Morgunblaðið - 02.10.2005, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KYRRÐ OG FRIÐUR UNDIR JÖKLI
www.iceland.as
Upplýsingar í síma 893 6653
Aðgerðir hjá Slippstöðinni
Starfsmenn Slippstöðvarinnar
héldu enn áfram aðgerðum sínum í
gær. Alls voru 50–60 starfsmenn á
staðnum í gær. Þeir óskuðu eftir að
fá stjórnarformann fyrirtækisins og
lögfræðing sem hefur umsjón með
greiðslustöðvun fyrirtækisins á
fund, en ekki varð af honum.
Afhentu nöfn barna
Stjórnendur fjögurra grunnskóla
gáfu upplýsingar um nöfn nemenda
sem njóta sérúrræða, nöfn foreldra
þeirra og símanúmer, án samþykkis
foreldranna. Upplýsingarnar voru
afhentar vegna vísindarannsóknar.
Perónuvernd segir að miðlun upp-
lýsinganna hafi verið óheimil.
Sjálfseignarstofnun
um jarðir
Unnið er að stofnun sjálfseign-
arstofnunar í Bæjarhreppi í
Strandasýslu um eyðijarðir í eigu
hreppsins. Kosið verður um sam-
einingu hreppsins við Húnaþing
vestra 8. október. Með sjálfseign-
arstofnuninni héldust yfirráð yfir
jörðunum áfram á svæðinu.
Ryðgað óperuhús
Nýja óperuhúsið í Kaupmanna-
höfn er farið að ryðga. Eru stálbit-
ar og -plötur, einkum á inngangs-
hluta byggingarinnar, orðnar
upplitaðar og rauðbrúnar af ryði
þótt um hafi verið að ræða sérvalið
og ryðfrítt gæðastál. Ljóst virðist,
að einhver mistök hafi átt sér stað
við framleiðslu þess og er haft eftir
prófessor við háskólann í Álaborg,
að þetta muni verða dýrt. Óperu-
húsið er ekki nema tæplega árs-
gamalt og var það auðmaðurinn
A.P. Møller, sem gaf Dönum það.
Kostaði það um 25 milljarða ís-
lenskra króna.
Allir á hjóli
Bensínverð í Bandaríkjunum hef-
ur hækkað um rúm 47% á einu ári
og vegna þess hefur mikill fjökipp-
ur hlaupið í sölu á reiðhjólum. Er
hún farin að minna á það, sem
gerðist í olíukreppunni 1973, og
hefur raunar verið að aukast í heilt
ár. Talið er, að um 87 milljónir
manna hafi endurnýjað kynni sín af
reiðhjólinu og margir segjast nú
ekki geta án þess verið. Það spari
þeim ekki aðeins peninginn, heldur
séu þeir oft miklu fjótari í förum en
áður.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 48
Skotveiði 27 Víkverji 48
Sjónspegill 30 Staður og stund 49
Hugsað upphátt 31 Velvakandi 51
Reykjavíkurbréf 33 Menning 52/61
Umræðan 34/39 Staksteinar 54
Minningar 42/45 Ljósvakamiðlar 50
Auðlesið 47 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
PERSÓNUVERND hefur beint því
til tiltekinnar verslunar að láta af
dreifingu mynda úr öryggismynda-
vélum í verslunum félagsins, sem
taldar eru veita tilefni til gruns um
þjófnað, úr viðkomandi starfsstöð
til allra annarra starfsstöðva fyrir-
tækisins.
Fékk Persónuvernd ábendingu
um að myndir úr öryggismyndavél-
um í verslunum fyrirtækisins, þar
sem grunur lék á að um þjófnað
hefði verið að ræða, hefðu verið
sendar til annarra starfsstöðva fyr-
irtækisins og sýndar starfsmönn-
um.
„Eingöngu tilgreindir starfs-
menn, sem ábyrgð bera á öryggis-
vörslu í viðkomandi verslun, mega
sjá myndir og þær skulu engum af-
hentar öðrum en lögreglu að lokinni
skoðun þeirra á myndefni af tilefni
gruns um þjófnað,“ segir í úrskurði
Persónuverndar.
Friðhelgi einkalífs nýtur
verndar stjórnarskrár
Persónuvernd telur engan vafa
leika á að fyrirtækinu sé heimilt, í
ljósi öryggis- og eignavörslusjónar-
miða, að hafa öryggismyndavéla-
kerfi í verslunum sínum.
Í umfjöllun sinni um þetta mál
bendir Persónuvernd á að við mat á
nauðsyn á aðgangi telur stofnunin
að líta verði til hagsmuna hins
skráða af vernd um persónuupplýs-
ingar. Beri í því sambandi að líta til
þess að friðhelgi einkalífs telst með-
al grundvallarmannréttinda og nýt-
ur verndar samkvæmt 71. gr.
stjórnarskrárinnar.
Persónuvernd telur of langt
gengið með því að miðla myndum
úr öryggismyndavélum í verslunum
fyrirtækisins, sem taldar eru veita
tilefni til gruns um þjófnað, úr við-
komandi starfsstöð til allra annarra
starfsstöðva félagsins og sýna þær
starfsmönnum. „Vakni upp grunur
um að þjófnaður hafi verið framinn
í verslun félagsins eiga eingöngu
tilgreindir starfsmenn, sem bera
ábyrgð á öryggisvörslu í viðkom-
andi verslun, að skoða myndirnar
og þær skulu engum afhentar að
slíkri skoðun lokinni nema lögreglu.
