Morgunblaðið - 04.09.2005, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
ÝMISLEGT þykir benda til þess að grá-
gæsastofninn hafi verið vantalinn um allt að
því helming að sögn dr. Arnórs Þóris Sig-
fússonar fuglafræðings sem stundað hefur
rannsóknir á íslensku gæsastofnunum frá
árinu 1993. | 23
Grágæsastofninn
vantalinn
GUÐMUNDUR
Kjærnested, fyrrver-
andi skipherra, andað-
ist 2. september sl. á
gjörgæsludeild Land-
spítalans, 82 ára að
aldri. Guðmundur var
einn nafntogaðasti
skipherra Landhelgis-
gæslunnar og tók þátt í
öllum þremur þorska-
stríðunum við Breta.
Guðmundur fæddist
29. júní 1923 í Hafnar-
firði. Foreldrar hans
voru Halldór Kjærne-
sted bryti og Margrét
Halldóra Guðmundsdóttir.
Guðmundur stundaði nám í Hér-
aðsskólanum að Laugarvatni 1939–
41. Hann lauk farmannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík ár-
ið 1949 og skipstjóraprófi á varðskip-
um ríkisins árið 1953. Guðmundur
var háseti á Belgaum, Dettifossi og
síðar á varðskipinu Ægi á árunum
1940–49. Stýrimaður á
varðskipum Landhelg-
isgæslunnar 1949–53 og
skipherra frá 1954–84.
Guðmundur var alla
tíð virkur í félagslífi og
gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum um ævina.
Hann sat í trúnaðarráði
Stýrimannafélags Ís-
lands á árunum 1950–
53, var formaður
Starfsmannafélags
Landhelgisgæslunnar
1959–65, ritari Skip-
stjórafélags Íslands
1962–66 og formaður
þess 1971–75. Hann var einnig forseti
Farmanna- og fiskimannasambands
Íslands á árunum 1973–75.
Eftirlifandi eiginkona Guðmundar
er Margrét Anna Símonardóttir, en
þau giftust hinn 11. október 1944.
Þau eignuðust fjögur börn, Símon
Inga, Örn, Helga Stefni og Margréti
Halldóru.
Andlát
GUÐMUNDUR
KJÆRNESTED
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur handtekið
alla fimm mennina sem grunaðir eru um að
hafa rænt starfsmanni Bónuss á Seltjarnar-
nesi á föstudagskvöldið. Þeir eru á aldrinum
sextán til tuttugu og sex ára.
Enn átti eftir að yfirheyra nokkra hinna
handteknu þegar Morgunblaðið fór í prent-
un. Þá á eftir að fara yfir skýrslur og taka
ákvörðun um framhald mála. Hinir grunuðu
eru nú allir í vörslu lögreglunnar og verða
þar áfram þar til ákvörðun verður tekin um
hvort gæsluvarðhalds verður krafist.
Skotvopnið, sem mun hafa verið notað,
hefur enn ekki fundist, enda eiga ýmis máls-
atvik eftir að skýrast við yfirheyrslur.
Að sögn lögreglu fékk fórnarlambið, sem
er piltur innan við tvítugt minni áverka en
ætla mætti. Fékk hann minniháttar áverka
á kvið og höfði. Nokkur vitni voru að brott-
náminu og á lögregla eftir að ljúka yfir-
heyrslum yfir þeim.
Allir fimm eru í
haldi lögreglu
Í BANDARÍSKUM lögum um verð-
bréfaviðskipti frá 1934 (Securities
Exchange Act of 1934), sem lesa má
á heimasíðu Fjármála- og verðbréfa-
eftirlitsins í Bandaríkjunum (www.-
sec.gov), er m.a að finna reglur um
viðskipti fruminnherja með verð-
bréf. Fjallar 16. kafli laganna um
stjórnarmenn, aðalframkvæmda-
stjóra sem eru fruminnherjar og
stóra hluthafa sem eiga meira en
10% í félaginu.
Samkvæmt lögunum er fruminn-
herjum bannað að hagnast með
kaupum eða sölu á verðbréfum á
skömmum tíma. Því er þeim gert að
eiga bréfin að lágmarki í sex mánuði.
