Morgunblaðið - 02.10.2005, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
F
yrirhugaðar breytingar á kenn-
aranámi hérlendis verða ein-
hverjar þær mestu á því sviði
síðan nám grunnskólakennara
færðist á háskólastig á áttunda
áratug síðustu aldar, að mati
varaformanns Kennarasam-
bandsins, Elnu Katrínar Jónsdóttur.
Í sumar lögðu forráðamenn Kennarahá-
skóla Íslands fram tillögur um lengingu
náms og starfandi er vinnuhópur á vegum
menntamálaráðuneytisins um skipan kenn-
aranáms, sem skilar skýrslu til ráðherra von
bráðar. Hugmyndir vinnuhópsins eru í sama
anda og tillögur KHÍ að sögn Ársæls Guð-
mundsson, sveitarstjóra Skagafjarðar, sem
er í vinnuhópnum. Háskólinn á Akureyri
hefur einnig unnið góða skýrslu um breyt-
ingar á kennaranámi að sögn Ársæls. Þá
hefur Háskólinn í Reykjavík nýverið tekið
upp kennaranám.
Elna Katrín, sem einnig er í umræddum
vinnuhópi ráðuneytisins, telur væntanlegar
breytingar í KHÍ hafa farið býsna hljótt
miðað við mikilvægi málsins, en þær eiga að
taka gildi haustið 2007. Háskólaráð KHÍ
samþykkti í sumar ramma að viðamiklum
breytingum á skipan grunn- og framhalds-
náms við skólann og á heimasíðu hans segir
að tilgangur breytinganna sé að bregðast
við breyttum samfélagsaðstæðum, „efla þá
starfsmenntun sem Kennaraháskólinn veitir
og bæta aðgang ungs fólks að framhalds-
námi við skólann“.
Í samþykkt háskólaráðs felst að á næstu
tveimur árum verður allt grunn- og fram-
haldsnám við skólann samhæft með það að
markmiði „að til verði fimm ára heildstætt
háskólanám fyrir kennara í leik-, grunn- og
framhaldsskólum, íþróttakennara og þroska-
þjálfa. Grunnnám uppeldis- og umönn-
unarstétta sem stunda nám við Kennarahá-
skólann verður þannig sambærilegt því sem
gerist í nágrannalöndum okkar,“ segir þar.
Styttra nám
Elna Katrín segir miklar vangaveltur í
gangi um þessar mundir, víða í Evrópu, um
breytingar á kennaramenntun. Hún segir
það lengi hafa verið rætt hér að lengja
þyrfti námið og nú hilli loks undir að það
verði að veruleika. „Það hefur margoft verið
bent á það í gegnum tíðina að kennaranám á
Íslandi er styttra en í helstu löndum sem við
viljum bera okkur saman við. Víða er al-
gengt að meistaranámi sé lokið á fimm árum
og við hjá kennarasamtökunum erum sann-
færð um að fullkomlega tímabært sé að
lengja menntun kennara í leik-, grunn- og
framhaldsskólum.“
Ársæll telur að nú sé ákveðinn vendi-
punktur; tímabært sé að taka róttækar
ákvarðanir til framtíðar.
„Það virðist ákveðinn vilji í þjóðfélaginu
til þess. Það hefur lengi verið rætt um að
lengja kennaranám en skrefið hefur ekki
verið stigið, en ég tel að nú eigi að taka
þetta stóra skref. Við í sveitarfélögunum
sem rekum skólana – og ég er viss um að ég
tala fyrir hönd allra sveitarfélaga á landinu
– viljum hafa þennan málaflokk í góðum far-
vegi.“
Hann segir kröfurnar sífellt og tíðarand-
ann breytast. „Fyrir rúmum áratug var ekki
einu sinni til internet.“
Þegar spurt er hvort börn og foreldrar
þeirra muni skynja breytingar, segir Ársæll:
„Það tekur talsverðan tíma að koma þeirri
breytingu í framkvæmd sem felst í lengingu
háskólanámsins, en foreldrar og börn verða
væntanlega vör við breytinguna með því að
kennarar verða betri og betur í stakk búnir
að kenna í því samfélagsumhverfi sem við
búum nú í.
Ársæll er skólamaður; hefur kennt á öll-
um skólastigum og var í sjö ár aðstoð-
arskólameistari Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra og eitt ár settur skólameistari.
