Morgunblaðið - 04.09.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 43
DAGBÓK
Ferðahátíð verður haldin í Norræna hús-inu dagana 8.–10. september nk. á veg-um tímaritsins Icelandic Geographicog eru fyrirlesarar meðal áhrifamestu
einstaklinga á sviði ferðamála og ferðaskrifa í
heiminum í dag. Ráðstefnustjóri verður Kristján
Kristjánsson, fjölmiðlamaður. Alls koma ellefu
erlendir fyrirlesarar á ráðstefnuna. Þeirra á
meðal eru Keith Bellows, ritstjóri National
Geographic Traveler, metsöluhöfundurinn Bill
Bryson, Maureen og Tony Wheeler, stofnendur
Lonely Planet-ferðabókaútgáfunnar, Annie Grif-
fiths Belt, ljósmyndari National Geographic,
breski rithöfundurinn og Íslandsvinurinn Tim
Moore, ferða- og ævintýrahöfundurinn Tim Ca-
hill, Dan Hayes, ritstjóri CNN Traveller, ljós-
myndarinn Peter Menzel, David Leffman, ljós
myndari og ferðabókahöfundur, Sören Sattrup,
ritstjóri Politiken-ferðahandbókanna, Faith D’A-
luisio, rithöfundur og sjónvarpsþáttaframleiðandi
og síðast en ekki síst Rudy Maxa, einn virtasti
álitsgjafi í Bandaríkjunum á sviði ferðamála.
Meðal íslenskra þátttakenda á hátíðinni verða
Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og
skáld, Unnur Jökulsdóttir, rithöfundur og æv-
intýrakona, Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður, og
Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins.
Þórdís Hadda Yngvadóttir, ritstjóri Icelandic
Geographic, er hugmyndasmiður og fram-
kvæmdastjóri ráðstefnunnar. Hún segist hafa
komist í kynni við marga fyrirlesarana eftir að
hafa kynnt blaðið sitt víða erlendis og það hafi
auðveldað henni að kveikja áhuga frægra ferða-
frömuða að koma til Íslands, en fæstir þeirra
höfðu áður komið til landsins.
„Ferðalög eru líklega einn mikilvægasti hluti
af lífsstíl nútímamannsins og því má segja að
ferðaþráin sé ofarlega á lista þegar kemur að af-
þreyingu fólks. Fólk er t.d. tilbúið að leggja mik-
ið á sig til að ferðast.
Ferðalög eru bæði kostnaðarsöm og það þarf
að takast á við margt á leiðinni.
Oft byrjar ferðalag hins vegar aðeins sem lítil
hugmynd, eftir lestur áhugaverðrar bókar eða
blaðagreinar og stundum eiga sjónvarpsþættir
eða frásagnir kunningja upptökin,“ segir Þórdís
Hadda.
„Aldrei hefur hins vegar viðlíka ferðahátíð ver-
ið haldin hér á landi með jafn eftirsóttum þátt-
takendum og ég vonast til að sem flestir sjái sér
fært að mæta þar sem hátíðin er opin öllum
áhugasömum. Nú gefst Íslendingum jafnt sem
útlendingum einstakt tækifæri til að heyra frá-
bærar ferðasögur og frásagnir víðförulustu
ferðalanga í heimi um leið og gestir geta notið
þess að ferðast í huganum á einni svölustu
ferðahátíð, sem hér verður haldin,“ segir Þórdís
Hadda að lokum.
Ferðalög | Fjöldi fyrirlesara á íslenskri ferðaráðstefnu í Norræna húsinu
Oft er ferðaþráin ansi skrýtin
Þórdís Hadda Yngva-
dóttir er fædd 1970,
stúdent frá MR og með
BA-próf í bókmennta-
fræðum frá HÍ. Árið
2002 stofnaði hún út-
gáfufyrirtækið Nansen
ehf., sem m.a. gefur út
hið árlega Icelandic
Geographic. Þórdís hef-
ur skrifað greinar um
Ísland og norðurslóðir
fyrir alþjóðlega tímaritið CNN Traveller og frá
2002 hefur hún starfað sem kynningar- og
útgáfustjóri ÁTVR. Hún er gift Katli Sig-
urjónssyni og eiga þau tvö börn.
Innritun
á haustönn
BRIDSSKÓLINN
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
Byrjendanámskeið: Hefst 26. september og stendur yfir í 10
mánudagskvöld frá kl. 20-23.
Þú kannt lítið sem ekkert, en hefur alltaf langað til að læra
undirstöðuatriðin í brids. Þá er byrjendanámskeið Bridsskólans
tilvalið fyrir þig. Ekki er gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er
nauðsynlegt að koma með „makker“. Þegar upp er staðið, eru
nemendur orðnir vel spilahæfir og kunna skil á grunnreglum hins
vinsæla Standard-sagnkerfis.
Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann.
Láttu slag standa og lærðu brids í skemmtilegum félagsskap.
Framhaldsnámskeið: Hefst 28. september og stendur yfir í
10 miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.
Þú kannt brids. Tekur þína níu slagi í þremur gröndum án þess að
blása úr nös. En það kemur fyrir að þú spilir þrjú grönd þegar
betra væri að spila sex tígla. Og einhvern veginn nærðu ekki
sambandi við makker í vörninni. Á framhaldsnámskeiði
Bridsskólans gefst þér gott tækifæri til að bæta við kunnáttuna.
Þú lærir nútíma sagnir, hvassa spilatækni og samvinnu við
makker í vörninni. Og skemmtir þér konunglega um leið.
Ítarleg kennslugögn fylgja báðum námskeiðum.
