Morgunblaðið - 02.10.2005, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Frakkar eru býsna lunknirvið danstónlist eins ogsannast hefur í gegnumárin; nægir að benda á
sveitir og listamenn eins og Laur-
ent Garnier, Cassius, Motorbass /
Etienne De Crecy, Daft Punk og
Air. Enn vekur ungur franskur
danstónlistarsmiður athygli, Vitalic,
þó uppruni hans hafi verið óljós um
hríð.
Sagan hermir að Vitalic sé af
úkraínsku bergi brotinn, fæddur í
Borodianka. Faðir hans var feld-
skeri sem sérhæfði sig í sæotrum
líkt og karlmenn í fjölskyldunni
höfðu gert mann fram af manni í
aldaraðir. Þegar járntjaldið féll
1989 ákvað Vitalic að leita fyrir sér
í velmeguninni fyrir vestan, tók sig
upp og fluttist til Þýskalands með
hundinn sinn, Mini Robot. Ekki var
lífið fyrir vestan járntjald eins auð-
velt og hann bjóst við og eftir að
hafa lifað á snapi og betli í nokkurn
tíma ákvað hann að reyna fyrir sér
sem hljóðfæraleikari – dró fram
trubckað sitt, þjóðlegt úkraínskt
hljóðfæri fornt. Í München komst
hann í tæri við raftónlistarmenn
sem leyfðu honum að vera með og
smám saman vann hann sér það
orð að hann komst að hjá þeirri
góðu útgáfu International Deejay
Gigolos. Fyrsta sem heyrðist í hon-
um þar var á stuttskífunni Poney
EP, sem kom út 2001 og vakti gríð-
arlega hrifningu, en lagið samdi
hann til að draga athygli að því hve
illa væri farið með smáhesta í sveit-
um Úkraínu.
Góð lygasaga
Svo hljóðar opinber ævisaga
Vitalic, góð saga, ekki satt, en ekki
sönn. Hið rétta er að á bak við
listamannsnafnið Vitalic og lyga-
söguna um úkraínskan uppruna er
franski tónlistarmaðurinn Pascal
Arbez-Nicolas, eða bara Pascal Ar-
bez. Í sögunni sem rakin var hér
fyrir framan, sem kokkuð var af
kynningarfyrirtæki, er það eitt satt
að Arbez sló í gegn undir nafninu
Vitalic fyrir lagið Poney, en annað
uppspuni. Lygasaga sem sett var af
stað til skemmtunar, en er síðan
löngu hætt að vera skemmtileg,
eins og vill verða með slíkar sögur.
Sanna sagan er eitthvað á þessa
leið: Þegar Pascal Arbez var
sautján ára gamall fór hann á tón-
leika með Daft Punk, sem var þá að
stíga fyrstu skrefin á frægðarbraut-
inni. Arbez hafði lengið haft áhuga
á tónlist án þess að vera beinlínis
heltekinn af henni, en hann lærði á
básúnu sem barn og hafði gaman af
því að hrista sig í takt við dans-
tónlist. Skemmst er frá því að segja
að Arbez fékk slíka uppljómun af
að sjá þá Daft Punk félaga á sviði
að hann strengdi þess heit að verða
tónlistarmaður að atvinnu.
Um leið og verslanir opnuðu dag-
inn eftir keypti Arbez sér Roland
hljóðgervla og tók til við að semja
tónlist sem mest hann mátti. Ári
síðar gaf hann út fyrstu tólftomm-
una og hafði þá tekið sér lista-
mannsnafnið Dima, en platan var
gefin út af fyrirtæki sem hann
stofnaði með nokkrum félögum sín-
um.
Nýtt aukasjálf
Dima nafnið dugði honum fram-
an af en einnig gaf hann út eitthvað
af lögum undir nafninu Hustler
Pornstar. Árið 2000 ákvað hann að
breyta aðeins til, slátra aukasjálf-
unum sem hann hafði notað fram
að þessu og taka sér nýtt nafn.
