Morgunblaðið - 02.10.2005, Page 34

Morgunblaðið - 02.10.2005, Page 34
34 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN REYKJAVÍK er höfuðborg. Hún hefur skyldur gagnvart landi og þjóð. Það er hlutverk hennar að vera í fararbroddi. Ekki aðeins út á við gagnvart öllum lands- mönnum og öðrum þjóðum heldur um leið inn á við gagnvart sín- um eigin íbúum. Fólk- inu sem byggir borg- ina, lifir og hrærist í henni og myndar sam- félag sem hefur alla burði til að vera best í heimi – en er það ekki. Brýnasta viðfangsefni okkar er að tryggja ungu fólki möguleika á bú- setu í borginni. Til þess þarf lóðir undir hús. Flóknara er það ekki. Samt hefur borginni af óskiljan- legum ástæðum tekist að klúðra flestum þátt- um sem tengjast lóðaút- hlutun á undanförnum árum. Afleiðingarnar þekkja allir. Ungt fólk og þeir sem flust hafa utan af landi til höf- uðborgarsvæðisins hafa leitað til nágrannasveit- arfélaganna sem hafa byggst upp með blóm- legum hætti á meðan Reykjavík hefur setið eftir og hjakk- að í sama farinu. Við eigum öll draum um borg án biðlista. Við eigum ekki að sætta okkur við biðlista ungra barna eftir leikskólaplássi. Ekkert frekar en við myndum aldrei sætta okkur við bið- lista eftir grunnskólanámi. Við eig- um heldur ekki að bjóða öldruðu fólki upp á þann betlistaf sem alltof margir ganga við þegar starfsdegi er lokið og ævikvöldið tekur við. Við þurfum að vinna gegn langri bið ann- arra borgarbúa sem þurfa á aðstoð að halda vegna veikinda, fátæktar eða annarra ástæðna þar sem sveit- arfélaginu ber að koma til aðstoðar. Við eigum að byggja borg jafn- réttis. Ekki bara kynjanna. Börn þurfa jöfn tækifæri til íþrótta- og æskulýðsstarfs óháð efnahag. Í þeim efnum skiptir öflugur stuðningur okkar við starfsemi íþróttafélaga og menningarstarf barna og unglinga miklu máli. Við eigum að hafa vökult auga með möguleikum unglinga og ungs fólks til heilbrigðra lífshátta og aðgengi þeirra að menntun og skap- andi afþreyingu. Það er sjálfsagt að krefjast þess að íbúar og gestir Reykjavíkur njóti öryggis eins og best verður á kosið. Ekki bara í umferðinni þar sem pott- ur er víða brotinn og nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða. Við þurfum líka að vera örugg borg á göngustíg- unum, í íbúahverfunum, á útivist- arsvæðunum og alls staðar annars staðar þar sem bæði börn og full- orðnir eru á ferli. Við þurfum að spyrna fótum við áfengis- og vímu- efnavanda, vinna gegn glæpum á götum úti, ofbeldi, innbrotum, dóp- sölu og vændi. Við erum rík þjóð. Reykjavík er rík borg. Traust og örugg fjár- málastjórn borgarinnar er lykill okkar að því að njóta hagsældar. Í þeim efnum þarf að snúa blaðinu við. Við þurfum að stöðva óráðsíu síðustu tíu ára. Við getum í senn lækkað til- kostnað stjórnsýslunnar og gert hana skilvirkari. Við eigum að auka tekjur borgarinnar með eflingu at- vinnulífs og auknum íbúafjölda. Við getum hæglega aukið fjárfestingar okkar í uppbyggingu mannvirkja og þjónustu. Við eigum að lyfta Grett- istaki í viðhaldi og umgengni um úti- Nýtt fólk í brúna næsta vor Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fjallar um borgarstjórnarmál ’Við þurfum að stöðvaóráðsíu síðustu tíu ára.‘ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Dalvegi 28 – Kópavogi Sími 515 8700 BLIKKÁS – JÖRÐIN VARMIDALUR - Varmidalur Kjalarnesi - Framtíðar byggingarland Undirrituðum hefur verið falið að selja jörðina Varmadal, Kjalarnesi, í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Jörðin er húsalaus, ca 162 ha að landstærð. Jörðinni fylgja laxveiðiréttindi í Leir- vogsá, svo og jarðhita- og námaréttur. Á framtíðarskipulagi er gert ráð fyrir verulegri íbúðabyggð á landi jarðarinnar svo og útivistarsvæði. Óskað er eftir kauptilboðum í jörðina. Allar nánari upplýsingar eru veittar í símum 893 4959 og 483 4959. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á knutur@frostogfuni.is Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Knútur Bruun hrl. Logafold Afar vel staðsett 309 fm einbýlishús á tveimur hæðum með möguleika á aukaíbúð á neðri hæð. Stendur á útsýnisstað, neðst í botnlanga með útsýni til sjávar. Eignin skiptist m.a. í rúmgott eldhús með góðri borðaðstöðu, stofu með arni, sólstofu, 5 herbergi auk fataherbergis og 2 flísalögð baðherbergi auk gesta w.c. Aukin lofthæð er á báðum hæðum hússins. Gróin lóð með veröndum, skjólveggjum og lýsingu. Hiti í hluta innkeyrslu sem er hellulögð. Verð 59,0 millj. Ingólfsstræti Glæsilegt steinhús í hjarta borgarinnar. Húsið er samtals um 500 fm að stærð og skiptist í þrjár hæðir og kjallara. 1. og 2. hæð eru 140 fm hvor, 3. hæðin 100 fm og kj. er 140 fm. Eignin var endurnýjuð fyrir nokkrum árum á vandaðan og smekklegan hátt. Svalir út af efstu hæð, fallegt útsýni yfir borgina. Nýjar lagnir og nýtt hitakerfi. 6 sér bílastæði fylgja eigninni og bílskúrsréttur. Eign sem býður upp á ýmsa möguleika. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. Hraunteigur- neðri sérhæð. Mjög glæsileg og mikið endurnýjuð 143 fm 5 herb. neðri sérhæð. Hæðin skiptist í forstofu, hol með góðu skápaplássi, eldhús með nýlegum innréttingum og eyju, borðstofu með útg. á svalir, bjarta stofu með fallegum gluggum og svölum til suðurs, 3 herb. og baðherbergi flísalagt í gólf og veggi. Rauðeik og flísar á gólfum. Tvær sérgeymslur í kj. Húsið í góðu ástandi að utan, gler og gluggar endurn. að hluta. Verð 35,9 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Vatnsstígur – glæsileg 3ja–4ra herb. í nýju húsi Stórglæsileg 108 fm íbúð á 1. hæð ásamt 8,3 fm sérgeymslu í einu glæsilegasta lyftuhúsi í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin er innréttuð á afar vandaðan og smekklegan hátt. Parket og flísar á gólfum. Góðar suðvestursvalir út af stofu. Stæði í bílageymslu. Íbúð sem vert er að skoða. Laus strax. Verð 38,9 millj. Ægisíða- 5 herb. íbúð Mjög góð og þó nokkuð endurnýjuð 106 fm 5 herb. íbúð á 1. hæð, aðalhæð, í þríbýlishúsi. Íbúðin skiptist í hol með arni, rúmgott eldhús með góðri borðaðstöðu og spautulökk. innréttingum, samliggj. bjartar stofur með útg. á suðursvalir, 3 herbergi, öll með skápum og nýlega endurnýjað flísalagt baðherbergi. Sérgeymsla i kj. Laus fljótlega. Verð 25,9 millj. Austurströnd-Seltjarnarnesi Útsýnisíbúð Góð 141 fm íbúð á 6. hæð (efstu). Endaíbúð með gluggum í þrjár áttir. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott hol, 3 herbergi, skápar í öllum, sjónvarpsstofu með útg. á suðursvalir, eldhús með borðaðstöðu, bjarta stofu, sólstofu og flísalagt baðherb. Parket og flísar á gólfum. Suðursvalir. Mikið útsýni. Sér stæði í bílageymslu. Verð 29,5 millj. Fannborg - frábært útsýni Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Góð 3ja herb. 83 fm íbúð á 2. hæð (efstu) í góðu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í flísalagt anddyri með skáp, herbergi með skáp, rúmgott hjónaherb. með skáp, sjónvarpshol, opið eldhús, bjarta borðstofu og stofu, flísalagt baðherb. með nýl. sturtuklefa og tengi f. þvottavél. Úr stofu er gengið út á stórar sólríkar suðursvalir með ótrúlegri fjallasýn til suðurs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í ýmsa þjónustu s.s. heilsugæslu, félagsstarfsemi og verslanir. Húsið var allt tekið í gegn f. nokkrum árum. Verð 16,9 millj. Þórey og Gunnar taka vel á móti gestum milli kl. 15 og 17 í dag. Bjalla er merkt „Gunnar“. Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali OPIÐ HÚS HEIÐARÁS 13 GLÆSILEGT EINB. Glæsilegt tvílyft 288,5 fm einbýlishús með aukaíbúð á jarðhæð og glæsilegu útsýni yfir borgina. Á jarðhæð er forstofa, stórt forstherb., bílskúr og tveggja herb. íbúð. Á efri hæð er hol, stórar stofur, eldhús, þvh., baðh., hjónah. og 3 barnaherbergi en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-16. V. 49 m. 5228

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.