Hagnist fruminnherji á kaupum og
sölu bréfa innan sex mánaða tímabils
getur félagið sem í hlut á gert kröfu
til þess hagnaðar. Þá er miðað við
lengsta span milli kaupa og sölu á
tímabilinu, það er lægsta kaupverð
og hæsta söluverð bréfa innan um-
ræddra sex mánaða.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ekki kveðið á um slík
tímamörk, vegna viðskipta fruminn-
herja með bréf í eigin félagi, í lögum
eða reglum fjármálamarkaðarins
hér. Almennt gildir sú regla að inn-
herji má ekki eiga viðskipti ef hann
býr yfir verðmætum upplýsingum
sem fjárfestar hafa ekki almennt að-
gang að. Íslenskum fjármálafyrir-
tækjum er skylt, samkvæmt lögum,
að setja sér ákveðnar reglur um
verklag og senda þær Fjármálaeft-
irlitinu til samþykktar. Hvert fyrir-
tæki verður einnig að skipa reglu-
vörð sem leiðbeinir innherjum um
hvenær þeir mega eiga viðskipti og
hvenær ekki.
Þrír mánuðir hjá Íslandsbanka
Í vikunni var tilkynnt um viðskipti
sex forsvarsmanna Íslandsbanka
með hlutabréf í félaginu. Þeir keyptu
í lok maí síðastliðins 240 milljónir
hluta á genginu 13,30 krónur og
seldu réttum þremur mánuðum síð-
ar, hinn 1. september sl., 241 milljón
hluta á genginu 15,25. Brúttó sölu-
hagnaður nam um 470 milljónum
króna. Verklagsreglur Íslandsbanka
um viðskipti starfsmanna með verð-
bréf o.fl. kveða á um að starfsmaður,
sem eignast hefur verðbréf í sam-
ræmi við reglurnar, skuli eiga þau að
lágmarki í þrjá mánuði frá kaupdegi.
Bandarísk lög um verðbréfaviðskipti innherja
Verða að eiga bréfin í
6 mánuði að lágmarki
Íslenskum fjármálafyrirtækjum skylt að setja sér reglur
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ bauðst í gær
til að senda alþjóðabjörgunarsveit Lands-
bjargar á flóðasvæðin. Þetta kom í kjölfar
beiðni frá Sameinuðu þjóðunum um að þjóð-
ir heims settu björgunarsveitir sínar í við-
bragðsstöðu.
Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Landsbjargar, segir sveitina hafa verið
setta í viðbragðsstöðu og hún sé tilbúin til
að leggja af stað með skömmum fyrirvara.
Utanríkisráðuneytið grennslast nú fyrir
um íslenska konu sem saknað er í Miss-
issippiríki í Bandaríkjunum eftir hin gríð-
arlegu flóð í kjölfar fellibylsins Katrínar.
Að sögn Péturs Ásgeirssonar, skrifstofu-
stjóra hjá utanríkisráðuneytinu, er ekki bú-
ist við öðru að svo stöddu en að konan hafi
rýmt heimili sitt með öðrum. Þó verði leitað
að henni þar til hún finnist. Pétur segir þó
enn gríðarlegt álag á yfirvöldum og björg-
unarsveitum ytra og allt enn í óvissu.
Björgunarsveit
í viðbragðsstöðu
FURÐULEG en falleg sjón blasti við þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um
Suðurland. Á fallegri sléttu er nú að rísa
sumarbústaður í einstökum stíl, en hann er all-
ur byggður í anda og eftir aðferðafræði húsa-
smiða fyrir um 800 árum.
„Við erum að byggja hús sem gæti verið frá
dögum Snorra Sturlusonar á tólftu til þrett-
ándu öld,“ segir Gunnar Bjarnason húsa-
smíðameistari, en sumarbústaðurinn er ætl-
aður fjölskyldu hans. „Þetta er bæði
segir Gunnar, sem byggði m.a. Þjóðveldis-
bæinn við Stöng og var nú síðast annar meist-
arinn við byggingu Auðunarstofu á Hólum í
Hjaltadal sem er vönduð bygging í anda 14.
aldar. „Það hefur ákveðið aðdráttarafl að fara
úr Reykjavík og inn í hús sem gefur manni
svona tilfinningu fyrir fortíðinni. Það eru
massívir timburveggir og engin einangrun
nema í gólfi. Svo er bara torf á þakinu. Þetta
er handavinna frá A til Ö, allt unnið með hand-
verkfærum, öxum og sköfum, engir naglar.“
stafverkshús og stokkahús, með hlöðnum
sökkli og torfi á þaki. Við erum búin að vera
að í sex vikur í sumar , en áður hef ég verið að
grípa í þetta síðastliðin tvö ár. Þetta er þriðja
árið sem við erum að, en ekki nema bara tíma
og tíma á hverju ári. Þetta hefur risið í sum-
ar.“
Gunnar segir helsta kostinn við þessa
byggingaraðferð þá að byggingin sé allt öðru-
vísi en nútíma sumarhús. „Nú vilja allir eiga
eitthvað sérstakt og þetta er mjög sérstakt,“
Morgunblaðið/RAX
Sumarbústaður að hætti Sturlunga
♦♦♦
♦♦♦