Morgunblaðið - 14.12.2005, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.12.2005, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI SUÐURNES Hafnir | Kristín Jóhannsdóttir hefur opnað nýja einangrunarstöð fyrir gæludýr í Höfn- um, Einangrunarstöðina í Reykjanesbæ. Hingað til hefur ríkið átt slíka stöð í Hrísey en Kristín segir að yfirlýsing hafi verið gefin um að leggja ætti þá stöð niður. Morg- unblaðið fékk það þó ekki staðfest. Fyrstu dýrin komu í nýju stöðina þann fyrsta þessa mánaðar, en stöðin er ætluð hundum og köttum. „Öðrum dýrum er ekki hleypt inn í landið, nema þeim sem fara í einangrun í gælu- dýraverslunum,“ segir Kristín. „Það eru til dæmis páfagaukar, fuglar og fiskar.“ Dýrin koma í stöðina til Kristínar eftir að hafa farið í gegnum ferli erlendis, svo sem bólusetningar og heilbrigðisskoðanir. „Þau eru svo í einangrun hjá mér í 28–30 daga og á þeim tíma geng ég úr skugga um að það sé í lagi með þau, tek úr þeim blóð- og saursýni og fleira,“ segir Kristín. „Þeim er líka haldið í einangrun hverju frá öðru og gætt er ýtrustu varkárni í öllum smitvörn- um.“ Kristín segir að dýr hafi ávallt verið mikið áhugamál hjá sér. „Ég ákvað fyrst og fremst að fara út í þetta til þess að skapa mér atvinnu við það sem mér finnst gaman að gera. Við mæðg- urnar göngum hér til verks með bros á vör,“ segir Kristín, en dóttir hennar vinnur með henni í nýju stöðinni ásamt dýralækni og ein- um starfsmanni til viðbótar. Álag á dýrin að þurfa að ferðast norður í land Kristín segir að henni hafi fundist þörf á að setja upp einangrunarstöð nær flugvell- inum. „Það var óhemju álag á dýrin að þurfa allt- af að fara norður í land í einangrun,“ segir hún. „Þetta er búið að vera stórt og mikið verkefni hjá mér en ég er með mjög full- komna stöð sem uppfyllir öll skilyrði um útlit og starfsemi.“ Kristín segir stöðina nógu stóra til þess að taka við allri starfsemi sem áður fór fram í Hrísey. „Það átti ekkert að leggja niður stöðina í Hrísey en það má ekki reka þá stöð í sam- keppni við mig, án úrbóta, því hún er rekin með svo miklum undanþágum. Ég uppfylli öll skilyrði um svona rekstur en það gerir stöðin í Hrísey ekki,“ segir Kristín. „Ég hræðist ekki heiðarlega samkeppni en ég er auðvitað ekki sátt við að ríkisrekin stöð sé í sam- keppni við mig, nema á henni verði gerðar úrbætur. Á mig eru lagðar miklar kröfur, samkvæmt reglugerðum, og mér þykir sjálf- sagt að fara eftir þeim, en það sama á þá að gilda um hina stöðina. Svo er spurning hvort þar verði lagt í þessar úrbætur, því það fer óhemju kostnaður í að uppfylla þessi skil- yrði.“ Kristín segist ekki hafa séð stöðina í Hrís- ey en af teikningum og upplýsingum hennar að dæma hafi sín stöð margt umfram hina. Stöðin þar sé til dæmis ekki afgirt, þar séu ekki löggilt útibúr frá hverju búri eins og reglur segi til um og þar sé ekki bílskúr til að keyra dýrin inn í. „Stöðin mín er í alla staði fullkomin. Hún var tekin út og það var ekkert hægt að finna að henni,“ segir Kristín. „Svo er sóttvörnin hjá mér auðvitað miklu sterkari því það þarf að fara langa leið í gegnum landið og yfir mörg smitsvæði til þess að koma dýrunum í hina stöðina.“ Ný einangrunarstöð fyrir gæludýr sem opnuð hefur verið í Höfnum er sérbyggð fyrir starfsemina Uppfyllir öll skilyrði um rekstur Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is Eigandinn Kristín Jóhannesdóttir á og rekur Einangrunarstöðina í Reykjanesbæ. Búið að opna Nýja einangrunarstöðin stendur á afviknum stað, í Kirkjuvogshverfi í Höfnum. Naustaskóli | Á síðasta fundi skóla- nefndar var rætt um tilnefningar í vinnu- teymi til að útbúa þarfagreiningu fyrir nýj- an grunnskóla í Naustahverfi. Vinnuteymið vinni einnig tillögur að því hvernig staðið verði að hönnun og útboði verksins. Skóla- nefnd samþykkti að tilnefna Laufeyju Pet- reu Magnúsdóttur, Hermann Jón Tóm- asson og Gunnar Gíslason deildarstjóra skóladeildar í vinnuteymið.    Django Jazz | Á fundi menningarmála- nefndar voru lögð fram drög að þriggja ára samningi við Django Jazz Festival Akur- eyri um árlegan stuðning Menningarsjóðs Akureyrarbæjar við hátíðina. Samkvæmt drögunum verður alþjóðleg djangojazz- hátíð annað hvert ár á Akureyri, næst á árinu 2006. Menningarmálanefnd felur menningarfulltrúa að ganga frá samningi sem taki gildi á næsta ári.    Lóð fyrir leikskóla | Á fundi skóla- nefndar var tekið fyrir erindi frá Pétri Bolla Jóhannessyni byggingafulltrúa þar sem hann óskar eftir áliti skólanefndar á þörf fyrir leikskóla í Síðu- og Hlíðahverfi. Að mati skólanefndar má gera ráð fyrir að þörf verði fyrir nýbyggingar fyrir leikskóla í Síðu- og Hlíðahverfi fyrir um 170 börn á næstu árum, þar sem óljóst er um end- urnýjun á samningum vegna þess húsnæðis sem Akureyrarbær er nú með á leigu fyrir starfsemi leikskóla.    