Morgunblaðið - 14.12.2005, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samskip hafa
þrefaldað
veltuna á árinu
Hraðbyri
um Evrópu
á morgun
Fyrstu niðurstöður fjölþjóðlegrar rann-sóknar á bóluefni gegn legháls-krabbameini gefa vísbendingar umað ekki sé langt í að bólusetningar
geti hafist en þær gætu haft gríðarleg áhrif, sér-
staklega í löndum þar sem leghálskrabbameins-
leit er vanþróuð og dánartíðni vegna sjúkdóms-
ins há. Við krabbameinsleit eru tekin frumusýni
úr leghálsinum og við smásjárskoðun greindar
breytingar í frumukjörnum. Slíkar breytingar
eru kallaðar forstigsbreytingar því þær gefa til
kynna að konan sé í áhættu að mynda legháls-
krabbamein síðar meir.
Bóluefnið sem verið er að þróa vinnur gegn
HPV-veirunni, sem er nauðsynlegur orsaka-
valdur leghálskrabbameins, en nægir þó ekki
ein og sér. Fjölmargir stofnar eru til af veirunni
en talið er að stofnar 16 og 18 séu skæðastir og
bóluefnið vinnur gegn þeim. Talið er að um 80%
allra kvenna smitist af HPV-veirunni einhvern
tíma á lífsleiðinni og smitist mjög fljótlega eftir
að þær byrja að stunda kynlíf. Líkurnar aukast
með fjölda rekkjunauta en konur geta hins veg-
ar myndað ónæmi og þá eyðir ónæmiskerfið
veirunni.
Fyrstu rannsóknir meðal sjö þúsund kvenna
staðfestu að ónæmissvörun bóluefnisins leiddi
til ónæmissvörunar sem er í kringum fjörutíu
sinnum meiri en við náttúrulega sýkingu auk
þess sem aukaverkanir eru vægar sem engar.
Því var farið út í að kanna meðal um þrettán
þúsund kvenna hvort bóluefnið gæti hindrað
myndun miðlungi til sterkra forstigsbreytinga
og á þann veg komið í veg fyrir þróun legháls-
krabbameins.
Sjö hundruð íslenskar konur
tóku þátt í ransókninni
Um 20 þúsund konur víðs vegar um heim eru
þannig þátttakendur í rannsókn sem mun op-
inberlega ljúka í ársbyrjun 2007. Af þeim eru
um 700 íslenskar konur og stærsta einstaka
rannsóknarsetrið í rannsókninni er í Reykjavík.
Rannsóknin er tvíblind sem þýðir að helmingur
þátttakenda fékk virkt bóluefni en hinn helm-
ingurinn ekki, og vita þátttakendur ekki í hvorn
hópinn þeir falla. Þær niðurstöður sem komið
hafa fram gefa góða mynd af virkni bóluefnisins
og hefur lyfjafyrirtækið Merck sótt um skrán-
ingu lyfsins í Bandaríkjunum.
Rannsóknin fór þannig fram að byrjað var á
því að gefa þrisvar sinnum bóluefnissprautu, við
komu, á öðrum mánuði og á sjötta mánuði. Á
sjöunda mánuði mættu konurnar í hefðbundið
eftirlit með kvensjúkdómaskoðun, sem síðan er
endurtekin á tólf mánaða fresti í fjögur ár. Við
þessar skoðanir eru tekin frumu-
strok og ef þau sýna forstigs-
breytingar er framkvæmd leg-
hálsspeglun og tekin vefjasýni.
Ef vefjasýnin staðfesta að sterk-
ar eða miðlungi sterkar forstigs-
breytingar eru í sýnunum fer
konan í keiluskurð.
Við þá aðgerð er tekin keilu-
laga sneið neðst úr leghálsinum
þar sem algengast að legháls-
krabbamein myndist og forstigs-
breyttu frumurnar fjarlægðar. Á
þessu stigi er konan komin á
endapunkt í rannsókninni. Í upp-
hafi rannsóknarinnar var búið að
ákveða að þegar kominn var
ákveðinn fjöldi af slíkum til-
fellum væri rannsóknin mögulega marktæk og
þá hægt að skoða hvaða tilfelli væru í lyfleys-
uhópnum og hvaða tilfelli í þeim hópi sem fékk
bóluefnið.
Það sýndi sig að öll tilfellin, sem voru um
fimmtíu, voru í lyfleysuhópnum en það er talið
einsdæmi og gefa góð fyrirheit um framhaldið.
Ekki tímabært að hefja bólusetningar
„Þær veirur sem rannsóknin náði til greinast
í um 70% tilfella leghálskrabbameina en við vit-
um einnig að í hluta þessara tilfella finnast einn-
ig aðrir stofnar, sem taldir eru illkynja. Þannig
að ef við bólusetjum gegn stofnum 16 og 18
fáum við ekki hærri áhrif en 70% og mögulega
lægri því við vitum ekki hvað hinir stofnarnir
gera þegar þessir tveir eru slegnir út,“ segir
Kristján Sigurðsson, yfirlæknir á Leitarstöð
Krabbameinsfélags Íslands, sem telur ekki
ástæðu til að hlaupa til og hefja bólusetningu
áður en fleiri stofnum verði bætt
inn í bóluefnið sem auka munu
virkni efnisins, og þá jafnvel upp í
80 til 90%.