Kennari er Guðmundur Páll Arnarson.
Nánari upplýsingar og innritun
í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands Íslands,
Síðumúla 37 í Reykjavík.
PÍANÓKENNSLA
fyrir fullorðna
Upplýsingar veitir Bryndís í síma 696 8515
GIGTARFÉLAG ÍSLANDS
Viltu betri líðan?
Þarftu að fara rólega af stað?
Ný námskeið hefjast 5. september
• Góð alhliða leikfimi
• Bakleikfimi fyrir karlmenn
• Jóga
• Orka og slökun
• NÝTT! Langtímaþyngdarstjórnun
með persónulegu aðhaldi
Fagfólk með sérmenntun og langa reynslu
sér um alla þjálfun. Þægilegt og rólegt umhverfi.
Upplýsingar og skráning á skrifstofu G.Í.,
Ármúla 5, sími 530 3600,
www.gigt.is
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 Be7
5. Bf4 0–0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5 8. a3
Rc6 9. Dc2 Da5 10. Rd2 Be7 11. Bg3
Bd7 12. Be2 Hfc8 13. Hd1 Dd8 14. cxd5
exd5 15. Rf3 Db6 16. 0–0 Be6 17. Db1
Ra5 18. Ra4 Dd8 19. Rd4 Bd7 20. Rc3
Bxa3 21. Da2 Bb4 22. Rxd5 Rxd5 23.
Dxd5 De8 24. Rf5 Be6.
Staðan kom upp á Norðurlanda-
mótinu í skák sem lýkur í dag í Vam-
mala í Finnlandi. Evgeny Agrest
(2.592) hafði hvítt gegn Tapani Sam-
malvuo (2441). 25. Rxg7! Bxd5 25. …
Kxg7 gekk ekki upp vegna 26. Dd4+
og hvítur nær manninum til baka. 26.
Rxe8 Bc4 26. … Bb3 hefði engu bjarg-
að vegna 27. Hd4! og hvítur stendur til
vinnings. 27. Bxc4 Rxc4 28. Rc7 Hxc7
29. Bxc7 Rxb2 30. Hd7 Bc3 31. Hc1
Bf6 32. Bf4 b5 33. Hc6 Bg7 34. Hb7 a5
35. Hxb5 a4 36. Hcb6 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Ferðaklúbburinn Flækjufótur |
Ferðaklúbburinn Flækjufótur fer
helgarferð 24.–25. sept. Ekið verður
um Stokkseyri, Eyrarbakka, Þykkva-
bæ og Vestur- og Austur-Landeyjar.
Gist á Hótel Dyrhólaey. Uppl. í síma
898 2468.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Hrunaréttir 16. sept.: Lagt af
stað frá Gjábakka kl. 08 og Gullsmára
kl. 08.15. Eftir réttirnar verður farið í
Tungufellsdal o.fl. Boðið upp á kjöt og
kjötsúpu að Hótel Gullfossi, Bratt-
holti. Síðan ekið að Gullfossi og Geysi
– um Laugarvatn, Lyngdalsheiði og
Þingvelli. Skráningarlistar eru í fé-
lagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Hljómsveitin Klassík leikur fyrir
dansi. Alpastemning á Broadway
Tónlistakemmtun með þekktum lista-
mönnum frá Alpalöndunum, verður
5. sept. á Broadway Kl. 20, einnig
verða ísl. tónlistaratriði, m.a. Ásta
Begga og Gísli frá Hestheimum uppl.
hjá FEB í síma 588 2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Á þriðjud.
og föstud. kl.10.30 létt ganga um ná-
grennið, allir velkomnir. Þriðjud. 6.
sept. hefst glerskurður, umsjón Helga
Vilmundard. Fimmtud. 8. sept. kl.
12.30 myndlist, umsjón Nanna S.
Baldursdóttir. Strætó nr. S4 og 12
stansa við Gerðuberg.
Furugerði 1 | Mánudaginn 5. sept.
byrjar bókbandið, laus pláss.
Hraunbær 105 | Námskeið í mynd-
list, útskurði, glerskurði, perlusaum,
kortagerð og skrautskrift eru að fara
að byrja nú í sept. Skráning og nánari
uppl. í síma 587 2888. Vinnustofan
opnar 5. sept. Einnig er í boði leikfimi,
boccía, félagsvist og bingó.
Hæðargarður 31 | Hauststarfið er
hafið. Komið við, staðfestið skrán-
ingu og ræðið við leiðbeinendur. Fé-
lagsmiðstöðin er opin frá kl. 9 til 16.
Fastir liðir eins og venjulega. Hausti
fagnað í Salnum með hátíðarbrag
föstudaginn 9. sept. kl. 14. Spennandi
námskeið á döfinni. Sími 568 3132.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Fundir æskulýðs-
félagsins alla sunnudaga kl. 17.00–
18.30. Unglingar á aldrinum 13–15 ára
eru boðnir velkomnir.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 4. sept-ember, er áttræð Helga Hans-
dóttir, Hlíf, Ísafirði. Hún tekur á móti
gestum á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar að Miðtúni 45, Ísafirði,
eftir kl. 17.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Erna María Björnsdóttir og Sunna
Hrund Sverrisdóttir, heimsóttu Barna-
spítala Hringsins nýlega og færðu hon-
um 20.000 kr. að gjöf sem er ágóði af
tombólum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hlutavelta | Þau Ísak, Lilja og Guðný
héldu tombólu og söfnuðu kr. 1.573 til
styrktar Rauða krossi Íslands.
Morgunblaðið/Júlíus
Fréttir á SMS