Einnig kenndi hann í Svíþjóð um tíma, en
hellti sér út í pólitík 2002 og er nú sveit-
arstjóri Skagafjarðar sem fyrr segir.
Spurður um það hvort ekki hafi verið til
góðs að sveitarfélögin tóku við rekstri
grunnskólans á sínum tíma segir Ársæll þá
breytingu hafa verið mjög jákvæða. „Hins
vegar hefur staðið styr um það í mörg ár
hvort sveitarfélögunum hafi verið tryggðir
nægir tekjustofnar til þess að reka skólana
og enn er tekist á um það. Við sveitarstjórn-
armenn teljum að mun meira fjármagn
þurfi, en fyrir þjónustuþegana – nemendur
og foreldra – er kerfið þó mun betra en áð-
ur. Viðbragðsflýtir kerfisins er meiri en áð-
ur og styttri tíma tekur að innleiða nýj-
ungar.“
Endurmenntun
Elna Katrín segir íslenska kennara mjög
duglega að afla sér frekari menntunar; þeir
sæki í miklum mæli bæði lengri og skemmri
viðbótarmenntun. „Þátttaka okkar í endur-
menntun er mjög mikil miðað við starfs-
systkini okkar á hinum Norðurlöndunum.
Það vitnar um mikinn áhuga á starfinu og
því að alltaf sé hægt að bæta við sig. Kenn-
arar horfast í augu við það að þeir þurfa að
læra allan sinn starfsferil; maður er aldrei
útlærður sem kennari, ekki frekar en aðrar
fagstéttir.“
Á árunum 2002–2005 vann Kennara-
samband Íslands að veigamikilli skýrslu um
skipulag kennaramenntunar í nágrannalönd-
unum og á þeim tíma fór fram mikil um-
ræða innan sambandsins, að sögn Elnu
Katrínar, um það hvaða augum menn litu
kennaramenntunina og hvernig þeir horfðu
til framtíðar. „Það var eindreginn vilji félaga
í samtökunum að lengja námið og stefnt
skuli að því að kennarar ljúki meistaraprófi
á fimm árum.“
Lágmarksmenntun leik- og grunnskóla-
kennara er nú þrjú ár en þeim sem kenna
bóklegar greinar í framhaldsskóla er gert að
hafa BA eða BS próf og yfirleitt eins árs
nám í uppeldis- og kennslufræðum að við-
bættu þriggja ára náminu.
Elna Katrín segir að í öllum þeim löndum
sem Íslendingar beri sig alla jafna við sé
kennaramenntun lengri. „Hún hefur til
dæmis lengi verið mun lengri í Finnlandi;
þar hefur árum eða jafnvel áratugum saman
verið krafist meistaranáms. Kennaranámið
er líka að jafnaði lengra í Danmörku og
Noregi en hér, líka í Þýskalandi og Frakk-
landi.“
Hún segir þó mikilvægt að leiða hugann
að því að ekki sé nóg að lengja bara námið,
„því menn verða að vita hvers vegna við vilj-
um lengja það. Það kom einmitt í ljós í
þeirri miklu umræðu sem fram fór innan
kennarasamtakanna að menn telja að nú
taki einfaldlega meiri tíma að læra allt það
sem kennari þarf að kunna skil á í nútíma-
samfélagi“.
Elna Katrín nefnir að hlutverk skólans í
nútímanum hafi aukist og sé orðið flóknara
en á árum áður. „Bæði eru stífari kröfur um
það að kennari hafi mjög góð fagmenntun í
faggreinum og mér liggur við að segja áður
óþekktar kröfur um að fást við margvíslega
umsjón, ráðgjöf og samskipti við fagaðila í
þjóðfélaginu. Og svo má ekki gleyma hinu
nýja og breytta tæknisamfélagi: það tekur
einfaldlega meiri tíma en áður að læra allt
sem nauðsynlegt í þessu starfi.“
Enginn getur til að mynda starfað sem
kennari, segir hún, hvort sem er í leik-,
grunn- eða framhaldsskóla án þess að vera
mög vel að sér í notkun upplýsinga-
tækninnar og hvers konar miðlun upplýs-
inga. Ekki þýði lengur að benda á tölvu-
kennarann; hver og einn þurfa að búa yfir
ákveðinni þekkingu á þessu sviði. „Kenn-
arinn þarf að kunna þessa hluti og margt
sem hnígur að því að þetta sé nauðsynlegt.
