Morgunblaðið - 02.10.2005, Page 6
6 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!
" #
! ! $%&$ ' $&%
()
*&++,,,
- .
.
. / /. 01
2
3
.0
.
4
**
0
FORVERI boðefnisins serótóníns í
heilanum, sem hefur áhrif á andlega
heilsu fólks, finnst í minna mæli í
heila kvenna en karla samkvæmt
rannsókn sem geðlæknirinn Ína
Marteinsdóttir vann við háskólann í
Uppsölum í Svíþjóð og kom út á síð-
asta ári. Skýra niðurstöðurnar að
mati Ínu af hverju konur eru við-
kvæmari fyrir þunglyndi en karlar.
„Við höfum verið að nota mikið af
lyfjum sem breyta serótónínmagni
líkamans en hins vegar hafa ástæður
fyrir þunglyndi og kvíða aldrei al-
mennilega verið sannaðar,“ segir
Ína. Hún segir að myndgreining á
heila fólks hafi gefið miklar vonir en
hingað til hefur verið mjög erfitt að
skoða virkni í heilanum. Ína segir að
hins vegar hafi komið í ljós að málið
sé mjög flókið og rannsóknir því enn
mjög erfiðar.
Rannsókn Ínu og félaga fólst í því
að skoða m.a. með ákveðinni mynd-
greiningu hvernig framleiðslu á
serótóníni er háttað. Við þær rann-
sóknir merktu þau forvera serótón-
íns í heilanum. Í kjölfarið var ákveð-
ið að skoða hvort munur væri á
kynjunum hvað framleiðslu efnisins
varðar, þar sem vitað er að þung-
lyndi og kvíði er algengari hjá kon-
um en körlum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
styðja þá kenningu að magn þessa
forvera serótóníns í heilanum sé
minna hjá konum
en körlum og því
þarf minna að
koma til svo að
þær verði þung-
lyndar. Þær séu
viðkvæmari fyrir
áhrifum áfalla,
t.d. ofbeldis en
Ína bendir á að
rannsóknir sýni
að mjög hátt hlutfall kvenna verði
fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. „Þetta
getur verið ein skýringin á því að
konur eru viðkvæmari fyrir þung-
lyndi og kvíða en karlar,“ segir Ína.
Konur undir miklu álagi
Ína segir konur verða fyrir miklu
álagi úr ýmsum áttum. Hátt hlutfall
þeirra (um 33% á Íslandi) hafa orðið
fyrir kynferðislegu ofbeldi á lífsleið-
inni, á þeim hvíla áhyggjur og
ábyrgð á ættingjum, „og svo bætist
ofan á þetta að við erum oft í vinnu
þar sem við erum ekki stjórnendur
heldur erum undir öðrum og sam-
anlagt er álagið mikið,“ útskýrir Ína.
Hún segir ljóst að líffræðilegar
ástæður liggi að baki þunglyndi og
því umræða um ofnotkun þunglynd-
islyfja varasöm. Hún segir að auðvit-
að eigi að skammta lyf nákvæmlega
og fara varlega í að gefa fleiri en eitt
í einu svo dæmi séu tekin. „Ég held
að það sé vissulega þörf á að endur-
skoða lyfjameðferð en það er mjög
varasamt að tala um að við notum of
mikið af lyfjum,“ segir Ína.
Rannsókn íslensks læknis á serótóníni
kynnt á geðlæknaþingi í Reykjavík
Serótónín finnst í
minna mæli í heila
kvenna en karla
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Ína Marteinsdóttir
EKKI er vitað hversu margir starfa hér á landi á
vegum starfsmannaleigna, hvort það eru 500
manns, 800 manns eða jafnvel 1.500 manns. Þá er
erfitt að sjá hvort erlendur starfsmaður hér er á
vegum starfsmannaleigu eða er hér hreinlega að
vinna svart, að því er fram kom í ávarpi Hrólfs
Ölvissonar, formanns stjórnar Vinnumálastofnun-
ar, á ársfundi stofnunarinnar.
„Þetta getur ekki gengið, nauðsynlegt er að til
séu upplýsingar um fjölda starfsmanna á vegum
starfsmannaleigna hér á hverjum tíma,“ sagði
Hrólfur.
Fram kom að af þeim rúmlega 2000 manns sem
séu við störf á Austurlandi nú megi gera ráð fyrir
að um 300 séu þar á vegum starfsmannaleigna.
Hrólfur segir að skoða þurfi þetta mál fordóma-
laust og af varfærni, þar sem þessar starfsmanna-
leigur séu sennilega komnar til að vera með einum
eða öðrum hætti. Þá geti verið og sé erfitt að fylgj-
ast með því hvort lágmarkskjör kjarasamninga
gildi um þennan hóp. Nauðsynlegt sé að setja regl-
ur um upplýsingagjöf til stjórnvalda og e.t.v. að
gera ráð fyrir aðkomu aðila á vinnumarkaði.
