Morgunblaðið - 02.10.2005, Síða 48
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
NÚ, ÞEGAR ÉG HEF
UMBREYST Í VARÚLF, ÞÁ
VERÐ ÉG AÐ FINNA
FÓRNARLAMB
HÆ
PABBI HÆ KALVIN VILTU HÆTTA AÐ
SLEFA Á SÓFASETTIÐ!!
© DARGAUD
Bubbi og Billi
ÞAÐ VAR FALLEGT AF
ÞÉR AÐ SÝNA OKKUR
HERSKIPIÐ ÞITT GUNNAR
ÞESSI ÞARNA SÉR UM AÐ STÝRA FLUGVÉLUNUM Á DEKKINU.
FLUGMAÐURINN FER EFTIR ÞEIM SKIPUNUM SEM HANN
GEFUR MEÐ FÁNUNUM
EIGUM VIÐ EKKI
AÐ SKOÐA INNRI
BYGGINGUNA NÚNA?
HVAÐ ERT
ÞÚ AÐ
GERA
HÉR?!
KOMDU ÞÉR
BURT!
BURT SEGI
ÉG!
ÉG FER ÞÁ
BARA
ÉG SEGI ÞAÐ SATT
HERFORINGI. ÞAÐ VAR
HUNDUR SEM... HUNDUR?
HVAÐ? Í
SKIPAFANGELSIÐ?
EINMITT FRÚ
OG HUNDURINN
LÍKA
Dagbók
Í dag er sunnudagur 2. október, 275. dagur ársins 2005
Það háttar þannig tilhjá eiginkonu Vík-
verja að hún getur
ekki beitt sér af krafti,
má ekki stunda vinnu
og þarf að láta hafa
fyrir sér. Það vita allir
sem reynt hafa að það
getur verið leiðigjarnt
til lengdar að sitja
heima heilu dagana,
gera ekki neitt og hitta
aldrei kjaft. Það reynir
fyrst og fremst á
skapsmunina og það
hefur Víkverji fengið
að reyna á eigin skinni.
Eða þangað til að frúin
komst í kynni við hina mögnuðu
talnaþraut Su Doku. Fyrst um sinn
dugðu henni þrautirnar í dagblöð-
unum fram eftir degi en eftir nokk-
urra vikna þjálfun hefur hún náð
töluverðri leikni í leiknum og er því
búin með dagblaðaskammtinn löngu
fyrir hádegi. Og núna hefur hún fest
kaup á heilmikilli bók, stútfullri af Su
Doku-þrautum sem hún unir sér við
alla daga langt fram á kvöld. Víkverji
heyrir sífellt um fleira fólk sem kol-
fellur fyrir Su Doku og hann fær ekki
betur séð en að bókin góða sé komin í
efsta sæti yfir mest seldu bækur
landsins. Víkverji hefur hinsvegar
ekki ennþá lagt sjálfur til atlögu við
þrautina, hefur ein-
faldlega ekki ennþá
gefið sér tíma til þess
arna. Hann grunar
nefnilega að Su Doku
sé tímaþjófur í meira
lagi.
x x x
Víkverji tók sínaheittelskuðu á tón-
leik á dögunum. Tón-
leik, vegna þess að
þarna var um nokkurs
konar sambland af
leikriti og tónleikum að
ræða. Þau hjónakornin
fóru sumsé að sjá tón-
leikinn Bítl sem nú er sýndur í Loft-
kastalanum. Fyrirfram gerði Vík-
verji sér svo sem ekki miklar
væntingar, hann verður seint sagður
tónelskur en frúin fékk Bítlana svo
að segja með móðurmjólkinni og vildi
því ólm sjá sýninguna. Og ekki verð-
ur annað sagt en að hún hafi komið
skemmtilega á óvart. Leikin eru
Bítlalög af þremur misgóðum tónlist-
armönnum, á milli þess sem þeir fara
með gamanmál af ýmsu tagi. Vík-
verji hafði gaman af, þremenning-
arnir ná upp nokkurs konar part-
ístemningu með Bítlalögunum og eru
meinfyndnir þess utan. Víkverji
mælir með Bítlinu.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
San Francisco | Eric Owen sést hér í hlutverki Leslie Groves hersöfðingja, á
lokaæfingu óperunnar Doktors Atóms eftir John Adams og Peter Sellars.
Óperan verður frumsýnd í Stríðsminjaóperunni í San Francisco um helgina,
en í henni greinir frá atburðarás daganna áður en fyrsta atómsprengjan var
sprengd. Aðalpersóna verksins er ameríski eðlisfræðingurinn Oppenheimer,
sem kallaður hefur verið faðir atómsprengjunnar.
Reuters
Doktor Atóm
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í
myrkri. (Jh. 12,46.)