Morgunblaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 27
BETLEHEM-líkön eru mjög algengt jóla-
skraut í kaþólskum löndum og á Ítalíu, þar
sem ég þekki þokkalega til, er vart til það
heimili sem ekki skartar slíku líkani á aðvent-
unni. Líkanið gengur þar undir heitinu „pre-
sepe“ og gegnir veigamiklu hlutverki ekki síst
þar sem börn eru til heimilis. Fyrir utan
kirkjur og inni í kaþólskum skólum eru gjarn-
an sett upp stór líkön af Betlehem með risa-
stórum styttum, en inni á heimilum er viðeig-
andi að hafa hæfilega stórt líkan með litlum
handskornum fígúrum, eða fígúrum sem mót-
aðar eru úr trjákvoðu.
Safnað um árin
Oft er það svo að ungt fólk sem hefur bú-
skap byrjar á að setja upp líkan af fjárhúsi
ásamt helstu persónum kristindómsins, Jós-
ep, Maríu, vitringunum þremur og hugs-
anlega líka af kú og asna. Með árunum stækk-
ar „þorpið“ og algengt er að keypt sé viðbót
við líkanið fyrir hver jól. Sérlega fínt þykir að
eiga stórt safn af styttum af helstu persónum
úr kristnum fræðum, ásamt aukapersónum,
fjárhirðum, búfénaði, brunni og eldstæði. Fín-
ast þykir að eiga hluti úr Betlehem-líkani sem
gengið hafa í arf kynslóð fram af kynslóð, sér-
staklega ef munirnir eru handskornir úr viði
og handmálaðir.
Börn færa vitringa nær fjárhúsinu
Sú hefð hefur skapast að þegar Betlehem-
líkan er sett upp í upphafi aðventu, eru vitr-
ingarnir þrír hafðir langt frá fjárhúsinu.
Börnin á heimilinu fá síðan það hlutverk á
hverjum morgni að færa vitringana nær fjár-
húsinu um leið og þau eru minnt á að líða fer
að jólum. Sá siður að opna dagatal er hins-
vegar lítt þekktur á Ítalíu. Og jólasveinar eiga
heldur ekki leið um Ítalíu til að setja gjafir í
skó út í glugga seinni hlutann í desember.
Á aðfangadag færa börnin vitringana alveg
upp að dyrum fjárhússins, þar sem María og
Jósep krjúpa við tóma jötu. Fyrir einhvers
konar kraftaverk og mildi er lítil stytta af
Jesúbarninu alltaf komin í jötuna að morgni
jóladags þegar börnin koma og kíkja. Þetta
eru, vel að merkja, börn sem vita frekar lítið
um jólasveina, en hafa þeim mun meiri
ánægju af því að sjá að Jesúbarnið er mætt á
staðinn til að fagna eigin fæðingarhátíð.
Táknmálið
Í Betlehem-líkaninu eru nokkrar lyk-
ilpersónur, sem gegna táknrænu hlutverki:
Fjárhúsið táknar fátækt og eymd, að-
stæður sem Kristur fæddist í, enda höfðu
foreldrar hans hvorki fjárráð né tækifæri
til að komast inn á gistiheimili.
BETLEHEM | Börnin kynnast boðskap jólanna
Færst hefur í vöxt að Íslend-
ingar skreyti heimili sín fyrir
jólin með líkani af fjárhúsinu
sem Jesús fæddist í. Brynja
Tomer eyddi hálfum mán-
aðarlaunum á Ítalíu í slíkt lík-
an sem er í miklu uppáhaldi.
Jósep táknar trúfestu. Hann vissi að heit-
mey hans átti von á barni, sem var ekki
hans. Í stað þess að fyllast afbrýðissemi
kraup hann við jötuna og trúði því sann-
arlega að Guðssonur myndi senn fæðast.
Kýr í fjárhúsinu er tákn um frjósemi.
Asni í fjárhúsinu er tákn um skort á þeirri
þekkingu og hugsun sem maðurinn býr yf-
ir.
Ástæða þess að styttur af kú og asna eru
jafnan höfð í fjárhúsinu er sú að þessi húsdýr,
sem voru mjög algeng á þessum tíma, héldu
hita á nýfæddu barninu með nærveru sinni og
andardrætti. Andardrátturinn er tákn um líf
og sumir trúa því að andardráttur Guðs hafi
blásið lífi í sál fyrsta mannsins á jörðinni.
Táknræn merking þessara dýra er því býsna
djúp.
Fjárhirðar heyrðu engla himins tala og
urðu í fyrstu hræddir. Þeir tákna tor-
tryggni mannsins gagnvarts Guðsorði.
Betlehem-líkan er flott jólaskraut hvort
sem menn vita af upprunalegri hugmynd kaþ-
ólskra manna um það eða ekki. Mér finnst það
jafnframt mögnuð leið til að kynna jólahald
fyrir börnum, eiginlega sniðugri en dagatal,
jafnvel þótt í því séu súkkulaðimolar á hverj-
um degi, því jólin höldum við jú til að minnast
fæðingar frelsara kristinna manna.
En ekki – eins og okkur finnst krúttlegt að
heyra börnin segja – til að halda upp á afmæli
jólasveinsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Færa vitringa í
átt að fjárhúsinu
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 27
DAGLEGT LÍF