Foreldrakynning | Á fundi skólanefndar var fjallað um innritunarreglur í grunn- skóla Akureyrar og kynningu fyrir for- eldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2006. Í fjölskyldustefnu Akureyr- arbæjar er m.a. gert ráð fyrir að foreldrar og forráðamenn barna sem hefja nám í 1. bekk grunnskóla að hausti fái kynningu á öllum skólunum í janúar sama ár. Skóla- nefnd samþykkti að stefna að slíkri kynn- ingu í fyrsta sinn í janúar nk. m.a. með kynningarbæklingi og fól einnig deild- arstjóra skóladeildar að ræða við skóla- stjóra grunnskólanna um undirbúning og framkvæmd slíkrar kynningar. LAUTIN, athvarf fyrir geðfatl- aða sem Akureyrardeild Rauða krossins rekur, átti 5 ára afmæli nú í vikunni, en það var opnað 8. desember árið 2000. Á þeim tíma frá því athvarfið, sem er við Þingvallastræti 32 í um 100 fermetra einbýlishúsi, var opnað eru gestakomur um 12 þúsund talsins, en starfsemin hefur auk- ist eftir því sem árin líða. Í afmælishófi sem efnt var til sagði Jakob Björnsson formaður félagsmálaráðs að vilji væri til þess innan Akureyrarbæjar að eiga áfram samstarf um rekstur athvarfsins, en bærinn hefur málefni fatlaðra innan sinna vé- banda. Samningur um rekstur þess rennur út á næsta ári. Jak- ob sagði ljóst að skipta þyrfti um húsnæði, það sem nú væri fyrir hendi hentaði ekki lengur. Hann sagði að húsnæði leikskól- ans Klappa efst í Brekkugötu myndi losna á næsta ári og hef- ur þegar verið ákveðið að selja það ekki fyrr en niðurstaða fæst um hvort það henti undir starf- semina. Jónína Hjaltadóttir sem veitir athvarfinu forstöðu sagði að húsnæðið, Klappir væri að mörgu leyti ákjósanlegt og að fleiri gætu nýtt það einnig, en nú hefur t.d. Aflið, systursamtök Stígamóta aðstöðu í Lautinni um helgar. „Við lítum til þess að fé- lagasamtök af svipuðu tagi gætu fengið hér inni ef aðstaðan batn- ar,“ sagði Jónína, en eins og nú háttar hafa starfsmenn lítið af- arfélag Akureyrar sagði í afmælishófi Lautarinnar að menn hefðu fyrir opnun at- hvarfsins haft þá bjargföstu skoðun að brýn þörf væri fyrir húsaskjól fyrir geðfatlaða af þessu tagi og það hefði sýnt sig að svo væri, þörfin hefði verið brýn, notendur margir, þeir kæmu á eigin forsendum og fyr- ir marga hefði athvarfið orðið til að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lífsgæði hefðu aukist í kjölfar þess að þeir heimsæktu athvarfið reglulega. „Ég fullyrði að tilvist Lautarinnar hafi komið mörgum mjög vel, hún hefur dregið úr þörf margra fyrir sjúkrahúsþjónustu, auk þess að draga úr fordómum og eyða vanþekkingu almennings.“ meira mæli að rjúfa sig út úr einangrun sinni, að fara út úr húsi. Í Lautinni geta gestir pantað hádegisverð og segir Jónína að nú undanfarið hafi fleiri en áður pantað mat. Máltíðin er seld á 300 krónur og segir Jónína að merkja megi aukningu um leið og kjörin versna, „maður finnur það um leið í aukinni aðsókn hingað í hádeginu, það er mikils virði fyrir fólkið að hafa aðgang að ódýrri máltíð.“ Tilvist Lautarinnar hefur komið mörgum vel Úlfar Hauksson formaður Rauða krossins, sem rekur at- hvarfið í samstarfi við Akureyr- arbæ, ríkissjóð og Geðvernd- drep, sem einnig þjónar sem skrifstofa og jafnvel geymsla. Konur í fyrsta sinn í meirihluta gesta Um 12 þúsund gestir hafa komið í Lautina á síðastliðnum 5 árum, „þannig að þörfin fyrir þetta athvarf er greinilega fyrir hendi,“ sagði Jónína. Hún sagði aðsókn aukast jafnt og þétt, en yfirleitt hefðu karlmenn verið í meirihluta gesta. Því hefði það þótt nokkrum tíðindum sæta að nú í nóvember voru konur í meirihluta. „Þær hafa yfirleitt verið þetta 30 til 35%, en nú í fyrsta skipti í nóvember eru þær mun fleiri en karlarnir,“ sagði Jónína og kvaðst ekki hafa á því skýringu. Konur væri ef til vill í Þörf fyrir Lautina, athvarf fyrir geðfatlaða var mjög brýn Um 12 þúsund gesta- komur og aðsókn eykst Afmæli Fjöldi fólks fagnaði fimm ára afmæli Lautarinnar. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Horft til þess að flytja starfsemina í húsnæði leik- skólans Klappa SVA flytur | Á fundi framkvæmdaráðs var lagt fram minnisblað sviðsstjóra um flutning Strætisvagna Akureyrar að Rang- árvöllum. Framkvæmdaráð samþykkti að gengið verði til samninga við Norðurorku hf. um leigu á aðstöðu fyrir SVA að Rang- árvöllum og að flutningur starfseminnar fari fram eins fljótt og unnt er. Núverandi húsnæði SVA fái Slökkvilið Akureyrar til afnota.   
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.