sú að hún verður ókeypis og hver og einn get- ur gengið inn af götunni til að leita sér ráða. Annað hlutverk ráðgjaf- anna verður að meta menntaþarfir þeirra sem minnsta menntun hafa sem Námsflokkarnir munu svo reyna að mæta. Vonandi tekst okkur að viðhalda víðsýni og hugmyndaauðgi frum- kvöðlanna. Brúarstólparnir sem þeir byggðu standa enn og ætlunin er að er reisa á þeim nýja brú sem fellur betur inn í landslag fullorð- insfræðslunnar eins og það lítur út í dag. Höfundur er nýr forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 33 UMRÆÐAN Flatahraun - Hf. Nýkomið í sölu glæsilegt atvinnu-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Hafnarfirði. Eignin er samtals 877,9 fm og stendur á sérlóð. Húsið hýsir m.a. KIA bifreiða- umboðið o.fl. Verð 89,0 millj. Iðnbúð - Garðabæ - atvh. Sérlega gott ca 120 fm atvinnu/verslunarhúsnæði á þessum vinsæla stað. Innkeyrsludyr. Laust. Góð staðsetning. Verð 13,2 millj. Bæjarhraun - Hf. atvinnuh. Til leigu 535 fm atvinnuhúsnæði , tvennar innkeyrsludyr, snyrtileg eign, góð staðsetning, hæusnæðið gæti verið laust strax. Lweiga 750 kr pr fm KÖGURSEL 19 - 109 REYKJAVÍK OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL.13:00 - 14:00. Sími 594 5000 - Fax 594 5001 Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir 211,4 fm einbýlishús á tveimur hæðum, þar af 32,0 fm bílskúr. 5 svefnh., sjónvarpshol, garðskáli. Garður í rækt. Rólegt hverfi. Stutt í skóla (engin umferðargata). VERÐ 39,7 millj. Bjarni og Steinunn taka á móti áhugasömum. MÓABARÐ 36 - ÍBÚÐ 03-01 - HAFNARFIRÐI OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 16 - 18 ÞÓRA OG MAGGI TAKA VEL Á MÓTI YKKUR, S. 565-3298 Falleg og kósý 112 fm 5 herb. íbúð í litlu góðu fjölbýli. Íbúðin er á 3. hæð og er með fallegu útsýni. TVENNAR SVALIR - STUTT Í SKÓLA. Snyrtileg og góð eign. Verð 18,9 millj. KELDUHVAMMUR - SÉRHÆÐ - ÖLL ENDURNÝJUÐ Frábær 119 fm sérhæð með sérinngangi á 2. hæð (efstu) í þríbýli. Flott parket á gólfum, HTH-innréttingar - fyrsta flokks, stáltæki í eldhúsi, þrjú svefnherbergi, björt opin stofa. LAUS VIÐ KAUPSAMING. FRÁBÆRT ÚTSÝNI. Verð 25.8 millj. Til sölu 1250 fm eignarlóð á fallegum stað í Arnarnesi. Gert er ráð fyrir að byggja megi a.m.k. 400 fm einbýlishús á lóðinni. 5252 Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. BYGGINGARLÓÐ Í ARNARNESI Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Sólvallagata 10 - Einstakt tækifæri Mjög glæsilegt og virðulegt 307,2 fm tveggja íbúða einbýlishús og bílskúr á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Eignin er teiknuð af Einari Erlendssyni og byggð árið 1931. Lóðin er 792,7 fm. Má segja að hér sé um að ræða einstaklega glæsilegt og reisulegt hús á mjög vinsælum stað. Eignin skiptist í eftirfarandi: Aðalhæð 114,5 fm: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegu munstri á gólfi og massívri og óvenju stórri útihurð. Að öðru leyti skiptist aðalhæð í þrjár bjartar og stórar stofur og lítið eldhús með snyrtilegum innréttingum. Fallega gerhert og gifs loftlistar. Þá eru tvær tvöfaldar glerhurðir á milli stofa. Efri hæð 95,1 fm: Frá holi er gengið upp teppalagðan stiga á efri hæð og í stigaholi er fallegur gluggi. Efri hæð skiptist í 5 svefnherbergi, þar af eitt mjög stórt, snyrtingu og baðherbergi. Fallegir gif- slistar eru í loftum. Frá holi er gengið út á stórar vestursvalir. Fyrir ofan efri hæð er ris sem er vel mann- gengt með gólfborðum á gólfi, furuklæðningu í loftum, kvistglugga og tveimur þakgluggum. Ris þetta er ekki skráð hjá Fasteignamati ríkisins. Í kjallara, 82,2 fm er björt 3ja herbergja íbúð sem skiptist í hol, eldhús, tvö svefnherbergi, stóra og bjarta stofu, baðherbergi, geymslu og þvottahús. Þá er einnig geymsla í kjallara. Góð lofthæð er í húsinu og þ.m.t. í kjallara.. Garður er fallegur í rækt. Eigninni fylgir bílskúr og útigeymslur. Óskað er eftir tilboðum í eignina fyrir 23. september nk. Allar nánari upplýsing- ar og teikningar fást á skrifstofu. Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.