Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 15 „Í stangarstökki reynir mikið á liðina. Ég hef lengi verið með brjóskvandamál í baki og verki í puttum. Ég finn alveg gríðarlegan mun á mér þegar ég tek inn Lið-Aktín en þá hverfa þrautirnar. Nú nota ég Lið-Aktín að staðaldri til að viðhalda heilbrigðum liðum og koma í veg fyrir slit. Lið-Aktín gerir mér kleift að stunda íþróttir af fullum krafti, þrautalaust“ ÞÓREY EDDA Norðurlandamethafi í stangarstökki K R A F T A V E R K „Lid-Aktín gerir mér kleift ad stunda ítrótt mína af fullum krafti, laus vid trautir“ K R A F T A V E R K EcoGreen Multi FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir Nr. 1 í Ameríku APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa - Gulli betri Orkubomba og hreinsun Vítamín, steinefni og jurtir „Þannig að þeir gátu aldrei áttað sig á því að hún væri mótfallin því sem þarna fór fram. Það er nú ekki alltaf leitað eftir samþykki fyrir kynmökum heldur eru þau eitthvað sem þróast í samskiptum fólks.“ Guðmundur B. Ólafsson, lögmaður mann- anna þriggja sem dæmir voru nýverið í Hæstarétti til að greiða konu miskabætur fyrir að hafa brotið gegn frelsi og persónu hennar. „Þjóðsöngurinn á að höfða til allra landsmanna.“ Maria Rauch-Kallat, ráðherra í austurrísku stjórn- inni, hefur lagt til að söngnum verði breytt í jafn- réttisátt, enda sé í honum ekki minnst á konur, að- eins á „hina miklu syni“ og „föðurlandið“. „Íhaldzemi Víkverja fylgir þjóð- ernisást. Honum blöskrar fáfræði æskunnar um sögu lands og þjóð- ar.“ Íhaldssamur föstudagsvíkverji. „Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum eru fjölmargar aðrar leið- ir færar en að misnota kerfi fjar- skiptafyrirtækja til að nálgast slík gögn.“ Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, í viðtali í Morg- unblaðinu vegna fullyrðinga um að tölvu- póstar, sem Fréttablaðið birti, séu komnar frá fjarskiptafyrirtæki. „Náttúran leitar alltaf jafnvægis, til dæmis milli sýkils og hýsils. Það er skynsamlegt og tryggir að báðir geti lifað saman.“ Dr. Marco Vitoria, alnæmissérfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, eftir að vísindamenn á rannsóknastofnun fyrir hitabeltissjúkdóma í Antwerpen í Belgíu komust að þeirri niðurstöðu að veiran sem veldur alnæmi væri hugsanlega farin að veiklast. „Hvers vegna allt þetta fjaðrafok um mál, sem er nú til meðferðar í dómstólakerfinu? Er hugsanlegt að einhverjir viðskiptajöfranna á Íslandi telji sig hafna yfir lögin?“ Úr grein Styrmis Gunnarssonar ritstjóra Morgunblaðsins í tilefni af umfjöllun Fréttablaðsins um afskipti hans af mál- efnum Baugs vorið og sumarið 2002. „Aðild Tyrklands [að ESB] er mikilvæg til að hægt sé að mynda bandalög milli menningarheima.“ Namik Tan, utanríkisráðherra Tyrklands, er ósáttur við þær ströngu kröfur sem þingmenn Evrópuþingsins settu um við- ræður við Tyrki um hugsanlega aðild þeirra að Evrópusambandinu. „Það kostar því að jafnaði tveggja mánaða fangelsi og 330 þúsund krónur að berja eina tönn úr manni, en þriggja mánaða fang- elsi og 600 þúsund krónur að beita eina dóttur kynferðislegu ofbeldi.“ Úr Viðhorfspistli Bergþóru Jónsdóttur í Morgunblaðinu þar sem hún spyr hvort við séum sátt við slíkar niðurstöður. „Ég veit að sumir myndu vilja að ég gerði eins og Hugh Grant í [kvikmyndinni] „Love Actually“ og segði Bandaríkjamönnum til syndanna. En munurinn á góðri mynd og veruleikanum er sá, að í veruleikanum kemur dagur eftir þennan dag, ár eftir þetta ár – heil eilífð til að íhuga hræðilegar afleiðingar þess að ávinna sér hylli á auðveldan hátt.“ Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í ræðu á landsfundi Verkamannaflokksins í Brighton. „Ef ég stæði í þessum sporum í dag myndi ég taka nákvæmlega sömu ákvörðun. Ekki spurning.“ Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi við- skiptafélagi Baugs, um þá ákvörðun sína að fara í mál við Baug á sínum tíma. „Ég átti að biðja um skiptingu en ég hafði einfaldlega ekki rænu á því.“ Atli Sveinn Þórarinsson Valsari eftir bik- arúrslitaleikinn í knattspyrnu gegn Fram. Hann fékk höfuðhögg og var hálf rænu- laus. „Þetta eru eins og fangaskipti, það vantar bara brúna til að fara yfir, þar sem við mætumst.“ Þórhallur Gunnarsson, leikari og sjón- varpsmaður, sem nú hefur gengið til liðs við Ríkisútvarpið. Hann mun taka við stöðu Loga Bergmanns Eiðssonar og stýra nýjum dægurmálaþætti í Sjónvarpinu. Ummæli vikunnar Morgunblaðið/RAX Verðbólgudraugurinn? Seðlabankinn tilkynnti að stýrivextir bankans yrðu hækkaðir um 0,75 pró- sentustig. Þar með verða þeir 10,25% en hækkunin tekur gildi 4. október nk. FRÉTTIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.