Morgunblaðið - 14.12.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 29
DAGLEGT LÍF
„JÓLIN skerpa á kærleikanum í mannlegum
samskiptum, hvort sem við skrifum jólakort
með fallegum kveðjum eða kaupum gjafir til
að gefa öðrum. Allt kallar þetta á fallegar
hugsanir. Svo ég tali nú ekki um að elda góðan
mat handa öðrum,“ segir Spessi sem síðastlið-
inn föstudag bauð til sinnar árlegu Friðar-
máltíðar á aðventunni á veitingahúsinu Á
næstu grösum. „Ég er hrifinn af hefðum og
þetta er ein af mínum jólahefðum. Ég elda allt-
af sama matinn, hnetusteik, og ég fer alltaf
daginn eftir og tek þátt í danssýningu Kram-
hússins í Borgarleikhúsinu. Í þetta sinn leik ég
hreindýr,“ segir Spessi sem líka leggur þó
nokkuð í að gera auglýsingaplakat um Frið-
armáltíðina sína. „Við gerum plakatið saman,
ég og Ámundi Sigurðsson sem er grafískur
hönnuður.“
Friður á jörð spilar djass
Hnetusteikin er ævinlega skreytt með hvítu
flaggi, til að leggja áherslu á heiti hennar. En
hvers vegna heitir þetta friðarmáltíð? „Jóla-
máltíðin sjálf er friðarmáltíð. Og á jólunum
finnst mér eins og friður leggist yfir allt og
mér finnst meira að segja eins og veðrið lægi
alltaf um jólin. Það er gott að minna fólk á
nauðsyn friðar í sem víðustu samhengi,“ segir
Spessi sem tekur vel á móti gestum sínum og
það er mikið um kossa og knús, alveg í takt við
inntak máltíðarinnar. Andrúmsloftið er mjög
heimilislegt, Spessi röltir á milli borða, sest hjá
fólki og spjallar við það og klappar fyrir hljóm-
sveitinni, en það er ein hefðin enn í tengslum
við þessa máltíð. „Ég er alltaf með lifandi tón-
list til að skapa sérstaka stemningu og und-
anfarin þrjú ár hefur vinur minn Óskar Guð-
jónsson saxófónleikari sett saman band fyrir
þetta kvöld, en hljómsveit kvöldsins heitir æv-
inlega Friður á jörð, þótt hana skipi aldrei
sama fólkið frá ári til árs.“
Hnetusteikin góða:
Fyrir 10 manns:
3 b soðnar linsubaunir
3 b soðið hirsi
3 b soðin brún hrísgrjón
1 b rifið heilhveitibrauð
½ b. haframjöl
½ b. muldar
cashewhnetur
¼ b. sólblómafræ
¼ b. ólífuolía
1 b. niðursneiddur
laukur
fersk. salvía
eftir smekk
½ tsk. sellerífræ
hvítlaukur –
þrjú rif
salt eftir hendinni
ferskur chili
smátt skorinn
eftir smekk
Öllum efnum
blandað saman og
hrært þar til deigið
er mátulega stinnt
og sett í mót með
smjörpappír á botninum.
Baka í rúma klukkustund við 200°C.
Ef yfirborðið byrjar að brenna er hægt að
setja plötu yfir hleifinn.
Hleifurinn borinn fram og skreyttur með
friðarflaggi.
Frjálst er að frysta hleifinn eftir að hann
hefur kólnað og hita hann upp þegar rétti tím-
inn kemur.
Meðlæti: Kartöflumús gerð úr sætum kart-
öflum, trönuberjasulta, smjörsteikt sellerírót,
villisveppasósa og ferskt salat.
MATARKISTAN |Jólamatur grænmetisætunnar
Kossar, knús og kærleikur
Morgunblaðið/Sverrir
Friðarmáltíðin tilbúin á diski.
Spessi með hvítflaggaða hnetusteik og hljómsveit kvöldsins Friður á
jörð, en hana skipa Óskar Guðjónsson saxófón, Ómar Guðjónsson gítar,
Jóhann Ásmundsson bassa og Birgi Baldursson tommur.
Snjáð og kámug opna í uppskriftarbókinni
þar sem friðarmáltíðina er að finna.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
! "#$%& '( ' )*+%&
,-& ./ 0'' 111!23+22!&
4
4
5