Svo er líka vaxandi krafa um þátttöku kenn-
ara í fræðasamfélaginu; að menn séu vel
læsir á rannsóknir og geti jafnvel tekið þátt
í að rannsaka skóla og skólastarf og mennt-
un í landinu.“
Hún leggur áherslu á að litið sé til skól-
anna sem mjög mikilvægra samfélagslegra
stofnana „og því er ein af skyldum kenn-
arans að vera með opinn huga og bæta alltaf
við sig; læra meira og vera opinn fyrir hug-
myndum.“
Hún segir svolítið hafa borið á því í um-
ræðu um kennaramenntun og prófgráður
hvort ekki þurfi minni menntun til að kenna
minna fólki.
„Okkur finnst þetta bara gamaldags og
púkalegt; það er ekki síður mikilvægt að
stefna á meiri menntun fyrir leikskólakenn-
ara en þá sem kenna í framhaldsskólum og
margt sem rennir stoðum undir það. Lengi
býr að fyrstu gerð og vel menntaðir leik-
skólakennarar – sem fyrstu kennarar
barnanna utan heimilisins – eru mjög mik-
ilvægir. Hafi nokkurn tíma örlað á þessu hjá
kennurum erum við löngu orðin sannfærð
um að það þarf ekki síst að auka nám þeirra
sem kenna yngstu börnunum.“
Mikilvægt skref
KHÍ hefur sett fram áætlun um að gjör-
breyta námstilhögun, sem fyrr greinir, og
Elna Katrín telur það afar mikilvægt skref.
„Stefna á að því að bjóða meistaranám og
mér finnst líka mikilvægt að reiknað sé með
því að rjúfa skil á milli skólastiga í kenn-
aranámi; mér finnst þetta athyglisvert af því
að í umræðunni um kennaramenntun hafa
lengi verið uppi hugmyndir um að náms-
brautir miðist ekki lengur við að kennari
mennti sig bara fyrir ákveðið skólastig.“
Hún segir það afrakstur mjög mikillar
umræðu á síðustu árum að draga beri úr
skilum á milli skólastiganna, til dæmis
vegna þess sjónarmiðs að kennari sem kenn-
ir börnum ensku þegar þau hefja það nám,
hvort sem er átta ára eða 10 ára, skuli vilja
sérhæfa sig í að kenna þetta fag. Að hann
hafi staðgóða þekkingu til að kenna á hvaða
skólastigi sem er, hvort sem það er sex ára
börnum eða fólki sem útskrifast úr mennta-
skóla. „Og í framtíðinni munum við jafnvel
sjá, vegna þessara breytinga sem eru í far-
vatninu, mun meiri blöndun kennara –
breiðari flóru, en þó alls ekki á kostnað
menntunarinnar. Þeir háu veggir sem reistir
hafa verið á milli skólastiganna verða ekki
lengur fyrir hendi.“
Vinnuhópur ráðuneytisins hefur skoðað
tillögur og gögn víða að, t.d. frá Írlandi,
Skotlandi og Bandaríkjunum auk þeirra
landa sem áður var vitnað til. „Hópurinn
hefur lagt á sig gríðarlega vinnu og metnað
til þess að koma með haldbærar tillögur,“
segir Ársæll við Morgunblaðið.
En er hinn fullkomni kennari einhvers
staðar til? Er einhver staðar í heiminum
fyrirkomulag sem hægt væri að laga að Ís-
landi?
„Nei, hinn fullkomni einstaklingur er ekki
til og ekki í sjónmáli; hvorki kennari né
nemandi, enda er ekki verið að stefna að
fullkomnun heldur betrumbótum,“ segir Ár-
sæll Guðmundsson.
Svo lengi lærir sem lifir
Morgunblaðið/Kristinn
Elna Katrín
Jónsdóttir
Löngu tímabært
að lengja kenn-
aranám á Íslandi.
Ársæll
Guðmundsson
Ekki stefnt að full-
komnun heldur
endurbótum.
Skipulag kennaramenntunar
hér á landi er í brennidepli. Skapti
Hallgrímsson kynnti sér málið.
skapti@mbl.is