Kristján segir jafnframt gefið
mál að bóluefnið virki aðeins sem
varnarbóluefni en ekki sem með-
ferðarefni hjá konum með forstigs-
breytingar. Það sé einnig mjög dýrt
í framleiðslu og almenn bólusetning
kemur til með að verða kostn-
aðarsöm. „Ég er ekki í vafa um það
að bólusetning hefjist í mörgum
löndum á næsta eða þarnæsta ári
því þetta hefur til að mynda afar
mikla þýðingu í þeim löndum þar
sem leghálskrabbameinsleit er ekki
af svipuðum gæðaflokki og hér á
landi,“ segir Kristján og vísar til þess að dán-
artíðni hér á landi hafi lækkað um 70 til 75% frá
því hún var sem hæst í kringum árið 1964 þegar
reglubundin leghálskrabbameinsleit var tekin
upp. Hann segir að enginn vafi sé á því að bólu-
efnið muni leiða til mikilla breytinga.
Hann telur ekki tímabært að tala um að bólu-
setning komi í veg fyrir krabbameinsleitina og
hefur vissar áhyggjur af því að ef hafið væri að
bólusetja í dag, gæfi það falskt öryggi fyrir þær
konur sem fá bóluefni sem inniheldur tvo
stofna. „Þær teldu sig vera hólpnar en það er
svo langt frá því. Það eru þarna aðrir stofnar
sem valda um 35% af öllum leghálskrabbamein-
um og maður veit ekki hvernig þeir munu haga
sér er fram í sækir. Því er mjög nauðsynlegt að
jafnvel þær konur sem eru bólusettar mæti
áfram í leitina,“ segir Kristján.
Ekki áhrif á krabbameinsleit í náinni framtíð
Nýjar rannsóknir á bóluefni gegn leghálskrabbameini
gætu valdið byltingu í lækkun á nýgengi og dánartíðni
vegna sjúkdómsins. Kristján Sigurðsson, yfirlæknir á
Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands, kynnti
Andra Karli fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar.
Kristján Sigurðsson
andri@mbl.is
ÁFORMAÐ er að
stofna alþjóðleg samtök
um málefni Evrópuríkja
með það að leiðarljósi
að ræða valkosti við
samrunaþróun innan
Evrópusambandsins.
Þetta var ákveðið á ný-
afstaðinni ráðstefnu
hægrimanna í evrópsk-
um stjórnmálum í
Brussel sem haldin var
að undirlagi Daniels
Hannan sem situr á
Evrópusambandsþing-
inu fyrir breska Íhalds-
flokkinn. Auk þátttak-
enda frá Evrópu komu
einnig fulltrúar frá
Bandaríkjunum og Kanada og voru
þátttakendur um 70 talsins, m.a.
Ian Brzezinski, varaaðstoðarráð-
herra í bandaríska varnarmála-
ráðuneytinu, Morten Høglund,
þingmaður norska Framfara-
flokksins, og Guðlaugur Þór Þórð-
arson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. Vaclav Klaus, forseti
Tékklands, hefur verið valinn til að
fara fyrir samtökun-
um.
Í ræðu sinni á ráð-
stefnunni fór Guð-
laugur Þór yfir ár-
angur Íslands sem
EFTA-ríkis og rakti
m.a. að 40% kaup-
máttaraukning hefði
orðið frá árinu 1996
og erlendar skuldir
hefðu minnkað úr
50% af þjóðarfram-
leiðslu árið 1995 nið-
ur í tæp 20% nú.
„Hagvöxturinn hef-
ur verið um 4% und-
anfarin ár og at-
vinnuleysi 2% eftir
að hafa verið um 3% á liðnum ár-
um,“ segir hann. „Þegar við lítum á
ríki innan ESB sjáum við marg-
háttaða erfiðleika m.a. við að ná til-
ætluðum árangri með Lissabon
áætluninni sem gekk út á að gera
ESB samkeppnishæfasta umhverfi
í heimi. Þjónustuviðskipti innan
ESB eru nú minni en fyrir 10 árum
síðan og viðskipti virðast frekar
vera að aukast við ríki utan ESB.
Þá er ótalið mikið atvinnuleysi og
lítill hagvöxtur auk þess sem at-
vinnumarkaðurinn innan ESB-
ríkja líður fyrir ósveigjanleika.
Þetta er ekki mjög freistandi fyrir
Ísland og sýnir glöggt að vel er
hægt að lifa utan ESB.“
Miklir möguleikar
EFTA-ríkjanna
„Í mínum huga á EFTA hins
vegar mikla möguleika fyrir sér. Á
ráðstefnunni voru allir sammála
um mikilvægi þess að leggja meiri
áherslu á fríverslun og draga úr
miðstýringu eins og viðgengst í
ESB sem menn töldu vera þvert á
hina evrópsku leið sem byggst hef-
ur upp á fjölbreytni. Menn höfðu
líka áhyggjur af sjálfstæði þjóða
vegna ýmissa laga og reglna sem
flæða yfir ESB og erfitt er að átta
sig á hvernig aðkomu kjörinna að-
ila er háttað. Þess vegna lagði ráð-
stefnan áherslu á frelsi einstak-
linga og þjóða í Evrópu til athafna
og viðskipta en að minnka miðstýr-
ingu og skriffinnsku.“
Valkostir við samrunaþróun innan ESB
Áhersla á aukna fríversl-
un og minni miðstýringu
Guðlaugur Þór
Þórðarson
STÚLKURNAR á
myndinni, sem leggja
stund á listhlaup á
skautum, tóku sig vel
út á svellinu á jóla-
sýningu list-
hlaupadeildar
Skautafélags Reykja-
víkur sem haldin var
í vikunni í Skauta-
höllinni í Laugardal.
Félagið var stofn-
að árið 1873 af
menntaskólanemum
og er eitt af elstu
íþróttafélögum
Reykjavíkur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
List
hlaupar-
ar á
skautum