Hefur færst í vöxt
„Einn þáttur sem enn hefur risið hátt í um-
ræðunni um atvinnumál á síðustu mánuðum er hin
svonefnda svarta atvinnustarfsemi og tengist
starfsmannaleigum. Það er vegna þess að erfitt er
að sjá hvort erlendur starfsmaður sem kemur til
vinnu hér á landi, er á vegum starfsmannaleigu eða
hvort hann er hreinlega að vinna svart. Því er ekki
að neita að til Vinnumálastofnunar berast fréttir
um að hingað komi fólk án leyfis eða skráningar af
neinu tagi og starfi í tiltekinn tíma fyrir utan lög og
rétt. Þetta virðist því miður hafa færst í vöxt á und-
anförnum mánuðum,“ segir ennfremur.
Ekki vitað hve margir starfa
á vegum starfsmannaleigna
Erfitt að greina á milli starfsmannaleigna
og svartrar atvinnustarfsemi hér á landi
HLUTFALL atvinnulausra með háskólapróf var
12% á síðasta ári en var 9% fyrir fimm árum.
Þannig voru í maí síðastliðnum 87 viðskipta- og
rekstrarmenntaðir einstaklingar á atvinnuleys-
isskrá. Hlutfall atvinnulausra með stúdentspróf
hefur þróast með svipuðum hætti. „Þessi breyt-
ing þýðir að menntun er ekki lengur trygging
fyrir því að hafa starf,“ sagði Hrólfur Ölvisson
einnig í ávarpi sínu á ársfundinum.
Menntun ekki lengur
trygging fyrir starfi
Eftir Hjálmar Jónsson
hjjo@mbl.is
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna heldur nú 38. þing
sitt í Stykkishólmi. Þingið var sett á föstudag og mættu
formaður og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins til þingsins
og sátu fyrir svörum.
Að sögn Hafsteins Þórs Haukssonar, formanns SUS,
eru um 300 fulltrúar skráðir til þátttöku. Þinginu lýkur
í dag með kosningu nýs formanns, stjórnar og til ann-
arra embætta.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Um 300 manns á SUS-þingi
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
hefur samþykkt að taka tilboði
hæstbjóðanda, sem er 111
milljónir króna, í húsið Sól-
vallagötu 10 í Reykjavík.
Á um 790 fermetra lóð á Sól-
vallagötu 10 er 307 fermetra
stórt hús á þremur hæðum með
aukaíbúð, bílskúr og tveimur
útigeymslum. Í sumar var eign-
in metin á 135 milljónir og bár-
ust tvö tilboð í hana. Annað var
frá Eddu - Film ehf. en fyrir-
tækið bauð 111 milljónir króna,
en hitt kom frá fyrirtækinu
Gáspa ehf. og hljóðaði upp á
101 milljón.
Edda - Film átti einnig
hæsta tilboð í húsið við Frí-
kirkjuveg 11 í Reykjavík, en
það hljóðaði upp á 90 milljónir
króna.
Sólvallagata
10 fór á
111 milljónir
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
fimm ökumenn fyrir ölvun við akstur
aðfaranótt laugardags. Tveir þeirra
reyndu að komast undan lögreglu á
bílum sínum en náðust báðir.
Sá fyrri vildi ekki hlýða stöðvunar-
merkjum lögreglunnar og veittu lög-
reglumenn því eftirför sem endaði á
því að bifreið ökumannsins hafnaði á
umferðareyju á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Laugavegar.
Þegar lögreglumenn komu að
bílnum vildi ökumaðurinn ekki koma
út og urðu lögreglumenn að draga
hann út úr bílnum og færa í hand-
járn. Til að bæta gráu ofan á svart
var ökumaðurinn með sex farþega í
bíl sem einungis tekur fjóra. Voru
fjórir í aftursætinu og einn í skott-
inu. Kenndi einn farþeganna bak-
meiðsla eftir byltuna og var hann
fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild LSH til aðhlynningar.
Hinn ökumaðurinn gaf í þegar lög-
regla gaf honum stöðvunarmerki á
Kringlumýrarbrautinni. Ók hann
ítrekað gegn rauðu ljósi, en stöðvaði
síðan bifreið sína rétt neðan við
Miklubraut og tók til fótanna.
Fótfráir lögreglumenn náðu honum
þó á hlaupunum. Var hann þá færð-
urá lögreglustöð og tekin úr honum
sýni og af honum skýrsla og var
hann síðan látinn laus.
Tveir ölvaðir reyndu
að forðast lögreglu