Sé gengið lengra er verið að koma
því til skila, án þess að dómstólar
hafi fjallað um mál og komist að
rökstuddri niðurstöðu um sekt eða
sýknu, að viðkomandi einstaklingar
hafi engu að síður framið refsivert
brot. Er það til þess fallið að valda
viðkomandi einstaklingum tjóni,
jafnvel fullkomlega að tilefnislausu,
svo sem vegna rangs orðróms um
meint refsivert athæfi sem rætur á
að rekja til einhvers af þeim mörgu
starfsmönnum A [fyrirtækisins]
sem séð hafa myndirnar,“ segir í
álitsgerð Persónuverndar.
Óheimilt að dreifa myndefni
úr öryggismyndavélum
KARVEL Ögmunds-
son, fyrrverandi út-
gerðarmaður frá
Bjargi í Ytri-Njarðvík,
andaðist á Hjúkrunar-
heimilinu Garðvangi í
Garði föstudaginn 30.
september síðastliðinn,
réttra 102 ára að aldri.
Karvel fæddist á
Hellu í Beruvík í
Breiðuvíkurhreppi 30.
september 1903. For-
eldrar hans voru hjónin
Ögmundur Andrésson
bóndi og Sólveig Guð-
mundsdóttir. Karvel
ólst upp hjá foreldrum sínum til 9
ára aldurs en síðan hjá móðurbróður
sínum Eggerti Guðmundssyni og
konu hans Ingibjörgu Pétursdóttur
á Hellissandi.
Karvel stundaði barnaskólanám á
Hellissandi og var í Sjómannaskól-
anum á Ísafirði 1926–7. Hann hóf
sjómennsku 11 ára á Hellissandi, var
formaður á árabátum frá 14 ára
aldri, formaður á vetrarskipi frá 19
ára aldri og síðar skipstjóri á mót-
orbátum. Karvel stundaði útgerð og
skipstjórn frá Sandi og Vestfjörðum
til 1933 og útgerð frá Innri-Njarðvík
1933–37. Hann fluttist til Ytri-Njarð-
víkur 1937, byggði húsið Bjarg og
bjó þar síðan. Karvel
stofnaði Hraðfrystihús
Ytri-Njarðvíkur, ásamt
Þórarni bróður sínum,
og rak það meðfram út-
gerð.
Karvel gegndi fjöl-
mörgum trúnaðar-
störfum, var m.a. odd-
viti í Njarðvík í 20 ár,
formaður Olíusamlags
Keflavíkur í 30 ár, for-
maður Útvegsbænda-
félags Keflavíkur í 18
ár, í stjórn Olíufélags-
ins hf. og Samvinnu-
trygginga hf. frá stofn-
un þessara félaga og fram yfir 90 ára
aldur. Hann tók mikinn þátt í starfi
Sjálfstæðisflokksins og bindindis-
hreyfingarinnar. Karvel var kjörinn
heiðursborgari Njarðvíkurbæjar og
heiðursfélagi Sjálfstæðisfélags
Njarðvíkur, hlaut heiðursmerki Sjó-
mannadagsráðs Keflavíkur og Sjó-
mannadagsráðs Hellissands og ridd-
arakross Hinnar íslensku fálkaorðu.
Karvel ritaði endurminningar sínar,
Sjómannsævi 1–3, og barnabækur.
Eiginkona Karvels var Anna Mar-
grét Olgeirsdóttir, d. 1959, eignuðust
þau sjö börn. Sambýliskona Karvels
var Þórunn Maggý Guðmundsdóttir
og eignuðust þau einn son.
Andlát
KARVEL
ÖGMUNDSSON
ÞAÐ var tilkomumikið brimið við Grindavík í
gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar
leið framhjá. Hafið hefur löngum heillað land-
ann þó að það hafi líka reynst mörgum dýrkeypt.
Eflaust fyllast flestir lotningu í viðurvist hafsins,
ekki síst í stórviðrum. Krakkarnir á myndinni
virtust hins vegar ekki láta ölduganginn á sig fá
í ærslaleik sínum á klöppunum. Það er þó betra
að fara varlega.
Morgunblaðið/RAX
Við leik í brimi
LÖGREGLAN í Keflavík var kvödd
að gatnamótum Hafnargötu og
Vatnsnesvegar í Keflavík laust fyrir
klukkan níu á föstudagskvöld. Þar
hafði fólksbifreið verið ekið á ljósa-
staur og síðan á kyrrstæða og mann-
lausa bifreið. Báðar bifreiðarnar
voru óökufærar eftir og fluttar burtu
með kranabifreið.
Ökumaðurinn var fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja til lækn-
isskoðunar. Hann var skrámaður á
höfði og með blóðnasir. Er hann
grunaður um að hafa verið undir
áhrifum eiturlyfja.
Þá var einn ökumaður stöðvaður
rétt fyrir kl. 5 aðfaranótt laugar-
dags, grunaður um ölvun við akstur.
Ók á ljósastaur og kyrrstæðan bíl