Heitir upp frá því Vitalic. Sem
Vitalic gekk honum betur að koma
sér á framfæri, nafnið skiptir vissu-
lega miklu í danstónlistinni, og ekki
leið á löngu að hann var búinn að
gera samning við International
Deejay Gigolos, sem var á þeim
tíma ein helsta útgáfa á ferskri
danstólist. Fyrsta lagið sem hann
sendi frá sér var svo áðurnefnt Po-
ney EP sem gerði allt vitlaust í
danshúsum Evrópu 2001. Önnur
lög af smáskífunni slógu líka í
gegn, La Rock 01 og You Prefer
Cocaine.
Þegar hér var komið sögu hefðu
líkastil flestir talið að björninn væri
unninn, nú myndi Vitalic drífa út
breiðskífu og síðan baða sig í seðl-
um, en annað kom á daginn. Vitalic
áttaði sig á því að hann hefði
kannski samið af sér þegar hann
gerði útgáfusamning við Int-
ernational Deejay Gigolos og ákvað
að taka sér frí frá sólóferlinum á
meðan hann greiddi úr þeim málum
með aðstoð lögfræðinga. Hann sat
þó ekki auðum höndum, tók upp lög
með Linda Lamb, en þau kölluðu
samstarfið The Silures. Hann tók
einnig upp lög með Alessandro Fa-
race, eða Al Ferox, undir nafninu
Vital Ferox.
Loksins breiðskífa
Það er ekki gott fyrir tónlistar-
mann að hverfa sjónum manna ár-
um saman og allra síst ef viðkom-
andi er að fást við danstónlist, enda
breytist fátt eins hratt. Vitalic hélt
þó sínu striki og þegar hann hafði
loks losað sig við alla samninga og
klárað öll verkefni gat hann tekið
upp þráðinn þar sem frá var horfið,
samdi við Pias um útgáfu á nýrri
plötu, OK Cowboy, sem kom út í
sumar en hefur ekki fengist hér á
landi af nokkru viti fyrr en nú.
Á plötunni eru útgáfurnar tvær
af Poney, sem vöktu svo mikla
hrifningu, en líka slatti af lögum
sem standa þeim meistaraverkum
danstónlistarinnar lítt að baki,
nefni sem dæmi My Friend Dario
sem er ótrúlega mögnuð gít-
artechnokeyrsla. Lögin stinga ann-
ars nokkuð í stúf miðað við það sem
tíðkast í danstónlist nú um stundir,
enda hefur Vitalic látið þau orð
falla að ekkert sé spunnið í slíka
tónlist nema menn geri í því að
brjóta allar óskráðar reglur. Hann
beitir tölvum í allt, öll hljóð eru
saman sett í tölvum, og þykir
reyndar með færustu forriturum í
danstónlistinni. Eins og hann lýsir
því þurfa danstónlistarsmiðir lítið
að kunna fyrir sér í hljóðfæraleik,
en aftur á móti skipti miklu að vera
sleipur í forritun.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Vitalic snýr aftur
Fáir standa Frökkum á sporði í danstónlistinni
eins og sannast á nýlegri skífu, Ok Cowboy.
Pascal Arbez-Nicolas sem kallar sig Vitalic.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 2 og 4 í þrívídd
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Göldrótt gamanmynd!
Göldrótt
gamanmynd!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
VARÚÐ: Þú gætir
farið úr kjálkaliðum
af hlátri
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
i t t i I !
ti r ti
Sýnd kl. 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Ó.H´T RÁS 2
Sýnd kl. 2 og 4 ísl.tal
Sími 564 0000í i
Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. 3.30
Sýnd kl. 2, 4 og 6 íslenskt tal
BETRA SEINT EN ALDREI
kl. 2, 4, 6, 8 og 10
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Óbeint framhald af
þáttaröðinni Jesú og
Jósefína sem var sýnd
við miklar vinsældir
á Stöð 2 síðustu jól.
Í þessari mynd fylgjumst við
áfram með tímafl akki Jósefínu
og þeim ævintýrum sem
hún lendir í þegar hún
fl akkar aftur í miðaldir!
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES
CRAVEN LEIKSTJÓRA SCREAM
MYNDANNA.
Sýnd kl. 6, 8, og 10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 2 og 4
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
Topp5.is
Topp5.is
Miðaverð 450 kr.
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 2
Í 36.000 FETUM VARÐ
HENNAR VERSTA MARTRÖÐ
AÐ VERULEIKA.
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.