Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞAÐ var ófögur sjón sem blasti við
mér þegar ég keyrði Hellistungur í
Norðurárdal í Mýrasýslu á þjóðvegi
1, fyrir nokkru.
En þar var búið að framkvæma
þvílíkt jarðrask í grónu landi, upp af
gamla bæjarstæðinu í Forna-
hvammi, að maður varð alveg miður
sín.
Þarna hafði jarðýta farið og ýtt
upp slóða alla leið upp að Kambs-
horni í Snjófjöllum og er sjálfsagt
komin lengra núna, en jarðýtan var
ennþá þarna uppi.
Fyrir nokkrum árum var ég á
veiðum á Holtavörðuheiðinni og
þegar ég kom niður að Leitinu sem
er nokkru austar en umrætt jarð-
rask á sér stað, var lögreglan að
taka menn sem höfðu keyrt ut-
anvegar, þó ummerki eftir þá hafi
ekki verið mikil, og fannst mér þetta
mjög gott framtak af lögreglunnar
hálfu, þeir hefðu betur verið í eft-
irliti núna.
Vegagerð ríkisins á Forn-
ahvammslandið svo ég hringdi í
Vegagerðina í Borgarnesi og spurð-
ist fyrir um hvað væri í gangi, jú,
Þverhlíðingar ætla að girða af sinn
afrétt og þeir heimiluðu þeim að
fara þarna yfir.
Mér er spurn, þurfa svona mál
ekki að fara til umsagnar í umhverf-
isráðuneytið, eða í umhverfismat
allavega?
Þarna hefur verið órofið land og
mjög fallegt útivistarsvæði árum ef
ekki öldum saman, og þarna hef ég
rölt um í tæp 40 ár, í smalamennsku,
á rjúpnaveiðum og við myndatökur.
Ég skil vel að það þurfi að halda
varnargirðingum í lagi og er það
bara hið besta mál, en í mínu ung-
dæmi reyndu menn að sýna smá fyr-
irhyggju og fóru með allt girðing-
arefni á snjóbílum á staðina á
veturna.
Nú á tímum tækninnar virðast
bændur vera hættir að hugsa þann-
ig, þó veit ég að þeir hafa aðgang
bæði að snjótroðara og sexhjólum
þannig að þeir komast alveg um
landið án þess að skemma það.
Ég er útivistar- og sport-
veiðikona, ég nota slóða sem fyrir
eru, ef með þarf, en ég bý aldrei til
slóða og keyri ekki utanvegar ef
enginn slóði er.
Mér dettur í hug einn „góður“
maður sem ég var í bíl með, en ég
spurði hann eftir hvaða slóða hann
væri að aka, hann svaraði, þessum
fyrir aftan bílinn. Skildu bændur
hugsa svona?
Það verður sjálfsagt döpur kerl-
ing sem röltir upp í Kambshorn á
rjúpnaveiði í haust og getur ekki
notið kyrrðarinnar og veiðimennsk-
unnar, þegar bílarnir fara að aka
þarna uppeftir, en því miður eru
sumir veiðimenn þannig að þeir
ganga sem minnst og keyra sem
lengst.
Vona ég að Þverhlíðingar græði
upp þessi ljótu sár sem þeir eru bún-
ir að gera og er þetta bændum þessa
lands ekki til sóma, svo ekki sé nú
meira sagt.
En, ef sauðkindin er annars veg-
ar virðist allt vera leyfilegt.
Ég vil taka það fram að ég hef
persónulega alls ekkert á móti sauð-
kindinni, en allri þeirri skemmd í
náttúrunni sem gerð er í hennar
nafni hafna ég alfarið.
MARÍA GUNNARSDÓTTIR
útivistar- og sportveiðikona frá
Fornahvammi,
Logafold 174, Reykjavík.
Er allt leyfilegt
í nafni sauðkindarinnar?
Frá Maríu Gunnarsdóttur:
Íslenska sjávarútvegssýningin, sem haldin verður í Fífunni
og Smáranum í Kópavogi, dagana 7.–10. september nk., er
ein stærsta sjávarútvegssýning í heiminum.
