Morgunblaðið - 02.10.2005, Síða 53

Morgunblaðið - 02.10.2005, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 53 MENNING Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur. Ertu nokkurn tímann alveg viss? Tilboðið gildir á eftirtaldar sýningar: 20., 21., 23., 27., 28. 29. október og 4. og 5. nóvember. Sala hafin – fyrstir koma – fyrstir fá. Forsala til 20. október. Tryggðu þér miða núna: Miðasölusími 4 600 200. EINSTAKT TILBOÐ TIL VISA KREDITKORTHAFA: MIÐINN Í FORSÖLU Á 1.500 KR! (ALMENNT VERÐ 2.600 KR.) Brúðkaupsdagurinn er runninn upp. Brúðguminn vaknar með konu sér við hlið. Hann hefur aldrei séð hana fyrr. Hver er þessi kona? Hvað gerðist kvöldið áður? Hann flækist inn í atburðarrás sem hann ræður ekkert við, brúðurin á leiðinni, herbergið í rúst, nakin kona í rúminu og þá er bankað... Einstakt tilboð til VISA kreditkorthafa: Miðinn í forsölu á 1.500 kr. í stað 2.600 kr. Forsala til 20. október 2005. ÓLAFUR Elíasson myndlist- armaður sýnir innsetninguna „The Light Setup“ í tveimur söfnum í Svíþjóð um þessar mundir; í Listasafninu í Lundi og Listasafn- inu í Malmö. Í dómi um sýninguna segir Martin Schibli, listgagnrýn- andi á Helsingborgs Dagblad, að það sé gaman að sjá slíka ræki- lega kynningu á einu stærsta nafni samtímans, en hann hafi engu að síður orðið fyrir nokkrum vonbrigðum. Snúast um upplifun „Dansk-íslenski myndlistarmað- urinn Ólafur Elíasson hefur verið áhrifavaldur á alþjóðlega vísu í meira en áratug. Hann er talinn einn af þýðingarmestu samtíma- listamönnunum um þessar mundir. Verk Elíassonar snúast um upp- lifun. Með því að æfa getu sína til að sjá skilur maður betur nálægt umhverfi sitt og stöðu manns í því. Jákvætt eða tilgerðarlegt?“ spyr Schibli. Hann spyr ennfremur hvort inn- setningar listamannsins dugi til, þar sem nauðsynlegt sé fyrir áhorfandann að fá vitneskju um hverju hann eigi að leita að. Hann veltir því líka fyrir sér hvort verk- in skilji eitthvað eftir, umfram þau áhrif sem þau kalla fram á stund- inni. „Maður getur skilið hvers vegna Elíasson tilheyrir hópi þeirra listamanna, sem mest er tekið eft- ir um þessar mundir,“ skrifar Schibli. „Hér er frágangur og það lýsir í gegn að listamaðurinn hefur röð hugsana sem liggja vinnu hans til grundvallar, sem á sínum bestu stundum getur verið lýst sem list- rænum gæðum. Um leið finn ég fyrir vissum vonbrigðum. Hér er ekkert sláandi á ferðinni, eða ógn- andi. Vinna hans er örugg og á margan hátt er Elíasson hefð- bundinn listamaður, það eru litir og form með skírskotun í landslag og náttúru. En þegar allt kemur til alls er gaman þegar listamaður í hinum alþjóðlega topp 20 lista er kynntur svo rækilega á svæðinu meðan hann er enn í umræðunni og ekki eftir nokkur ár þegar áhuginn hef- ur dvínað og aukaatriðin eru hið eina raunhæfa sem stendur eftir fyrir stóra sýningu.“ Myndlist | Gagnrýni um sýningu Ólafs Elíassonar í Svíþjóð Jákvætt eða tilgerðarlegt? BÍLASTÆÐI reyndust tor- fundin í ná- grenninu og nánast hvert sæti var skipað á hádegistón- leikum of- anskráðra í gær. Kom a.m.k. þrennt til – að- laðandi ögur- stund frá amstri dagsins, að vanda ljúfkímnar kynningar Antoníu He- vesi, og að þessu sinni ekki sízt að- sóknarsegull á við Gunnar Guð- björnsson. Hægu ítölsku ástarsöngvarnir tveir í upphafi, O del mio amato ben (Donaudy) og hinn fallegi fen- eyski La barcheta (Buratti) með línuteygða vókalísu í hverju við- lagi, voru fínlega sungnir, og lokavókalísan á tæru píanissimói minnti á fyrri daga ferilsins þegar tenórinn sat nánast einn hér að slíkum fínessum – og gerir e.t.v. enn. Ciléa-arían É la solita L’arle- siana var hins vegar tekin með þróttmiklum glæsibrag við hæfi. Hið sama átti við um Questa o quella, aríu kvensama hertogans í Rigoletto Verdis, þrátt fyrir örlítið mattar toppnótur söngvarans og kannski heldur hastan 6/8 stak- katóslátt Antoníu. Hún lék aftur á móti eins og engill í aukalaginu, Í dag skein sól eftir Pál Ísólfsson, þar sem Gunnar sýndi til hollrar eftirbreytni hvernig göfga má ljóð- rænan einfaldleika sannkallaðrar smáperlu með innlifaðri og skil- vísri textatúlkun. Undirtektir voru að vonum ljómandi góðar. Aðlað- andi ög- urstund TÓNLIST Hafnarborg Ítölsk sönglög. Gunnar Guðbjörnsson tenór, Antonía Hevesi píanó. Sunnudag- inn 29. september kl. 12. Einsöngstónleikar Gunnar Guðbjörnsson Ríkarður Ö. Pálsson DREGIÐ var á dögunum í sumarleik Eddu útgáfu, Sigr- aðu tindana sjö. Fjöldi fólks gekk á sjö fjallstinda og sendi inn ljósmyndir til sönnunar og átti þannig kost á að vinna til verðlauna. Sigurvegari keppninnar var Kristín Hlíðberg og hlaut hún í verðlaun útivistarbúnað frá versluninni Útilíf og fjölda úti- vistarbóka frá Eddu útgáfu. Önnur verðlaun hlutu Tóm- as Tómasson og leitarhund- urinn Árni og þriðju verðlaun féllu í hlut Reynis Þórarins- sonar. Vann fjallgönguleik Kristín Hlíðberg var að vonum kát þegar hún tók við vinningum. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.