Morgunblaðið - 14.12.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
„... er opinská, leiftrandi og heillandi ... Bókin er vel og lipurlega
skrifuð og hefur þýðing Steinþórs Steingrímssonar tekist með
miklum ágætum ... ekki aðeins fyrir aðdáendur Lennons, heldur
alla þá sem ... láta sig sögu dægurtónlistar einhverju varða.“
– Sveinn Guðjónsson, Mbl.
Frábær bók sem varpar nýju ljósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aldar.
„... leiftrandi og heillandi“
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Það er enginn einsemdar- eða vesældarbragur á þessari bók ... Hún er
einfaldlega órúlega vel skrifuð, þar sem hvergi er dauður punktur ... frábær
penni með auga fyrir því skondna í tilverunni ...
– Össur Skarphéðinsson á vefsíðu sinni
Það þarf mikið hugrekki til að skrifa svona bók um hverfulleika lífsins ...
Alvaran er mikil en skoplegu hliðarnar gleymast ekki ... stíllinn er léttur og
leikandi.
– Jóhann Hjálmarsson, Mbl.
„Merkileg bók, falleg og einstæð örlagasaga ... þrátt fyrir návist dauðans
missir Ingólfur þó aldrei húmorinn.“
– Illugi Jökulsson
Dómarnir eru einróma: Frábærlega vel skrifuð
og skemmtileg bók um háalvarlegt efni.
„... einstæð örlagasaga ...“
Frábærar jólabækur
Ævi Jörgens Jörgensen, eða Jörundar hundadagakonungs, hefur alltaf
verið Íslendingum hugleikin. Í þessari bók er ótrúlegt lífshlaup hans
rakið allt frá æskuárunum í Kaupmannahöfn þar til hann
lýkur ævi sinni á Tasmaníu.
Sérlega vel skrifuð og vönduð ævisaga.
Einstakur lífsferill!
ATLANTSSKIP bjóða nú upp á
flugfrakt í samstarfi við Icelandair
Cargo, Bláfugl og Iceland Express.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir
að nú geti það boðið upp á heild-
stæða flutningsþjónustu, hvort sem
um flug- eða sjóflutninga sé að
ræða.
Atlantsskip eru með vikulegar
siglingar til og frá Evrópu en á 28
daga fresti til og frá Ameríku. Þá
býður fyrirtækið upp á reglulegar
flugsendingar til og frá öllum
heimshornum. Hjá fyrirtækinu
starfa nú um 30 manns.
Atlantsskip með
flugfrakt
TILKYNNT hefur verið í Kauphöll-
inni um kaup Aðalsteins Ingólfs-
sonar, varaformanns stjórnar SÍF,
á félaginu Saltfiskframleiðendur,
sem á lítinn hlut í SÍF, eða upp á ríf-
lega 431 þúsund hluti. Ekki er upp-
lýst um kaupverð á félaginu.
Aðalsteinn
kaupir Saltfisk-
framleiðendur
SÚ breyting hefur orðið á stjórn
Tryggingamiðstöðvarinnar að
Kjartan Broddi Bragason hefur
sagt sig úr henni í kjölfar þess að
Fjárfestingafélag sparisjóðanna
seldi sinn hlut í tryggingafélaginu
23. nóvember síðastliðinn. Sæti
Kjartans í stjórninni tekur Jón
Kristjánsson, kenndur við Sund.
Breyting á
stjórn Trygg-
ingamiðstöðv-
arinnar
SAMKVÆMT fréttabréfi Samtaka
atvinnulífsins, Af vettvangi, virðast
verðbólguárin gleymd hjá stórum
hluta þjóðarinnar. Vitnað er í ný-
lega könnun Gallup sem sýndi að
37% landsmanna hefðu litlar
áhyggjur af mikilli verðbólgu. Um
54% svarenda sögðu mikla verð-
bólgu valda þeim mjög eða frekar
miklum áhyggjum, 9% svöruðu
bæði/og eða í meðallagi. Sam-
kvæmt könnuninni er meirihluti
ungra Íslendinga, á aldrinum 16–24
ára, áhyggjulaus yfir mikilli verð-
bólgu, eða 59% svarenda.
37% áhyggjulítil
yfir verðbólgu
VERÐMÆTI vöruinnflutnings ann-
ars en skipa og flugvéla á fyrstu ell-
efu mánuðum þessa árs er rúmlega
rúmlega þriðjungi meira en á sama
tíma í fyrra að raungildi. Þetta kem-
ur fram í vefriti fjármálaráðuneyt-
isins. Í nóvembermánuði voru flutt-
ar inn vörur til landsins aðrar en
skip og flugvélar fyrir um 27,5 millj-
arða króna, samkvæmt bráðabirgða-
tölum sem byggjast á innheimtu
virðisaukaskatts. Ef tölurnar reyn-
ast réttar er nóvember stærsti inn-
flutningsmánuðurinn það sem af er
þessu ári, en júní og september fylga
þar fast á eftir.
Í vefritinu segir að að raungildi sé
innflutningur um 52% meiri í nóv-
ember í ár en í fyrra. Að sama skapi
sé meðalinnflutningur síðustu
þriggja mánaða um 44% meiri en á
sama tímabili á síðasta ári sem er
mesta aukning undanfarinna ára.
Meginskýringuna á auknum inn-
flutningi milli ára megi rekja til ým-
issa þátta. Segir í vefritinu að mikið
hafi verið flutt inn af fjárfesting-
arvörum sem sé að mestu leyti í
tengslum við stóriðjuframkvæmdir.
Olíuverðshækkanir og aukin einka-
neysla hafi einnig átt stóran þátt í
aukningu innflutnings.
Vöruinnflutningur
eykst um þriðjung
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Stóriðjan Aukinn innflutningur vegna stóriðjuframkvæmda vó þungt í tölum nóvembermánaðar. Á lóð Alcoa-
Fjarðaáls í Reyðarfirði eru framkvæmdir í fullum gangi sem og við gerð Kárahnjúkavirkjunar á hálendinu.
DANSKI kaupsýslumaðurinn Jesp-
er Henrik Jørgensen hefur keypt
Dennis Rohde út úr dönsku breið-
bandsveitunni ComX og á nú fyr-
irtækið ásamt Henrik Ottensten. Ís-
lenska félagið Dagsbrún kannaði
nýlega möguleika á því að kaupa
ComX en hætti við. Danskir fjöl-
miðlar segja að fjárhagsstaða
ComX sé slæm og skuldir þess séu
miklar.
Dagsbrún hætti
við ComX