Einstakt tækifæri til að kynnast tækninýjungum á sviði
sjávarútvegs og fiskvinnslu þar sem Íslendingar eru í
allra fremstu röð í heiminum.
Um 800 sýnendur frá um
40 löndum verða á sýningunni.
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2005 verða afhent í tengslum við sýninguna
Stórviðburður í Kópavogi
SJÁV
ARÚTVEGSSÝNINGIN
2005
ÍSLENSKA
Forskráning aðgöngu er á staðnum:
4. sept kl. 1600 - 1800, 5. sept kl. 13:00 - 15:00, 6. sept. kl. 13:00 - 15:00
Opnunartími
7. sept. kl. 10:00 - 18:00
8. sept kl. 10:00 - 18:00
9. sept kl. 10:00 - 18:00
10. sept kl. 10:00 - 16:00
Upplýsingar um sýninguna veitir:
Marianne Rasmussen-Coulling
e-mail:Marianne.Rasmussen@nexusmedia.com
Sími 44 1962 842 950
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Tvíbýlishús óskast
Traustur kaupandi óskar eftir tvíbýlishúsi með tveimur góðum íbúðum
í Reykjavík.
Kópavogur - lyftublokk
Óskum eftir 110-135 fm íbúð á 2. hæð eða ofar í lyftuhúsi í Kópavogi.
Verðbil 22-30 millj.
Hæð í Hlíðunum óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 130-160 fm hæð í Hlíðunum.
Íbúð við Espigerði óskast - staðgreiðsla
Traustur kaupandi óskar eftir 110 fm íbúð við Espigerði.
Sérhæð við miðborgina óskast
Fjársterkur kaupandi óskar eftir 150-200 fm hæð sem næst
miðborginni. Staðgreiðsla.
Íbúð við Hæðargarð eða Sólheima óskast - rýming eftir 1 ár
Traustur kaupandi óskar eftir 3ja-4ra herb. íbúð við Hæðargarð eða í
háhýsi við Sólheima. Staðgreiðsla. Íbúðin þarf ekki að losna fyrr en
eftir 1 ár.
Íbúð við Kirkjusand óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm íbúð við Kirkjusand.
800-1.200 fm lagerhúsnæði óskast
Höfum verið beðin að útvega 800-1.200 fm
lagerhúsnæði með góðri lofthæð til kaups.
Iðnaðarhúsnæði í Garðabæ óskast
250-400 fm iðnaðarhúsnæði með góðri lofthæð í
Garðabæ óskast.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar stærðir raðhúsa
og einbýlishúsa víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Einnig vantar
flestar stærðir og gerðir íbúða. Traustir kaupendur.
Dæmi úr kaupendaskrá:
ATVINNUHÚSNÆÐI
Nýtt og fullbúið 206,3 fm einnar hæðar einbýlishús með innbyggð-
um bílskúr. Húsið skiptist í fremri forstofu, eldhús með borðkrók,
stóra stofu og borðstofu, gestasnyrtingu, þvottahús og fjögur
svefnherbergi og flísalagt baðherbergi á sér gangi. Allar innrétting-
ar og hurðir eru af vandaðri gerð og á gólfum eru ljósar marmara-
flísar og fallegt parket. Lofthæð er mikil í stofum og halogenlýsing
er innfelld. Hitalögn er í marmaragólfum í alrými. Húsið er næst-
innsta hús í botnlanga á skjólgóðum stað. Öll þjónusta er í næsta
nágrenni, en örstutt er í óspillta náttúruna og gönguleiðir liggja að
Reynisvatni, Rauðavatni, golfvellinum í Grafarholti og víðar.
Verð 44,7 millj.
LUNDUR
F A S T E I G N A S A L A
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
Sveinn Guðmundsson hdl. lögg. fast. Ellert Róbertsson sölumaður Karl Gunnarsson sölumaður
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2.HÆÐ, F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
GVENDARGEISLI 62 - EINBÝLI
OPIÐ HÚS MILLI KL. 14 OG 16.